Tíminn - 30.08.1972, Síða 13
Miðvikudagur :iO. ágúst 1972
TÍMINN
13
Hv.: Fischer.
Sv.: Spasský.
Sikileyjarvörn.
1. e4 c5
Sikileyjarvörn enn einu
sinni. Hún er vel til þess fallin
að skapa flækjur og sneiða hjá
jafnteflislegum afbrigðum,
sem ekki henta Spasský, eins
•og sakir standa.
2. Rf:i Rc6
:i.d4 cxd4
4. Rxd4 Rf6
5. RcS d6
6. Bg5
Rauser-árásin, sem einnig
varð upp á teningnum i 18.
skákinni. t 4. skákinni lék
Fischer 6. Bc4.
6. — e6
7. Dd2 a6
Spasský beitir sömu upp-
byggingu og i 18. skákinni og
hefur greinilega gert sig
ánægðan með rás viöburða
þar, a.m.k. að vissu marki.
Efalaust lumar hann á endur-
bót.
mætti þvi vænta skemmtilegr-
ar viðureignar með harðvitug-
um kóngssóknaratlögum.
11. Bf3 h6
12. Bh4
Fischer átti kost á að vinna
peð hér, en á kostnaö stöðunn-
ar. Eftir 12. Bxf6, Bxf6 13.
Rxc6, Bxc6 14. Dxd6 skapar
svartur sér vænleg færi meö
t.d. 14. —, Db6 eða 15. —, Da5.
Leikur Fischers gefur
Spasský kost á stofna til mik-
illa uppskipta, sem leiða til
endatafls með svipuöum
möguleikum. Fischer hefur
liklega ekki átt von á, að
Spasský kysi að einfalda taflið
þegar tekið er tillit til stööunn-
ar i einviginu. En svar
Spasskýs bendir til þess,
aöhann hafi álitið endataflið
hagstætt svarti.
12. — Rxe4
13. Bxe7
Aðrir leikir leiða til hag-
stæðrar niðurstöðu fyrir svart.
13. — Rxd2
Friðrik Ólafsson
skrifar um
tuttugustu skákina
staðan er ólik að þvi leyti að
styrkleiki herjanna er ekki sá
sami á báðum vængjum.
Hvitur hefur peðameirihluta á
drottningarvængnum, svartur
á kóngsvængnum, og það gef-
ur taflinu sinn sérstaka svip.
Framvinda skákarinnar leiöir
i ljós, hvor peðameiri hlutinn
má sin meira, en i sliku enda-
tafli ræður mestu þekking og
reynsla, verklagni og verkvit.
18. Ra4 Be8
Hvitur hótaði 19. Hxd7 + ,
Hxd7 20. Hxd7+ Kxd7 21.
Rb6+ og vinnur mann.
19. HxH HxH
20. Rc5
Ekki 20. HxH RxH 21. Rc5
Bc6 með mun betri stöðu fyrir
svart.
20.— Hb8
Spasski teflir greinilega til
vinnings og ákveður að halda
hróknum á borðinu enn um
sinn meðan hann er að koma
ár sinni betur fyrir borð.
21. Hd3
a5
8.0-0-0 Bd7
1 skýringum við 18. skákina
s.l. föstudag var tekinn til
meðferðar möguleikinn 8. —,
h6 ásamt þeim afbrigðum,
sem af honum leiða.
9. f4 Be7
10. Be2
Fram aö þessu hefur skákin
teflzt á sama hátt og sú
átjánda, en hér breytir
Fischer út af. 1 18. skákinni
varð framhaldið 19. Rf3, b5 11.
Bxf6, gxf6 12. Bd3, Da5 13.
Kbl, b4 14. Re2, Dc5 með
möguleikum á báða bóga.
10,— 0-0
Ekki er útlitið friðvænlegt
eftir að kapparnir hafa hrókað
sinn á hvorum vængnum, og
14. Bxd8 Rxf3
15. Rxf3
Auðvitaö ekki 15. Rxc6,
Bxc6 16. Be7, Hfe8 17. Bxd6,
Rh4 og hvita g-peðið fellur.
15. — IlfdS
16. Hxd6 Kf8
17. Hhdl Ke7
Hvitur hefur rýmra tafl,
eins og sakir standa, en svart-
ur réttir smám saman úr
kútnum. Efalaust er svarti
biskupinn betri maöur en hvit
riddarinn i þessari stöðu, ef
hann kemst i gagnið, Tefl-
endur standa jafnt aö vigi
hvað liðsafla áhrærir, en vig-
Nauðsynlegur undirbún-
ingsleikur, áður en b-peðinu er
leikið fram. Það er athyglis-
vert, að Fischer reynir ekkert
til þess að koma peöum sinum
á hreyfingu. E.t.v. telur hann
aðgerðarleysi æskilegast, eins
og stöðunni i einviginu er hátt-
að. Hann hættir ekki á neitt.
22. Hb3 b5
Spasski er ekkert banginn
og eykur svigrúm manna
sinna með framrás peðanna á
drottningarvængnum*. Fischer
hefur sennilega haft i hyggju
að veikja svörtu peðastöðuna
með siðasta leik sinum.
Spassky
Friðrik
Fischer
23. a3 a4
24. HcS Hd8
25. Rd3 f6
Spasský álitur sig vera bú-
inn að tryggja nægilega að-
stöðu sina á drottningar-
vængnum og beinir athyglinni
að kóngsvængnum. Hann er
nú greinilega búinn að taka
frumkvæðið i sinar hendur.
26. Ilc5 Hb8
27. Hc3
burðir svarts færu ekki á milli
mála, t.d. eftir að svarta d-
peðið væri komið til d4.
35. — Rd4
36. Hc7 +
Svartur hótaði hvoru
tveggja i senn 36. —, Re2+ og
36.—, Rf3 og hvitur neyðist til
að fara i hrókakaup.
36. — Hd7
37. 11x11 + BxH
38. Rel
Hróksleikir hvits eru ábend-
ing um þaö, að hann getur að-
eins beðiö átekta. A.m.k. reyn-
ir hann ekki að hrófla við
peðastöðunni á drottningar-
vængnum, sem gæti veitt hon-
um mótvægi á þeim vettvangi.
27. — g5
28. g3 Kd6
Kemur i veg fyrir 38. —,
Rf3
38. — e5
Myndar sér frelsingja, sem
jafnan er gæfutákn i endatafli.
39. fxc5 fxe5
40. Kd2 Bf5
41. Rdl
29. Rc5
g4
bað þykir yfirleitt ekki ráö-
legt að stilla peöunum upp á
reiti samlita biskup sinum, en
þessi leikur þjónar þvi hlut-
verki að ná valdi yfir d4-
reitnum.
30. Re4 + Ke7
31. Rel lldH
32. Rd3 Hd4
33. Rcf2 h5
34. Hc5 35. Hc3 Hd5
Fischer áræðir ekki að fara
hrókakaup hér, en neyðist til
þess tveimur leikjum siðar.
Uppskipti á hrókum komu þvi
til greina hér, en stöðuyfir-
ABCDSFGH
Hér fór skákin i bið og
Spassky lék biðleik. Stöðuyfir-
burðir hans eru greinilegir og
gefa góða möguleika til vinn-
ings.
Spasskí stendur betur að vígi
Þannig Ifta drykkjarhornin út, sem gestir bergja af „Vfkingablóðiö” á
lokahátiö heimsmeistaraeinvigisins. Sams konar horn voru til handar-
gagns á 800 ára afmælishátiö Kaupmannahafnar fyrir nokkru.
Önnur borðföng bera og merki einvigisins. Gestir fá afhentan sérstak-
lega merktan plastpoka og geta safnað i hann föngunum (þ.á.m. horn-
inu) og borið á bakinu heim til sin.
ET-Reykjavík.
20. einvigisskákin var tefld i
gær. Skákin hófst með Sikileyjar-
vörn og varð staöan fljótt jöfn, að
sumra dómi jafnteflisleg.
Spenna færðist þó í leikinn, er á
leið. Spasski sótti fast, en Fischer
reyndi að verjast eftir beztu getu.
Skákin fór svo i bið eftir 41 leik
og er biöstaöan tvisýn, þótt
Spasski standi betur að vigi.
Mikill mannfjöldi fylgdist með
skákinni i gær. Einkum bar mikið
á útlendingum meöal áhorfenda,
t.d. bættust i gær 30 erlendir
blaðamenn i hóp þeirra, sem fyrir
voru.
Biöskákin verður tefld kl. 5 i
dag.
SIKILEYJARVÖRN í
SJÖTTA SKIPTI
Skák dagsins hefst á Sikileyjar-
vörn. Þetta er 6. einvigisskákin,
er byrjar með þessari sivinsælu
vörn. Flestar þessara fimm hafa
verið miklar baráttuskákir, svo
að skákspekingar lyftast i sætum
sinum.
Kapparnir leika hratt og 10
fyrstu leikirnir birtast á sjón-
varpsskerminum innan hálftima
frá upph.skákarinnar. 1 ljós kem-
ur, að Fischer velur Rauzer-árás
ina, eins og i 18. skákinni. Ég spyr
Frank Brady álits: ,, Það er
ómögulegt aö segja nokkuð á
þessu stigi, en Fischer hefur oft
teflt snilldarlega á hvitt gegn
Sikileyjarvörn. Við skulum biða
og sjá, hvað setur.”
ENN EITT JAFN-
TEFLID — EÐA...............?
Nú er komiö nokkuö fram i
þessa 20. einvigisskák. Menn eru
ekki á eitt sáttir um stöðuna,
frekar en fyrri daginn. Stærsti
hluti þeirra skákmeistara, sem
ég vik mér að, eru á þvi, að skák-
in sé jafnteflisleg. Jens Enevold-
sen er i þeirra hópi. „Fischer ger-
ir sig sýnilega ánægðan með jafn-
tefli. Ég held, að skákin endi líka
þannig.” Brady vinur minn er á
sömu skoðun: „Þetta verður lik-
lega jafntefli.”
Hópur skákspekinga með skák-
skyrendur Alþýðublaðsins, Morg-
unblaðsins og Þjóðviljans i broddi
fylkingar er í vafa um úrslitin.
„Akademian” virðist á þeirri
skoðun, að Spasski hafi betur.
Ég rekst á Braga Kristjánsson
(eftir 32. leik) og hann kveður
Spasski varla vinna héðan af.
„Semja þeir þá um jafntefli fljót-
lega?” spyr ég i einfeldni.
„Semja þeir nokkurn tima,”
svarar Bragi og brosir við.
SPENNA FÆRIST í
LEIKINN — BIÐSTAÐA
Smám saman færist spenna i
leikinn. Spasski er ekki á þvi að
gefa hlut sinn og sækir fast fram.
Friðrik Ólafsson segir (að lokn-
um 34 leikjum): „Ég tel Spasski
hafa mun betri stöðu sem stend-
ur.” Þetta eru orð islenzka stór-
meistarans. en hver er kraftur
„ofurmennisins,” Roberts
Fischers?
Eftir 41. leik fer skákin i bið.
Sagt um biðstöðuna:
Robert Byrne: „Spasski hefur að-
eins betri stöðu að minum dómi.
Annars er erfitt að spá um fram-
haldið.”
Frank Brady: „Svartur
(Spasski) hefur vissulega góðan
möguleika á vinningi, en samt er
ekki vist. að honum takist aö
knýja hann fram.”
Bragi Kristjánsson: „Spasski
hefur alla vega ekki lakari stöðu.
Spurningin er bara, nægja yfir-
burðir hans til vinnings?”
Jens Enevoldsen: „Ég vona, að
þessu lykti með jafntefli. Ef
Spasski vinnur,þessa skák, fer ég
alvarlega að hugsa um aö gefa
skák upp á bátinn fyrir fullt og
allt.”
GLÆSILEG LOKA-
IIÁTÍD FRAMUNDAN
Tveim dögum frá lokum ein-
vigisins verður haldin mikil loka-
hátiö i Laugardalshöllinni. Enn er
hvorki ákveðið, hve margir miðar
verða seldirað hátiðinni, né hvert
miöaverðið verður. Verður það þó
liklega 2000 kr.
Dagskrá hátiðarinnar verður i
stórum dráttum þannig, að fyrst
flytur Guðmundur G. Þórarins-
son ávarp. Þá lýsir Lothar Schm-
id úrslitum i einviginu. Að þvi
búnu flytur dr. Max Euwe forseti
FIDE, ávarp og krýnir nýjan
heimsmeistara. Ekki er ljóst með
hverjum hætti sú athöfn fer fram,
en dr. Euwe mun að likindum af-
henda nýbökuðum heimsmeist-
ara eitthvert tákn til merkis um
tignina. Guðmundur G. mun svo
afhenda verðlaun og loks flytur
fulltrúi rikisstjórnarinnar, lik-
lega Halldór E. Sigurðsson fjár-
málaráðherra, stutta tölu.
Borðhaldið verður i anda hinna
gömlu vikinga. Setið verður við
langborð og bornir fram heilir
lambskrokkar og heilsteiktir ali-
grisir með viðeigandi góðgæti.
Matnum skola menn svo niður
með sérstaklega blönduðum
mjöð, Vikingablóði, sem kælt
verður með is úr Vatnajökli.
Mjöðurinn verður reiddur fram i
þar til gerðum drykkjarhornum,
vel merktum einviginu, eins og
annar borðbúnaður. Carl Billich
leikur undir borðum, en liklega
aðstoðar strengjasveit viö. sjálfa
krýninguna. Eftir borðhaldið
verður svo dansað af miklu fjöri
fram á nótt viö undirleik Hljóm-
sveitar Leikhúskjallarans.
Höllin verður litið skreytt i til-
efni hátiðarinnar, enda litill timi
til þess. Þrátt fyrir það veröur
lokahátið þessi einn helzti við-
burður i skemmtanalifi höfuð-
borgarinnar á borö við Pressu-
balliö.
MÁLSHÖFÐU N GEGN
FOX
Gisli Gestsson hefur nú stefnt
Chester Fox fyrir bæjarþingi
Reykjavikur. Krefst Gisli kaup-
tryggingar sér og öörum kvik-
myndatökumönnum til handa,
ella fer hann fram á, aö eignir
Fox hér á landi veröi kyrrsettar.
Mál þetta er hiö flóknasta og
erfitt reyndist að fá botn i mála-
vöxtu i gær. Vist er þó, að Fox
hefur verulegar varnir fram að
færa i málinu.