Tíminn - 01.08.1972, Síða 14

Tíminn - 01.08.1972, Síða 14
14 TÍMINN Þriðjudagur 1. ágúst 1972 ,,Ég hef skoðað yður, og ég tel mig ekki geta læknaðyður. Ég get ekki gert neitt fyrir yður. Það vil ég, að þér vitið afdráttarlaust”, hafði hann sagt. ,,Ég veit það”, svaraði ég, ,,mér er það fyllilega ljóst”. Ég reyndi að hafa vald á röddinni. Hann svaraði ekki, heldur fór að tala i simann. Ég sat i stól hinum megin við borðið og virti fyrir mér franskar nýtizku myndir, sem héngu á veggnum: Þroskamiklar ungmeyjar, dansgyðjur og blóm i keri á gluggakistu. Ekkert gat verið andstæðara sjúkdómum og þreytu og kviða. En mér féllu þessar myndir illa i geð. Ég hafði lagt mikið á mig og komið óravegu til þess að fá þann úrskurð, sem hér hafði verið felldur. Það hefði verið meir við hæl'i, að þessi veggur hefði verið auð- ur. „Þér teljið með öðrum orðum vonlaust um bata?” Ég hallaði mér l'ram á borðið, þegar hann hafði lokið simtalinu og snúið sér að mér aft- ur. „Það orðalag nota ég aldrei, ungfrú Blair. Á sviði læknislistarinnar er aldrei fyrir að synja, að mistök eigi sér stað. Ég sagði það eitt, að ég treysti mér ekki til þess að hjálpa yöur. Hvað hefur þetta annars þjáð yðurlengi?” Hann tók vélritað blað úr skjalabindi sinu og leit yfir það. „Ó-já, siðan i febrúar 1929, og þér hafið verið hjá Chase i Chicago, Mack og Jacob i New York, Kicker i Baltimore, og þér hafið lika verið....” „Gerist þess nokkur þörf að lesa alla þessa læknaskrá?” Ég var hvorki reið við hann né undrandi. Þetta sama hafði verið sagt mér svo oft áður, þótt með öðrum hætti væri, að ég var við þvi búin. Mér létti meira að segja. Ég var eins og maður, sem hrakinn hefur verið inn i blindstræti, nú var ég komin að veggnum, sem lokaði leiðinni, og þurfti ekki að vænta mér neinnar undankomu. Hann horfði á mig um stund með svipblæ, sem ég vissi af gamalli reynslu, að var undanfari kveðju- orðanna og siðustu ráðlegginganna „Vilduð þér ekki spara yður að lýsa þvi, hve þakklát ég megi vera forsjóninni eða skirskota til þess, að ég megi aldrei gefast upp eða reyna að færa mér heim sanninn um það, að flest fólk hafi við einhver mein að striða? Ég mun einhvern veginn sætta mig við það, sem ég verðað þola, og mér er engin fróun að þvi, þótt mér sé sagt, að það gæti verið ennþá verra en það er”. Og nú var ég komin i biðsal morðurbrautarinnar i Boston einu sinni enn og varð að biða þar heila klukkustund áður en ég fengi ferð til Blairsborgar. Hér kom mér allt svo kunnuglega fyrir sjónir: miða- sölur, borð og bekkir. Mér varð litið á ferðatöskuna mina. Hún var merkt stórum svörtum stöfum, E.B. og orðin máð og skellótt eftir si- felld ferðalög i tvö ár. Ég hafði flýtt mér að láta farangur minn i hana. Blár lindi af náttkjól stóð út undan lokinu. Ég hefði alls ekki þurft að flýta mér svona mikið, þegar ég kom frá lækninum. Ég vissi það mætavel, að engin lest tór til Blairsborgar frá klukkan 12,53 til 3,19. En ég var að flýja —ekki undan örlögum minum, heldur á náðir þeirra. Ég gerði mér engar gyllivonir og ól e kki á neinni meðaumkun með sjálfri mér. Það var enginn við kaffiborðiö. Ég fór þangað og settist á einn hverfi- stólinn. Ég bað um kaffi, þótt mig langaði i raun ekkert i það, en vissi, að biðin myndi vera mér bærilegri, ég ég hefði eitthvað fyrir stafni. Andlit mitt blasti við mér i speglinum yfir borðinu. Ég horfði rann- sakandi á sjálfa mig. Var breytinga orðið vart i útliti minu? Ég var 1169 Ljárétt 1) Sjávardýr. 6) Óhreinindi,- 7) Krjókorn,- 9) E11.- 11) Kanga,- 12) 499,- 13) Bær - 15) Ana,- 16) Mann,- 18) Naut,- Lóðrétt 1) Prestur.-2) Peð,- 3) Pi - 4) Ans.- 5) Naumast.- 8) Iss,- 10) Alm,- 14) Ren,- 15) Áll.- 17) KG,- Lóðrétt I) Úrkoma,- 2) Hnall,- 3) Nes,- 4) Svefnhljóð,- 5) Sauð,- 8) Nefnd,- 10) Her- sveit,- 14) Dýr.- 15) Spýju.- 17) Hvilt,- Itáðning á gátu No. 1168 Lárétt 1) Pappann,- 6) Ein,- 7) Eið,- 9) Sáu - 11) SS,- 12) LM,- 13j TSR,- 15) Áma,- 16) Efl.- 18) Ranglát.- Meðal Forn-Grikkja var litið á iþróttir sem málefni alls rikisins. Iþróttaþjálfun var undirbúningur l'yrir tveggja ára herþjónustu. Þjálfunin hófst þegar á unglingsárum og litið var á það sem borgaralega skyldu að vera i góðu likamsástandi. Þegar hnefaleika- kappinn Kratos fann ekki lengur hæfa andstæðinga i heimabæ sinum fékk hann inngöngu i nýjan og stóran iþrótta- skóla rikisins i höfuðborginni, Argos. HVELLI G 'llann gæti VHann sagði mér að hafa miðunartækið r ... en hann * hefur ekki fundið mig enn rHvers vcgna . 7 í gerðist ég .iaumufarþegi? Ég hélt þaðyrði gaman! R E K I R |£ D Þ RIÐJUDAGUR 1. ágúst 7.00 Morgunútvarp Veöurfregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og forustugr. dagbl.) 9.00 og 10.00. Morgunbænkl. 7.45 Morgunleikfimi kl. 7.50 Morgunstund barnanna kl 8.45. Magnea Matthiasdóttir les sögu sina um „Babú og bleiku lestina” (2). Tilkynningar kl. 9.30. Létt lög milli liða. Við sjóinn kl. 10.25. Um sildveiði i Norður- sjó: Ingólfur Stefánsson ræðir við Jakob Jakobsson, fiskifræðing. Fréttir kl. 11.00. Tónleikar 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynningar. 13.00 Eftir hádegið.Jón B. Gunnlaugsson leikur létt lög og spjallar við hlustendur. 14.30 Siödegissagan: „Loftvogin fellur” eftir Richard Ilughes. Bárður Jakobsson les (2). 15.00 Fréttir. Tilkynningar 15.15 Miödegistónleikar. 16.15 Veðurfregnir. Létt lög. 17.00 Fréttir. Heimsmeistara- einvigið i skák 18.10 Tónleikar. Tilkynningar. 19.00 Fréttir. Tilkynningar. 19.30 Kréttaspegill. 19.45 islenzkt umhverfi. Snæbjörn Jónasson verk- fræðingur talar ufn vegina og umhverfið. 20.00 Lög unga fólksins. Sigurður Garðarsson kynnir. 21.00 iþróttir. Jón Ásgeirsson sér um þáttinn. 21.20 Ferðin með „Frekjunni” Ingibjörg Jónsdóttir ræðir við einn skipsmanna, Úlfar Þórðarson iækni. 21.45 „Dumbarton Oaks”, konsert i Es-dúr eftir Stravinsky. 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Kvöldsag- an: „Maðurinn sem breytti um andlit" eftir Marcel Aymé. Karl Isfel is- lenzkaði. Kristinn Reyr byrjar lesturinn. 22.35 llarmonikulög. Benny van Buren leikur með hljómsveit sinni. 22.50 A hljoðbergi „The Barretts of Wimpole Street” eftir Rudolf Besier. Fluttir verða þrir þættir leikritsins, sem fjallar um fyrstu ástir skáldanna Elisabetar Barretts og Roberts Brownings. Með hlutverkin fara Katherine Cornwell og Anthony Quayle. 23.25 Fréttir i stuttu máii. Dagskrárlok. ÞRIÐJUDAGUR 1. ágúst 1972. 20.00 Fréttir. 20.25 Veður og auglýsingar 20.30 Frá Heimsmeistara- einviginu i skák 21.00 Ashton-f jölskvldan. Brezkur framhalds- myndaflokkur um lif stórrar miðstettar- fjölskyldu i siðari heims- styrjöldinni. 14. þáttur. Ný viðhorf. Þýðandi Jón O. Edwald. Við tökum upp þráöinn þar sem frá var horfið i vetur. Þessi þáttur gerist um áramótin 1940 - 41. Tony Briggs hefur gefið sig fram til herþjónustu. Edwin Ashton er orðinn fram- kvæmdastjóri fyrir prent- smiðju Sheftons Briggs, en er óánægður og þykir mágur sinn ekki syna sér nægilegt traust. Nokkurrar þreytu gætir einnig i sam- búð Ashtonhjónanna. 21.45 Setið fyrir svörum. Umsjónarmaður Eiður Guönason. 22.20 tþróttir. Umsjónar- maöur Ómar Ragnarsson. 23.20 Dagskrárlok.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.