Tíminn - 22.08.1972, Blaðsíða 7

Tíminn - 22.08.1972, Blaðsíða 7
Priðjudauur 22. ágúst 1972 TtMINN 1 Fjárhættuspil leyfileg i Paris Fæstir ferðamenn i Paris vita, að þar er leyfilegt að spila fjárhættuspil. Karlmenn geta á örskammri stund gerzt félagar i að minnsta kosti fimm klúbb- um, þar sem spilað er fjár- hættuspil. Aðallega er spilað á spil, en þó er i nokkrum þessara klúbba smárúlletta, en venju- legar rúllettur, eins og þær ger- ast i virkilegum spilavitum eru ekki leyfilegar i Paris. Yfirleitt fer litið fyrir þessum spilavit- ★ Hvaö er aö prinsinum? Brezk blöð leyfa sér annað slagið að birta myndir af konungsfjölskyldu sinni, sem ef til vill fengjust ekki birtar, væri fjölskyldan sjálf spurð leyfis. Hér eru tvæ slikar, sem eru reyndar ekki eins alvarlegar og i fljótu bragði mætti halda. Á annarrimyndinni horfir drottn- ingin alvarlegum augum á eftir Karli prinsi, þar sem hann gengur á brott með kampavins- flösku i hendinni. Og hvað er svo að gerast á hinni myndinni? Er prinsinn virkilega búinn að fá sér svona rösklega neðan i þvi, spyrja margir. Nei.það var vist ekki svo, að sögn ljósmyndar- ans, heldur hafði Karl prins misst tappann úr flöskunni, og er að leita að honum. um, en nýlega fengu þau þó óvænta auglýsingu. Þrir menn, sem klæddir voru eins og út- keyrslumenn, birtust i einum klúbbanna snemma morguns og leit út fyrir að þeir væru að koma með vörur i klúbbinn. Þegar þeir voru komnir inn, gerðu þeir sér litið fyrir og drogu upp byssur og gengu beint að verki. Þeir réðust inn i her- bergi gjaldkerans, og náðu þar á brott með 180 þúsund dollur- um. Þess má geta, að konum er ekki heimilt að spila i þessum klúbbum. Vilji þær spila fjár- hættuspil verða þær að fara til Enghien, sem eru m 16 km fyrir norðari" Paris . Sovét-Georgía eftirsótt af ferðamönnum. Árið 1971 sóttu 84 þúsund er- lendir ferðamenn heim sovézka lýðveldið Georgiu, og þar af komu 19 þúsund til höfuðborgar- innar Tbilisi. Búizt er við, að ferðamannastraumurinn muni aukast verulega i ár. Gerö hefur verið áhugaverð og fjölbreytt ferðaáætlun fyrir hina erlendu gesti. Þeir munú fá að kynnast sögu lýðveldisins, einstæðum menningarsögulegum minjum Playboy-drottning Hugh Hefner, sem varð rikur á þvi að gefa út timaritið Playboy er ástfanginn. Sumir segja, að það sé nú ekkert nýtt, og rétt er það, hann hefur orðið ástfanginn i fleiri stúlkum en flestir aðrir karlmenn. En það, sem er merkilegt við þessa ást hans nú, er, að hann hefur verið yfir sig ástfanginn i sömu stúlkunni i þrjú ár. Hún er 22 ára, eða 23 árum yngri en Hefner sjálfur, og heitir Barbara Benton. Barbara ætlaði sér að leggja stund á læknisfræði, en svo fór, að hún fékk hlutverk i smá Playboy- kvikmynd, og endirinn varð sá, að hún hélt áfram á leiklistar- brautinni, og hætti við læknis- fræðina. Barbi og Hef hittust fyrir þremur árum og siðan hafa þau verið óaðskiljanleg, og nú búast vinir þeirra helzt við, að fá að heyra kirkju- klukkurnar hringja áður en langt liöur. og efnahagslegum framförum i landinu. Ferðamannaþjónustan i Ge- orgiu er i örum vexti. Reist hafa verið nýtizku hótel á frægum hvildarstöðum eins og i Telavi, Kobuleti og Tskhaltubo. Þá er verið að ljúka byggingu nætur- klúbbs i Tbilisi. Frakkar fá höfrunga i herinn Tveir þjálfaðir höfrungar hafa verið fengnir til Frakklands, þar sem þeir hafa verið látnir taka próf i þeim tilgangi, að hægt sé að gera sér grein fyrir þvi, hvort franski herinn kunni að hafa not fyrir þessi dýr. Skepnurnar, sem 'eru sex ára og heita Andre og Birgitte voru seldar dýragarðinum i Marseilles, eftir að þær höfðu gengizt undir prófið. Hershöfð- inginn, sem prófaði höfrungana, Bobin að nafni, segist álita, að hægt sé að nota þá til tvenns. 1 fyrsta lagi sem eins konar varð- hunda, sem hafi gætur á þvi hvort óvinafroskmenn séu á ferðinni neðansjávar i höfnum og á herskipalægjum. Mjög fljótlega tókst að kenna höfrung unum að hringja bjöilum, ef einhver óþekktur kom syndandi inn i höfnina. Bandarikjamenn hafa þegar tekið upp á þvi að nota höfrunga til slikra starfa i Vietnam. 1 öðru lagi taldi Bobin, að hægt væri að láta þá hafa með höndum flutninga milli kafara og skipa, en höfrungar- nir eiga ekki við sömu erfiöleika og etja og menn, þegar þeir koma skyndilega upp á yfir- borðið af miklu dýpi.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.