Tíminn - 11.08.1972, Page 17
Föstudagur 11. ágúst 1972
TÍMINN
17
Breiðablik, þvi að ekki er fin-
leikanum fyrir að fara hvort eð
er.
Samt verður að segja um leik
Breiðabliks i fyrrakvöld, aö sam-
leikur liðsins var með bezta móti.
Knötturinn gekk oft á tiðum hratt
á milli manna, og oft skapaöist
mikil hætta við Akranes-markið.
I fyrri hálfleik voru Breiðabliks-
menn betri aðilinn og heföuátt að
skora, en hvorugu liðinu tókst að
skora þá. Hins vegar varð eina
mark leiksins að veruleika á 5.
minútu siðari hálfleiks, þegar
Gunnar Þórarinsson gaf fyrir til
Þórs Hreiðarssonar, sem haföi
tima til að leggja knöttinn fyrir
sig, og skaut siðan körkuskoti i
mark, framhjá Heröi Helgasyni,
markverði Akraness. Þór er mjög
athyglisverður leikmaður, og satt
að segja undarlegt, að Hafsteinn
„landsliðseinvaldur” skuli ekki
hafa gefið honum gaum.
Eftir þetta mark einkenndist
leikurinn af þófi á báða bóga, en
stöku sinnum tókst liðunum að
skapa sér hættuleg tækifæri, og
litlu munaði, að Akranes jafnaði á
siðustu minútum leiksins.
Erfitt er að gera upp á milli
leikmanna Breiðabliks, en þó
sker Þór Hreiðarsson sig nokkuð
Frh. á bls. 6
Laglega gert! Hinn ungi sóknarleikmaður Akraness, Kári Þórðarson, leikur á varnarleikniann Breiða-
bliks i leiknuni i fyrrakvöld. (Timamynd RóbertiVj
„Nú
plataði
ég þig”
Stjórn ÍSÍ gagn-
rýnd fyrir að selja
almenningi verðlaun
„Nýlega boðaði stjórn tSl að
þeir aðilar, sem syntu 200
metrana eitt hundrað sinnum,
fengju „Trimm-karlinn”
úr gulli að launum Er óhætt að
segja, að þessi tilkynning ýtti
undir marga til að ná þessu
takmarki, þvi að það er ekki á
hverjum degi, sem hinum al-
menna borgara gefst tækifæri
til að vinna til verðlauna á
iþróttasviðinu.
En þegar hinu langþráða
takmarki er náð, tilkynnir tSt
að þeir, sem fært hafa landi
sinu 100 stig i norrænu sund-
keppninni með þvi að synda
200 metrana eitt hundrað sinn-
um, geti keypt sér verðlaun á
150 krónur og eigi að borga
þau fyrirfram!
Satt bezt að segja ætlaði ég
ekki að trúa minum eigin aug-
um, þegar ég sá þessa tilkynn-
ingu. Ekki svo að skilja að ég
telji 150 krónur skipta máli,
heldur finnst mér tSt koma
aftan að fólki með þessum
hætti, alveg eins og karlinn
forðum,sem eldaði sér graut
fyrir vikuna, en fannst graut-
urinn heldur ólystugur á sjö-
undadegi. Dró hann þá fram
koniaksflösku og sagði viö
sjálfan sig: „Ef þú borðar
grautinn, færðu „einn” að
launum. Lauk hann siðan við
grauninn, en sagði við sjálfan
sig á eftir, um leið og hann
setti flöskuna óhreyfða upp i
skáp aftur: „Nú plataði ég
þig”
Það skiptir ekki meginmáli,
hvoru megin hryggjar 150
krónur liggja, en það skiptir
máli, að æðsta stjórn iþrótta-
mála hérlendis komi ekki aft-
an að almenningi með þessum
hætti. Hef ég heyrt þvi fleygt,
að stjórn Sundsambands ts-
lands sé ekki ánægð með
framkomu tSI i þessu máli og
hefði sjálf látið útbúa merki til
afhendingar, hefði hún vitað
um fyrirætlanir tSI-manna.
Trimm-karl”
Hve langt nær
Breiðablik?
Breiðablik komið í hóp topp-liðanna
1. deild eftir sigur gegn Akranesi, 1:0
Liðið, sem flestir spáðu falli i
byrjun 1. deildar keppninnar,
Breiðablik úr Kópavogi, er farið
aðvelgja toppliðum deildarinnar
undir uggum. Ósennilegt er þó, að
Breiðablik hljóti tslands-
meistaratitilinn i ár, en hins
vegar er ekki fráléitt, að liðið geti
náð 2. sæti — með sama baráttu-
krafti og eljusemi — og þar með
rétti til að taka þátt i Evrópu-
keppni á næsta ári.
Sigur liðsins gegn Akranesi i
fyrrakvöld kom flestum á óvart,
ekki sizt fyrir þá sök, að Akranes-
liðið hefur verið ósigrandi i
siðustu leikjum, þrátt fyrir mikil
forföll. En þegar það bætist svo
við, að Eyleifur Hafsteinsson,
driffjöður liðsins, er fjarverandi,
er ekki von á góðu, ekki sizt þegar
við jafn baráttuglatt lið og
Breiðablik er að etja. Raunar
voru forföll i liði Breiðabliks lika.
Þannig vantaði m.a. Guðmund
Þórðarson, en þó að tvo til þrjá
fasta leikmenn vanti i lið Breiða-
bliks, kemur það ekki að sök, þvi
að varamennirnir búa yfir sama
baráttukjarknum og leikgleðinni
og fyrirrennarar þeirra. Og það
er það, sem skiptir máli fyrir
STAÐAN
í 1. DEILD
Eftir leik Breiðabliks og
Akraness i 1. deildarkeppninni i
gærkvöldi er staðan i deildinni
þannig:
Kra in
Akranes
Keflavik
Breiðablik
KK
IBV
Valur
Vikingur
Heide
Rosendahl
Þau leiðu mistök urðu i
blaðinu i gær, að ineö grein
um vestur-þýzku frjáls-
i þr ó 11 a k o n u n a H e i d u
Kosendahl, birtist röng
fyrirsögn. Eru lesendur
iþróttasiðunnar beðnir vel-
virðingar á þessum mis-
tökum.
Meðfylgjandi mynd er frá gróöursetningu birkiplantnanna á Olympiusvæðinu í Miinchen og eru á
myndinni f.v. Hjörtur Hannesson, sem er viö nám i Múnchen, Dr. Hermann Schwarz, ræðismaður ts-
lands i Munchen og fulltr. isl. Olympiunefndarinnar á staðnum (Attaché), Hr. Perrey og Hr. Kunze frá
þýzku Olympiunefndinni.
íslenzkt birki í Olympíuskógi
t tilefni 20. Olympiuleikanna i
Miinchen i Þýzkalandi, ákvaö
framkvæmdanefnd leikanna að
gróðursetja tré á Olympiusvæð-
inu i Munchen, með trjáplöntum
frá hinum ýmsu þátttökuþjóðum.
— Mynda sérstakan Olympiu-
skóg.
Að höfðu samráði við islenzka
náttúrufræöinga valdi islenzka
Olympiunefndin birkiplöntur i
þessu skyni, þar sem þær eru i
senn táknrænastar fyrir islenzk-
an trjágróður og von til að þær nái
har tfriTSiim hrnQlffl
Eyleifur Hafsteinsson —
verður með á laugardaginn.
Akranes og Fram:
Tjalda því
bezta um
næstu
helgi
Rikharður Jónsson, þjálfari
Akraness, var aö vonum dauf-
ur i dálkinn, þegar viö hittum
hann sem snöggvast eftir leik
Akraness og Breiðabliks i
fyrrakvöld. „Landsleikjaförin
til Noregs ætlar að verða okk-
ur dýr”, sagði hann, og átti þá
við meiðsli Eyleifs Hafsteins-
sonar, er hann hlaut i lands-
leiknum i Stafangri, en vegna
þeirra treysti hann sér ekki til
að leika með Akranesi.
Enda þótt sigurlikur Akra-
ness i 1. deild hafi minnkaö
nokkuö vegna tapsins, eru
Akurnesingar engan veginn úr
leik. Og ljóst er, aö leikur
Akranessog Fram, sem háður
verður á Akranesi á laugar-
daginn, verður nokkurs konar
úrslitaleikur mótsins. Takist
Akurnesingum að sigra Fram,
mun aðeins 1 stig skilja liðin
að. En sigri Fram hins vegar,
hefur Fram möguleika á 5
stiga forskoti, og verður þá
erfitt fyrir Akranes og önnur
lið að brúa það bil.
Nokkuð öruggt má telja, að
Eyleifur leiki með á laugar-
daginn. Meösli hans hans eru
ekki það alvarlegs eðlis.
Einnig er liklegt, að bæði
Matthias Hallgrimsson og
Benedikt Valtýsson, sem hafa
verið á sjúkralista, leiki með
liðinu á nýjan leik.er þaö mæt-
ir Fram i hinum þýðingar-
mikla leik.
Framarar munu tefla sinu
sterkasta liði fram. Elmar
Geirsson, eini leikmaöur liðs-
ins, sem verið hefur á sjúkra-
lista, mun að öllum likindum
leika með, enda er mikið i húfi
fyrir Fram, og ekki veitir af
að tjalda þvi bezta, sem til er.
Elmar Geirsson — verður
sennilega með á
laugardaginn.