Tíminn - 08.07.1972, Blaðsíða 11
Laugardagur 8. júli 1972
Umsjón Alfreð Þorsteinsson
- höíðo 3:1 yfir gegn Keílavík þegar 12 mín. vorn til leiksloka, en Keflvíkingnm tókst að jafna, 3:3
VALSMEM MISSTl EM EIM LEIKIM
iIt dR mmmm í sér;
Enn einu sinni urðu Valsmenn
að bita i það súra epli að missa
sigurleik niður i jafntefli á siðustu
minútu. Þegar þeir léku gegn
Keflvikingum i 1. deild s.l.
Ingi B. Albertsson skoraöi „Hat
trich” gegn Keflavik.
fimmtudagskvöld á grasvellinum
i Keflavik, komust þeir i 3:1, en á
siðustu 12 min. fengu þeir á sig
tvö mörk — jöfnunarmark Kefl-
vikinga var skorað einni min. fyr-
ir leikslok. Þetta er þriðji leikur-
inn. sem Valsmenn hafa misst úr
sigurleik i jafntefli; fyrst var það
gegn Breiöabliki, svo gegn Fram
og núna gegn Keflavik. Ef heppn-
in hefði verið með liöinu i þessum
þremur leikjum. þá væri liöið i
efsta sæti i 1. deild, með 8 stig.
En litum þá á gang leiksins i
Keflavik:
Það voru ekki liðnar nema 4
min. af leiknum, þegar Ingi B. Al-
bertsson skoraði fyrsta markið i
leiknum, með föstu jarðarskoti.
Átta min. siðar bætti hann við
öðru markinu fyrir Val. Jóhannes
Edvaldsson átti gott skot að
marki, sem markmaður varði, en
missti knöttinn til Inga, sem skor-
aði.
Keflvikingar komust ekki á
blað fyrr en á 36. min., en þá skor-
aði Friðrik Ragnarsson, sem er
byrjaður að leika með Kefla-
vikurliðinu á ný, fyrsta mark
þeirra. Var gtaðan þvi 2:1 fyrir
Val i hálfleik.
Á 10. min. siðari hálfleiks bætti
Ingi Björn enn einu markinu við
fyrir Valsmenn, og voru þá áhorf-
endur, sem flestir voru Kefl-
vikingar, farnir að ókyrrast, og
var það engin furða, þvi að það
þurfti kraftaverk til að lið þeirra
tapaði ekki leiknum. En leikmenn
Keflavikurliösins voru ekki á þvi
að gefast upp og bezti maður liðs-
ins, Astráður Gunnarsson, dreif
liðiö áfram með dugnaöi og
ódrepandi keppnisskapi. Liðið
sótti stift aö Valsmarkinu, en
leikmönnum liðsins ætlaði ekki að
takast að koma knettinum fram
hjá Sigurði Dagssyni, sem varði
mjög vel.
En þótt Sigurður sé góöur, þá
ver hann ekki allt — hann réð t.d.
ekki við skot Friöriks Ragnars-
sonar, sem komst einn inn fyrir
Valsvörnina og skoraöi örugg-
lega. Ódrepandi baráttuvilji Kefl-
vikinganna rekur þá áfram og
þeir sækja nær stanzlaust siðustu
min. Þegar ein min. var til leiks-
loka, myndaðist mikil þvaga við
Valsmarkið. Knötturinn var inni i
þvögunni, en kom fljótt i ljós — þá
i netamöskvunum hjá Val. Mark-
iö skoraði Grétar Magnússon, og
var það siðasta mark leiksins,
sem lauk með jafntefli, 3:3.
Rigning og leiðindaveður, setti '
óskemmtilegan svip á leikinn.
Valsliðið lék oft mjög góða knatt-
spyrnu i leiknum, miöað við að-
stæður, en þaö er eitthvað að hjá
liði, sem tapar niður leikjum und-
ir lokin, eins og Valsliðið hefur
gert i þremur leikjum. Beztu
menn liðsins voru Sigurður Dags-
son og Ingi B. Albertsson, sem lék
sinn bezta leik til þessa i sumar.
Keflavikurliðið er einnig mjög
mistækt lið. Það er eitthvað að
Framarar hafa staöið við loforð sitt
- ætluðu að vera taplausir í 1. deild, þegar Elmar Geirsson kæmi heim til að leika með þeim
Framarar hafa staðið við það,
sem þeir lofuöu Elmari, að vera
taplausir i 1. deild þegar hann
kæmi heim frá V-Þýzkalandi.
Marteinn Geirsson skoraði sitt
annaö mark með skalla i 1. deild,
i leiknum gegn Breiðabliki.
Framarar eru óstöðvandi i 1.
deildar keppninni um þessar
mundir. Siðustu fórnarlömb
þeirra voru Breiðabliksmenn, en
Framarar sigruðu þá á I.augar-
daisvellinum s.l. fimmtudags-
kvöld, 3:1, i frekar daufum lcik.
Það er alveg merkilegt að liðin
sem inæta Breiöabliksliðinu,
virðast aldrei ná sinu bezta hcld-
ur falla þau niöur i sama gæða-
flokk og Breiöabliksliðið. Eru þvi
flestir leikir, sem Breiðabliks-
menn leika, frekar daufir.
Framliðinu tókst að skora strax
á 4. min. leiksins, en markið var
dæmt af vegna rangstöðu, og var
það frekar strangur dómur hjá
dómaranum, þvi að linuvörðurinn
sem var vel staðsettur veifaði
ekki. En á 14. min skora svo
Framarar löglegt mark. Eggert
Steingrimsson tekur hornspyrnu
og sendir knöttinn fyrir mark
Breiðabliks, þar sem Marteinn
Geirsson kemur á fullri ferð og
skallar i markið.
Eftir þetta mark dofnaði heldur
yfir leiknum, og liðin komust ekki
i teljandi marktækifæri. Það eina
sem skapaðist, var þegar
að Guðmundur Þórðarson komst
inn fyrir Framvörnina og skaut i
stöngina að utanverðu.
Á 10. min. siðari hálfleiks skora
Framarar enn eitt skallamark
sitt i Islandsmótinu. Baldur
Scheving brunar fram völlinn
með knöttinn, gefur hann út á
kant til Erlendar Magnússonar,
sem sendir siðan knöttinn fyrir
Breiðabliksmarkið, þar sem
Kristinn Jörundsson er og skallar
knöttinn i netið. Stuttu siðar fá
Breiðabliksmenn hornspyrnu,
knötturinn svifur fyrir Fram-
markið, þar sem Þorbergur Atla-
son og Einar Þórhallsson stökkva
upp. Þorbergur nær knettinum en
missir hann til Hinriks Þórhalls-
sonar, sem sendir hann i netið.
Eftir markið tviefldust Breiða-
bliksmenn og sóttu mikið , en án
árangurs.
Framarar innsigla sigurinn svo
á 24. min. Kristinn leikur fram
miðjuna með knöttinn og dregur
að sér tvo varnarmenn Breiða-
bliks, en við það losnar um Er-
lend. Sendir þá Kristinn knöttinn
til Erlendar, sem leikur með hann
upp að vitateig og sendir hann
þaðan i markið. Siðustu min.
leiksins léku Framararnir eins og
hinir öruggu sigurvegarar, þvi að
Breiðabliksliðið náði sér aldrei á
strik eftir markið.
Framliðið, sem hefur staðið við
það loforðsitt að vera taplaust i 1.
deild þegar Elmar Geirsson kem-
ur, lék betri knattspyrnu i leikn-
um en Breiðabliksmenn. Þó náöu
þeir aldrei að sýna sitt rétta and-
lit. Beztu mennirnir i liðinu voru
leikmenn öftustu varnarinnar,
þeir Marteinn, Sigurbergur,
Ágúst og Baldur, með Þorberg
fyrir aftan sig. Þessir leikmenn
hafa aðeins þurft að hirða knött-
inn tvisvar úr netinu i 1. deildar
keppninni. Þá áttu tengiliöirnir
og framlinuspilararnir ágætis
kafla.
Breiðabliksliðið náði sér aldrei
á strik i leiknum, og lék það langt
undir getu. Beztu leikmenn Iiðs-
ins voru Ólafur Hákonarson
markvörður og Bjarni Bjarnason.
Framlinan i liðinu átti sér aldrei
viðreisnar von gegn hinni sterku
vörn Fram.
SOS.
hjá liðinu, en það hefur gert fjög-
ur jafntefli, og hin sterka vörn
liðsins hefur fengið sex mörk á sig
i tveimur siöustu leikjum. Einnig
vekur þaö athygli, aö liðið virðist
ná beztu leikköflunum sinum
undir lok leikjanna. Bezti maður
liðsins var Astráður, og geta
Keflvikingar þakkað honum jafn-
teflið gegn Val.
Landsleiknum
gegn Færeyjnm
frestað fram
á miðvikndag
Landsleikurinn i knattspyrnu
milli Islands og Færeyja, sem
fram átti að fara á morgun, hefur
verið færður fram á miðvikudag.
Hætt hefur verið viö aö láta
landsliö 21 árs og yngri leika gegn
landsliði Færeyja.
Þorsteinn Þorsteinsson.
Þorsteinn Þorsteinsson
keppir á afmælismótinn
OE — Reykjavik.
Hinn góðkunni hlaupari,
Þorsteinn Þorsteinsson, sem
dvaldist i Bandarikjunum i
vetur, er væntanlegur til
landsins á morgun, og tekur
hann þátt i Afmælismóti FRt,
sem hefst á mánudag. Hann
keppir i 400 og 800 m hlaupi.
Þorsteinn dvelst hér i sumar
og tekur m.a. þátt i lands-
keppnisförinni til Noregs i lok
mánaðarins, og vonandi tekst
honum að ná ÓL-lágmarkinu
og verða meðal keppenda á
ÓL i Milnchen.
Afmælismót KSÍ:
Faxaflóanrvalið sigraði
Revkjavík ’56 6:0
> Celtic vann Cowal 4:3
Afmælismót KSl hélt áfram s.l.
fimmtudagskvöld á Akranesi.
Leiknir voru tveir leikir þar, og
voru þeir mjög skemmtilegir.
Faxaflóaúrvaliö stendur bezt aö
vigi i mótinu eftir tvær umferðir,
er eina liðiö, sem ekki hefur tapað
leik.
Órvalið mætti Reykjavik ’56,
sem er skipað ungum leikmönn-
um frá Reykjavikurfélögunum.
Þeir stóðu i Faxaflóaúrvalinu i
fyrri hálfleik og fengu ekki nema
TVEIR VESTUR-ÞJÓD-
VERJAR i FRÍ-MÓTIM
Keppendnr verða 100 frá 7 þjóðum
I gærkvöldi fékk FRt skeyti
frá Vestur-Þýzkalandi þar
sem segir, að tveir v-þýzkir
frjálsiþróttamenn muni koma
til Reykjavikur og keppa á Af-
mælismótinu eftir helgina.
Það eru Karl Heiniz Stein-
metz, sem kastað hefur
kringlu 58,62m, og Hans —
Dieter Moeser, sem varpað
hefur kúlu 19,04 m.
Keppendur á móti þessu,
sem er eitt mesta iþróttamót,
sem fram hefur farið hér á
landi, verða þá frá 7 þjóðum,
og skráðir keppendur eru ná-
kvæmlega 100.
tvö mörk á sig. En i siðari hálfleik
náöu „úrvalspiltarnir” að sýna
þeim yngri tennurnar og skora
fjögur mörk hjá þeim. Endaði þvi
leikurinn 6:0 fyrir Faxaflóaúrval-
iö. Mörkin skoruðu: Leifur
Helgason 2, Hörður Jóhannesson,
Asgeir Sigurvinsson, Ottó Guð-
mundsson og Gisli Torfason.
Þegar skozku liðin Celtic og
Cowal mættust, i siðari leik
kvöldsins, var hart barizt, og
skoruðu liðin falleg mörk.
Þegar 2 min. voru til leiksloka,
var staðan 3:3. Celtic var alltaf
fyrra til að skora, en leikmenn
Cowal jöfnuðu alltaf. En á siðustu
min. leiksins komst einn leikmaö-
ur Cowal einn inn fyrir vörn Cel-
tic og lék á markvörð — stóð einn
fyrirgalopnu markinu, en honum
mistókst aö skora. Leikmenn Cel-
tic fengu knöttinn, brunuðu fram
og tókst að koma honum i netið,
áður en leiknum lauk.
Lesið flm íþróttir í
blaðiDD á morgnn
1 blaðinu á morgun birtist spáin
fyrir siöari dag unglingalands-
keppninnar. Þá verður ýmislegt
annað um iþróttir.