Tíminn - 11.08.1972, Síða 1

Tíminn - 11.08.1972, Síða 1
IGNIS UPPÞVOTTAVÉLAR SlMI: 19294 SÉMI: 26660 kæli- skápar RAFTÆKJADEILD Hafnarstræti 23 Símar 18395 & 86500 v. / Landhelgismál íslendinga á dagskrá - Einar Agústsson utanríkisráðherra segir: Yfirlýsing Svía okkur ekki óhagstæðari en von var til - KURR Á DANSKA ÞINGINU Þó—Heykjavik. Undanfarna daga hefur útfærsla fiskveiöitakmark- anna við tsland verið mjög tii umræðu á Norðurlöndum, og i gær afhenti sendiherra Svia á tslandi Einari Agústssyni utanrikisráðherra svoiátandi orbsendingu: „Sænska sendiráðið full- vissar utanrikisráðuneytið islenzka um virðingu sina og nýtur hér með þess heiðurs að viðurkenna móttöku orð- sendingar utanrikisráðu- neytisins hinn 14. júli 1972, ásamt reglugerð viðvikjandi fiskveiðitakmörkunum við Island. Ennfremur leyfir sendiráðiö sér að tilkynna: Almennt er viðurkennt, hve mjög Islendingar eru háöir fiskveiðum. A fyrirhugaðri hafréttarráöstefnu mun veröa aö þvl stuölaö af hálfu Svia, að tillit verði tekið til lögmætra þarfa allra hlutað- eigandi landa. betta tekur ekki sizt til landa eins og Islands, þar sem fiskveiðar skipta meginmáli fyrir efna- hagsafkomuna. Sænska rikisstjórnin harmar, að islenzka rikis- stjórnin hefur ekki taliö sér fært að biða niðurstööu haf- r^ttarráðstefnunnar. Eins og nú standa sakir er þaö von sænsku rikisstjórnarinnar, að tslendingar geti, með sam- ráðum við önnur hlutað- eigandi riki, tryggt sér nægjanlega stór veiðisvæði handa fiskiflota sinum”. Ummæli utanrikis- ráðherra Timinn átti i gær tal við Einar Agústsson og spurði um álit hans á þessari yfirlýsingu. Sagði Einar, að þessi yfir- lýsing væri okkur sizt and- snúnari heldur en hann heföi búizt við, að minnsta kosti miöað við þær fregnir, sem áður hafa borizt um afstöðu sænsku rikisstjórnarinnar. — I rauninni felur þessi yfirlýsing meðfram i sér vissan stuðning viö málstað tslendinga, sagði utanrikis- ráöherra. Utanrikisráðherra sagöi, að ekkert nýtt hefði borizt frá rikisstjórnum Danmerkur og Noregs um landhelgismálið, enda heföi þess hvorki verið farið á leit við þær né aðra, aö þeir birtu yfirlýsingar um af- stöðu sina til útfærslu fisk veiðitakmarkananna. Stjórnarandstaðan danska farin að ókyrrast Fréttastofufregnir frá Kaupmannahöfn i gærkvöldi hermdu, að rikisstjórnin danska sætti nú harðri gagn- rýni af hálfu stjórnarand- stööuflokkanna vegna þess, að hún hefur ekki tekiö afstööu til landhelgismálanna. Málsvari radikalaflokksins sagöi, að ekki kæmi til greina, að Danir styddu Islendinga, og talsmaður ihaldsflokksins var Einar Agústsson utanrikisrábherra. enn harðorðari. Formaöur "vinstriflokksins mælti með þvi, að Noröurlandaþjóðir, einkum Danir og Norömenn, leituöu samninga við tslendinga. Málsvari sósial- iska þjóðarflokksins kvað þetta mál ekki hafa verið rætt i flokki sinum, en yrði gert næsta laugardag. Utanrikisráöherra Dana vildi engu svara að svo stöddu, en máliö veröur rætt á rikisstjórnarfundi á þriðju- daginn kemur. Gullskipið að koma í Ijós? Kristinn og Bergur hefja boranir á Skeiðarársandi um helgina ÞÓ—Reykjavik. Þeir Kristinn Guðbrandsson og Bergur Lárusson eru nú búnir aö vera i röskan hálfan mánuð aiwt- ur á Skeiðarársandi ásamt gull- leitarflokki sinum. Nú hafa þeir fundið einhvern málm i sandin- um, og á sunnudaginn fá þeir bor austur. Með honum ætia þeir að bora þarna og kemur þá væntan- lega i Ijós i næstu viku, hvort gull- skipið svonefnda er fundið. Siggeir Lárusson á Kirkju- bæjarklaustri kvaöst ekki geta 'sagt neitt umþað, hvort þeir væru vissir um, að gullskipið væri fundið, þar sem hann hefði litið samband haft við leitarmennina siðustu daga. Siggeir sagöi, að leitarflokkurinn væri á Skafta- fellsfjöru, á svipuöum staö og þeir Kristinn og Bergur teldu sig nafa orðið varir við skip i sandin- um i vor. 13 menn hafa dvalizt á Skeiðar- ársandi undanfarið við leitina. Það eru fimm tslendingar og átta Bandarikjamenn, sem hafa veriö Bergi og Kristni til aðstoðar, en Bandarikjamennirnir hafa mjög fullkomin málmleitartæki til umráða. Eskifjarðarmegin. Astæðan til þess hve illa gengur, er sú, aö bergið er svo lint, aö það hrynur mun meira en ráð var fyrir gert. Sagöi Sigmar, að ef bergið reynd- ist jafnlint að norðan, yrði senni- lega að færa þau til þar, en gatið, sem búið er að gera aö sunnan, yrði þó látið halda sér. Charles Magnússon, vegaverk- stjóri við gangagerðina sagði i gærkvöldi, aö nú væri unnið að þvi að hreinsa frá berginu að noröan á þeim stað, sem gatið ætti að vera, og yrði þvi verki lok- iö næstu nótt. Það sem fram til þessa heföi komið i ljós, væri þvi miður svo lint berg, að það moln- aði undan ýtutönnunum. Hann sagði, að hreinsað yröi frá berg- inu á mun stærra svæði en þvi, sem opiö ætti að vera á, til að kanna bergið. Einar Sigurðsson verkstjóri sagði, aö eins og væri, ynnu menn báðum megin ganganna og útlit væri til að flytja þyrfti gangaopið að norðan til um eina 15 metra. Myndin, hvernig vegurinn yfir Oddsskarð liggur nú, og hvernig jarö- göngin skyldu liggja (beina strikið hvita). Núverandi vegur hverfur á kafla inn i skugga á myndinni til vinstri. Voru norður- Ijós í nótt? Visindamenn biðu með mælitæki i gærkvöld vegna þess, að búizt var við, aö raf- hlaðnar agnir frá sólgosi myndu dynja á lofthjúpi jarð- ar. Þess var vænzt sökum þess, að þá var iiðinn rúmur sólarhringur frá þvi að fram kom sveifla á segulsviðsmæli- tækjum, sem hugsaniega var vegna rafsegulbylgna frá sól- gosi. Kannski gefur bið þeirra góða raun og hafi einhver séð fjörleg norðurljós um mið- nættið, má telja það vist. Við sólgos berast tvenns konar öfl til jarðar — annars vegar eru rafsegulbylgjur, sem aðeins eru um 8 minútur til jarðar, og hins vegar raf- hlaðnar agnir,sem eru á annan sólarhring til jarðar. Sveiflan, sem getið er um fyrr i þessari frétt, gæti verið vegna raf- segulbylgna, og þess vegna var þess vænzt, að eitthvað gerðist sólarhring siðar, þ.e.a.s. i nótt. SB—Reykjavik Mjög illa hefur gengið að sprengja göngin gegn um Odds- skarð, á milli Noröfjaröar og Eskifjarðar, og er nú svo komið, aö verið getur, aö færa veröi göngin til, vegna þess hve bergið er laust i sér. Framkvæmdin er þegar oröin það langt á eftir áætl- un, að nær útilokaö er að komizt verði i gegn fyrir veturinn eins og áætlað var. Sigmar Hjelm, fréttaritari Timans á Eskifirði, sagði i gær, að nú þegar voru göngin orðin 25 metra löng aö sunnanverðu, Sunnudagsblaðið úr sumarfríi Sunnudagsblað Timans hefur aftur göngu sina eftir hásumarhvildina á morgun, laugardag, og fylgir þá blaö- inu. I þvi er m.a. rætt viö óskar Aðalstein um skáld- skap og vitavarðarstarf, og ýmislegt fleira er þar læsi- legt að finna. VERÐUR AÐ FÆRA ODDS- SKARÐSGÖNGIN TIL?

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.