Tíminn - 22.08.1972, Blaðsíða 16

Tíminn - 22.08.1972, Blaðsíða 16
16 TÍMINN Þriöjudagur 22. ágúst 1972 Enska knattspyrnan: ÞAÐ ER ERFITT AÐ VERA MEISTARI A ENGLANDI - Derby tapaði fyrir Chelsea á heimavelli Arsenal hefur tekið forustuna í 1. deild Þaö var mikill glæsibragur yfir leik l.undúnaliöanna i 1. deild á laugardag. Þrjú þeirra sigruöu, eitt geröi jafntefli, en svo var eitt ekki cins heppiö — Tottenham mátti þola tap gegn Úlfunum. Arsenal átti ekki I erfiöleikum mgm llér sést „Pop” Kobson (no. 11) fagna marki sinu gegn Leic- hester. Billy Bonds fagnar meö honum. gegn Stoke á Highbury, þar skor- aöi hinn sterki leikmaöur Kay- mond Kennedy, bæöi mörk liösins og er „The Gunners” nú búiö að taka forustuna i deildinni. Austur- Lundúnaliöiö West Ham var afar skemmtilcgt fyrir áhorfend- ur. Wcst ilam átti i byrjunar- crfiöleikum mcö Leichestcr, sem skoraöi fyrsta ntark leiksink — cn þaö var hin fræga kempa Bobby Moore, sem kom heimamönnum á bragðið, með þvi að jafna. En þaö dugöi skammt, þvi aö Lcn Glover tókst að ná forustu fyrir Leichester 1:2. En þá féll sprengjan, West Ham náði stór - góöum lcik og þegar leikmenn liösins ná aö sýna stórgóöa leiki, stenzt ckkert liö þeim snúning. Nigcriumaöurinn Cocer, jafnaöi 2:2 og eftir það var algjör ein stefna — Bryan Kobson, Tyelr og Tommy Tayior, bættu mörkum viö fyrir heimaliöiö. Liðin úr Suður-Lundúnum Chelsea og Crystal Palace, náðu góðum árangri. Chelsea sigraði i Derby, i hörku leik og mjög opn- um. Það var hinn ungi Garland, sem skoraði fyrsta mark leiksins i fyrri hálfleik og var staðan 0:1 fyrir Chelsea i hálfleik. I siðari hálfleik skoraði Kevin Hektor, jöfnunarmarkið fyrir heima- menn, en það dugði skammt, þvi að Garland skoraði sitt annað mark i leiknum, rétt fyrir leikslok og þar með voru meistararnir fallnir. Það er erfitt að vera meistarar þvi að allir vilja sigra þá, og á þvi fá leikmenn Derby nú að kenna, liðinu hefur ekki enn tekizt að sigra leik. Liverpool fór enga frægðarferð til Lundúna á laugardaginn, liðið fékk á sig sitt fyrsta mark i deildinni á heima- velli Crystal P. Selhurst Park. Markið skoraði Tony Taylor og leit lengi vel út fyrir að markiö mundi duga heimamönnum til sigurs, en i siðari hálfleik tókst Emlyn Hughes að jafna fyrir Liverpool, sem var frekar heppið i leiknum. Það munaði ekki miklu að drottningin hjá Crystal, Cerry Queen, tækist að skora sigur- markið fyrir heimamenn, rétt fyrir leikslok. Þá komst hann einn inn fyrir vörn Liverpool en honum brást bogalistin og skot hans frá markteig sleikti slá Liverpool- marksins. Fimmta liðinu frá Lundúnum — Tottenham Hotspurs — gekk ekki eins vel og liðinu frá höfuðborginni. Spurs heimsótti Wolverhampton og léku þar á heimavelli úlfanna, Molineux. Heimamenn sigruðu leikinn 3:2 og með þvi var Spurs búið að tapa sinum fyrsta leik i deildinni. Mörk Úlfanna skoruðu: Richards tvö og Ken Hibbitt eitt. Fyrir Spurs skoruðu Martin Peters og Pratt. Peters virðist vera óstöðvandi, hann skorar mark i hverjum leik. Everton átti ekki i erfiðleikum á heimavelli gegn „gömlu snillingunum” frá Manchester, og unnu öruggan sigur 2:0. Mörkin skoruðu Collery og Joe Royle úr viti. Hitt Manchesterliðið sýndi snilldar- leik gegn nýliðunum i deildinni, Norwich. Það var markakóngur- inn frá siðastliðnu keppnistima- bili, Francis Lee, sem skoraði fyrsta mark Man. City á keppnis- timabilinu og hann bætti öðru marki við siðar i leiknum. Þriðja mark liðsins skoraði annar ensk- ur landsliðsmaður, Colin Bell. Bikarmeistararnir Leeds áttu i miklum erfiðleikum með W.B.A. á heimavelli sinum Elland Road. Leikmennirnir Allan Clarke og Johnny Giles, skoruðu tvö mörk fyrir Leeds, sem nægði til sigur* og virðist liðið heldur betur vara komið á skrið, eftir slæma byrj- un. / Úrslitin á getrauna*eðlinum urðu annars þessi: Arsenal-Stoke 2:0 Coventry-^outhampton 1:1 Crystal PT-Liverp. 1:1 Derby^íbelsea 1:2 Everton-Man.Utd. 2:0 Ipswich-Birmingham 2:0 Leeds-W.B.A. 2:0 Man.City-Norwich 3:0 Sheff.Utd.-Newcastle 1:2 West Ham-Leichester 5:2 Wolves-Tottenh. 3:2 Úrslitin i 2. deild urðu þessi: Aston Villa-Huddesf. 2:0 Blackpool-Brighton 6:2 Bristol C.-Millwall 2:2 Carlise-Swindon 3:0 Fulham-Burnley 1:1 Hull-Notts.F 0:0 Luton-Preston N.E. 1:0 Oxford-Middlesb. 4:0 Portmouth-Cardiff 3:1 Q.P.R-Sheff.W. 4:2 Sunderland-Orient 1:0 Aston Villa heldur sinu striki og er nú efst i 2. deild. Nú i vikunni verður leikin heil umf. i 1. deild, mætast þá meðal annars Chelsea- Liverpool, Derby-Man.City og Man.Utd fær að spreyta sig á Leichester, en um næstu helgi mætir Man.Utd. Arsenal. Við munum segja nánar frá leikjun- um, sem verða leiknir i vikunni siðar hér i blaðinu. SOS. Ray Kennedy, hinn snjalli og marksækni miöherji Arsenal, skoraði bæði mörk liðsins gegn Stoke. Chris Garland, skoraði bæði mörk Chclsea gegn Derby. Hann skoraði einnig tvö mörk i leik gegn Leeds. Erlendur Valdimarsson, setti nýtt Isl. met i kringlukasti, hann kastaði kringlunni 60.82. m. ERLENDUR KAST- AÐI 60,82 M! ÖE—Reykjavik. Erlendur Valdimarsson, 1R setti nýtt Islandsmet i kringlu- kasti á kastmóti ÍR á Melavellin- um á laugardaginn, hann kastaði 60,82 m. Gamla metið, 60,06 m, var sett 1970. Fyrsta kast Erlendar i keppn- inni var ógilt, en siðan kastaði hann 60,40 m. Þriðja tilraun mældist 60,82. Tvö næstu köst voru ógild og loks sleppti hann sjöttu tilraun. Annar i keppninni var Hreinn Halldórsson, HSS, sem kastaði 49,32 m. og þriðji Jón Þ. Ólafsson, IR, 42,98 m. Þessi árangur Erlendar er á heimsmælikvarða, en til þess að komast i úrslitakeppnina i Munchen þarf að kasta 59 metra. Guðm. Hermannsson keppir í Köln Guðmundur Hermannsson tekur þátt i alþjóðlegu frjálsiþróttamóti i Köln dag- ana 13. og 14. september nk. Þetta mót hefur þá sérstöðu, að þar keppa aðeins þeir, sem náð hafa 40 ára aldri eða meira. Guðmundur tekur þátt i kúluvarpi og kringlukasti. Bezti árangur Guðmundar i sumar er 17,62 m, og okkur er aðeins kunnugt um einn kast- ara, sem náð hefur nákvæm- lega sama afreki og er orðinn 40 ára. Það er Frakkinn Colnard.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.