Tíminn - 22.08.1972, Blaðsíða 11

Tíminn - 22.08.1972, Blaðsíða 11
10 Possi |>rjú tré standa vift Mýrargötu þótt særokið herist þangað og drepi allan trjágróður. Þessi silfurreynir hcfur veriö settur of nærri húsi við Stýrimannastig, en skemmtileg er að sjá hvernig hann hjúfrar sig upp með bustinni. TÍMINN Þriðjudagur 22, ágúst 1972 Þriðjudagur 22. ágúst 1972 TÍMINN 11 Mikil breyting hefur orðið á trjágróðri i Reykjavik á siðasta mannsaldri. Tré áttu löngum erf- itt uppdráttar i höfuðborginni, nema i góðu skjóli, sem ekki var á mörgum stöðum. Það var helzt i einkagörðum, að falleg tré sáust, en i almenningsgörðum gekk trjáræktin miður. Margir muna eftir þvi hvernig birkigerðið i Illjómskálagarðinum meðfram Sóleyjargötunni barðist fyrir lif- inu um mörg ár, enda liggur gjarnan kaldur loftstraumur eftir garðinum milli hafnarinnar og Skerjafjarðar. Nú er þarna hins- vegar fegursta limgerði, og er það fyrst og fremst þvi að þakka, aö mönnum hefur lærzt að planta birkinu nógu þétt, en það er einmitt sú trjátegund, sem þol- ir vind allra trjáa bezt. Þá hefur jarðvegurinn i garðinum verið bættur, en þar voru gamlir ösku- haugar og mýri, sem nú hefur veriö ræst fram. Sömu sögu er að segja viðar úr borginni en Hljómskálagarðinum og kemur það helzt til, að fólk kann nú betur en áður að gróður- setja tré og fara meö þau, og svo það, að veðrátta hefur verið hlýrri eftir 1920 heldur en fyrir þann tima, einnig hafa ræktunar- skilyrði batnað i borginni eftir þvi sem hún hefur stækkað og skjól aukizt. Algengustu trjátegundir i Reykjavik eru birki, reynir og viðir, og siðan álmur og hlynur. Birki og viðir þrífast einna bezt, enda harðgerðust. Sum hverfi gorgarinnar eru nú orðin einn samfelldur skógur, og eru það sannarlega upskipti frá þvi sem var fyrir nokkrum áratugum. Fyrir skömmu brugðu blaðamað- ur og ljósmyndari Timans sér i ferð um borgina að skoða gamlan og nýjan trjágróður og fengu Ingólf Daviðsson grasafræðing sér til leiðsagnar. Bregðum við hérupp nokkrum svipmyndum úr þeirri för. Þegar við komum frá þvi að sækja Ingólf Daviðsson á vinnu- stað hans, rannsóknastofnun landbúnaðarins i Keldnaholti, og ókum í átt að miðbænum, lá leiðin um Miklubraut. Þar getur að lita limgerði, sem eiga auðveldara uppdráttar en gerðið i Hljóm- skálagaröinum á sinum tima, enda garðræktarmenn okkar reynslunni rikari. Mest ber á birki. F'alleg sitkagrenitré eru innan um, en þó er sá hængur á, að þau vilja missa toppinn ef vindasamt er á þeim á sumrin meðan hann er að vaxa. Það glampar á silfruð blöð gljáviðis- ins, og við Krambratún, sem nú heitir Miklatún, vex alaskaviðir og rauðblaðarós. Laufásvegur er einna trjáfeg- urst gata i Reykjavik. Þar eru i görðum reyniviður, birki, sitka- greni, lerki, hlynur, sirena og sjálfsagt margar fleiri trjáteg- undir. Viö Laufásveg 5 eru ein- hver elztu tré i borginni. Þau gróðursetti Þorvaldur Thor- oddsen við hús sitt árið 1886. Þetta eru tvö tré, álmur og hlyn- ur. Almurinn er nú hátt i 9 m á hæð. Humall vefur sig upp eftir hús- veggnum hægra megin við þessi gömlu tré. Álmur og hlynur geta orðið 200-300 ára gömul, hins veg- ar verður reynir yfirleitt ekki meira en 100 ára. í garði við húsið að Laufásvegi 43 vex áskur. Þetta tré ræktaði Vigfús Guðmundsson frá Engey. Hann sagðist ætla að sanna Hákoni Bjarnasyni að askur þrif- ist hér, en skógræktarstjórinn taldi svo ekki vera. Höfðu báðir gaman af siðar, þegar askurinn var kominn vel á legg. Það eru fleiri sögulegir garðar við Laufásveg. Neðan hans, út við Hringbraut, stendur gamla Gróðrarstöðin, sem Einar Helga- son garðyrkjustjóri stofnaði 1899. Fáein gömul tré standa enn i stöðinni, sem nú er almennings- garður. Þar á meðal er álmur, eitt af elztu trjánum, sem Einar gróðursetti. Tvö reynitré standa þar og mega muna fifil sinn fegri, — eiga liklega litið annað eftir en að verða exinni að bráð. Einar Helgason gerði miklar ræktunartilraunir og hélt garð- yrkjunámskeið. Hann hafði mikil áhrif á islenzka garðyrkju. Við yfirgefum Laufásveginn og höldum niður i miðbæ. Einhver elzti skrúðgarður i Reykjavik, sem enn sér merki, er Land- fógetagarðurinn bak við Hress- ingarskálann i Austurstræti, gerður af Árna Thorsteinssyni landfógeta á árunum 1862-1865. Þarna var útikaffihús fyrir um 20 árum, og er eftirsjá að þvi i þess- um sögulega garði. Georg Schierbeck landlæknir breytti Gamla kirkjugarðinum við Aðalstræti i skrúð- og mat- jurtagarð, Bæjarfógetagarð — inn, 1884 og gerði þar mestu garð- yrkjutilraunir á landinu fyrir aldamót. Áður hafði garðurinn verið grasflöt, og búið var að leggja hann niður sem legstað. Schierbeck lét einnig reisa plankagirðingu um garðinn. 1 þessum garði Schierbecks land- læknis stendur enn langstærsti gljáviðir i Reykjavik og tvö mikil silfurreynitré frá hans tima. Nú er verið að laga til i garðinum, en hann hefur oft verið hætt kominn, nú siðast vegna ásóknar bifreiða- eigenda, sem hafa ekki hlift gróðrinum i leit sinni að bilastæð- um. Þá hafa verið höggvin skörð i garðinn undir nýbyggingar. Von- andi fá siðustu leifar garðsins að prýða miðbæinn um ókomna tima. A næstu grösum er garður við Alþingishúsið, verk Tryggva Gunnarssonar, gerður á árunum 1893-1895. Þar uxu lengi þingviði- tré, en fórust i páskahretinu 1963. Garðurinn er þó enn sem fyrr hinn fegursti, hvort sem er að sumri eða t.d. i snjó að vetri. Við Túngötu 6 stendur einn stærsti álmur i Reykjavik og eitt með elztu trjám borgarinnar, sennilega nær 80ára gamalt. Það er mikið af fallegum trjám og gömlum húsum i gamla Vestur- bænum, og við Mýrargötuna tekumst við á einn af útvörðum trjágróðurs i borginni. Þrjú tré, álmur, reyniviður og silfurreynir, hjúfra sig þar upp að húsinu nr. 16. Þessi tré eru ekki sérstök hvað fegurðsnertir, reynirinn er meira að segja orðinn skemmdur af átu. En þau eru merkileg fyrir það, að stæði þetta gamla timburhús ekki og veitti þeim skjól, væri særokið löngu búiö aö steindrepa þau. Helztu trjágarðar i Reykjavik, sem enn er ógetið, eru Fossvogs- kirkjugarður stofnaður 1932; Hallargarðurinn við Templara- höllina; garður Eiriks Hjartar- sonar rafvirkja i Laugardalnum frá 1937, þar sem einnig er grasa- garður Reykjavikur, opnaður ár- ið 1961; og Skógræktarstöðin i Fossvogi stofnsett 1933. Loks komum við i Sólvalla- kirkjugarðinn eða Gamla kirkju- garðinn við Suðurgötu, eins og hann er nú einnig nefndur. Hann er einn stærsti trjágarður höfuð- borgarinnar, og eru flest trén þar gróðursett á timabilinu frá 1918 og fram á 6. áratug aldarinnar. Misstórir og mislitir legsteinar fara vel innan um trjá- og runna- gróðurinn. Fjöldi skrautjurta vex einnig f garðinum, og er óviða jafnfjölbreyttur gróður i Reykja- vik og i Gamla kirkjugarðinum við Suðurgötu. Það var einkennileg tilviljun, að við höfum skamma stund gengið um kirkjugarðinn í leit að skemmtilegu myndaefni i greinarkorn þetta, er við komum að leiði A. F. Kofoed Hansen, fyrsta skógræktarstjóra á Is- landi, sem hvilir þarna und- ir- furugreinum. SJ Langstærsti gljávfðir í borginni stendur við Aðalstræti. Þessi tvö tré, álm og hlyn, gróðursetti Þorvaldur Thoroddsen við Laufásveg árið 1886 Sum hverfi borgarinnar eru nú samfelldur skógur. Þessi grenitré eru við Laufásvcg, Almur viö Gróörarstööina.Einar Helgason gróöursetti.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.