Tíminn - 27.07.1972, Qupperneq 10
10
TÍMINN
Fimmtudagur. 27. júli 1972
W
M l/y'
n I fHÉ iM' •v ly ~~ iááhjíf\ ' y/WgM fÆáb m mm""~7 ' HT jfikjHllí
Statdrað var viö i Hvitárnesi, þar sem Eysteinn Jónsson lýsti staðháttum og landslagi.
,Góða veðrið fylgir Framsókn'
Hátt á fjórða hundrað manns tóku þátt í velheppnaðri sumarferð
Framsóknarfélaganna til Hveravalla
Einar Agústsson, utanrikisráð-
herra, flytur ávarp á llveravölt-
um.
Geysimikil þátttaka var i hinni
árlegu sumarferð Framsóknarfé-
laganna i Reykjavik, sem farin
var s.l. sunnudag, en samtals
tóku tæplega fjögur hundruð
manns þátt i henni. Er þetta ein-
hver fjölmennasta ferð, sem
Framsóknarfélögin hafa efnt til,
og tókst hún hið bezta, enda veður
með afbrigöum gott mest alla
leiðina, en farið var að Hveravöll-
um. Aðalfararstjóri var Eysteinn
Jónsson, alþingismaður, en auk
þess voru fararstjórar i hverjum
hinna 10 áætlunarbila, sem fluttu
fólkið. Á Hveravöllum flutti Ein-
ar Agústsson, utanrikisráðherra
ávarp, en Eysteinn Jónsson lýsti
staðháttum og landslagi.
Strax upp úr kl. 7 á sunnudags-
morgun var fólk farið að tinast
saman við Hringbraut 30, en það-
an var lagt af stað stundvislega
kl. 8. Var hvert sæti i áætlunarbil-
unum skipað.
Ekki voru veðurguðirnir blið-
legir á svip i byrjun ferðar, þvi að
þungskýjað var um morguninn,
og þegar komið var upp i Mos-
fellssveit, rétt ofan við Gljúfra-
stein, byrjaði að rigna litilshátt-
ar. En þetta voru aðeins látalæti,
þvi aö skömmu siöar sást til sólar
og fylgdi hún hópnum það sem
eftir var ferðarinnar. Lét Cli
blaðasali, sem var með i förinni,
ásamt vini sinum, Jóni Eyjólfs-
syni, starfsmanni i Þjóðleikhús-
inu, svo ummælt, að það væri
betra að ferðast með Fram-
sóknarfélögunum en ýmsum öðr-
um stjórnmálafélögum, þvi að
góða veðrið fylgdi Framsókn,
eins og hann orðaði það. En elzti
þátttakandinn i ferðinni, 83 ára
gömul kona, vildi þakka Eysteini
góða veðrið, og hvatti til þess, að
hann færi um landið vitt og breitt
með þurrkinn handa bændum.
Fyrsti áningastaður á leiðinni
var að Laugarvatni, þar sem
stanzað var stutta stund, en siðan
haldið áfram upp i Haukadal,
framhjá Geysi, sem sýndi á sér
andlitið með smágosi, rétt áður
en ferðafólkið bar að garði, og
siðan var ekið framhjá Gullfossi
og haldið upp á Kjalveg.
Enda þótt Kjalvegur sé ekki
alltaf árennilegur yfirferðar,
sóttist ferðin vel. Ekið var, eins
og leið liggur, um Bláfellsháls
með Langjökul á vinstri hönd, en
þegar lengra var komið, blasti
Hofsjökull við á hægri hönd
framundan. Hafði einhver á orði,
aö i stað þess að vera milli
tveggja elda væri hópurinn milli
tveggja isa.
Um klukkan hálftvö var komið
að Hvitárnesi, þar sem áð var.
Þar var borðað nesti og litazt um
á meðan Eysteinn Jónsson flutti
fróðlegt erindi um staðinn og ná-
grenni hans. 1 Hvitárnesi samein-
aöist Einar Agústsson, utanrikis-
ráðherra, hópnum, en hann var
nýkominn til landsins frá Brtissel,
þar sem hann undirritaði við-
skiptasamning við Efnahags-
bandalagið.
Frá Hvitárnesi var svo haldið á
áfangastað, Hveravelli, og komið
þangað um fjögur leytið. Yndis-
legt veður var á Hveravöllum,
eins og raunar mestalla leiðina,
sólskin og litilsháttar gola. Naut
fólk góða veðursins og landslags-
ins, en Eysteinn Jónsson og Guð-
mundur Jósafatsson á Brands-
stöðum skýrðu frá þvi markverð-
asta i sögu staðarins.
Þá flutti Einar Ágústsson,
utanrikisráðherra, stutt ávarp,
og ræddi um nýgerða viðskipta-
samninga við Efnahagsbanda-
lagið og landhelgismálið, en sagði
siðan:
,,Þótt þessi mál séu mér hug-
stæð þessa stundina er það þó
annað atriði sem einnig á rætur
að rekja til umræddrar Brússel-
ferðar sein leitar sterkar á hug-
ann hcr og nú, en það er sá mikli
munur sem á þvi er að vera ann-
ars vegar i miðri Evrópu en hins
vcgar hér á landinu okkar.
Undanfarna daga hefur mikil
hitahylgja gengið um vestan-
vcrða Evrópu, dagana sem við
vorum i Belgiu var hitinn um og
yfir 30 stig og rakinn 100% þegar
verst lct. Liðan manna var auð-
vitað eftir þessu, svitakóf og
öndunarerfiðlcikar voru þau orð,
sem næst komast að lýsa henni. t
þessum Iöndum er varla til lófa-
stór blettur sem almenningi er
Irjáls til afnota, fólksmergðin
gifurleg, liávaðinn yfirþyrmandi.
Þcgar svo liagar til eins og nú, að
maður á þess kost i beinu fram-
lialdi af dvöl i þessum löndum að
komast á iiokkrum klukkustund-
uin liingað á sólbjörtum sumar-
degi, cins og við njótum hér uppi
milli hinna islenzku fjalla, i svala
tæra loftið og öræfakyrrðina, þá
A Hveravöllum flutti Einar Agústsson, utanrlkisráðherra, ávarp.
(Timamyndir GE).