Tíminn - 11.08.1972, Blaðsíða 7

Tíminn - 11.08.1972, Blaðsíða 7
Föstudagur 11. ágúst 1972 TÍMINN 7 Egfandiry, i stað þess að fara með Franco til Sikileyjar. Soraya fékk fréttirnar af flug- slysinu á heimili móður sinnar, og hefur móðirin sagt, að þetta hafi verið hræðilegasta augna- blikið i lifi dóttur sinnar. Næsta dag fór Soraya aftur til Rómar, en hún vissi ekki hvert halda skyldi, er til Rómar kom, þvi ekki gat hún hugsað sér að fara heim i ibuðina þar sem þau höfðu búið saman siðustu fjögur árin. Soraya hafði búizt við, að áður en langt liði gætu þau Franco gift sig, þar sem r?ý lög um hjónaskilnaði höfðu gengið i gildi i Italiu. Franco hafði verið kvæntur Amalie nokkurri, en hafði ekki búið með henni i mörg ár. Nú fór það þó svo, er Franco Indovina hafði látið lifið i flugslysinu, þá var það Amalie kona hans, sem fengin var til þess að skera úr um það, hvort þetta væri lik hans, en ekki Soraya, sem þó elskaði hann svo heitt. En nú er þessu öllu lokið og Soraya aftur ein. Þegar hún kom til Rómar eftir flugslysið var þessi mynd tekin af henni. Dökk gleraugun áttu að dylja tárin. ☆ Hitt og þetta frá Hollywood Sean Conncry hefur nú ákveðið að leika ekki James Bond i næstu kvikmynd um 007 njósnarann, Live And Let Live. Hann segist eiga nóg af peningum, og þarf ekki á þvi að halda að vinna i bili. Nú flýgur hann i hverri viku fram og til baka milli London og Marbella á Spáni til þess eins að sóla sig og spila golf. Tony Curtis er búinn að selja Sonny og Cher söngparinu, húsið sitt, en i þvi eru 45 her- bergi. lill St. John,sem er þekkt leik- kona, hefur nú opnað fata- verzlun iýmsum rikjum Banda- rikjanna. ☆ Lán að ofan Pat Boone, sem var einn alvin- sælasti dægurlagasöngvari heimsins á sjötta áratugnum hefur nú helgað sig trúmálum. Hann hefur meira að segja gengið svo langt að hann tekur að sér að skira fólk i sundlaug- inni sinni við glæsilega húsið, sem hann býr i i Hollywood. p]nn er hún ein 1 mai s.l. varð Soraya fyrrum keisarafrú enn einu sinni fyrir alvarlegu áfalli. Þá missti hún þann mann, sem verið hefur henni hvað tryggastur og beztur vinur undanfarin ár, en það er Franco Indovina leikstjóri. Þau Soraya og Franco höfðu verið ó- aðskiljanleg undanfariö, en svo gerðist það 5. maí s.l. að flugvél fórst með 114 farþegum i lendingu i Palermó. Einn þeirra, sem i vélinni var, var Franco Indovina. Lézt hann samstundis sem og allir aðrir. Soraya fékk þessi hörmulegu tiðindi til Miinchen. Þangað hafði hún farið til þess að heim- sækja móður sina, Evu ☆ Sumum hefur ekki fundizt geta samræmzt þessari miklu trúar- vakningu, að Pat Boone berst mikið á og á meira að segja Rolls-Royce, en Pat Boone hefur svör á reiðum höndum. Billinn er nefnilega fenginn að láni hjá guði almáttugum sjálfum. Ekki vitlaus i föt Jacqueline Kennedy hefur lengi verið þekkt fyrir fatakaup sin. Samt er nú sagt, að hún sé hætt að eyða eins miklum peninga- upphæðum i fatakaup og hún eitt sinn gerði. Hún eyðir nú aðeins 100 þúsund dollurum eða 9milljónum króna til fatakaupa siðasta ár. Þætti ýmsum, sem það ætti að nægja, svona fyrir flestar konur, en Jackie er auðvitað ekki venjuleg manneskja. Elskar hana enn Steve McQueen sem er mikið hörkutól á hvita tjaldinu, hefur komizt að þeirri mðursloöu aö hann elski enn konuna sina hana frú Neile. Hann hafði verið staðráðinn i þvi að skilja við hana, þar til hann heyrði, hvað það mundi kosta hann að gera það. Hann hefði orðið að greiða henni meðlag i 10 ár að upphæð 144 milljónir króna og auk þess ætlaði hún sér að halda eignum að verðmæti 25 milljónir króna. — Ég hef ekki ráð á sliku, herra dómari, sagöi McQueen fyrir réttinum. Nú er hann sem sagt byrjaður á upphafinu aftur eins og hann gerði þegar hann giftist Neile fyrir 14 árum. — Það er nefnilega þrátt fyrir allt Neile, sem ég elska segir hann. Ég held þú ættir að fara upp á háaloft og sjá, hvað hann er að lesa, þvi hann sagði, að það væri eini staöurinn, þar sem hann væri öruggur. DENNI DÆMALAUSI

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.