Tíminn - 11.08.1972, Side 16

Tíminn - 11.08.1972, Side 16
16 TÍMINN Köstudagur 11. ágúst 1972 ón;Alfreft Þorsteinsso 3 ENGIR SKIPTI- MENN í BEZTA KVENNA- KÖRFUKNATT- LEIKSLIÐI EVRÓPU Kvennaliðiö TTT frá Riga hefur i mörg ár verið óum- deilanlega fremsta körfu knattleikslið Sovétrikjanna og Evrópu. Liðið.sem er aðili að lettneska iþróttasambandinu, hefur sýnt ótrúlegt öryggi. Ellefu sigrar i tólf Evrópu- mótum meistaraliða og ellefu gullverðlaun i sovézku meistarakeppninni. 1 þessi tólf ár, sem með réttu mætti kalla TTT-timabilið hafa Riga- stúlkurnar aðeins einu sinni misstaf fyrsta sætinu. Það var fyrir 9 árum, þegar þær töpuðu fyrir Slavia frá Sofiu i undanúrslitum Evrópubikar- keppninnar. Hvers vegna er TTT svona gott lið? Þetta er spurning, sem margur hefur lagt fyrir sjálfan sig. Ætla má, að það byggist fyrst og l'remst á nýrri leikaðferð, sem liðið hel'ur til- einkað sér. 1 þvi eru engir .skiptimenn” i þess orðs venju- legu merkingu. Allar stúlkurnar tólf taka yfirleitt Íálikamikinn þátt i leiknum. TTT varð fyrst til þess sovézkra körfuknattleiksliða að taka upp þessa leikaðferð undir handleiðslu þjálfara sins Olgerts Albergs. Arangur liðsins náðist ekki i einu vetfangi. A fyrstu árum sinum var TTT greinilega lakara en mörg önnur sovézk kvennalið. En Albergs tókst smámsaman að skapa óvenju- lega sterkt og samhæft lið úr stúlkunum sinum, þar sem allar stúlkurnar tólf voru ómissandi hlekkir i keðjunni. Hin raunverulega sigurganga hófst i byrjun sjöunda ára- tugsins, er TTT sigraði alls- óvænt bandariska landsliðið. Það var i fyrsta sinn, sem bandarisku stúlkurnar töpuðu fyrir félagsliði. Það eru engar ýkjur að segja, að Rigastúlkurnar hafi i rikum mæli auðgað körfu- knattleikinn leiktæknilega séð. TTT varð fyrst liða til þess að taka upp svokallaða hringvörn, varnarafbrigði, sem dregur mjög úr tæki- færum mótherjanna til þess að skora mörk. TTT hefur lengi ekki notað bakverði i gamalli merkingu þess orðs. Reglan er sú, að allt liðið tekur þátt bæði i sókn og vörn. Aðeins ein leikkvenna liðsins, sem i þvi var er það hóf sigurgöngu sina fyrir 12 árum, leikur enn með þvi. Hún heitir Skaidrite Smildzine. Liðið hefur einnig skipt um þjálíara. Nú stýrir Raimond Kartinas TTT, en hann var á sinni tið kunnur sem einn leiknasti leikmaður i sovézk- uin körfubolta. Kartinas hefur forðazt að breyta leikstil liðsins. Hann heldur fast við hina hefðbundnu aðferð Albergs — ,,allar með i leikn- um”. Hvernig er TTT skipað i dag? Fyrst og fremst skal að sjálfsögðu nefna Skaidrite Smildzine, sem nú er orðin 29 ára. Hún kom fyrst fram með TTT er hún var 16 ára skóla- stúlka árið 1959. Þá þegar var hún orðin 189 cm á sokka- leistunum. Enn i dag er hún talin bezti leikmaður liðsins. Hún hefur einnig leikiö oft- sinnis i sovézka landsliðinu með frábærum árangri. Leik- aðl'erð hennar er mjög at- hyglisverð. Gagnstætt mörgum öðrum stjörnum i körfuknattleik kvenna reynir hún ekki að likja eftir karlleik- mönnunum. Hún leikur snöggt, mjúkt og mjög kven- lega. Sérfræðingar segja, að hún kunni allt i körfuknattleik og jafnvel margir úrvals karl- leikmenn gætu margt af henni lært. Uljana Semjonova er annað þekktasta nafnið í liðinu. Hún er óvenju há, jafnvel af körfu- knattleiksleikmanni að vera (210 cm) og hefur verið i lremstu röð alllengi, þótt hún sé aðeins tvitug. Af öðrum liðsmönnum má nefna tviburasysturnar Maju Saleniece og Maigu Skapane. Inta Pane,, sem er 168 á hæð og minnsta stúlkan i liðinu, Tamara Hendele og Dzintra Grudmane eru einnig mjög góðar en allar eru stúlkurnar á heimsmælikvarða. Sigrar Rigastúlknanna hafa aldrei verið léttunnir. Sovétrikin eiga mörg kvenna- lið, sem geta veitt TTT harða keppni. Það eru fyrst og fremst háskólaliðið frá Tartu i Eistlandi, SKA frá Leningrad, Spartak frá Moskvu og Kigrikstis frá Vilnius i Litháen. En i tólf ár hefur ekkert þessara liða getað stöðvað sigurgöngu TTT Framtiðin mun skera úr um það, hve lengi TTT-timabilið i sögu sovézks körfuknattleiks stendur. RÖÐUÐU SÉR r\ í EFSTU SÆTIN V Kvenfólkið lætur sifellt meira til sin taka, á golfvellinum. A myndinni hér til hliöar eru þær fjórar konur, sein skipuðu efstu sætin á nýaf- stöðnu islandsmóti i golfi. Talið frá vinstri: Jakobina Guðlaugsdóttir, GV, sem sigraði. Elisabet Möller, GR, sem varð i öðru sæti. Hanna Aðalsteinsdóttir, sem hreppti þriðja sæti og Sigurbjörg Guðnadóttir, sem varð i fjórða sæti. (Timamynd Gunnar). Eftir örfáar vikur hefst mesta iþróttahátið veraldar, Olympiuleikarn- ir, sem vcrða hinir 20. i röðinni. Oly mpiueldurinn hefur verið tendraður — og allt er til reiðu i Miinchen i Vestur-Þýzkalandi, sem verður vett- vangur leikanna að þessu sinni. Segja má, að Olympiuæði hafi gripið um sig i mörgum löndum. Á boðstólum eru margs konar vörur og tæki, tengd leikunum i Miinchen, m.a. Olvmpiuboltinn, sem er geysivinsæll. A myndinni sjást tveir ungir piltar leika sér með slika bolta fyrir framan Olympiubúðina i Austur- stræti. OLYAAPÍU- LEIKAR NÁLGAST Einar Guðnason skauzt upp í efsta sætið - miklar breytingar á lista 10 beztu kylfinganna eftir íslandsmótið Miklar tilfæringar urðu á listanum yfir 10 stigahæstu menn i Stigakeppni Golfsambands Islands eftir fslandsmótiöT golfi, sem fram fór i siðustu viku. Það mót gaf stig til landsliðsins og fengu 15 efstu menn stig i þvi. Sigurvegarinn. Loftur Ólafsson, 15 stig, annar maður 14. o.s.frv. Féllu nú af listanum tvö nöfn frá þvi siðast- Sigurður Héðinsson, GK og Jón H. Guðlaugsson, GV, en þeir voru ekki með i þessu móti. 1 stað þeirra komu Björgv. Þorsteinsson, GA og Jóhann Benediktsson, GS, sem báðir voru búnir að fá stig i mótum fyrr i sumar. Einar Guðnason, GR, er nú i efsta sæti á listanum með 35,5 stig. Tók hann nú efsta sætið af Björgvin Hólm, GK, sem hætti keppni i Islandsmótinu eins og þegar er kunnugt. Annars er röð 10 efstu manna i Stigakeppninni þessi: Stig Mót Einar Guðnas. GR 35,5 4 Jóhann Ó. Guðmdss. GR 31,5 5 Björgvin Hólm, GK 30,5 4 Gunnl. Ragnarss. GR 29 6 Loftur Ólafss. NK 28 4 Júiius R. Júliuss. GK 27,5 6 Óttar Yngvas. GR 25,5 4 Þorbjörn Kjærbo, GS 23,5 3 Jóhann Benediktss, GS 19,5 4 Björgvin Þorstss. GA 18,5 2 Nú eru aðeins 3 mót eftir, sem gefa stig til landsliðsins og eru þau öll utan Reykjavíkur- eða á Akranesi, Akureyri og svo mót sem haldið verður á völlunum á Ólafsfirði og Siglufirði. Að þeim loknum verður hægt að sjá hvaða 10 menn skipa landsliðshópinn næsta sumar.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.