Tíminn - 08.07.1972, Qupperneq 11

Tíminn - 08.07.1972, Qupperneq 11
Laugardagur 8. júli 1972 Umsjón Alfreð Þorsteinsson - höíðo 3:1 yfir gegn Keílavík þegar 12 mín. vorn til leiksloka, en Keflvíkingnm tókst að jafna, 3:3 VALSMEM MISSTl EM EIM LEIKIM iIt dR mmmm í sér; Enn einu sinni urðu Valsmenn að bita i það súra epli að missa sigurleik niður i jafntefli á siðustu minútu. Þegar þeir léku gegn Keflvikingum i 1. deild s.l. Ingi B. Albertsson skoraöi „Hat trich” gegn Keflavik. fimmtudagskvöld á grasvellinum i Keflavik, komust þeir i 3:1, en á siðustu 12 min. fengu þeir á sig tvö mörk — jöfnunarmark Kefl- vikinga var skorað einni min. fyr- ir leikslok. Þetta er þriðji leikur- inn. sem Valsmenn hafa misst úr sigurleik i jafntefli; fyrst var það gegn Breiöabliki, svo gegn Fram og núna gegn Keflavik. Ef heppn- in hefði verið með liöinu i þessum þremur leikjum. þá væri liöið i efsta sæti i 1. deild, með 8 stig. En litum þá á gang leiksins i Keflavik: Það voru ekki liðnar nema 4 min. af leiknum, þegar Ingi B. Al- bertsson skoraði fyrsta markið i leiknum, með föstu jarðarskoti. Átta min. siðar bætti hann við öðru markinu fyrir Val. Jóhannes Edvaldsson átti gott skot að marki, sem markmaður varði, en missti knöttinn til Inga, sem skor- aði. Keflvikingar komust ekki á blað fyrr en á 36. min., en þá skor- aði Friðrik Ragnarsson, sem er byrjaður að leika með Kefla- vikurliðinu á ný, fyrsta mark þeirra. Var gtaðan þvi 2:1 fyrir Val i hálfleik. Á 10. min. siðari hálfleiks bætti Ingi Björn enn einu markinu við fyrir Valsmenn, og voru þá áhorf- endur, sem flestir voru Kefl- vikingar, farnir að ókyrrast, og var það engin furða, þvi að það þurfti kraftaverk til að lið þeirra tapaði ekki leiknum. En leikmenn Keflavikurliösins voru ekki á þvi að gefast upp og bezti maður liðs- ins, Astráður Gunnarsson, dreif liðiö áfram með dugnaöi og ódrepandi keppnisskapi. Liðið sótti stift aö Valsmarkinu, en leikmönnum liðsins ætlaði ekki að takast að koma knettinum fram hjá Sigurði Dagssyni, sem varði mjög vel. En þótt Sigurður sé góöur, þá ver hann ekki allt — hann réð t.d. ekki við skot Friöriks Ragnars- sonar, sem komst einn inn fyrir Valsvörnina og skoraöi örugg- lega. Ódrepandi baráttuvilji Kefl- vikinganna rekur þá áfram og þeir sækja nær stanzlaust siðustu min. Þegar ein min. var til leiks- loka, myndaðist mikil þvaga við Valsmarkið. Knötturinn var inni i þvögunni, en kom fljótt i ljós — þá i netamöskvunum hjá Val. Mark- iö skoraði Grétar Magnússon, og var það siðasta mark leiksins, sem lauk með jafntefli, 3:3. Rigning og leiðindaveður, setti ' óskemmtilegan svip á leikinn. Valsliðið lék oft mjög góða knatt- spyrnu i leiknum, miöað við að- stæður, en þaö er eitthvað að hjá liði, sem tapar niður leikjum und- ir lokin, eins og Valsliðið hefur gert i þremur leikjum. Beztu menn liðsins voru Sigurður Dags- son og Ingi B. Albertsson, sem lék sinn bezta leik til þessa i sumar. Keflavikurliðið er einnig mjög mistækt lið. Það er eitthvað að Framarar hafa staöið við loforð sitt - ætluðu að vera taplausir í 1. deild, þegar Elmar Geirsson kæmi heim til að leika með þeim Framarar hafa staðið við það, sem þeir lofuöu Elmari, að vera taplausir i 1. deild þegar hann kæmi heim frá V-Þýzkalandi. Marteinn Geirsson skoraði sitt annaö mark með skalla i 1. deild, i leiknum gegn Breiðabliki. Framarar eru óstöðvandi i 1. deildar keppninni um þessar mundir. Siðustu fórnarlömb þeirra voru Breiðabliksmenn, en Framarar sigruðu þá á I.augar- daisvellinum s.l. fimmtudags- kvöld, 3:1, i frekar daufum lcik. Það er alveg merkilegt að liðin sem inæta Breiöabliksliðinu, virðast aldrei ná sinu bezta hcld- ur falla þau niöur i sama gæða- flokk og Breiöabliksliðið. Eru þvi flestir leikir, sem Breiðabliks- menn leika, frekar daufir. Framliðinu tókst að skora strax á 4. min. leiksins, en markið var dæmt af vegna rangstöðu, og var það frekar strangur dómur hjá dómaranum, þvi að linuvörðurinn sem var vel staðsettur veifaði ekki. En á 14. min skora svo Framarar löglegt mark. Eggert Steingrimsson tekur hornspyrnu og sendir knöttinn fyrir mark Breiðabliks, þar sem Marteinn Geirsson kemur á fullri ferð og skallar i markið. Eftir þetta mark dofnaði heldur yfir leiknum, og liðin komust ekki i teljandi marktækifæri. Það eina sem skapaðist, var þegar að Guðmundur Þórðarson komst inn fyrir Framvörnina og skaut i stöngina að utanverðu. Á 10. min. siðari hálfleiks skora Framarar enn eitt skallamark sitt i Islandsmótinu. Baldur Scheving brunar fram völlinn með knöttinn, gefur hann út á kant til Erlendar Magnússonar, sem sendir siðan knöttinn fyrir Breiðabliksmarkið, þar sem Kristinn Jörundsson er og skallar knöttinn i netið. Stuttu siðar fá Breiðabliksmenn hornspyrnu, knötturinn svifur fyrir Fram- markið, þar sem Þorbergur Atla- son og Einar Þórhallsson stökkva upp. Þorbergur nær knettinum en missir hann til Hinriks Þórhalls- sonar, sem sendir hann i netið. Eftir markið tviefldust Breiða- bliksmenn og sóttu mikið , en án árangurs. Framarar innsigla sigurinn svo á 24. min. Kristinn leikur fram miðjuna með knöttinn og dregur að sér tvo varnarmenn Breiða- bliks, en við það losnar um Er- lend. Sendir þá Kristinn knöttinn til Erlendar, sem leikur með hann upp að vitateig og sendir hann þaðan i markið. Siðustu min. leiksins léku Framararnir eins og hinir öruggu sigurvegarar, þvi að Breiðabliksliðið náði sér aldrei á strik eftir markið. Framliðið, sem hefur staðið við það loforðsitt að vera taplaust i 1. deild þegar Elmar Geirsson kem- ur, lék betri knattspyrnu i leikn- um en Breiðabliksmenn. Þó náöu þeir aldrei að sýna sitt rétta and- lit. Beztu mennirnir i liðinu voru leikmenn öftustu varnarinnar, þeir Marteinn, Sigurbergur, Ágúst og Baldur, með Þorberg fyrir aftan sig. Þessir leikmenn hafa aðeins þurft að hirða knött- inn tvisvar úr netinu i 1. deildar keppninni. Þá áttu tengiliöirnir og framlinuspilararnir ágætis kafla. Breiðabliksliðið náði sér aldrei á strik i leiknum, og lék það langt undir getu. Beztu leikmenn Iiðs- ins voru Ólafur Hákonarson markvörður og Bjarni Bjarnason. Framlinan i liðinu átti sér aldrei viðreisnar von gegn hinni sterku vörn Fram. SOS. hjá liðinu, en það hefur gert fjög- ur jafntefli, og hin sterka vörn liðsins hefur fengið sex mörk á sig i tveimur siöustu leikjum. Einnig vekur þaö athygli, aö liðið virðist ná beztu leikköflunum sinum undir lok leikjanna. Bezti maður liðsins var Astráður, og geta Keflvikingar þakkað honum jafn- teflið gegn Val. Landsleiknum gegn Færeyjnm frestað fram á miðvikndag Landsleikurinn i knattspyrnu milli Islands og Færeyja, sem fram átti að fara á morgun, hefur verið færður fram á miðvikudag. Hætt hefur verið viö aö láta landsliö 21 árs og yngri leika gegn landsliði Færeyja. Þorsteinn Þorsteinsson. Þorsteinn Þorsteinsson keppir á afmælismótinn OE — Reykjavik. Hinn góðkunni hlaupari, Þorsteinn Þorsteinsson, sem dvaldist i Bandarikjunum i vetur, er væntanlegur til landsins á morgun, og tekur hann þátt i Afmælismóti FRt, sem hefst á mánudag. Hann keppir i 400 og 800 m hlaupi. Þorsteinn dvelst hér i sumar og tekur m.a. þátt i lands- keppnisförinni til Noregs i lok mánaðarins, og vonandi tekst honum að ná ÓL-lágmarkinu og verða meðal keppenda á ÓL i Milnchen. Afmælismót KSÍ: Faxaflóanrvalið sigraði Revkjavík ’56 6:0 > Celtic vann Cowal 4:3 Afmælismót KSl hélt áfram s.l. fimmtudagskvöld á Akranesi. Leiknir voru tveir leikir þar, og voru þeir mjög skemmtilegir. Faxaflóaúrvaliö stendur bezt aö vigi i mótinu eftir tvær umferðir, er eina liðiö, sem ekki hefur tapað leik. Órvalið mætti Reykjavik ’56, sem er skipað ungum leikmönn- um frá Reykjavikurfélögunum. Þeir stóðu i Faxaflóaúrvalinu i fyrri hálfleik og fengu ekki nema TVEIR VESTUR-ÞJÓD- VERJAR i FRÍ-MÓTIM Keppendnr verða 100 frá 7 þjóðum I gærkvöldi fékk FRt skeyti frá Vestur-Þýzkalandi þar sem segir, að tveir v-þýzkir frjálsiþróttamenn muni koma til Reykjavikur og keppa á Af- mælismótinu eftir helgina. Það eru Karl Heiniz Stein- metz, sem kastað hefur kringlu 58,62m, og Hans — Dieter Moeser, sem varpað hefur kúlu 19,04 m. Keppendur á móti þessu, sem er eitt mesta iþróttamót, sem fram hefur farið hér á landi, verða þá frá 7 þjóðum, og skráðir keppendur eru ná- kvæmlega 100. tvö mörk á sig. En i siðari hálfleik náöu „úrvalspiltarnir” að sýna þeim yngri tennurnar og skora fjögur mörk hjá þeim. Endaði þvi leikurinn 6:0 fyrir Faxaflóaúrval- iö. Mörkin skoruðu: Leifur Helgason 2, Hörður Jóhannesson, Asgeir Sigurvinsson, Ottó Guð- mundsson og Gisli Torfason. Þegar skozku liðin Celtic og Cowal mættust, i siðari leik kvöldsins, var hart barizt, og skoruðu liðin falleg mörk. Þegar 2 min. voru til leiksloka, var staðan 3:3. Celtic var alltaf fyrra til að skora, en leikmenn Cowal jöfnuðu alltaf. En á siðustu min. leiksins komst einn leikmaö- ur Cowal einn inn fyrir vörn Cel- tic og lék á markvörð — stóð einn fyrirgalopnu markinu, en honum mistókst aö skora. Leikmenn Cel- tic fengu knöttinn, brunuðu fram og tókst að koma honum i netið, áður en leiknum lauk. Lesið flm íþróttir í blaðiDD á morgnn 1 blaðinu á morgun birtist spáin fyrir siöari dag unglingalands- keppninnar. Þá verður ýmislegt annað um iþróttir.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.