Tíminn - 11.08.1972, Qupperneq 19
Föstudagur 11. ágúst 1972
TÍMINN
19
.Íl'lff 'Jtifflöíl
yii
8HH
Utlönd
Framhald af bls. 7
FUF í Snæfellsnes-
og Hnappadalssýslu
Aðalfundur FUF i Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu
verður haldinn föstudaginn 11. ágúst i Breiðabliki og hefst
kl. 21. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Kosning full-
trúa á SUF-þing.
Héraðsmót að
Kirkjubæjarklaustri
Héraðsmót framsóknarmanna i Vestur-Skaftafellssýslu
verður haldið laugardaginn 12. ágúst k 1.9. Steingrimur
Hermannsson flytur ræðu. Karl Einarsson skemmtir.
Kurugei Alexandra og Gunnar Jónsson syngja og leika létt
lög frá ýmsum löndum. Hljómsveit Gissurs Geirs frá Sel-
fossi leikur fyrir dansi.
r
Héraðsmót í Strandasýslu
12. ógúst
Héraðsmót framsóknarfélaganna í Strandasýslu verður
haldið i Sævangi laugardaginn 12. ágúst og hefst kl. 20.30.
Ræður flytja Einar Agústsson utanrikisráðherra, og
Ölafur Þórðarson, skólastjóri. Þjóðlagasöngur: Þrjú á
palli. Gaman- og eftirhermur: Jörundur Guðmundsson.
Hljómsveitin Asar leika fyrir dansi.
Einar
Ólafur
Jörundur
Héraðsmót
í Skagafirði
Halldór
Ingvar
Hið árlega héraðsmót framsóknarmanna i Skagafirði verður
haldið að Miðgarði Varmahlfð, laugardaginn 19. ágúst og hefst
það kl. 21 stundvislega. Ræðumenn verða Halldór E. Sigurðsson
fjármálaráðherra og Ingvar Gislason alþingismaður. Hilmar
Jóhannsson skemmtir með grini og gamansöng. Sigurveig
Hjaltested og Magnús Jónsson syngja við undirleik Skúla Hall-
dórssonar. Hinir vinsælu Gautar leika fyrir dansi.
Norðurlandskjördæmi vestra
Aðalfundur kjördæmissambands framsóknarmanna i
Norðurlandskjördæmi vestra verður haldinn á Sauðár-
króki laugardaginn 26. ágúst. Fundurinn hefst kl. 1' rir
hádegi.
Kjördæmisþing ó Austurland
Af óviðráðanlegum orsökum, verður að flýta áður boðuðu kjör-
dæmisþingi um eina viku, og verður þingið þvi haldið á \ opna-
firði helgina 26. og 27. ágúst n.k. og verður sett kl. 14.00 Þingið
verður nánar auglýst siðar.
Vestfjarðakjördæmi
Kjördæmisþing framsóknarmanna i Vestfjarðakjördæmi verður
haldið að Flókalundi i Vatnsfirði 19.-20. ágúst og hefst laugar-
daginn 19. ágúst kl. 1 e.h.
Júgóslaviu eins og Albaniu,
og þeir eru einnig farnir að
ýta undir þjóðernisvakning-
una i Ukraniu, ef marka má
beizkjublandnar ásakanir
valdhafanna i Moskvu.
önnur hætta —- en ekki eins
bráð — gæti einnig steðjað að
Brezhnev. Sjálfviljug per-
sónuleg ábyrgð hans á
samningunum við Banda-
rikjamenn um takmörkun vig-
búnaðar og aukin viðskipti,
sem fylgja i kjölfarið, gætu,
þegar timar liða, gert and-
stæðingum hans kleift að
saka hann um að hafa reynt að
koma landinu i hendur
Bandarikjamönnum. Slikar
ásakanir verða þó ekki hafðar
i hámæli fyrri en að þeir eru
búnir að koma honum á kné.
Sá dagur virðist enn langt
undan, þar sem hann gætir
meiri varúðar gegn árásum
frá hlið en hávaðamaðurinn
Krustjeff.
Bænaþrepin
Framhald
.af 1118. 10
Menntamálaráðuneytið.
HAUSTPRÖF
framhaldsdeilda
gagnfræðaskóla
Steingrímur Karl Kurugei J
Frófdagar:
Mánud. 4.9.
Þriðjud. 5.9.
Miðvikud. 6.9.
Fimmtud. 7.9.
Föstud. 8.9.
Laugard 9.9.
kl. 9: íslenzka, saga og sam
félagsfræði, sálar-
fræði
kl. 9: Efnafræði, Eðlisfræði.
kl. 9: Enska, þýzka.
kl. 9: Danska, landafræði.
kl. 9: Stærðfræði.
kl. 9: Lifeðlisfræði, liffræði.
Rétt til haustprófs hafa þeir, sem eigi náðu á
vorprófi samtölu tveggja lægstu greina eða
meðaleinkunn, svo og þeir, sem luku prófi
siðara árs og hlutu prófseinkunn 5,6—5,9.
Námskeið til undirbúnings prófs eru ákveðin
i stærðfræði og efnafræði og hefjast þau i
Lindargötuskóla i Reykjavik mánudaginn
28. ágúst kl. 14. Til greina kemur, að haldin ^
verði námskeið i fleiri greinum, ef margar
óskir berast.
||i Innritun i próf og á námskeið fer fram i
Lindargötuskóla mánudaginn 14. ágúst kl.
16—19 i simum 10400 og 18368. Þá er einnig
hægt að senda bréf eða simskeyti. Mikilvægt
er að tilkynna prófgrein við innritun.
Héraðsmót
á Tólknafirði
25. ágúst
Héraðsmót framsóknarmanna veröur haldið á Tálknafirði föstu-
daginn 25. ágúst og hefst kl. 21. Ræður flytja Halldór E. Sigurðs-
son fjármálaráðherra og Bjarni Guðbjörnsson alþingismaður.
Karl Einarsson skemmtir. Kurugei Alexandra syngur lett lög frá
ýmsum löndum við undirleik Gunnars Jónssonar. Hljómsveit
Asgeirs Sigurðssonar og Asthildur leika fyrir dansi.
Héraðsmót
ó Suðureyri
26. ógúst
Héraðsmót framsóknarmanna verður haldið á Suðureyri laug-
ardaginn 26. ágiist og hefst kl. 21. Ræður flytja Steingrimur Her-
mannsson alþingismaður og dr. Ólafur Ragnar Grimsson lektor.
Karl Einarsson skemmtir. Kurugei Alexandra syngur létt lög frá
ýmsum löndum við undirleik Gunnars Jónssonar. Hljómsveit
Ásgeirs Sigurðssonar og Ásthildur leika fyrir dansi.
auðmýkt eru jarðvegur trúar-
legrar blessunar.
Stiginn er gjöf frá sjálfu páfa-
dæminu ásamt kapellunni, þar
sem hann er nú, og eins og áður er
sagt og i orðunum felst hið Allra
helgasta rómversk katólsku
kirkjunnar, að minnsta kosti utan
Vatikansins. Þegar komið er upp
Bænastigann taka við dyrnar að
hinu Allra helgasta. Og hún er
samt lokuð þessi kapella, en auð-
velt er að sjá inn gegnum járn-
rimla.
Allt fram á Endurreisnartima-
bilið á 14. öld, var þetta áheyrnar-
salur eða einkaskrifstofa páf-
anna, eins og það væri nú nefnt.
Og enn er þessi staður þögult vitni
um þá viðhöfn, sem „fulltrúa
Krists” og „eftirmanni Péturs
postula” þótti hæfa sér fyrstu
þúsund ár þeirrar kirkju, sem
Jesú var helguð.
Kannski var þetta allt á mis-
skilningi byggt? En það var og
varir.
Sá, sem teiknaði og gerði þenn-
an háa helgidóm á sér ekkert nafn
á spjöldum sögunnar. Einn hinna
stóru, sem vann starfsins og list-
arinnar vegna, en gleymdi um
leið sjálfum sér. Sá hugsunar-
háttur er lika gleymdur. En snjall
hefur hann verið.
Einu sinni var helgidómur þessi
kallaður Kapella hins heilaga
Lárenzar. En nú þegar á 9. öld
varð nafn hennar „Hið allra helg-
asta” á bókfell skráð og lifir siðan
i máli og myndum.
Og einhver hulinn verndar-
kraftur hefur varðveitt hana fyrir
tönn og byltingum, tima og
skemmda gegnum straumrót ald-
anna fram á þennan dag, flestum
helgidómum fremur. Sá er þó
einn gripur, sem flestum finnst
mesttil koma i þessum helgidómi
helgidómanna. En það er mynd
sú af Kristi, sem áður var getið og
greypt i altaristöflu og nefnist:
Acheirotopeton, en það þýðir:
„Ekki með höndum gjörð”.
Þessi lræga Kristsmynd er
ævaforn og yfir altarinu i hinu
„Allar helgasta”. Og i fornum
skjölum má sjá, að það er vegna
hennar, sem staðurinn eða
kapellan fær nafnið á svo „háu
plani”.
Á áttundu öld var hún orðin
fræg og borin i stórum skrúð-
göngum til árs og friðar og talin
veita guðlega vernd i sóttum,
hungri og hallærum, og þó ekki
sizt gegn innrás óvina. t sam-
bandi við slikar minningar frá
liðnum öldum á mynd þessi sinn
messudag helgaðan 15. ágúst ár
hvert.
Elztu helgisagnir tileinka hana
Lúkasi guðspjallamanni eða telja
hana úr hans höndum komna. En
hann var persónulegur vinur
Mariu guðsmóður að áliti fróðra
manna og spakra.
En miklar rannsóknir visinda
legar, sem gerðar voru i upphafi
þessarar aldar, telja mynd þessa
rómverska að uppruna og frá
fimmtu öld.
Rannsóknir þessar leiddu einn-
ig i ljós, að myndin hafði verið i
viðgerð nokkrum sinnum og
breytt um efni það, sem hún er
gerð á, ýmist með silki eða silfri,
en um aðferðir til þess er erfitt að
gizka á.
Eitt er vist, hvað sem um upp-
runa þessa listaverks er unnt að
segja, þá hefur hún notið virðing-
ar og lotningar þúsundanna^
Og það er einhver andleg'ur eða
listrænn skyldleiki með þessari ó-
ljósu imynd Krists á þessari ægi-
fornu altaristöflu og mynd Ninu
Tryggvadóttur yfir altarinu i
Skálholtskirkju.
Samt er likt og myndin i hinu
Allra helgasta speglist i óljósum,
leyndardómsfullum öldum ævin-
týrahafsins og djúpi helgisagn-
anna, en hin i kristallstöfrum is-
lenzkrar öræfadýrðar.
En vissulega er imynd hans alls
staðar i öllu fögru og góðu. Aðal-
atriðið er, að eiga sálardjúp og
trúarhæð, sem endurspeglar dýrð
hans i skuggsjá mannlegrar til-
veru, heita ósk um að taka á móti
krafti hans, ákafa löngun til að
lifa liktog hann og lifandi ákvörð-
un um að helga honum starf sitt.
En til þess þarf að ganga á
knjám upp bænastiga sjálfsfórn-
ar i auðmýkt til hins Allra helg-
asta i nærveru hans. Þá er
hugsanlegt að eignast af honum
mynd, sem ekki er með höndum
gjörð — Acheirotopeton.