Tíminn - 16.08.1972, Síða 16
Drangar I Arneshreppi, þar sem kvlðafull móðir hét á Hallvarö
og þúfuna hans.
spuröi hana um leiði Hall-
varðs og það traust, sem fólk
af þessum slóðum hefur enn á
þessum þjóðsagnamanni, er
dó fyrir hundrað sjötiu og
þrem árum.
— Fyrir seytján árum var
ég nýbúin að eignast dreng,
sem heitir Guðjón.sagði Anna,
og það hlóðust á hann útbrot
og kaun, svo að ég óttaðist, að
hann myndi deyja i höndunum
á mér.
Á Dröngum i Arneshreppi,
var sem sé enginn leikur að ná
til læknis — öllu heldur óger-
legt, ef brátt þurfti til að taka:
Vegalengdir afskaplegar og
torleiði ennþá meira. Aldrei
komst heldur simi norður að
Dröngum.
Að minnsta kosti
nokkrir,
sem ég veit um
Við spurðum önnu, hvort
það væri alsiða að heita á
Hallvarð. Hún játaði þvi.
— Það hafa margir gert,
sagði hún — kannski ekki
mjög margir, en að minnsta
kosti nokkrir, sem ég veit um.
Þeim, sem eru þarna af
Norður-Ströndum, er sýnilega
vel við hann, og geta vel látið
sér detta i hug, að hann sé ein-
hvers megnugur enn, þó að
hann hafi legið lengi i gröf
sinni. Hann var talinn kunna
„ÞÁ HÉT ÉG Á HANN,
BARNI MÍNU TIL LÍFS"
Enn borið traust til þjóðsagnahetjunnar og kunnóttumannsins Hallvarðs Hallssonar
Skjaldabjarnarvik er nyrzti
bær i Strandasýslu — við dá-
litinn vog sunnan undir Gcir-
hólmi. Vogurinn horfir gegn
Húnafióa, og þar hefur verið
hraustra manna byggð, þvi að
oft getur hann verið svalur,
þegar hann er við noröriö, fló-
inn úfinn i áhlaupsveörum og
hafisinn áleitinn á þessum
slóðum, ef hann berst upp aö
landinu á annað borð. Ekki
tróðu heldur aörir bændur
þeim um tær, er i Skjaida-
bjarnarvik bjuggu, þvi að
næstir bæir voru Drangar,
sunnan Bjarnarfjarðar, og
iteykjaf jörður nyrðri, en á
annan veginn voru átta eða
niu kilómetrar, en á hinn lik-
iega fimmtán og á báða vegu
um fjöll og torfærur að fara.
Einn hinn frægasti maður,
sem i Skjaldabjarnarvik hefur
búið var Hallvarður Hallsson,
enda karl i krapinu og lét sér
fátt fyrir brjósti brenna. Hann
er margrómaður i sögum og
sögnum og sumra manna
hald, að honum bregði einnig
fyrir, þótt i annarlegri og
skripilegri útgáfu sé, i Manni
og konu hjá Jóni Thoroddsen.
Þegar Hallvarður Hallsson
fann dauðan nálgast, mælti
hann svo fyrir, að hann skyldi
jarðaður i túni i Skjalda-
bjarnarvik — án yfirsöngs. Og
þar var honum kuml gert i
túninu sunnan verðu án vit-
undar sóknarprestsins i
Arnesi i Trékyllisvik.
Ræktarsemi viö
teiði á eyðislóðum
Hallvarður dó árið 1799, og
enn er leiði hans öllum sýni-
legt, er á þessar slóðir kom-
ast, i sunnan verðu túninu i
Skjaldabjarnarvik. Þvi er
meira að segja meiri sómi
sýndur en mörgum nýlegri
leiðum sveitarhöfðingja og
embættismanna i meginsveit-
um. Það hafa gert dætur Guð-
jóns Kristjánssonar, sem bjó i
Skjaldabjarnarvik 1905-1923 og
aftur 1940-1947, Ingigerður
Guðjónsdóttir, skólastjóri á
Staðarfelli og Anna, sem hús-
freyja var á Dröngum.
Þessi ræktarsemi er auðvit-
að saga út af fyrir sig, en hitt
er þó sögulegra, að enn er ekki
ótitt, að fólk telji sér standa af
þvi heillir að sýna þessum
forneskjumanni, er vildi
fremur liggja i túni sinu en
vigðri mold, nokkurn sóma.
Ferðamenn reka
upp stór augu
Þeir eru að visu ekki marg-
ir, sem leggja leið sina i
Skjaldabjarnarvik, en þó ber
við, að þangað koma feröa-
menn, sem fara fótgangandi
um Norður-Strandir. Þeir,
sem þangað komast,láta ekki
undir höfuö leggjast að koma
að kumli karls. Menn, sem
þarna voru á ferð i sumar,
veittu þvi athygli, að á leiði
hans var nýmálaður kross og
kringum það grindur, sem þó
voru ekki fullgerðar, þvi að I
þær vantaði eina hliöina.
Þessir menn komu einnig að
Dröngum, og þar voru þá fyrir
þau hjón, Kristinn Hallur
Jónsson og Anna Jakobina
Guðjónsdóttir frá Skjalda-
bjarnarvik, er áður bjuggu
alllengi á Dröngum og viðar i
Arneshreppi. Anna sagði þeim
söguna um leiði Hallvarðs og
það með, að hún hefði heitið á
karl fyrir seytján árum, barni
sinu til lifs.
Mér finnst eins og
hann sé að minna á sig
1 gær var Anna stödd á
S.eljanesi, þar sem þau Krist-
inn bjuggu einnig um tima.
Þar átti Timinn tal við hana og
— t þessum vandræðum
varð mér það fyrir að heita á
Hallvarð og þúfuna hans, hélt
Anna áfram. Ég hét þvi, að
það skyldi gert þokkalega
utan um hann, ef hann vildi
sjá með okkur. Og hann varð
vel við, þvi að barnið hjarnaði
við, greri sára sinna og náði
heiísu og þroska.
En eins og ég heyri, að þú
veizt, vantar eina hliðina i
grindurnar kringum leiðið
hans. Nú hefur tekizt svo til,
að pilturinn hefur þrisvar orð-
ið fyrir meiðslum, alltaf á
vinstri hendi. Hann hand-
leggsbrotnaöi, hann missti
framan af fingri og hann skað-
aöi sig á sög. Mér finnst eins
og Hallvarður sé að minn-a á
sig og þyki ekki fullefnt við sig
áheitið, þegar eina hliðina
vantar i grindurnar. Þess
vegna ætla ég að hlutast til um
þaö, að úr þvi verði bætt i
sumar.
talsvert fyrir sér og vita
lengra en nef hans náði á með-
an hann stóð uppréttum fót-
um, og enn eimir eftir af þvi,
að hann þyki liklegur til þess
að hlaupa undir bagga með
fólki, sé vel að honum farið.
Við hér syðra getum lika vel
trúaö þvi að gott sé að heita á
Hallvarð, og þá ekki sizt til
sæfara og harðræða, þvi að
hann var garpur mikill, og
gæti þess vegna skipað svip-
aðan sess og Þór i átrúnaöi
Helga magra. Hver veit, nema
Hallvarður Hallsson fari inn-
an tiðar að keppa við Strand-
arkirkju um áheit, ef það
verður þjóðfrægt, að hann
verði vel við? Kannski væri
hann til með að semja um það
við þá kynslóð, sem nú er uppi,
að fjármunum, er saman
drægjust á trú og trausti á til-
hlutan hans um örlög manna,
væri varið málefnum i Arnes-
hreppi til gagnsmuna. -JH.
Skjaidabjarnarvik, þar sem nú verður aukið hlið i grindurnar
um leiði Hallvarðs.
Einar Ágústsson og Lúðvik Jósefsson taka á móti Færeyingunum.
Timamynd Gunnar.
FBI njósn-
ar um
Jane Fonda
Jack Anderson kemur upp
um enn eitt hneykslið
NTB-Washington
Dálkahöfundurinn kunni, Jack
Anderson, skýrði frá þvi á mánu-
daginn, að bandariskir bankar
hefðu veitt bandarisku alrikislög-
reglunni, FBI, nákvæmar upplýs-
ingar um fjárhagsafkomu leik-
konunnar Jane Fonda, en slikar
upplýsingar banna bandarisk
bankalög, að leki út.
Anderson vitnaöi fyrir undir-
nefnd fjárhagsnefndar banda-
risku öldungadeildarinnar, en
bandariska dómsmálaráðuneytið
hefur haft hug á að draga Jane
Fonda fyrir rétt, eftir að hún
heimsótti Norður-Vietnam og
skoraði á bandariska hermenn að
hætta árásarferðum á landið.
Sagði Jane þetta i ávarpi, sem
hún flutti i útvarpið i Hanoi.
Anderson lagði fram skjöl frá
FBI, sem sönnuðu mál hans: Við-
skiptabankar leikkonunnar hafa
veitt lögreglunni nákvæmar upp-
lýsingar um fjárhag hennar. Seg-
ir Anderson, að ekki sé þetta i
fyrsta skipti, sem lögreglan hafi
slikar upplýsingar frá bönkum og
öðrum stofnunum, ekki einungis
um fólk, sem talið er geta verið
„hættulegt rikinu”, heldur og
fólk, sem FBI telur af einhverjum
ástæðum grunsamlegt.
Hollendingar
mótmæla
Rikisstjórnin hollenzka hefur
sent rikisstjórn Islands andmæli
sin gegn útfærslu fiskveiðitak-
markanna. Þótt Hollendingar
segist viðurkenna, hversu fisk-
veiðar séu Islendingum mikil-
vægar, geti þeir ekki fallizt á þá
fyrirætlun tslendinga að færa lög-
sögu sina yfir miðunum upp i
fimmtiu sjómilur frá ströndum
lands þeirra og telji, að ráðstaf-
anir til verndar fiskstofnum verði
að gera með samkomulagi hlut-
aðeigandi þjóða.
VIÐRÆÐUR
HAFNAR VIÐ
FÆREYINGA
Fundir islenzkra ráðherra og
sendinefndarinnar færeysku hóf-
ust i gær i ráðherrabústaðnum við
Tjarnargötu. Af íslands hálfu
voru á þessum fundi ráðherrarnir
Einar Ágústsson og Lúðvik
Jósefsson, Pétur Thorsteinsson
ráðuneytisstjóri, Þórður Agústs-
son skrifstofustjóri, Jón ögmund-
ur Þormóðsson fulltrúi, Már Elis-
son fiskimálastjóri, Guðmundur
Pétursson, forseti Farmanna- og
fiskimannasambandsins, og Sig-
urður Egilsson frá Landssam-
bandi islenzkra útvegsmanna.
Á fundi þessum voru einkum
lögð drög að þvi, hversu háttað
skyldi viðræðum þeim, sem Fær-
eyingar vilja eiga við islenzk
stjórnarvöld um ivilnanir til
veiða eftir útfærslu fiskveiðitak-
markananna. Viöræðum þessum
verður siðan haldið áfram i dag.