Tíminn - 01.08.1972, Side 15
Þriftjudagur 1. ágúst 1972
TÍMINN
15
Umsjón:Alfreð Þorsteinsson
Tvö klaufamörk
kostuðu Víking
tvö dýrmæt stig
- Vfkingsliðið er komið í mikla fallhættu, eftir að
það tapaði gegn Eyjamönnum
Enn hallar undir fæti hjá Vik-
inguni iknattspyrnubaráttunni. A
laugardaginn töpuhu þeir tveim-
ur dýrmætum stigum til Eyja-
manna, sent voru svo sannarlega
heppnir að vinna leikinn, þegar
liðin mættust á Laugardalsvellin-
um. Eyjamenn skoruðu tvö mörk
af ódýrari gerðinni, þessi rnörk
má skrifa á reikning markvaröar
Vikings, Diðrisk ólafssonar. Þótt
hann hafi fcngiö þessi klaufa-
mörk á sig, stóð hann sig vel i
markinu og má segja að hann hafi
ekki átt það skiliö, aö hafa fengið
þessi tvö mörk á sig. Vikingsliöiö
hefur ekki haft heppnina með sér
i sumar, og ef liöið fellur niður i 2.
deild er ekki annaö hægt að segja,
en aö liðið er ekki það lélegasta i
1. deild. Heldur þveröfugt, liöiö er
þegar þeir sáu knöttinn fara fram
hjá Diðriki og inn i markið. Var
mjög grátlegt fyrir Vikingsliðið
að fá svona mark á sig, þegar lið-
ið er að berjast fyrir tilveru sinni i
1. deild. Stuttu eftir markið fær
Vikingsliðið gullið tækifæri til að
jafna, Jóhannes Bárðason, leikur
að marki Eyjamanna og spyrnir
fyrir utan úr vitateig, knötturinn
þýtur að Eyjamarkinu, en fer aft-
ur fyrir endamörk. Þarna heföi
Hafliði Pétursson getað verið á
réttum staö og sent knöttinn i net-
ið, en hann var of seinn á sér.
Sendingar eins og Jóhannes gaf
fyrir markið, með jörðu, eru stór-
hættulegar, ef útherjar eru vel á
verði og kunna að leika stööu út-
herja, sem eiga að fylgja öllum
sendingum, sem koma fyrir
,,Ég sá að knötturinn var kom-
inn inn fyrir marklinuna og var
farinn að fagna markinu, en
dómarinn, sem stóð við hliðina á
mér, lét leikinn halda áfram eins
og ekkert hefði skeö” sagði Guð-
geir Leifsson um markiö, sem
Vikingur skoraði, en dómarinn,
Rafn Hjaltalin, lokaði augunum
fyrir.
eitt af skemmtilegustu iiðunum i
deildinni. Með smá heppni, hefðu
Víkingar veriö eitt af toppliðun-
um og verið búnir aö tryggja sér
áframhaldandi veru i 1. deild.
Leikur liðanna á laugardaginn
var frekardaufurog tókst liðunum
ekki að skapa sér hættuleg tæki-
færi fyrstu 35 min. fyrri hálfleiks.
Á þessum min. voru liðin að
þreifa fyrir sér og léku frekar ró-
lega knattspyrnu. A 35. min .kem-
ur þruma úr heiðskiru lofti. örn
Öskarsson, fékk knöttinn fyrir ut-
an vitateig og skaut hættulausu
skoti að Vikingsmarkinu. Diðrik
markvörður, haföi nógan tima til
að falla á hné og virtist handsama
knöttinn — en það skeði annað og
áhorfendur og leikmenn liðanna,
trúðu ekki sinum eigin augum,
markið. Ekki biöa og sjá hvað
skeður og verða svo of seinn til að
ná sendingunum. Hafliði fékk aft-
ur tilvalið tækifæri, stuttu siöar
(43. min.) Þá var hann með knött-
inn inn i vitateig, en missti hann
of langt frá sér.
A 5. min siðari hálfleiks, skora
svo Eyjamenn sitt annað mark.
örn Óskarsson, skaut góðu skoti
frá vitateig, Diðrik varði, en
missti knöttinn frá sér til Harald-
ar Júliussonar, sem þakkaði fyrir
sig og sendi knöttinn i netiö. Vik-
ingur skorar svo sitt mark á 13.
min. Guðgeir Leifsson, spyrnir
knettinum vel inn i vitateig, þar
stekkur Páll Björgvinsson og einn
varnarmaður Eyjamanna upp —
knötturinn hrekkur frá þeim út i
teiginn til Jóns Karlssonar, sem
LEGIA ER TALIÐ
EITT BEZTA KNATT-
SPYRNULIÐ EVRÓPU
- Víkingur leikur fyrri leikinn heima
í Evrópukeppni
Nú er búið að ákveöa, að
Bikarmeistarar Vikings, sem
taka þátt i Evrópukeppni
Bikarmeistara, leiki fyrri
leikinn gegn pólska liðinu
lægia Varsjá, hér heima 13.
september. Er það mjög
heppilegt fyrir Viking, þvi að
þeir geta látiö leikinn byrja
klukkutima fyrr, en ef þeir
hafa þurft að leika hér 27.
sept. Þá veröur Legia, fyrsta
erlenda knattspyrnuliðið, sem
leikur hér i sumar og má búast
við aö mjög margir áhorf-
endur komi til aö sjá leikinn.
Pólska liöið Legia Varsjá, er
bezta knattspyrnuliö Póllands
i dag, það er taliö eitt bezta
félagsliö Evrópu og er i
svipuðum flokki og beztu
ensku 1. deildarliðin. Meö
liöinu leika margir núverandi
og fyrrverandi landsliðsmenn
t.d. leika fjórir leikmenn með
pólska landsliðinu eins og það
bikarmeistara
er skipað i dag. Pólska lands-
liöið er mjög sterkt, sést það
bezt á þvi,aö þaö gerði jafn-
tefli við V-Þýzkaland i
Evrópukeppni landsliða, þar
sem Pólland og V-Þýzkaland
voru i sama riðli. Þá unnu Pól-
verjar landsleik gegn Rúss-
landi fyrir stuttu. Leikmenn-
irnir fjórir úr Legia, sem leika
nú með pólska landsliöinu,
eru þessir: Tezaskowski,
en hann leikur miðvörð
Cmikiewicz, tengiliður og
mikill sóknarleikmaðurL
hann er mjög duglegur og
skorar mikið af mörkum með
Legia og landsliöinu, annar
tengiliður úr Legia leikur
einnig með landsliöinu, hann
heitir Blaut, þá er útherjinn
Gadocha. einnig i landsliðinu
pólska. Eins og sést á þessu
þá má búast við,að Legia leiki
sóknarleik, sem er ekki af
verri endanum.
SOS
Hér sésl llafliöi Pétursson, sækja aö Ársæli Sveinssyni, markveröi Eyjaliösins, sem tókst aö bjarga á
siðustu stundu. (Timamynd Gunnar)
spyrnti viðstöðulaust skoti i
mark. A 20. min. komst Hafliði
einn inn fyrir vörn Eyjamanna,
en hann missti knöttinn til mark-
varðar. A 25. min. varöi Diðrik
meistaralega skot frá Tómasi
Pálssyni, sem skaut þrumuskoti
frá markteig — knötturinn hrökk
frá Diðriki út i teiginn og þaðan
kom svo annað skot, sem Diðrik
varöi einnig. Mjög umdeilt atvik
skeði á 36. min. Mjög þung pressa
var á Eyjamarkinu, Hafliði á skot
frá markteigshorni, sem Arsæll
Sveinsson ver, en missir knöttinn
til Eiriks Þorsteinssonar, sem er
á markteigslinu. Hann spyrnir aö
marki og knötturinn fer inn fyrir
marklinuna, en þaðan er knettin-
um spyrnt úr markinu af varnar-
manni. öllum til undrunar dæmir
dómarinn Rafn Hjaltalin ekki
mark og linuvöröurinn, Garðar
G. Guðmundsson, sér ekkert at-
hugavert. Þarna var greinilegt
mark og sáu það allir áhorfendur,
enda létu þeir heyra til sin, þegar
dómarinn lét leikinn halda áfram,
eins og ekkert hefði i skorizt. Vik-
ingsliðið, sem hefuraðeins skorað
tvö mörk i tslandsmótinu, mátti
ekki við þvi, að greinileg mörk
væri tekin af þeim og kostuðu
þessi mistök dómarans, eitt dýr-
mætt stig fyrir Viking.
Vikingsliöiö, náði aldrei að
sýna eins góðan leik og gegn
Keflavik, sóknarlotur liðsins eru
ekki nógu þungar, þvi aö leik-
menn liðsins fyigja þeim ekki
nógu vel eftir. Þá einleika fram-
linumennirnir, oft mikið og
þjappa vörn andstæðinganna
saman. Beztu menn liösins voru:
Magnús Þorvaldsson, Diörik,
Guðgeir, Jóhannes og Hafliði.
Eyjaliöið var einnig mjög dauft
og náöi liöið ekki að sýna þá
knattspyrnu, sem maöur bjóst
við. Beztu menn liðsins, voru:
Kristján Sigurgeirsson, Arsæll,
örn og Friðfinnur.
Dómaratrió leiksins komst ekki
vel frá leiknum. —SOS.
Hvað er orðið af KR-heppninni?
- KR-ingar áttu megnið af leiknum gegn Keflavík, en máttu þola tap 1:2
KR-ingar máttu svo sannarlega
ganga óánægöir frá leiknum viö
Keflavik, þeir töpuöu leiknum,
sem þeir höföu algerlega á sinu
valdi svo til allan timann. Þeir
áttu mörg marktækifæri, sem
þeir misnotuöu og þeir fengu Ifka
á sig Ijótt klaufamark, einnig var
Steinar Jóhannsson, skoraöi bæöi
mörk Keflvikinga gegn KR.
tekin af þeim greinileg vita-
spyrna. Þaö er ekki hægt annaö
en aö taka undir orö áhorfandans,
sem sagöi: ,,Nú er ekki lengur
hægt aö tala um KR-heppnina
heldur er hægl aö tala um KR-
óheppnina, liöiö hefur veriö mjög
óhcppiö i þremur síöustu leikjum
sinum: gegn Fram, Skaga-
mönnum og nú gegn Kefl-
víkingum".
KR-liðið tók forustuna i
leiknum.semvar leikinn á gras-
vellinum i Keflavik, strax á 10.
min. Hörður Markan, komst einn
inn fyrir Keflavikurvörnina og
átti ekki i vandræöum meö aö
koma knettinum i markiö. Þaö er
ekki hægt að segja annaö en aö
það hafi veriö rangstöðulykt af
þessu marki Haröar, en Kefla-
vikurvörnin hætti, þegar Hörður
fékk knöttinn, þvi aö varnar-
leikmenn Keflavikur voru svo
öruggir um þaö, að Hörður væri
rangstæður. En þar gerðu þeir
mikla skyssu þvi aö ekki má
hætta fyrr en dómarinn er búinn
aö stööva leikinn. Það er flautan,
sem gefur merki um,aö eitthvaö
sé athugavert.
KR-liöiö hélt áfram að sækja,.
en leikmönnum liðsins tókst ekki
aö koma knettinum i netiö. Aftur
á móti komu Keflvikingar
knettinum i netiö hjá KR. Steinar
Jóhannsson, skoraöi mjög ódýrt
mark á 30. min., eftir ljót
varnarmistök hjá varömönnum
KR.
A 1. min. sföari hálfleiks,
sleppir dómari leiksins Eysteinn
Guömundsson, greinilegri
vitaspyrnu á Keflavik, Gunnar
Guömundsson, var kominn i mjög
gott marktækifæri inn i vitateig,
þegar Grétar Magnússon
bregður honum illilega. Það er
ekki vafamál, hvar sigurinn hefði
lent, ef KR-ingar hefðu fengið
vitaspyrnu þarna. Hið unga lið
KR sótti nær stanzlaust aö Kefla-
vikur-markinu og fór leikurinn að
mestu fram á vallarhelmingi
Keflavikur, en heppnin var ekki
með KR-ingum, — þeim tókst
ekki að skora. A 25. min. kom svo
reiöarslagið yfir KR-inga.
SteinarJóhannsson spyrnti fyrir
KR markiö frá vitateig —
knötturinn fór i boga yfir KR
vörnina og öllum til undrunar
yfir Magnús Guömundsson —
sem stóö grafkyrr og horföi á eftir
knettinum, sem sveif i markiö.
Viö þetta mark brotnaði KR-liöið
og Keflvikingar fóru að sækja, og
voru nær búnir að skora sitt
þriöja mark. Jón 01. Jónsson, átti
hörkuskot i þverslá. Ekki voru
skoruð fleiri mörk i leiknum, sem
lauk meö sigri Keflvikinga 2:1.
Voru það ekki sanngjörn úrslit
eftir gang leiksins.