Tíminn - 27.07.1972, Blaðsíða 11

Tíminn - 27.07.1972, Blaðsíða 11
TÍMINN Fimmtudagur. 27. júli 1972 11 Tveir ungir þátttakendur skola af sér ferðarik i heitri laug. verður manni það ennþá ljósara en nokkru sinni fyrr hvílik auðævi það eru sem við eigum i öllu þessu ónumda landi, já og veðurfarinu og loftsiaginu, þótt okkur liki kannske ekki alltaf sem bezt við það. Þetta mættum við áreiðan- lega öll hugleiða oftar heldur en við gerum. En menn lifa ekki af góða loftinu og útsýninu einu saman, að fleiru þarf að hyggja. Nú er rúmt ár liðið siðan stjórnarskipti urðu hér á landi. Ég ætla mér ekki að kvcða upp dóm um verk stjórnarinnar, enda tæpast dómbær um þau, þau eru vafalaust misjöfn eins og öll mannanna verk og orka áreiðan- lega flest tvimælis þá gerð eru. Verkefnin eru auðvitað mörg og misjöfn en takmarkið með lausn þeirra er að sálfsögðu fyrst og fremst bættar þjóðfélagsaðstæð- ur fyrir íslcndinga alla. Tvennt er þaðeinkum, úr hinu mikla safni, sem áriðandi er að vel takizt. Annað er útfærsla landhelginnar. fcg er vongóður um að samst. sú sem náðist meðal þjóðarinnar allrar i þvi máli muni verða það lóð á vogarskálina, sem dugar til að þoka þvi til öruggrar hafnar. Árciðanlega eru i þessu máli ýmsir örðugleikar framundan og við sterka andstæðinga að glima, en við munum i sameiningu bjóða þeim byrginn og að ég vona sigr- ast á þeim. Gagnvart vandamál- um, er út á við snúa, berum við gæfu tilað standa saman sem einn maður, það er okkar mikli styrk- ur. Hinn aðalvandinn, sem hér er við að glima er vcrðbólguvöxtur- inn og sá verðbólguofþcnnslu- hugsunarháttur, sem hér hefur verið landlægur um árabil og er að sliga allt okkar cfnahagslif. Hér er hvorki staður né stund til að ræða svona mál og skal það heldur ckki gert, en aðeins sett fram sú fróina ósk aðokkur mætti auðnast að taka höndum saman einnig til lausnar þessa vanda, sem ætti að vera okkur auðveld- ari viðfangs fyrir þá sök að hér þarf ckkert undir aðrar þjóðir að sækja, hér er um það eitt að tefla að sigrast á sjálfum sér. Ef okkur mætti auðnast að mynda jafn- mikla sainstöðu i þessu máli og til liefur orðið i landhelgismálinu, þyrftum við áreiðanlega engu að kviða þá ættu islendingar bjarta fraintið i landinu fyrir sér, þvi að ytri skilyrðin eru hér fyrir hendi og við þurfuin áreiðanlega engan að öfunda af þvi landi sem honum hefur verið fengið til að búa í.” Að loknu ávarpi utanrikisráð- herra, var farið i bilana og ekið heim á leið, en Eysteinn Jórisson kvaddi hópinn við afleggjarann til Kerlingarfjalla, þar sem hann ætlaði aö bregða sér á skiði. 1 bakaleiðinni var stanzað við Gull- foss, en siðan ekið um Biskups- tungur og Grimsnesiö, um ölfusið og stanzað á Kambabrún. Þá var klukkan orðin rúmlega 10 og fréttir bárust af sigri Fischers yf- ir Spasski, en margir fylgdust með skákinni i fyrri kvöldfréttum útvarpsins. Þótti sumum þetta slæm tiðindi, en aðrir réðu sér ekki fyrir kæti. Til Reykjavikur var svo komið á tólfta timanum, eftir langa, en skemmtilega ferð. Höföu margir á orði, að þeir hlökkuðu til næstu sumarferðar Framsóknarfélag- anna. Guðmuiidur Jósafatsson frá Krandsstöðum lýsir staðháttum á Ilvera- völlum ásaml Eysteini Jónssyni. Að mörgu þarf að hyggja áður en lagt er I langferö. Hér sjást þeir Guð- mundur Tryggvason, fulltrúi, og Eysteinn Jónsson bera bækur sýnar saman. Fararstjórar i ferðinni, ásamt utanrikisráðherra. Talið frá vinstri: ólafur ítagnar Grimsson, Kristján Bendiktsson, Markús Stefánsson, Alfreð Þorstcinsson, Þorsteinn ólafsson, llannes Pálsson, Eysteinn Jónsson, aðalfararstjóri, Einar Agústsson, utanrikisráðherra, Guð- mundur Jósafatsson, Jón Abraham Ólafsson, Kristinn Finnbogason og Einar Birnir. Brúin yfir Hvitá, þykir ekki árennileg, þegar stórir áætlunarbílar eru annars vegar. A þessari mynd sést biðröð við brúna á meðan hinir fjöl- mörgu þátttakendur í sumarferð Framsóknarfélaganna gang yfir hana.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.