Tíminn - 30.08.1972, Síða 1
[ÍGNÍS
FRYSTIKISTUR
Mgfy---------
RAFTORG SÍMI: 26660
RAFIÐJAN SÍMI: 19294
-------- ■
X>/tá tictHAAéjícvt, A/
RAFTÆKJADEILD
Hafnarstræti 23
Simar 18395 & 86500
veiðilögsöguna: Orðsending frá Sovétríkjunum
Vertíðarlok hjá vísindamönnunum f Aðalstræti:
■ Ilaftift i ár með ærnum kostnaði, en grafið næstu misseri.
Fornleifunum veitt-
ur vetrarumbúnaður
Nú er fornleifagreftrinum i
Keykjavik lokið að sinni. Búið er
að moka ofan i gryfjuna að baki
Hcrkastalans, og næstu daga
verður þannig um( hleðslur og
veggjabrot við Aðalstræti,búið að
ekki á að haggast i vetur. Fyrst
vcrður plast dúkur breiddur yfir
allt saman og gryfjan siðan fyilt
með gjalli. Næsta vor verður svo
hafizt handa á ný og grafið bæði
dýpra og vfðar.
Gröftur hefur gengið vel i sum-
ar, en þó ekki alveg áfallalaust,
þvi að skemmdarvargar hafa tvi-
vegis ruðzt inn á svæðið og spillt
mannvirkjum frá tima innrétt-
inganna. t fyrra skiptið var eld-
stæði úr múrsteinum rifið sundur,
og um siðustu helgi var spillt gólfi
úr tigulsteinum, sem liklega er
leifar af spunastofunni.
Reykjavikurborg er þessa dag-
ana að láta ganga frá gamla
kirkjugarðinum á horni Aðal-
strætis andspænis graftrarsvæð-
inu. Hlaðnir hafa verið garðar
kringum stærstu trén, en siðan
mun eiga að helluleggja afgang-
inn af garðinum. Fjöldi manns
vinnur að þessum framkvæmdum
og virðist sem ekki sé til verksins
sparað. Gamli kirkjugarðurinn
hefur alllengi veriö i mikilli
niðurniðslu, en verður trúlega
mikið augnayndi að þessu verki
loknu. gjjggyu fyigjr þp skamm-
rifi, þvi að áætlað er að hefja
fornleifagröft á þessu svæði innan
eins eða tveggja ára, að sögn
þeira Mjallar Snæsdóttur og Guð-
mundar Ólafssonar, sem bæði
hafa starfað að fornleifarann-
sóknum i Reykjavik i sumar.
JARÐHITINN AÐVERKI
- meðan bóndinn sefur svefni réttlátra
ÞÓ-Reykjavík.
A hinum siðari árum hafa
margir reynt að hraðþurrka hey
með ýmsu móti. Margar aðferðir
hafa verið notaðar en gefizt mis-
jafnlega vel. Þess verður þó varla
langt að bíða, að fundin verður
góð aðferð til að hraðþurrka heyið
með vélum í vætutið.
Meðal þeirra, sem reynt hafa
tæknina við þurrkun á heyi, er
Ármann Pétursson, bóndi i
Reynihlið i Mývantssveit. Otbún-
aður Ármanns er ekki fullkominn
enn sem komið er, en hefur samt
reynzt vel. Þurrkunaraðferð
Armanns er einföld og notar hann
óspart jarðhitann. Nú i sumar
kom Armann sér upp þurrkgrind
fyrir utan hlöðu sina. Undir
grindinni var komið fyrir snúnum
pipum, sem heitt vatn úr jörðu
rennur i gegnum. Til að koma
hreyfingu á loftið undir grindinni
lét Ármann stokk frá súg-
þurrkunarblásaranum undir
grindina og sér blásarinn um að
mikil hreyfing sé á loftinu.
Blaðamaður Timans var fyrir
stuttu á ferðalagi norður i Mý-
vantssveit og innti hann Armann
eftir þessari tilraun hans.
Armann sagði, að hann hefði
getað þurrkað um það bil einn
vagn af heyi (10 hesta) á nóttu og
með endurbótum á útbúnaðinum
ættu afköstin eftir að aukast. T.d.
þyrfti að byggja yfir þurrkgrind-
ina og leiða heita loftið þannig að
það þurrkaði sem bezt á allri
grindinni, en i fyrstu vildi aðeins
bera á migþurrkun.
,,Ég tel,” sagði Ármann, „að
þurrkun sem þessi hafi mikið til
sins ágætis. Á þurrkaleysissumr-
um getur þessi aðferð alveg
bjargað bændum, sem hafa jarð-
hita við hendina. Að auki verður
hey, sem hægt er að þurrka svo til
strax eftir að það er slegið, ávallt
betra fóður en það sem liggur og
hrekst, kannski i marga daga.”
Sendiherra Sovétrikjanna gekk
i gær á fund Einars Ágústssonar
utanrikisráöherra og flutti honum
munnleg skilaboð frá rikisstjórn
sinni varOandi útfærslu fiskveiOi-
markanna viO tsland. Efnislega
eru skiiaboOin þessi:
Sovétrikin lita með skilningi á
ráðstafanir sem tslendingar
gera, er stuðla að eflingu efna-
hagslegs sjálfstæðis landsins
þ.á.m. að eflingu fiskveiða.
Sovétrikin leggja áherzlu á
verndun fiskstofna úthafsins með
alþjóðlegum ráðstöfunum, og
telja að riki eigi að hafa sam-
vinnu um nýtingu auðæva hafs-
ins. Sovétrikin geta þvi ekki fall-
iztá einhliða útfærslu landhelgi út
fyrir 12 sjómilur eða að ákveðin
séu viðáttumikil fiskveiðibelti, er
brjóta i bága við viðurkennd rétt-
indi og löglega hagsmuni annarra
rikja á opnu hafi, og án tillits til
alþjóðaréttar.
Akvörðun tslands um aðfæra út
fiskveiðimörkin i 50 sjómilur, er
tekin meðan verið er aö gera al-
varlegar tilraunir innan samtaka
Sameinuðu þjóðanna til að ná
samkomulagi um hafréttarregl-
ur, þ.á.m. varðandi fiskveiðar á
úthafinu. Sovétrikin telja, að sér-
hver einhliða ráðstöfun til að færa
út fiskveiðimörk, áður en þessum
málum er ráðið til lykta á al-
þjóðavettvangi, torveldi, að fund-
in sé á þeim viðunandi lausn. En
með hliðsjón af hinni góðu sam-
búð Islands og Sovétrikjanna og
mikilvægi fiskveiða fyrir tslend-
inga, myndu Sovétrikin vera
reiðubúin að viðurkenna forrétt-
indi tslands til þess að ákveða
viss svæði á úthafinu út frá 12 sjó-
milna linunni til að veiða það fisk-
magn, sem islenzkir fiskimenn
komast yfir aö veiða.
Með eflingu islenzks sjávarút-
vegs getur þessi hluti fiskaflans
vaxiö. Af Sovétrikjanna hálfu er
gert ráð fyrir, að fiskimenn
þeirra geti notið góðs af hinum
hluta aflans eins og tiðkast hefir.
Sovétrfkin eru reiðubúin aö
skiptast á skoðunum við tsland
um fiskveiðimál.
„Verðum sjálfir að hafa
stjórn á veiðunum”
„Inntak þessarar orðsendingar
er i samræmi við málflutning
Sovétrikjanna i Genf”, sagði Ein-
ar Agústsson utanrikisráðherra,
er Timinn sneri sér til hans i gær-
kvöldi. ,,t henni er ekkert á annan
veg en ég bjóst við. Við hljótum
að leggja megináherzlu á það, að
viö verðum sjálfir að hafa stjórn
á fiskveiðunum umhverfis landið.
Hér er svo ástatt, að annað getur
ekki fullnægt okkur”.
r
Friðrik Olafsson
skrifar um 20.
skákina á bls. 13
Heyþurrkunarútbúnaður Ármanns I Reynihlið er ekki mikill fyrir-
feröar, en samt hefur Ármann þurrkað allt aö 10 hesta af heyi á þurrk-
grindinniá nóttu. Timamynd: ÞÓ