Tíminn - 11.08.1972, Qupperneq 10

Tíminn - 11.08.1972, Qupperneq 10
10 Árelíus Níelsson: BÆNAÞREPIN HELGU í RÓMABORG Fáir munu þeir, sem gerast pilagrimar til borgarinnar eilifu, Rómaborgar, að ekki komi þeir að Altari páfanna við þrepin helgu eða Bænastigann, sem sumir nefna svo. Þetta er raunverulega einn æðsti eða æðsti helgidómur katólsku kirkjunnar, og þó eink um tengdur kvöl og dauða Krists. Flestir aðrir helgistaðir og þá um leið höfuðkirkjan sjálf, Péturskirkjan, eru tengdir að nafni og sögnum vissum dýrling- um og postulum. En bænaþrepin eru eingöngu helguð Kristi sjálf- um, og minna þó aðeins á annan mann, sem aldrei verður með helgu fólki talinn, þótt nefndur sé einn manna utan Krists og Mariu i sjálfri trúarjátningunni. En það er Pontius Pilatus, hinn frægi dómari og landstjóri á dögum Jesú i tsrael. En þrepin helgu eiga sam- kvæmt arfsögnum að vera hallar- þrepin úr höll Pilatusar, stiginn, sem Jesús varð að ganga upp til dómarans i hásæti landstjórans og svo niður til krossfestingar. Þessi fornhelgi dómur er rétt við kirkju heilags Jóhannesar Læter- an og hýsir hina fornhelgu hallar- kirkju páfanna, forna og ginnheil- aga, sem geta má nærri, og er hún oft nefnd Sancta Sanstoreem — hið allra helgasta. t þessari kapellu er varðveitt hin forna eða l'yrsta (!) mynd af Kristi. „Endurspegiunin”, þvi að hún á ekki að vera með höndum gjörð. Hin helgu þrep, Bænaþrepin, eru 28 aö tölu. En það er hin forn helga sjötala fjórum sinnum. En fjórir er tala máttarins, horn- steinar, áttir, undirstöður þess, sem vel skal vanda og lengi á að standa. Þrepin helgu liggja upp i kapelluna. Þau má ekki fótum, heldur skulu heimsækj- endur þokast upp krjúpandi á knjám og lesa bæn i hverju þrepi. Allar eru bænirnar helgaöar einhverjum áfanga eða atviki i Pislarsögu Krists og enda á orö- unum: Miskunna þú oss. Þessar bænir og þrep mætti telja passiusálma hinnar kaþólsku kirkju. Og allt er þetta fagurt og fornt og helgað hugsun, troöalotningu og tilbeiðslu kyn- slóðanna. En islendingi getur fundizt það flatneskja miðað við andlega hæð hugsunar og snilli Passiusálma Hallgrims Péturs- sonar á islenzkri tungu. En þarna er þó fátt eða ekkert, sem bundið er vissum dogmum eða guðfræðifjötrum og má telja það hærra stig, hafið yfir timans takmarkanir og tizkunnar viðjar og vafstur. Stiginn, eða bæna- þrepin, eru samkvæmt „óstaö- festri” helgisögn flutt til Róm á fjórðu öld af Helenu helgu, keis- aradrottningu. Vel gæti þetta auðvitað átt sér stað. En annars eru flestir helgi- dómar og helgigripir fyrst og fremst helgaðir trú þeirra, sem umgangast þá, miklu fremur en veruleikanum, sem þeir eru tengdir vafasömum sögnum. Þessar sagnir færa þá inn i heim hins huglæga, eilifa og ó sýnilega og verða, að vissu leyti, sannar likt og list eða skáldskap- ur, þótt enginn raunverulegur at- burður liggi aö baki þeirra. Eitt er vist með þennan stiga, hann hefur fylgt páfahöllinni eða kapellu hennar frá þvi sögur hóf- ust og einhver hluti hans gæti ver- iðaustan frá Jerúsalem. Eitthvað hefur helgað hann i upphafi, tengt hann nafni Krists, annars væri hann löngu úr sögunni. Páfarnir gengu hann sjálfir á knjánum, einhverjir til að sýnast, aðriraf lotningu i trú og auðmýkt, einlægir og sannir. En lotning og Framhald á bls. 19 TÍMINN Föstudagur 11. ágúst 1972 Föstudagur 11. ágúst 1972 TÍMINN 11 Baná í - Bahá'í - » Bahá í - Baháí - það, hvernig þau ætli að kjósa I svæðisráð. Engar umræður um það, hvern menn telja hæfastan, mega eiga sér stað, og stingur það mjög i stúf við kosningar i flestum samtökum öðrum. Takmark Bahá'ia er eining mannkyns, svo að þvi geti hlotn- azt Hinn mesti friður. Fyrsta sporið er, að sérhver Bahá’ii kynni sér kenningarnar og ein- beiti sér að þvi að samlaga lif sitt þeim lifsreglum, sem þar eru settar. Lög þau, sem Bahá’u'lláh setti um hegðun einstaklingsins og sérhver Bahá’ii verður að viðurkenna, eru þessi: Daglegar bænir, þar með þessi stutta skyldubæn: „Ég ber þvi vitni, ó, Guð minn, að þú hefur skapað mig til þess að þekkja þig og tilbiðja þig. Ég staðfesti á þessu augnabliki vanmátt minn og mátt þinn, fátækt mina og auð- legð þina. Enginn er Guð nema þú, hjálpin i nauðum — sá, sem viðhelzt af sjálfum sér”. Fasta er fyrirskipuð einu sinni á ári og stendur i nitján daga — nær yfir eitt Bahá’i-timabil, há- fleygistið, frá 2. marz til 21. marz. Þá fasta Bahá’iar frá klukkan sex að morgni til klukkan sex að kvöldi, þvi að dagurinn miðast við sólarlag. Hvorki er neytt matar né drykkjar þessar tólf stundir. Föstubæn er sögð til þess að auð- velda föstuna, ýmist hvern dag áður en fasta hefst eða á meðan á henni stendur. Föstunni lýkur með þvi, að Bahá’iar koma sam- an til nýársfagnaðar að kvöldi 20. marz. Neyzla áfengra drykkja og eiturlyfja er bönnuð. Bahá’u’lláh segir, að ýmsir jarðneskir hlutir séu mönnum óhollir, eitur og vimugjafar geti verið lyf, en al- menn neyzla sliks spilli mannin- um og skemmi heila og tauga- kerfi. 1 augum Baháia er til- beiðsluástand ákjósanlegt, en þess má ekki leita með fikn i ann- arlegt ástand. Kveðja Bahá’ia er: „Guð er mestur”. Baktal og róg banna Bahá’iar. Bahá’u’lláh segir: Sá, sem verður mannsbani, hefur einungis drepið likamann, en sálin mun iifa og þroskast til fullkomnunar. Sá, sem rægir og baktalar, lamar aft- ur á móti sál þess, sem rægður er, svo að hún verður ekki fær um að ná þroska sinum. Astúð, vinátta, skilningur, umburðarlyndi og hjálpfýsi eru þeir þættir mann- legra samskipta, sem Bahá’iar biðja stöðugt um liðveizlu við að þroska, svo að þeir lami ekki sálir annarra, heldur styðji hver annan til þess að þroskast i fögnuði um- hverfis sins. Bahá’i-gifting verður ekki framkvæmd og Bahá’i-hjónaband ekki viðurkennt, nema svæðisráð hafi gengið óvéfengjanlega úr skugga um, að hjónaefnin séu bæði fús til giftingarinnar og hafi til þess skriflegt samþykki for- eldra sinna. Með þessu vildi Bahá’u’lláh girða fyrir að nokkur giftist nauðugur, en samþykki foreldranna á að gera þá ábyrga og stuðla að einingu fjölskyldunn- ar. Skilnaður er leyfilegur meðal Bahá’ia, en þó einungis eftir itrekaðar sáttatilraunir. Skilnað- ur segir Bahá’u’lláh þó, að sé „ein hin mesta viðurstyggð i augum Guðs, og vei þeim, sem á sök á honum”. Tilgangur hjónabands er i fyrsta lagi að viðhalda mann- kyninu og i öðru lagi að hjón leiði hvort annað til þess mests þroska: „Gangið I hjónaband, ó fólk, svo að frá ykkur megi koma sá, er nefnir nafn mitt”, segir Bahá’u’Uáh. Abdúl Bahá hefur sagt: „Ég þrái, að þið berið af andlega — það er: Þið verðið að bera af i siðferði ykkar. Þið verð- ið að bera af i ást ykkar til Guðs umfram allt. Þið verðið að bera af i elsku ykkar til mannkynsins, i einingu ykkar og samhug, i ástúð og réttvisi. 1 stuttu máli: Þið verðið að bera af i öllum dyggð- um hinnar mannlegu veraldar — i Trúarbrögð, sem eru þorra íslendinga nálega ókunn, hafa skyndilega aflað sér margra áhang- enda á fáum misserum: Bahá-i-trú. Fæstir vita öllu meira um þessi trúarbrögð en það, að þau eru upp komin i löndum Múhameðstrúarmanna. Nú er likiegt, að musteri þessa trúarflokks risi senn i Kópavogi, og þá er lika kominn timi til þess, að al- menningur kunni á honum einhver skil. Þess vegna hefur Timinn fengið Bahá-ia sjálfa til þess að gera grein fyrir trúarbrögðum sinum og útbreiðslu þeirra. Greinar þær, sem hér birtast, hafa starfs- menn Timans unnið upp úr heimildum frá þeim og að mestu fylgt orðalagi þeirra. .w.v.v.v.v.v.v.vA'.v.'.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.tv.w.v.v.v.v.v.v.v/.v.'.V, | Kynning Þórhalls biskups 1908 l Þórhallur biskup Bjarnar- son var einhver frjálslyndasti og kreddulausasti kirkju- höfðingi sem þjóðin hefur eignazt og fór ekki dult með að kjarninn var honum meira virði en hýðið og hismið. Þess vegna kemur það ekki svo mjög á óvarl, að einmitt hann kynnti Baháia undir fyrir- s ö g ninni „P erneskur Messias" með þessum lof- samlega hætti árið 1908, að visu stuttorður að vanda: „Fyrir fjörutiu árum reis upp dýrlegur kennimaður og guðsvottur á Persalandi, og hét hann Baha Ullah. Eins og við mátti búast, dó hann pislarvættisdauða — andaðist i tyrkneskri prisund 1892. Margir fylgjendur hans hafa látið lifið fyrir trúarskoðanir sinar, én þær breiðast þvi betur út. Kenningar hans eru að mörgu leyti svipaðar kenningum kristindómsins, eins og mannúðariegast og göfugast er með þær farið. Þessi er sögð að vera megin- atriði i kenningar hans: 1. Einn er guð 2. Eitt er bræðrafélag allra manna. 3. Konan er jafnrétta við karl- mann. 4. 011 trúarbrögð hafa meira og minna satt að geyma. 5. Vinnan er guðsþjónusta, sanntrúaðir menn verða að vinna. 6. Rangt er að taka kaup fyrir að boða sannleikann. 7. Alheimssáttanefnd skal skipuð til að skera úr málum rikja á miiium. 8. Eitt allsherjartungumál er nauðsynlegt, verður að búa þaö til, ef eigi fæst á annan hátt. Það þykir stórmerkilegt að maður austur i löndum skuli hafa náð göfugustu og djörfustu hugsjónum sið- menningar þjóðanna vest- rænu, og benda menn þá einkum á 3., 7. og 8. liöinn.” hafði þá verið aðlaður af Bretum. Abdúl-Bahá útnefndi i erfða- skrá sinni Shoghi Effendi, dóttur- son sinn, fyrsta vörð trúarinnar, og eftir hann skyldu koma niðjar hans i beinan karllegg. En Shoghi andaðist barnlaus, og þvi er nú enginn vörður trúarinnar i heiminum, heldur alheimsráð, sem Bahá’u’fláh lögfesti að stofna mætti. Köllun Bahá’u’lláh var að koma á einingu mannkyns —■ þurrka burt misræmi trúarbragða og kynþátta og leiða mannkynið til heimsfriðar. I bréfum sinum til þjóðhöfðingja veraldarinnar hvatti hann þá til þess að koma saman á þing, semja um afvopn- un og nýta auðæfi landa sinna þegnunum til farsældar. Heims- trúfesti og einlægni, i staðfestu og stöðuglyndi, fyrir mannúðarverk og þjónustu við hina mannlegu veröld, i ást til allra mannvera, við að eyða fordómum og vinna að alþjóðafriði". Hópstarf Bahá'ia heyrir undir stjórnunarskipun trúarinnar. Bahá’u'lláh mælti svo fyrir, að á hverjum stað, þar sem tala Bahá'ia nær niu, skuli stofnað Hús réttvisi (andlegt svæðisráö). Með hverri þjóð, þar sem fjöldi svæðisráða fiefur náö tilsettri tölu, er stofnað andlegt þjóðráð, en yfirstjórn trúarbragðanna er i höndum Allsherjarhúss réttvis- innar, sem stofnað var árið 1963. Útbreiðsla Bahá'í-trúar Allsherjarhús réttvisinnar, sem stjórnar útbreiðslu Bahá’i-trúar, hefur starfað i tiu ár. Þjóðráð eru nú i hundrað og þrettán löndum og svæðisráð skipta að sjálfsögðu mörgum þúsundum. Bahá’iar eru i öllum álfum heims — i borgum, bæjum og þorpum, meðal hirðingja og á skipum — jafnvel eru til fangelsi, þar sem svæðisráð hafa verið stofnuð. Og Bahá’iarhafa fulltrúa hjá Sameinuðu þjóðunum i aðal- stöðvum þeirra i New York og fengu þar tillögurétt árið 1969. Mest er útbreiðsla trúarinnar i Persiu, Indlandi, Viet-Nam og Bandarikjunum, en siðustu árin hefur hún breiðzt óðfluga út i sumum löndum Afriku.og Suður- Ameriku og þó ekki sizt Evrópu — hvergi samt hlutfallslega jafnört um þessar mundir sem hér á Is- landi. Margar útbreiðsluráðstefnur hafa verið haldnar i Evrópu i sumar, og hafa þó nokkur islenzk ungmenni sótt þær. Framgangur Bahá'í-trúar á íslandi Það er erfitt að segja með fullri vissu, hvenær Bahá’i-trúar var fyrst getið hérlendis, þar sem viða þyrfti aö leita i blöðum til þess aö ganga úr skugga um þaö. En i Nýju kirkjublaöi Þórhalls biskups Bjarnasonar var vinsam- lega frá henni sagt árið 1908. Aft- ur á móti mun það fyrst hafa ver- ið árið 1926, aö eyru voru lögð að ráði við kenningum þessa trú- flokks hérlendis. Þá kom i Hnitbjörg listasafn Einars Jónssonar, útlend kona, er var farþegi á skemmtiferðaskipi. Hún hét Amalia Collins. Hún var Bahá’ii. Til leiðsögu i safninu var Hólmfriður Arnadóttir, kennari og rithöfundur, skagfirzkrar ætt- ar. Hún var guðspekinemi og fús til þess að hlýða á nýstárlegar kenningar. Kunningsskapur tókst með þeim Amaliu og Hólmfriði, og sá kunningsskapur leiddi til Leghýsi Bábins á Karmelfjalli þess, að Hólmfriður þýddi eina af bókum Bahá’ia, Bahá’u’lláh og nýi timinn, er siðan var gefin út og dreift viða um land. Það var þó ekki fyrr en 1950, að tslendingur snerist opinberlega til Bahá’i-trúar. Það gerðist úti i Danmörku. Siðar kom hann heim, og um skeið var hann einn um átrúnað sinn á tslandi. Stóð svo, þar til fólk frá Danmörku og Kan- ada kom hingað árið 1958 til þess að kynna þessi trúarbrögð, sam- kvæmt tiu ára áætlun, er gerð hafði verið. Við þessa heimsókn snerust þrir tslendingar til Bahá’i-trúar. Tveir þeirra eru nú látnir, annar þeirra rithöfundurinn Jochum Eggertsson, öðru nafni Skuggi. Um sama leyti gerðust Bahá’iar tvær þýzkar konur, sem búsettar voru hérlendis, önnur islenzkur rikisborgari. Aður en þetta gerðist hafði Bahá’i-trú veriö kynnt hér opin- berlega með fyrirlestrum i út- varpi og á fundum. Það gerði Marta Root, heimskunn kona, ár- ið 1936. Arið 1963 hófst niu ára áætlun um útbreiðslu trúarinnar, og það er á þessu timabili, er straum- hvarfa verður vart, þótt Bahá’i- trú hafi ekki stórunnið á fyrr en siðustu misseri. Fólk byrjaði að snúast til Bahá’i-trúar 1964, þó mjög dræmt, og i ársbyrjun 1971 voru tuttugu og sex Bahá’iar á Is- landi. Þá var i fyrsta skipti skipu- lögð gagnger kynning á trúnni, og um eina helgi i janúarmánuði 1971 tvöfaldaðist tala islenzkra Bahá’ia. Eftir þetta fór Bahá’ium ört fjölgandi, og i septembermánuði 1971, er Norður-Atlantshafsráð- stefna Bahá’ia var haldin i Reykjavik, voru islenzkir Bahá’i- ar orðnir fjögur hundruð. Fyrsta svæðisráð Bahá’ia var stofnað i Reykjavik 1965, en á eft- ir fylgdu svæðisráð i Hafnarfirði, Kópavogi og Keflavik 1971 og á Akureyri 1972. Þjóðráð var i fyrsta skipti kosið 28. april 1972. Nú siðustu mánuði og misseri hefur fjöldi fólks snúizt til þessar- ar trúar, langflest þess ungmenni á aldrinum fimmtán til tuttugu ára. t fyrravetur létu Bahá’iar talsvert til sin taka i ýmsum skól- um, svo sem Núpsskóla, Skóga- skóia, Hamrahliðarskóla og heimavistarskólanum i Neskaup- stað. 1 sumar hafa fjórar sveitir Bahá-ia verið á ferðalagi um landið til þess að kynna þessa nýju trú, og sums staðar hefur þeim orðið verulega ágengt. Þannig gerðust þrjátiu og þrir Bahá’iar á Akranesi, þrjátiu i Borgarnesi, tólf i Stykkishólmi og tiu á Hvammstanga. Aftur á móti aðeins einn á Selfossi og tveir á Eskifirði, svo að dæmi séu nefnd. Það mun varla fjarri lagi, að Bahá’iar hérlendis fari að nálgast tvöfalda þá tölu, er var um þetta leyti i fyrra. Þetta er þó ályktun blaðsins sjálfs, og ef til vill hefur tala manna i þessum trúarflokki ekki farið yfir sjö hundruð — enn sem komið er. Nú er á döfinni, að Bahá’ar reisi musteri i Kópavogi, og að minnsta kosti sums staðar úti á landi hafa þeir merkt sér hús. Þannig má til dæmis sjá i Fjarðarstræti á tsafirði áletrun- ina „Bahá’i-hús”. Meðal Múhameöstrúarmanna cru þcir menn nefndir múllar, er iðka rannsóknir á kóraninum og leiðbeina þeim, sem aöhyllast Múhameðstrú. Það gerðist austur i Pcrsiu, að tveir múllar spáðu komu hins fyrirheitna fræðara fyrir tæpum tvö hundruð árum. Þeir sendu lærisveina i leit að honum, og nokkru eftir dauöa annars múllans fann einn læri- sveina hans slikan mann og tók við yfirlýsingu hans um köllun sina. Þetta var 23. mai 1844. Hann hét Ali Múhammeö, en tók sér upp frá þessu nýtt nafn, Bábinn, scm þýðir hliöiö. Bábinn sagðist þó aðeins vera fyrirrennari heimsfræðara, sem skjótt myndi koma fram á sjónar- sviðið og búa menn undir viðtöku guösrikis. Bábinn ritaði Báyaninn, helga bók, en nitján árum eftir að hann kom fram, lýsti Bahá’u’lláh yfir köllun sinni. Bábinn var tekinn af lifi af stjórnarvöldum i Persiu, sem óttuðust hinn nýja boðskap, og i kjölfarið fylgdu atburðir, sem leiddu til mikilla ofsókna og lif- lát þrjátiu þúsund Baháía. Frá aftöku Bábins var sagt i blöðum i Evrópu, þvi að erlend- um sendiherrum hafði verið boðið að vera við aftökuna. En i fyrstu atrennu gerðist þaö, að aftöku- sveitin skaut i sundur böndin, sem fanginn var bundinn með en grandaði ekki honum sjálfum. Um þetta var samið leikrit, og var sá sjónleikur sýndur bæði i Parisog Moskvu. Sara Bernhardt var einn leikendanna. Bábinn stofnaði nýtt timatal, og þvi fylgdu Bábiar og siðar Bahá’iar. Þar er árinu skipt i nitján timabil og eru nitján dagar i hverju, en þar við bætast fjórir til fimm aukadagar á ári i lok næstsiðasta timabilsins og byrjun hins siðasta, sem lýkur á jafn- dægri á vori, 21. marz ár hvert. Við sólsetur i árslok halda Bahá’iar nýárshátið, sem hefst við sólsetur, þvi að þá telja Bahái’ar nýjan dag byrja. Sam- kvæmt þessu dagatali er haldin nitján daga hátið, er deilist á fyrsta dag hvers timabils. t ofsóknum persneskra stjórn- arvalda árið 1853 var Bahá’u’all- áh hnepptur i fangelsi, þar sem hann sat i hlekkjum með járnfjöt- ur um háls. Loks var hann leystur úr dýflissunni fyrir atbeina rúss- neska sendiherrans, en alla ævi bar hann mikil ör á herðurn og hálsi eftir járnfjöturinn. Rúss- neski sendiherrann var tengdur fjölskyldu Bahá’u’lláh. Nú var Bahá’u’lláh rekinn i út- legð til Bagdad, en þaðan komst hann seinna sendur til Kon- stantinópels. Þaðan hraktist hann á enn aðra staði, unz honum var komið til Akka i Palestinu þar sem Tyrkir vistuðu þá stórglæpa- menn, er þeir kölluðu. Þaðan átti enginn afturkvæmt. Frá Kon- stantinópel skrifaði Bahá’u’lláh öllum þjóðhöfðingjum jarðar bréf, þar sem hann lýsti köllun sinni, og varaði við þvi, að hásæti þeirra myndu hrynja, ef þeir sinntu ekki oröum hans. Allir litilsvirtu bréf hans, nema Viktoria Bretadrottning, er svar- aði: „Ef þetta er af guði, þá mun það vara — ef ekki, þá að engu verða.” Bahá’u’lláh andaðist 29. mai 1892 og skipaði i erfðaskrá sinni elzta son sinn, Abdúl-Bahá túlk- anda og skýranda kenninga sinna. Abdúl-Bahá, túlkandinn, var fangi með föður sinum frá tiu ára aldri og allt þar til Ung- Tyrkjar steyptu stjórnarvöldum lands sins af stóli 1908. Eftir það ferðaðist hann viða, meðal ann- ars til Vesturheims, þar sem Bahá’i-trú hafði náð fótfestu. Við hann eru trúarbrögðin nú kennd. Hann lézt i Haifa i ísrael 1921 og Virkiö I Akka. Bak viö gluggana til hægri er fangaklefinn, þar sem Bahá’u’lláh var hafður I haldi áriö 1868. Ætlun óvina hans var aö brjóta Bahá’I-trúna á bak aftur, en fangavist höfundar hennar varö henni þvert á móti hin mesta tyftistöng. Spámaðurinn Bahá’ u ’ lláh, upphafsmaöur Bahá’f-trúar. friður og farsæld mannkyns er enn i dag markmið Bahá’ia. Hættir Bahá'ia, markmið og kjarni trúarskoðana Hvcrnig eru hættir Bahá’ia, hvaða reglum fylgja þeir og hvað telja þeir mikiivægast i sambúð sinni? Þvi má kannski svara i stuttu máli á þessa leið: Messur telja þeir sig ekki þurfa. Aftur á móti lögfesti Bahá’u’lláh daglegar skyldubæn- ir, svo að allir Bahá’iar skyldu vera i daglegu samneyti við guð, auk ýmissa annarra bæna, sem sagðar eru fram kvölds og morgna og um miðjan dag, jafn- vel einnig um nætur. Bahá’iar ráðgast sin á milli um öll málefni sin. Ekkert er fram- kvæmt fyrr en það hefur verið samþykkt eftir rækilegar umræð- ur. Þannig bera allir Bahá’iar, á hvaða aldri sem þeir eru, sam- eiginlega ábyrgð á málefnum samfélagsins. Þessi samráðgun fer fram á nitján hátiðisdögum, þar sem mál eru borin fram til umræðna. Þegar Bahá’iar koma saman, byrja þeir samfundi sina á bæna- gerð, sem á að hreinsa hug og hjarta af skoðunum og viðhorf- um, sem þeir kunna að hafa til- einkað sér fyrirfram, svo að þeir geti veitt öllum tillögum og rök- um viðtöku opnum huga og verið við þvi búnir að hverfa frá þvi, sem þeir sjálfir hafa gert sér i hugarlund. Jafnskjótt og tillaga hefur verið lögð fram eða skoðun orðuð, er hún orðin ópersónuleg. Hún er ekki lengur hugmynd þess, sem flutti hana, heldur allra eign, og hana ber að rannsaka rækilega og betrumbæta eins og föng eru á og þjónar þvi mark- miði, sem aö er stefnt. Leiðtoga- staða er ekki til, og markmiðið er það eitt að þjóna samfélaginu og einstaklingum innan þess. Kosningar meðal Bahá’ia fara fram einu sinni á ári á svokallaðri ridvanhátið, 1. april, og þá er all- ur kosningaáróður bannaður. Svo fast er eftir þvi gengið, að hann eigi sér ekki stað, að hjón mega ekki bera saman bækur sinar um

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.