Tíminn - 06.07.1972, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 6. júli 1972
TÍMINN
TrrtQQömTTm
5
Leitar skjóls
Litla stúlkan hér á myndinn
leitar skjóls undir regnhlifinni
sinni, og sömuleiðis undir regn-
hlifum manneskjanna sem
standa á þessum fótstalli. Þessi
fremur óvenjulega stytta hefur
verið reist fyrir framan skrif-
stofubyggingu byggingarfyrir-
tækis nokkurs i Hamborg, og
hefur listamaðurinn, sem stytt-
una gerði, Gerhard Brandes,
viljað sina á táknrænan hátt
markmið byggingarfyrirtækis-
ins, en það hefur að kjörorði að
það reyni eftir fremsta megni
að veita fólki þak yfir höfuðið.
Annars segja margir Hamborg-
arbúar, að styttan sé sérstak-
lega táknræn fyrir Hamborg,
þvi veðráttan sé slik þar i borg,
að fólk ætti aldrei að hætta sér
út fyrir hússins dyr nema að
hafa regnhlifina með sér.
Segir frá ástum sinum
og Garbo
Brezki ljósmyndarinn Cecil
Beaton hefur gefið út æviminn-
ingar sinar frá árunum 1944-
1948, sem hann kallar ham-
ingjusömustu ár ævi sinnar, en
á þeim árum komsthann i kynni
við kvikmyndaleikkonuna
Gretu Garbo, og gekk það meira
að segja svo langt, að sögn
Beatons, að hann bað hennar.
Kvikmyndaleikkonan, sem fáir
þekkja mjög náið, vildi ekki
giftast Beaton. Hún gat ekki
hugsað sér að lifa með honum,
það sem eftir væri ævinnar, og
eignast með honum börn. Hún
sagðist ekki geta tekið á sig þá
ábyrgð, sem þvi fylgdi að
eignast börn, að sögn Beatons.
Greta og Cecil voru mjög nánir
vinir i tvö ár, en þá kom að þvi,
að þau urðu að skilja. Með tárin
i augunum segist Beaton hafa
kvatt Grétu. Hann segist hafa
gjörsamlega falliö saman, en
Greta hafi aðeins horft á sig
með meðaumkun og siðan hafi
hún kvatt. Þar með var
sambandi þeirra lokið. Ekkert
gat fengið þessa óútreiknanlegu
leikkona, til þess að setjast i
helgan stein, og helga sif sitt
einum manni.
★
Fyrirbænir i Mið-
fjarðarrétt
A siðustu öld var uppi i Húna-
þingi maður, sem kallaður var
Sigurður skeggi, nokkuð ó-
væginn i orðum, þegar sá var á
honum gállinn. Eitt sinn var
hann staddur i Miðfjarðarrétt,
sennilega viðskálog tilallsvis.
Allt i einu vék hann sér það aö
bónda einum, rétti fram hönd-
ina i kveöjuskyni og mælti hátt
og skýrt, svo allir mættu heyra,
er nærstaddir voru:
„Komdu sæll og blessaður,
Jón minn á Litlu-Þverá. Það
vildi ég, að guð almáttugur
gæfi, að við yrðum aldrei upp-
visir, þú og ég.”
★
Billinn gengur fyrir
kolum
Þegar félagarnir Mike List-
Brain og David Trussell frá
Engiandi höfðu nýlega viðkomu
i Los Angeles á ferð sinni um
Kaliforniu urðu þeir að fá nýjar
birgðir af kolum, þar sem kola-
birgðir þeirra voru a þrotum,
en billinn, sem þeir ferðast i er
knúinn áfram á svipaðan hátt og
gömlu kolalestirnar. Billinn
þeirra, sem getur farið allt að 9
km á klukkustund hefur farið
um mestan hluta Evrópu og
sömuleiðis hafa þeir félagar
ferðazt á honum um Afriku,
Indland, Astraliu, Nýja Sjáland
og Kanada. En hvað haldið þið,
að billinn sé orðinn gamall?
Hann er frá árinu 1926 og er
Foden gufuvagn, sem brennir
um það bil einum poka af kolum
á hverjar 20 milur, sem hann
fer, eöa 30 km. Bretarnir hafa
aflað sér farareyris með þvi að
selja fólki aðgang aö bilnum,
þar sem þeir hafa viðkomu, og
fá menn þá jafnan að bregða sér
smáspotta i þessu óvenjulega
farartæki, sem eitt sinn var
notað til þess að flytja
byggingarefni mílli staöa i
London. Margir hafa haft
gaman af þessum stuttu öku-
feröum, enda væru félagarnir
ekki komnir þangað sem þeir
eru komnir, ef svo hefði ekki
verið, þvi töluverður kostnaður
er við að reka bilinn.
★
ísbirnirnir i hættu
Mikið er rætt um þaö, m.a. i
Noregi, hvort ekki sé hætta á
þvi, að isbjörnum veröi útrýmt
með of miklum veiðum.
Nokkrar hömlur hafa verið
settar á isbjarnaveiðar, en
nægilegar rannsóknir liggja
ekki fyrirum það, hversu mikið
er óhætt að veiða árlega, til þess
að hægt sé með nokkru öryggi
að segja til um það i hve mikilli
hættu birnirnir kunna aö vera.
Visindamennirnir segja, aö
isbirnirnir séu mjög merkileg
dýr, eins og reyndar má vist
segja um flest önnur dýr, sem
eiga útrýmingu yfir höfði sér.
★
Ilættir við vændishúsin
— fer að skrifa
Xaviera Hollander, sem til
skamms tima hefur stjórnað
vændiskvennahúsi i East Side
New York, hefur nú samþykkt
að fara frá Bandarikjunum af
fúsum og frjálsum vilja, en i
ráði var að flytja hana nauðuga
ef ekki vildi betur til frá Banda-
rikjunum til Amsterdam. Frúin
var yfirheyrð i sambandi við
rannsókn, sem fram fór i New
York á þvi, hversu mikil
spilling væri rikjandi innan
lögregluliðs borgarinnar. Frúin
segist hafa lagt sitt fyrra liferni
á hilluna, þar sem hún hyggist
leggja fyrir sig ritstörf. Ekki
segir hún þetta að ástæðulausu,
þvi hún hefur þegar skrifað
sjálfsævisögu sina, sem seldist
með eindæmum vel. Hún hefur
þrátt fyrir allt látið i ljós þá von
sina, að þegar hún kemur aftur
til Bandarikjanna verði vændi
löglegt þar i landi, svo margt
bendir til, aö þessi nýi
rithöfundur hyggist snúa aftur
til sins fyrra starfa siðar meir.
DENNI
DÆMALAUSI
„Hvers vegna ætti ég að vilja
bera bækurnar þinar, ertu veik
ur eða hvað?”