Tíminn - 06.07.1972, Qupperneq 11
Kimmtudagur <>. júli i<)72
TÍMINN
11
Verður engin kvenna-
knattspyrna í suniar?
- Stendnr stjórn KSÍ ekki við loíorð,
sem hún gaf kveníólkinu?
Hvenærfær kvenfólkið verkefni
i knattspyrnu? Þessi spurning
skaut upp kollinum, þegar
áhorfendur að leik tslands og
Danmerkur sáu kvennalið Ar-
manns og tA leika forleik. Á leik
kvennaliðanna mátti greinilega
sjá framfarir frá þvi i fyrra.
Stúlkurnar, sem léku á mánu-
dagskvöldið kunnu orðið meira
fyrir sér i iþróttinni, heldur en þá
og léku af meira öryggi. Það er
greinilegt, aðkvenfólkið er i góðri
æfingu.
lA-liðið komst yfir, 1:0 i fyrri
hálfleik, með marki sem
Ragnheiður skoraði en i siðari
hálfleik tóku Armannsstúlkurnar
völdin i sinar hendur, og sýndu
stórgóða knattspyrnu. Þeim tókst
að jafna, 1:1 með marki, sem
Bjami hljóp
á 21,8 sek.
Bjarni Stefánsson kom
heim úr utanför sinni i gær.
Ekki tókst honum að ná
Olympiulágmarkinu, i
ferðinni, en nálægt þvi er
hann, vantar aðeins 6/10 úr
sek. i 400 m hlaupi.
Bezti timi Bjarna i ferðinni
var 21.8 sek. i 200 m hlaupi og
47,9 sek i 400 m hlaupi.
Næsta mót, sem Bjarni
tekur þátt i, er Afmælismót
FRl 10., 11 og 13. júli, en þar
fær hann harðsnúna
keppinauta.
Bezto
spretthlanparar
Noregs koma!
ÖE-Reykjavik
Það verða 11 norskir
iþróttamenn,sem taka þátt i
Afmælismóti FRl eftir helg-
ina. Við höfum sagt frá
keppendum, sem norska
frjálsiþróttasambandið
sendir, kringlukastaranum
Tormod Lislerud,
kúluvarparanum Björn
Bang Andersen og 400 m
hlauparanum Per Rom. Nú
hefur norska félagið ákveðið
að senda 8 iþróttamenn og i
þeirra hópi eru tveir beztu
spretthlauparar Noregs, þeir
Audun Garshol, sem hefur
hlaupið 100 og 200 m á 10,6 og
21,4 sek og Terje Hellesylt,
sem á timana 10,6 og 21,7
sek.
Auk þeirra koma 6 milli-
vegalengdahlauparar sem
eiga timana 3:52 til 3:58 min
i 1500 m og i kring um 9
minútur i 3 km.
Auður Rafnsdóttir, skoraði með
vinstrifótarskoti utan úr vitateig
— algjörlega óverjandi i hliðar-
netið fjær. Stuttu siðar skoraði
Ólöf ölafsdóttir sigurmark Ár-
manns. Hún lék á tvær Skaga-
stúlkur og brunaði að markinu, og
það virtist ekkert fát vera á
henni, hún lék eins og þrælvanur
knattspyrnumaður, upp aö mark-
teig, og renndi knettinum örugg-
lega i netið.
Lauk þvi þessum leik, sem
áhorfendur höfðu mjög gaman af,
með sigri Ármanns 2:1.
Þegar við höfðum samband við
Jón Hermannsson þjálfara Ar-
mannsliðsins og spurðum hann,
hvort kvenfólkið hefði mikinn
áhuga á knattspyrnu, sagði hann:
— Jú, áhuginn er mikill, en það
vantar bara verkefni fyrir
.stúlkurnar. Það var búið að lofa
þeim þvi fyrir löngu að komið
yrði á móti fyrir þær i sumar. Þau
loforð hafa verið svikin og
stúlkurnar mjög sárar út af þvi.
Sumar þeirra eru jafnvel að
hugsa um að hætta knattspyrnu.
Ég veitt.d. um fjögur félög sem
hafa kvennaknattspyrnu, á dag-
skrá, það eru Armann, 1A,
Vikingur og Völsungar. Það
myndu fleiri félög bætast i hópinn
ef sett yrði á mót fyrir kvenfólkið,
sagði Jón að lokum.
Af þessu sést, ab loforð þau,
sem stjórn KSt gaf i vor um
kvennaknattspyrnu, hafa verið
lögð i salt. Það er ekki gott að
hvetja kvenfólkiö til að æfa knatt-
spyrnu, i sumar, eins og gert var
eftir innanhússmótið i knatt-
spyrnu, ef ekkert er svo gert fyrir
það. Hér með skora ég á stjórn
KSl að koma á kvennakeppni i
sumar þó að það væri ekki nema
bikarkeppni kvenna. Væri t.d.
hægt að setja hana á sem forleiki i
bikarkeppni KSl (karla) SOS.
„Kofflið með
Frazier”
„Komið með Frazier, látið mig
fá hann, þá skal ég sýna ykkur,
hver er sá bezti”, kallaði Cassius
Clay, eftir að honum var dæmdur
sigur yfir Jerry Quarry i 9. lotu.
Hann var búinn að leika Jerry svo
grátt, að það þurfti einnig að
stöðva keppnina i 6. lotu, og mun-
aði þá engu, að Clay væri dæmdur
sigur. 7500 áhorfendur sáu leik-
inn, og var þeim strax i 3. lotu
ljóst, að hverju stefndi!
Umsjón Alfreð Þorsteinsson
Leika Brasilíumenn
hér i suraar?
- Miklar líkur eru á því, að ÓL-lið Brasilíumanna
í knattspyrnu komi hér við á leiðinni til Munchen
Miklar likur eru á þvi, að ÓL-
landslið Brasiliu i knattspyrnu
komi hingað til lands á leið sinni á
ÓL-leikana i Munchen og leiki hér
einn landsleik. Þá eru einnig
möguleikar á að 1. deildar lið frá
Brasiliu komi hér við, þegar þau
fara i keppnisferðalög til Evrópu.
Þetta er haft eftir Alberti Guð-
mundssyni, formanni KSl, sem
var erlendis i júni og sat þar
marga fundi með knattspyrnu-
leiðtogum flestra landa heims.
Það er bara beðið eftir bréfi frá
Brasiliu, þar sem er sagt frá þvi,
hvort ÓL-liðið á möguleika á að
Óskabörnin
í annað sæti
Einn leikur fór fram i 2. deild á
Melavellinum s.l. þriðjudags-
kvöld. Þar mættust Armann og
FH i miklum baráttuleik. Harkan
var mikil hjá liðunum, og höföu
leikmenn liðanna mjög hátt, voru
með stanzlaus köll allan leikinn
svo að maður furðaði sig oft á þvi,
að þetta gætu verið fullorðnir
menn að leika knattspyrnu.
FH-ingar tóku leikinn i sinar
hendur i fyrri hálfleik, og þeim
tókst að skora tvö mörk á tveim
min. Fyrst skoraði Helgi
Ragnarsson á 11. min og á 13. min
bætti Pálmi Sigurbjörnsson ööru
við. Það var eins og Armannsliðið
brotnaði niður við þetta mótlæti,
og þvi tókst aldrei að ná sér á
strik i fyrri hálfleik. FH-ingar
bættu svo við þriðja markinu, rétt
fyrir leikhlé. Bezti maður liðsins,
Ólafur Danivalsson einlék upp að
endamörkum og gaf þaðan
knöttinn fyrir markið, þar sem
Leifur átti ekki i erfiðleikum meö
að skora.
I siðari hálfleik jafnaðist
leikurinn, og sóttu þá Ár-
menningar mun meira, en FH-
ingar tóku oft spretti, sem
orsökuöu mikla hættu. Ar-
menningar skoruðu eitt mark i
siðari hálfleik, markið gerði Guð-
mundur Sigurbjörnsson, en hann
einlék upp völlinn, lék á mark-
vörð og skoraði frá markteigs-
horni.
FH og Armannsliðið léku
svipaða knattspyrnu i leiknum og
þar var harkan látin sitja i fyrir-
rúmi. Ármenningarnir eru likam-
lega sterkari og þeir eru mjög
duglegir. Það var mikið um for-
föll i Ármannsliðinu — tveir voru i
keppnisbanni og þrir á sjúkra-
lista.
FH-liðið sem svo mikið hefur
veriö talað um i sumar, er ekki
eins gott og af er látið, leikmenn
liðsins hugsa mikið um að vera
harðir, en hafa ekki likamlegt
þrek til þess. Verða þeir oftast að
láta i minni pokann i návigi og
það hleypur i skapið á þeim og
brýztútihrópumogköllum. SOS.
koma hér við. Ef af heimsókn
ÓL-liðs Brasiliumanna verður, þá
er það fyrsta liðið frá S-Ameriku,
sem kemur hingað til landsins til
að leika knattspyrnu. Eins og
flestir vita, standa Brasiliumenn
mjög framarlega i knattspyrn-
unni. Brasiliumenn eru núver-
andi heimsmeistarar i knatt-
spyrnu. Allir þekkja nafnið Péle
og vita um hans afrek i knatt-
spyrnunni. Hann varð fyrst
heimsfrægur i heimsmeistara-
keppninni i Sviþjóð 1958, þá
aðeins 17 ára að aldri. Atti hann
stóran þátt i þvi, að Brasiliumenn
urðu heimsmeistarar þá. Einnig
lék hann stórt hlutverk þegar
Brasiliumenn urðu heimsmeist-
arar i Chile 1962 og i Mexikó 1970.
Þótt það sé ekki atvinnumanna-
landsliðið, sem leikur fyrir hönd
Brasiliu á ÓL-leikunum i
Múnchen, þá eru það ekki neinir
klaufar, sem komast i ÓL-lið
þeirra. Hver veit, nema ein-
hverjir leikmenn úr ÓL-liðjnu
verði orðnir stórstjörnur i at-
vinnumannalandsliði Brasiliu
fyrren varir.
SOS.
Mynd: Knattspyrnusnillingurinn
Pélc (svarta perlan).
1. dei Idarbaráttan
heldur áfram í kvöld
þá leika Fram og Breiðablik á Laugardalsvellinum
og Valsmenn mæta Keflvíkingum í Keflavík
i kvöld verða leiknir tveir leikir
i 1. deildar krppninni i knatt-
spyrnu. i sviðsljósinu verða topp-
liðin i 1. deild Fram og Keflavik,
og lcika þau bæði á heimavelli.
Fram inætir Breiðabliki á
l.augardalsvellinum kl. 20.00 og á
sama tima mætast Keflvikingar
og Valsmrnn á grasvellinum i
Keflavik. Það má búast við
hörkuleikjum á báðum vig-
stiiðvum og það verður örugglega
liart bari/.l um stigin. Fram og
Keflavik hafa ekki enn tapað leik
i I. deild, og vcrður þvi fróðlegt að
vita, hvort Breiöabliksmenn og
Valsmenn setja þar strik i
reikninginn i kvöld.
Leikir liðanna i fyrra fóru
þannig:
Keflvikingar og Valsmenn
gerðu jafntefli, 2:2, i mjög
skemmtilegum og vel leiknum
leik. Mikill hraði var i leiknum og
skoruðu Valsmenn strax á 2. min
leiksins. Mþrk Vals skoruðu
Hörður Hilmarsson og Ingi B. Al-
nertsson, en fyrir Keflavik
skoruðu Steinar Jóhannsson og
Magnús Torfason.
Það má fastlega reikna með
þvi, að leikurinn i kvöld verði
skemmtilegur og spennandi.
Valsmenn hafa sýnt mjög góða
leiki i 1. deildinni, og hafa þeir
mikinn hug á þvi aö vinna
Keflavikurliðið, sem hefur sýnt
mjög misjafna leiki. En eitt má
hafa i huga, Keflvikingar eru
erfiðir heim að sækja og tapa
sjaldan leik á heirnavelli.
Þegar Fram lék sinn heimaleik
gegn Breiðabliki i fyrra, þurftu
þeir að leika á Melavellinum
(heimavelli Breiðabliks) þvi að
viðgerð stóð yfir á Laugardals-
vellinum. Breiðabliksliöið lék þá
sinn fyrsta leik i 1. deild, og mátti
þola tap, 2:2 i leik, sem þótti ekki
góður. Mörk Fram, skoruðu
Arnar Guðlaugsson (nú
Völsungum) og Erlendur
Magnússon.
Frh. á bls. 15
Gnðjón og Gnðmnndnr
ná OL-lámarki
ET-Reykjavik
Á sundmóti sem fram fór i
Laugardalslauginni á þriðju-
dagskvöld, náðú tveir is-
lenzkir sundmenn OL-lág-
markinu. Það voru þeir
Guöjón Guömundsson og Guð-
mundur Gislason. Guöjón
synti 100 m bringusund á
1:10,9 min og Guömundur 200
m fjórsund á 2:19,0 min. Þessi
afrek eru jafnframt tslands-
met.
Anægjulegt er, að islenzkt
sundfólk hafi náö þessum
eftirsötta árangri. Viðbúiö er,
að fleiri fylgi á eftir þessum
tveimur, t.d. Finnur Garðar-
son og Friðrik Guðmundsson,
en þá skortir litið upp á þaö.
Þess má og geta, aö Lisa R.
Pétursdóttir, hefur náö OL-
lágmarkinu, fyrir skömmu á
móti i Bandarikjunum en óvist
er, hvort hún keppir á
Ólympiuleikunum fyrir hönd
íslands.
Meö þvi að ná lágmarkinu
hefur Guðmundur tryggt sér
far á 4ju OL en fyrst keppti
hann á OL i Róm 1960. Ferill
Guðmundar er einstakur
innan islenzkrar iþrótta-
hreyfingar, og þótt viðar væri
leitað.