Tíminn - 29.08.1972, Page 17
Þriðjudagur 29. ágúst 1972
TÍMINN
17
ENSKA KNATTSPYRNAN:
Hughes færði Liverpool sigur
með stórglæsilegu marki
- Dougan skoraði sitt 200. mark í deildinni. Manchester-liðið
hreiðrar um sig á botninum
Liverpool ætlar ekki að láta
sömu söguna og i fyrra endurtaka
sig, en þá byrjaði liðið hina frægu
sigurgöngu sina of seint. Hinir
ungu og nýju leikmenn liðsins
hafa nú lilotið mikla reynslu og
eru ósigraðir á toppinum i 1.
deildinni. Nú er bara að sjá, hvort
orð fyrirliða liðsins, Tommy
Smith, rætast, en hann sagði i
april s.l.: ,,Ef við vinnum ekki
deildina i ár, þá vinnum við næsta
ár". i s.l. viku voru lciknar tvær
umf. i deildinni, og mætti
Liverpool-liðið Lundúnaliðum i
báðum umferðunum — það má
segja að Liverpool-liðið hafi haft
heppnina með sér i leikjunum.
Við skulum ekki vera að
draga þetta lengur — heldur að
lita á leikina i 4. og 5. umferð:
Þriðjudagur 22. ágúst-
Coventry—Arsenal 1:1
Everton—Crystal P. 1:1
Wolves—West Ham 3:0
Leikmenn Arsenal reyndu nýj-
an sóknarleik gegn Coventry, en
hann stöðvaðist á bakverðinum
Mike Coop, sem sýndi hreint frá-
bæran leik i vörninni, og einnig
sótti hann „overlap” stift.
Graham skoraði fyrir heima-
menn, en bakvörður Arsenal,
Rice jafnaði 1:1 eftir „overlap”.
Leikmenn Crystal Palace, sem
eru búnir að lofa að bæta fyrir tvö
léleg ár, náðu jafntefli gegn
Everton,l:l. Mark Everton skor-
aði Royle i hálfleik, en Jenkins
jafnaði fyrir Palace i siðari hálf-
leik. West Ham tapaði sinum
fyrsta leik á keppnistimabilinu,
þegar liðið heimsótti Úlfana á
Molineux. Mörk Úlfanna skor-
uðu: Derek Dougan, með skalla,
og var hann þar með orðinn fyrsti
Irinn, sem skorað hefur 200 mörk
i deildinni, Jim McCalliok og
Richards bættu svo tveimur
mörkum við fyrir Úlfana, en þeir
hafa nú stöðvað tvö Lundúnalið i
deildinni, sigruðu Tottenham 19.
ágúst 3:2, einnig á Molineux.
Miðvikudagur 23. ágúst:
Chelsea—Liverpool 1:2
Derby—Man.City 1:0
A efri myndinni sést hvernig
Dougan litur út nú, eftir að hafa
skorað 200. deildarmark sitt. A
neðri myndinnisést hvernig hann
leit út, þegar liann skoraði fyrsta
deildarmark sitt, fyrir Ports-
mouth.
Leeds-Ipswich 3:3
Man.Utd—Leicester 1:1
Newcastle—WBA 1:1
Norwich—Southamp. 0:0
Stoke—Sheff.Utd 2:2
Tottenham—Birmingh. 2:0
Leikmenn Chelsea, sem hafa
sýnt frábæra leiki á keppnistima-
bilinu, voru eitthvað miður sin
fyrstu 15 min. gegn Liverpool, og
það kostaði liðið tap i leiknum. A
fyrstu 15 min. tókst leikmönnum
Liverpool að skora tvö mörk.
Fyrst Toshack og siðan Callagan,
en Garland skoraði fyrir Chelsea,
sem sótti svo nær stöðugt i siðari
hálfleik, en tókst ekki að jafna.
Ensku dómararnir hafa verið
mjög strangir i byrjun keppnis-
timabilsins — það sézt bezt á þvi,
að Mike Doyle, Man. City, fékk
t.d. bókun fyrir að tefja auka-
spyrnu, en hann var að biða eftir
Lee, sem var að reima skóna
sina. Það vakti gifurlega athygli,
að hlægilega ungir menn léku i
bakvarðastöðum Derby — það
voru þeir Steve Powell, 16 ára og
Alan Lewis, 17 ára, en bakverðir
liðsins, Webster og Robson, voru
meiddir, ásamt welska landsliðs-
manninum Durban. Þrátt fyrir
meiðslin tókst Derby að sigra
sinn fyrsta leik á keppnistimabil-
inu. Mark liðsins gerði Walker.
Með geysilegum hraða, tækni
og hugrekki tókst leikm. Ipswich
að ná jafntefli gegn Leeds,
sem náði alltaf forustunni, en
leikmenn Ipswich jöfnuðu alltaf,
siðast fyrrverandi Leeds-leik-
maður, Rod Belfitt. Hin mörk
liðsins skoruðu Hamilton og
Beattie. Mörk Leeds skoruðu:
Jordan (2) og Giles (viti). 29,010
þúsund. áhorfendur sáu WBA
gera jafntefli 1:1 á heimavelli
Newcastle. MacDonald skoraði
fyrir heimamenn, en A. Brown,
skoraði fyrir WBA.
Frank Worthington, sem Lei-
cester keypti frá Huddersfield i
siðustu viku, jafnaði gegn
Man.Utd 1:1, en mark Man.Utd.
skoraði Best úr viti. Gil Reece
skoraði tvö stórglæsileg mörk
gegn Stoke. Mörk Stoke gerðu
Smith og Hurst (áður West Ham)
— fyrsta mark hans fyrir Stoke.
Tottenham átti aldrei i érfiðleik-
um gegn Birmingham, og tvö góð
mörk færðu Lundúnaliðinu sigur.
Átta ár voru siðan liðin mættust
siðast. Mörk liðsins skoruðu:
Chivers — fyrsta mark hans á
keppnistimabilinu, en þetta mark
hans féll alveg i skuggann, þvi að
Coates skoraði siðara mark
Spurs, og stóðu þá áhorfendur á
White Hart Lane upp úr sætum
sinum af hrifningu. Coates lék
upp kantinn, lék á þrjá varnar-
menn og skaut þrumuskoti frá
vitateigshorni, með jörðu i hornið
fjær.
A laugardaginn fór svo fram 5.
umferðin, og fóru leikar þannig:
Birmingham—Crystal P. 1: :1
Chelsea— Man. City 2: : 1
Leichester—Coventry 0: :0
Liverpool—West Ham 3: 2
Man. Utd—Arsenal 0: :0
Newcastle—Ipswich 1 :2
Norwich—Derby 1 :0
Southampton—Wolves 1 : 1
Stoke—Everton 1 : 1
Tottenham—Leeds 0 :0
WBA—Sheff. Utd. 0: 2
Leikur umferðarinnar var leik-
ur Liverpool og West Ilam, og var
hann allsögulegur. West Ilam
varð fyrsta liðið til að skora tvö
mörk hjá Liverpool-liðinu, frá þvi
i febrúar s.l., cn þá tókst leik-
mönnum Leeds að skora tvö mörk
hjá Livcrpool. Siðan hefur
Liverpool leikið 23 leiki, og i 18
þeirra hefur ekki verið skorað
mark hjá liðinu — frábær árangur
það. Bryan ,,Pop” Robson tók
forustuna fyrir West Ilam i leikn-
um, en Toshack jafnaði 1:1 fyrir
„The reds”. Fyrir leikhlé skoraði
svo „Pop” Ilobson aftur fyrir
West Ham, og var þvi staðan i
hálfleik 1:2.1 siðari hálfleik skora
Liverpool-leikmennirnir mjög
umdeilt mark — Callaghan, gef
ur háa sendingu fyrir markið,
Fcrguson, markvörður Wcst
Ilam, og Kevin Keegan stökkva
upp og Keegan tekst að skalla i
netið. Leikmenn West Ham
mótmæltu markinu kröftuglega,
þeir töldu, að Keekan hcfði ýtt við
Ferguson i loftinu. Dómarinn var
ekki á sama máli og þeir, og bók-
aði hann fyrirliða West Ham,
Bobby Moore, scm taldi markið
ólöglegt.
Úrslitamarkið skoraði svo
Emlyn Hughes, fyrir Liverpool —
markið og aðdragandi þess var
stórglæsilegt, enda uröu fangað
arlætin á Anfield Road geysileg,
héldu sumir áhorfendurnir ekki
vatni i fagnaðarlátunum. „Stór-
kostlegt, stórkostlegt” — hrópaði
þulur BBC, sem lýsti leiknum.
Ilughes,fékk knöttinn i markteig
Liverpool, tók stórkostlegt „over-
lap” og lék fram völlinn, þræddi á
milli leikmanna West Ham og
þrumaði knettinum af 35 m færi,
og hann skall efst i markhorninu.
Francis skoraði mark Birming-
ham, en Gerry Queen fyrir
Emlyn Hughes, fékk knöttinn i markteig Liverpool, tók stórkostlegt
„overlap” — lék fram völlinn, þræddi á milli leikmanna West Ham og
þrumaði knettinum af 35 m færi,svo að hann söng efst i markhorninu.
„Stórkostlegt, stórkostlegt”, hrópaði þulur BBC, sem lýsti icik Liver-
pool og Wcst Ilam.
Ray Clemenee —- hann hefur
haldið markinu hrcinu i 18
leikjum al' 23.
Palace. Leikmenn Ipswich komu
enn á óvart, þegar þeir sigruðu
Newcastle 2:1. Mörk liðsins skor-
uðu Lambert og Colin Viljoen, en
mark heimaliðsins skoraði
markakóngurinn MacDonald.
Man.Utd og Arsenal gerðu jafn-
tefli i marklausum leik, sem
Arsenal hefði með réttu átt að
sigra. Charlie George lék nú að
nýju með Arsenal, hann tók við
stöðu Radford, sem er meiddur.
Peter Osgood og Houseman
skoruðu fyrir Chelsea gegn
Man.City, sem er nú eitt af botn
liðunum. Mark City skoraði
Mellor. Úlfarnir voru ekki heppn-
ir gegn Dýrlingunum — Munro,
fyrirliði Úlfanna, skoraði sjálfs-
mark, en McGalliog jafnaði svo
fyrir Úlfana. Woodward og Currie
skoruðu mörk Sheff. Utd. John
Ritchie skoraði fyrir Stoke —
Royle jafnaði fyrir Everton.
Staða efstu og neðstu liðanna i
1. deild er þessi eftir 5 umferðir:
Liverpool
Arsenal
Chelsea
Ipswich
Everton
Tottenham
5410 10:4 9
5320 9:3 8
5311 10:5 7
5311 10:6 7
5140 6:3 7
5311 7:4 7
Man. City
WBA
Man. Utd
5104 4:6 2
5023 1:6 2
5023 2:7 2
Kaup og sölur voru gerðar i s.l.
viku. Derby keypti David Nish frá
Leichester fyrir 235 þús. sterlings
pund, en það er met upphæð fyrir
leikmann i Englandi. Stöðu Nish i
Leichester-liðinu tók Denis Rofe,
en hann var keyptur frá Orient
fyrir 112 þús. sterlingspund.
Ein umferð var leikin í 2. deild
á laugardaginn, og urðu úrslit
þessi:
Brighton—Sunderland 2:2
Burnley—Aston Villa 4:1
Cardiff—Blackpool 1:2
Hudders.f,—Carlisle 1:1
Middlesb.—Fulham 1:2
Millwall—Portsmouth 0:2
Notts.F,—Oxford 2:1
Orient—Luton 0:1
Preston N.E.—QPR 1:1
Sheff.W.—Hull 4:2
Swindon—Bristol 2:1
Nú I vikunni verður leikin ein
umf. i 1. deild,mætast þá meðal
annars Arsenal—Westham, Man.
Utd—Chelsea. Á laugardaginn
n.k. verða tveir stórleikir, þá
mætast Arsenal—Chelsea og
Derby—Li verpool.
SOS
Bjarni setti
ísl.met í 400
metra hlaupi
Bjarni Stefánsson setti nýtt
íslandsmet i 400 m hlaupi i
MUnchen á föstudaginn. Hann
hljóp á 47,1 sek. Gamla metið
átti hann sjálfur 47,5 sek.
Bjarni keppir i 100 m og 400 m
á OL-leikunum i Miinchen.
Japan vann
ísland 21:19
íslenzka OL-landsliðið i
handknattleik lék æfingaleik
gegn Japönum á föstudaginn i
Munchen. Leikar toru þannig,
að Japanir sigruðu með 21:19.
Litið er að marka svona æf-
ingaleiki, og má þvi ekki taka
úrslitin alvarlega.
Kvenfólkið
á skotskónum
F'jórir leikir i tslandsmótinu
i kvennaknattspyrnu voru
leiknir á laugardaginn, og
mættu margir áhorfendur til
að sjá kvennaliðin leika. Atta
lið taka þátt i þessu fyrsta Is-
landsmóti, og leika liðin i
tveimur riðlum. Úrslit leikj-
anna urðu þessi:
A-riðill:
Breiðablik—F'ram 2:3
P'H—Þróttur 8:0
B-riðill:
Ármann—Haukar 4:0
tBK—Grindavik 0:2
FH-liðið komið
í 8-liða úrslit
2. deildarlið FH i knatt-
spyrnu, er búið að tryggja sér
rétt til aö leika i 8-liða úrslit-
unum i Bikarkeppni KSl. FH-
liðið mætti lsfirðingum i 16-
liða úrslitunum. Leikur lið-
anna fór fram á tsaíirði s.l.
laugardag, og lauk honum
með sigri FH, 3:2. FH-ingar,
sem eiga litla möguleika á að
sigra 2. deildina, eru búnir að
lofa þvi að sigra bikarkeppn-
ina i staðinn.
Leika fyrri
leikinn úti
Unglingalandsliö tslands i
knattspyrnu, Faxaflóaúrvalið
svo kallaða, leikur fyrri leik-
inn i Evrópukeppni unglinga-
landsliða gegn Luxemborg i
Luxemborg 22. október n.k.
Siðari leikurinn fer svo fram
hér heima 25. april 1973.
Bjarni í banni
Bjarni Gunnarsson, mið-
vörður Vikings, hefur fengið
mjög strangan dóm fyrir leik-
brot á knattspyrnuvelli —
hann hefur hlotiö þriggjaleikja
bann fyrir brot sitt i leik Vals
og Vikings, en þá lenti hann i
átökum við Alexander Jó-
hannsson, Val, meö þeim af-
leiðingum, að honum var vis-
að af leikvelli.
Þetta er mjög strangur
dómur, þvi að Bjarni hafði
ekki fengið að sjá gula spjald-
ið, i yfirstandandi tslands-
móti. Aftur á móti hafa þeir
leikmenn, sem hafa brotið af
sér þrisvar sinnum, fengið að-
eins eins leiks bann, og Jón
Alfreðsson, sem var rekinn út
af I leik i sumar, fékk ekki
nema eins leiks bann. Á þessu
sézt, að þaö er ekki mikið
samræmi i dómum, þegar
dæmt er i málum leikmanna.
SOS