Tíminn - 08.09.1972, Side 2
2
TÍMINN
Föstudagur 8. september 1972
Auglýsid
i
Timanum
Bréf frá
lesendum
FKFIDFKIKAK VII) LESTUN A
I.OÐNUM.IÖI.I,
Herra ritstjóri, má ég biöja
yöur að leiörétta missögn i frétta-
flutningi i blaöi yöar, Timanum
28. júni siöastliöinn.
Kregnin var höfö eftir Birni
Kristjánssyni, oddvita, Stöðvar-
firði, og hófst þannig: ,,Stöövar-
m
» ,
i. y
V,
Ljósmæður
Ljósmóöir óskast strax til afleysinga i hálfan mánuö
(frá II. — 25. sept). i mæðradeild Ileilsuverndar-
stöðvar Kcykjavikur.
Forstööukona vcitir nánari upplýsingar i síma 22400.
Ileilsuverndarstöð
Reykjavikur
rin;
&
k;
M
I
• V'
* -
v>>
Sýningin
Búnaður safna
i bókageymslu Norræna Hússins verður
opin almenningi daglega 8. til 12. septem-
ber kl. 9-19. — ókeypis aðgangur.
Verið velkomin.
Almenni
musikskólinn
Dægur & Þjóðlagadeild
Harmonika, Guitar, I’iöla Kassi
Djazz & Dægurlagadeild
Trumpet, Trombon, Saxophon, KJarinet
Söngur (Raddbeiting, solo og samsöngur)
Barnadeild 7-11 ára
Harmonika. Guitar, Melodica.
Sérþjálfaðir kennarar fyrir minni börn og fullorðna
byrjendur. Kennt veröur bæði í Reykjavik og Hafnar-
firði. Nánari upplýsingar virka daga kl. 18-20 i sima 17044.
Karl Jónatansson, Bergþórugötu 01.
Nauðungaruppboð
scm augíýst var í 49, 51 og 52,tbl. Lögbirtingablaös 1972, á
ibúðarhúsnæði og verzlunarhúsnæöi i húsinu no. 1 við
Hólmagrund á Sauöárkróki. meö tilheyrandi lóöar-
réttindum þinglýst eign Angantýs Jónssonar, fer fram aö
kröfu Einars Viðar hrl., Björns Sveinbjörnssonar hrl.,
Veðdeildar Landsbanka tslands o.fl., á eigninni sjálfri,
fipimtudaginn 14. september, 1972 kl. 2 eh.
Bæjarfógetinn á Sauðárkróki.
JÖRÐ ÓSKAST
Litil jörö óskast til kaups, helzt i Arnes- eöa utanvcröri
Kangárvallasýslu. llúsakostur þarf ekki aö vera mikill
eða góöur, en æskilegt er, aö girðingar séu i góðu standi.
Tilboð sendist timanum sem fyrst merkt: JöRÐ — 1354
fjöröur: Jökulfell komst ekki að
vegna Iíldvikur, og frystihúsiö
mun hafa tapað 100 þúsundum. .
” o.s.frv.
Má ég svo upplýsa eftirfarandi:
M/s Eldvik kom til Eskifjarðar
á föstudagskvöldi 23. júni. Erindi
skipsins þangaö var að lesta
loðnumjöl. Eestun mjölsins var
svo hafin á laugardagsmorgun 24.
s.m. og lokiö kl. 23 um kvöldið.
Haft var samband við af-
greiöslumanna skipsins á
Stöðvarfirði, en þangað var ferð-
inni heitiö, að lokinni lestun á
Eskifirði. Honum var tilkynnt um
komutima skipsins þangaö, sem
yrði á sunnudagsmorgun.
Afgreiðslumaðurinn taldi, að
erfiðleikum yrði bundið að af-
greiða skipið þá, vegna þess að
flestallir verkfærir menn þar á
staðnum færu aö horfa á eða taka
þátt i knattspyrnuleik, sem ætti
að verða á Eskifirði milli
islenzka knattspyrnuliðsins og
úrvalsliðs austfirzku knatt-
spyrnufélaganna þá á sunnu-
daginn. Ég talaði siðan við leigu-
taka skipsins i Reykjavik, sem
tjáði mér að eigandi loðnumjöls-
ins, sem skipið ætti aö lesta á
Stöðvarfiröi, væri staddur i
Reykjavik, en væri á förum flug-
leiðis, og yrði hann kominn til
Stöðvarf jarðar siðari hluta
sunnudagsins, og myndi hann
kippa þessu i lag, þannig að skipið
fengi afgreiðslu á sunnudags-
kvöldið. M/s Eldvik kom svo inn
á Stöövarfjörð á sunnudags-
morgun kl. 0.15 og lagðist fyrír
ankeri þar á íirðinum.
Klukkan 10.05 talaði ég við son
eiganda mjölsins, sem var hans
fulltrúi i fjarveru og afgreiðslu-
maður, og spurði hann hvort ekki
væri allt i lagi að færa skipið að
bryggjunni þá eftir hádegið, eða
um klukkan 13.00-Hann taldi það
vera i lagi, að visu væri hann að
fara úr bænum til að sækja föður
sinn, sem væri að koma frá
Reykjavik meö flugvél og kæmu
þeir feðgarnir til baka þá um
kvöldið. Hann skyldi samt senda
menn á bryggjuna til að taka við
festarendum skipsins. Ég
ámálgaði frekar við hann um af-
greiðslu skipsins þá um kvöldið,
hann sagði að er faðir sinn kæmi i
bæinn myndi hann koma um borð
og ráða fram úr þvi.
Klukkan 13.00 var svo byrjað að
létta ankeri og siðan haldið aö
bryggjunni, en er þangað kom
var enginn maður þar til að taka
á móti skipinu. Nokkur súgur var
við bryggjuna, og þvi erfiðleikum
bundið fyrir skipverja að komast
i land, sem þó tókst — fyrir snar-
leika viðkomandi háseta, sem
tók siðan við festarendum
ogvar skipiðbundfð þar klukkan
14.00.
Ég gaf hljóðmerki áður en
komið var að bryggjunni, til að
vekja athygli á þvi að skipið vildi -
hafa sambandi við land og / eða
bryggjuvörð, en sá var ósýnilegur
með öllu.
Siðan gerðist ekkert markvert
um borð, en nokkur mörk voru
vist skoruð á knattspyrnuvell-
inum, en það er önnur saga.
Ég bjóst við komu afgreiðslu-
manns skipsins á hverri stundu.er
liða tók á daginn.
Á mánudagsmorguninn um
klukkan 02,00 vakti 1. stýrimaður
mig, og sagði, að kominn væri
maður um borð, sem óskaði eftir
aö skipið færi frá bryggjunni,
vegna þess að m/s Jökulfell
þyrfti að komast að. Maður þessi
mun hafa verið verkstjóri frysti-
hússins á staðnum.
Við ræddumst nú nokkuð við, og
áleit ég, að fyrst hægt væri að fá
menn til að afgreiða það skipið,
sem siðar kom, þá hlyti ab vera
hægt að fá menn til að afgreiða
það skipið, sem fyrr kom, ekki
hvað sizt er verkstjóri taldi að
meginþorri þessara manna yrði
að afgreiða bæði skipin, þvi að
vinnuafl væri mjög takmarkað i
þorpinu.
Um klukkan 02.30 kom 1. stýri-
maður enn á ný til min i ibúðina
mina, og kvað,að maður nokkur.
sem ekki segði til nafns sins eða
stöðu væri á bryggjunni, og væri
sá með hótanir um að höggva á
landfestar skipsins, ef það færi
ekki frá.
Ég bað 1. stýrimann að bjóða
viðkomandi manni um borð i
skipið til viðtals, en þvi
neitaði náungi þessi meðöllu. Ég
taldi nú möguleika vera á að hann
væri kannski einn af þessu ótindu
mönnum, sem gandriða nú um
veröld viða, öllum til óþurftar og
angurs, þó ekki sé meira sagt.
Bað ég stýrimanninn gefa náunga
þessum nánar gætur, ef ske kynni
vera að hann léti verða af
hótunum sinum, og láta mig þá
strax vita.
Ekkert hafnaryfirvald lét sjá
sig né heyra um borð, ekki heldur
afgreiðslumaður skipsins, sem
mun þó hafa verið kominn i
bæinn. M/S Jökulfell mun svo
hafa komið inn á fjörðinn, en haft
þar skamma viðdvöl. Þess má og
geta hér, að ekkert skip var við
innanverða bryggjuna, en ég
minnist þess að hafa lagt skipi
þar fyrir allmörgum árum, —
það skip hafði svipaða djúpristu
og m/s Jökulfell mun hafa að
jafnaði. Þetta var þó áður en nú-
verandi bryggja var lengd og
bryggjuhaus byggður, en það er
önnur saga.
Hótunarnáunginn hafðist ekki
frekar að til framkvæmda.
Á mánudagsmorguninn
klukkan 08.00 komu verkamenn
að skipinu, en vinna hófst ekki,
vegna þess að herra oddviti
Björn Kristjánsson hafði lagt bil
sinum þvert á bryggjuna ofar-
lega, en við það tepptist ak-
brautin.
Oddvitinn kom nú um borð til
min, og sagðist krefjast sýslu-
mannsrannsóknar vegna þess að
ég hefði neitað sér um að færa
skipið frá bryggjunni þá um
nóttina. Ég taldi það ekki rétt
vera, þvi mér vitanlega hefði
ekkert hafnaryfirvald né hann
sjálfur oddvitin haft orð um það
við mig né mina menn. — Aftur á
móti hefði einhver ósvifinn
náungi þá um nóttina verið á
bryggjunni með hótanir um að
höggva á festar skipsins og væri
ábyrgðarhluti að láta slika menn
leika lausum hala.
Oddvitinn upplýsti nú, að
hótunarmaðurinn og hann
sjálfur væru einn og sami
maðurinn. Ég lagði vart trúnað á
i fyrstu, að þetta gæti verið rétt
hjá yfirvaldinu, en svo reyndist
þó vera, er stýrimaður var
kallaður til og bar hann kennsl á
manninn.
Er hér var komið málum hvarf
oddvitinn með sitt farartæki.
Eflaust munu Stöðvfirðingar
þekkja oddvitann i sjón og bera
fyrir honum óblandna virðingu,
eins og vera ber um svo hátt-
settann mann, en hann getur vart
ætlazt til að allir ókunnugir að-
komumenn beri á hann kennsl.
1 þessu tilfelli hefði verið ein-
faldlega nóg fyrir hann, að segja
til nafns sins og / eða stöðu
sinnar, og hefði þá verið tekib
fullt tillit til hans orða og at-
hafna, i staðinn fyrir að vera svo
hlédrægur sem raun var á.
Eflaust er oddvitinn vel að sér i
tölfræði, enda fljótur að reikna út
tap frystihússins, en i fréttinni fer
hann dálitið óvarlega með stað-
reyndir, þar sem hann segir, að
m/s Eldvik hafi komið snemma á
mánudagsnóttina til Stöðvar-
fjarðar, — af öðrum var þó
komustund talin vera sunnudags-
morgunn. Var oddvitinn kannski
dálitið utan við sig þarna um
morguninn?
Stundu eftir hádegi á mánu-
daginn var ég staddur i skrif-
stofu afgreiðslumannsins, þangað
kom þá lika oddvitinn með
hafnarreglugerð fyrir Stöðvar-
fjarðarkauptún i hendi sér. Báðir
ætluðum við að hitta afgreiðslu-
mann, sem ekki var við þá stund-
ina. Hvarf oddvitinn brátt á
braut, en skömmu siðar kom af-
greiðslumaðurinn inn i skrif-
stofuna og færði mér að gjöf frá
oddvitanum ofannefnda reglu-
gerð, sem ég hér með færi honum
siðbúnar þakkir fyrir.
Vegna fjarveru minnar er-
lendis siðan þetta skeði hefi ég
ekki haft tækifæri til að leiðrétta
fréttaflutning oddvitans fyrr en
nú.
Ég vona svo að ég hafi öðrum
þarfari hnöppum að hneppa en
stýra penna minum gegn herra
oddvita Birni Kristjánssyni og
kveð hann með ábendingu um, að
sannleikurinn mun sagna beztur,
— lika á Stöðvarfirði.
Bogi Ólafsson
Skipstjóri m/s Eldvik.
Hr. Claus Band, musikterapeut frá jfé
Danmörk, flytur nokkra fyrirlestra og
sýnir dæmi um
A'
musikterapi _
heyrnarskert og fjölfötluð börn i sam-
komusal Hagaskóla dagana 9. og 10.
september nk. Fyrirlestrarnir hefjast
laugardaginn 9. september kl. 14.
Áhugafólk velkomið.
Fræðsluskrifstofa
Reykjavikur.
<11-
k
m
Stfí
$+
X,'
y--
V >>
*;v*r
HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS
Á mánudag verður dregið i 9. flokki. 4500 vinningar að fjárhæð 28.920.000
krónur. 1 dag er seinasti endurnýjunardagurinn.
Happdrætti Háskóla Íslands
9. flokkur
4 á 1.000.000 kr.
4 á 200.000 kr.
260 á 10.000 kr.
4.224 á 5.000 kr.
Aukavinningar:
8 á 50.000kr.
4.500
4.000.000 kr.
800.000 kr.
2.600.000 kr.
21.120.000 kr.
400.000 kr.
28.920.000 kr.