Tíminn - 27.07.1972, Síða 8
8
TÍMINN
Fimmtudagur. 27. júli 1972
SUF-ÞING Á AKUREYRI
Eins og þegar hefur verið auglýst, verður þing Sambands ungra fram-
sóknarmanna haldið dagana 1., 2. og 3. september næstkomandi á
Akureyri.
Stjórn SUF vill minna aðildarfélögin á að halda sem fyrst félagsfundi til
þess að kjósa fulltrúa sina á SUF-þingið.
Dagskrá þingsins verður nánar auglýst síðar.
SUF
Að loknu ávarpi forsætisráð-
herra, Ólafs Jóhannessonar, i
upphafi ráðstefnunnar, flutti
Steingrimur Hermannsson,
alþm., erindi um Framkvæmda-
stofnun rikisins, skipulag hennar
og verkefni. Að loknu erindi
Steingrims flutti Sveinn Björns-
son, framkvæmdastjóri Iðnþró-
unarstofnunar Islands, fram-
söguerindi um iðnaðarmál. Loks
flutti Valgarð Thoroddsen, raf-
magnsveitustjóri rikisins, fram-
söguerindi um raforkumál Norð-
urlands.
Þar sem ekki er rúm hér á sið-
unni til aö fjalla um nema litinn
hluta af þvi, sem rætt var á ráð-
stefnunni, verður hér rakið stutt-
lega nokkuð af þvi, sem fram kom
i erindi Valgarðs, og þeim um-
ræðum er fram fóru um orkumál-
in, en einmitt sá hluti af viðfang-
sefni ráðstefnunnar hefur undan-
farna daga vakið miklar umræð-
ur og blaðaskrif.
t erindi sinu minnti Valgarð
Thoroddsen á, að heildarorku-
vinnsla á Norðurlandi var árið
1971 um 150 GWh. Til þess að full-
nægja þeirri orkuþörf varð að
lramleiða allmikið rafmagn með
dieselstöðvum. Orkuspár gera
ráð fyrir tvöföldun orkunotkunar
á 10 árum, þannig, að ef miðað er
við að framleiðslugeta Laxár-
virkjunar verði aukin um 35 GWh.
með þeirri virkjun, sem nú stend-
ur yfir (þ.e. Laxá III 1. áfangi),
verður orkuskorturinn 1981 orð-
inn 115 GWh. ef engin ný virkjun
eða aukin orka hefur komið inn á
svæðið fyrir þann tima. Þeir tveir
valkostir, sem helzt kæmu til
greina til að fullnægja orkuþörf-
inni, væru annars vegar tenging
við virkjanirnar sunnanlands
með linu yfir hálendið og hins
vegar virkjun á vatnasvæði
Skagafjarðar, norðan Hofsjökuls.
Við tengingu að sunnan kæmi
bæði til greina að leggja linuna
um Kjöl og niður i Skagafjörð, 170
km. leið, kostnaður 390 millj. kr.,
og um Sprengisand niður i
Eyjafjörð, 186km. leið, kostnaður
428 millj. kr. Við þessar tölur má
bæta kostnaði við endabúnað, þ.e.
spennistöðvar og fl. Lina sú, sem
nú er verið að leggja milli Akur-
eyrar og Varmahliðar, er um 105
km. löng og áætlaður kostnaður
um 60 millj kr. Flutningsgeta há
lendislinu yrði 200 MW. en Akur-
eyrarlinunnar 50 MW. Uppselt afl
á öllu Norðurlandi er um 35 MW.
Krá bygg&amálaráðstefnu SUF á Sau&árkróki. Már Pétursson, forma&ur SUF, i ræðustóli. ViO hábor&ið sitja f.v. Úlfar Sveinsson, for-
maður FUF I Skagafjaröarsýslu, Ólafur Jóhannesson, forsætisráöherra.Steingrímur Hermannsson, alþm., Valgarö Thoroddsen, rafmagnsveitu-
stjóri rfkisins, og Sveinn Björnsson, framkvæmdastjóri Iönþróunarstofnunarinnar. Ljósm: Stefán Pedersen.
Hinn raunverulega valkostinn
til að fullnægja orkuþörf inni taldi
Valgarð virkjun Jökulsár eystri,
en þar væri um þrjú virkjunar-
stæði að ræða i framhaldi hvert af
öðru. Virkjun i gljúfri Jökulsár
viö ármót Merkigilsár, sem
framleiddi um 100 GWh. og full-
nægði orkuþörfinni fram undir
1980, mundi samkvæmt frum-
áætlun kosta um 550 millj. Virkja
mætti af sömu stærð og með svip-
uðum kostnaði 5 km. ofar og loks
mætti með stiflugerð og vatns-
miðlun i Bugslónum gera virkjun
allmiklu ofar við Jökulsá , sem
yrði um tvöfalt stærri en báðar
hinar neðri samanlagt.
Taldi Valgarð virkjunaraðstöðu
i Jökulsá það álitlega að full
ástæða væri til að nánari rann-
sóknir færu þar fram en þær
rannsóknir sem þegar hefðu farið
fram voru algerar undirbúnings-
rannsóknir. Könnun þessa mögu-
leika myndi þá einnig leiða til
mynsturáætlunar um hæfileg
virkjunarþrep i samtengdu kerfi
Suður- og Norðurlands, svo og
tengingar til annara landshluta
og virkjana þar. Valgarð upp-
lýsti, að samkvæmt könnun Orku-
stofnunar mundi virkjun i Detti-
fossi kosta um 3.400 millj. og
framleiða 1.240 GWh. Slik virkjun
væri þvi tæplega timabær nema
með tilkomu stóriðju.
Sverrir Sveinsson, rafveitu-
stjóri á Siglufirði, upplýsti, að
Skeiðfossvirkjun i Fljótum hefði
nú nokkra afgangsorku, þ.e. allt
að 4 Gwh. i góðum vatnsárum, og
að meðaltali um 2 GWh., en
Skeiðfosskerfið nær yfir Siglu-
fjörð, Fljótin og Ólafsfjörð, en er
ekki tengt öðrum dreifikerfum.
Nú hefur auk þess verið hönnuð
virkjun i Fljótaá við Þverá og er
áætlaður byggingarkostnaður á
virkjun, er framleiddi 8.0 GWh.,
um 67 millj. kr., og taldi Sverrir
kostnað við tengingu Skeiðfoss-
virkjunar við kerfið i Skagafirði
14.7 millj. eða samtals 81.7 millj.
kr. Taldi Sverrir það svipaða
fjárhæð og kostnað við linubygg-
inguna frá Akureyri til Varma-
hliðar. Fram hefðu komið upplýs-
ingar um, að sú lina mundi ekki
kosta 60 millj. heldur um 84 millj.
Taldi Sverrir, aö virkjun við
Þverá og samtenging við Skaga-
fjarðarkerfið hefði átt að ganga
fyrir linulögn fá Akureyri, þar
sem mjög litil afgangsorka væri á
austursvæðinu og allt i óvissu
með framkvæmd virkjana við
Laxá. Sú orka, sem flutt yrði frá
Akureyri yrði þvi fyrirsjáanlega
að verulegu leyti dieselorka og
orkusölusamningur sá, sem nú
hefur verið gerður væri aðeins til
tveggja ára. Með virkjun við
Þverá og tengingu við Skagafjörð
hefði verið hægt að losna við að
framleiða orku með dieselvélum
og fullnægja raforkuþörf Norður-
lands vestra um 2-3ja ára skeið.
Vegna hinnar miklu vatnsmiðlun-
ar i Fljótum sem nýtist bæði fyrir
Skeiðfoss- og Þverárvirkjun, yröu
þau raforkuver sérstaklega hag-
kvæm til samrekstrar við rennsl-
isvirkjanir og tenging þvi hag-
kvæm gagnvart orkuvinnslu á
svæðinu i framtiðinni. Sverrir
taldi að kostnaður við endabúnað
á hálendislinunni mundi nema 40-
60 millj. kr., þannig að hálendis-
lina til Akureyrar mundi kosta
um 500 millj.
Ingólfur Árnason, rafveitu-
stjóri á Akureyri, taldi
kostnaðaráætlun Sverris á
tengingu Skeiðfosskerfisins við
Skagafjörð of lága, slik tenging
mundi kosta um 30 millj. og
virkjunarkostnað við Þverá yfir
70 millj. eða samtals yfir 100
millj. Slik framkvæmd væri þvi
dýr en þýðingarlitil og hefði þar
verið rétt ákvörðun að byrja á
byggingu linu frá Akureyri i
Varmahlið.
Adolf Björnsson, rafveitustjóri
á Sauðárkróki, taldi að virkjanir
heima i héruðum ættu að ganga
Framhald á 16. siðu.
Glæsileg byggðamálaráðstefna
Stjórn S.U.F. hefur und-
anfarna tvo vetur gengizt
fyrir ráðstefnum um
byggðamálin víða um land
og var síðasta ráðstefnan
haldin á Sauðárkróki um
fyrri helgi. Sóttu ráðstefn-
una um 100 manns og urðu
miklar umræður á ráð-
stefnunni.
Hluti gesta á byggOamálaráðstefnu SUF á Sauðárkróki.