Tíminn - 08.09.1972, Side 17
TÍMINN
17
Föstudagur K. september 1972
GOLF
Öldungakeppni, kvenna-
keppni. Blórnabikarinn
Mikið verður um að vera hjá
kylfingum i Golfklúbbi Reykja-
vikur um helgina. Verða þar bæði
öldunga og kvennakeppni, auk
þess sem opin tviliðakeppni fer
l'ram fyrir drengi og unglinga.
Oldungakeppnin hefst i dag
(föstudag) kl. 16,30. Er það undir-
búningskeppni, en henni verður
fram haldið með holukeppni i
næstu viku. A laugardaginn kl.
13,30 hefst kvennakeppni —
Blómabikarinn — en þaðer einnig
undirbúningsk., sem verður
fram haldið i næstu viku sem
holukeppni. Kl. 14,00 hefst þar
opin tviliðakeppni fyrir drengi og
unglinga. Max Faclor-keppnin.
íslandsmeistarinn sigraði
í Rom Rico-keppninni
Kazimierz Deyna, framvörður Legia.sést hér á myndinni — senda knöttinn i netið gegn IF Gautaborg. Deyna er mikill markaskorari og eru
mörk lians oftast gullfalleg. Hann skoraði t.d. tvö mörk gegn Kólombiu á Ólympiuieikunum i IVIunchen, en leikinn vann Pólland 5:1.
Legia Varsjá:
Eitt sterkasta lið, sem komið hefur
hingað, til keppni í Evrópumótum
- liðið leikur gegn Víking á Laugardalsvellinum á þriðjudaginn kemur
Eins og komið hefur hér fram á
siðunni, þá verður leikinn hér á
landi einn leikur i Evrópukeppni
hikarmeistara i næstu viku. A
þriðjudaginn kemur, leikur eitt
allra bezta félagslið i Evrópu á
Laugardaisvellinum — það er
Legia Varsjá, scm er citt litrik-
asta félagslið Póllands og i liðinu
eru sex landsliðsmenn, scm leika
i Olympiuliði Póllands, sem er
svo að segja komið i úrslit i knatt-
spy rnukeppninni i Miinchen.
i.egia veröur fyrsta erlenda
félagsliðið, sem leikur á islandi i
sumar, og leggja örugglega
margir áhorfendur leið sina á
Laugardalsvöllinn, n.k. þriðjudag
13. september, til að sjá pólsku
kna ttspyrnusnillingana leika.
I’ólsk knattspyrná er talin sú
allra bezta, sem er hægt að sjá i
Forsalan
hefst í dag
Forsala aðgöngumiða á
leika Vikings og Legia i
Evrópukeppni bikarmeistara,
hefst i dag við Útvegsbank-
ann, einnig verða miðar seldir
þar á mánudaginn og þriðju-
daginn n.k. Verð miðanna er
stillt mjög i hóf og má segja,
að þeir, sem kaupi sér miða á
leik liðanna, fái örugglega
eitthvað fyrir peninga sina.
Aðgangsmiði i stúku kostar
200 kr., 150 kr i stæði og 75 kr.
fyrir börn. Leikurinn hefst á
þriðjudaginn 13. september ki.
18.15 og verður leikinn á
Laugardalsvellinum.
Þeir knattspyrnuunnendur,
sem hafa áhuga á að ná sér i
miða i stúku, er bent á, að
tryggja sér miða sem fyrst —
þvi að það má búast við, að
það verði erfitt að fá stúku-
miða við innganginn.
Evrópu i dag — Legia Varsjá,
hefur allt af getið sér orð fyrir
frábæra leikui lcikmanna sinna,
nýtizkulega knattspyrnu, og leik-
menn liðsins eru drengir góðir i
leik, en gefa þó ekki eftir i heiðar-
legri haráttu.
Við skulum nú lita á sögu
félagsins oghinn frábæra árang-
ur, sem leikmenn Legia, hafa náð
gegn erlendum knattspyrnulið-
um:
iþrótta félagið WKS ..Legia
Varsjá var stofnað árið 1916, ein-
mitt þegar hildarleikur fyrri
heimsstyrjaldarinnar stóð hvað
hæst. Fyrstu árin voru erfið eins
og gefur að skilja, en það hefur
rætzt úr og félagið er nú eitt hiö
öflugasta og stærst i Póllandi.
Tuttugu og þrjár iþróttagreinar
eru iðkaðar i félaginu og það telur
þúsundir l'élaga. sem margir
hverjir eru i hópi frægasta i-
þróttafólks heims. A árunum
1924—1968 hafa félagar úr Legia
unnið til fjörutiu verðlauna á
Ólympiuleikunum þar af tvenn
gullverðlaun. niu silfurverðlaun
og 29 bronzverðlaun og eru ekki
mörg félög i heiminum, sem geta
státað af slikum árangri félags-
manna sinna. Og á Olympiuleik-
unum i Munchen átti félagið sem
áður marga sigursæla keppendur
þar af nokkra i pólska landslið-
inu i knattspyrnu. og leika þeir
leikmenn gegn Vikingi hér á
Laugardalsvellinum i kvöld.
Knattspyrnulið Legia hefur
leikið i 1. deild i Póllandi siðan
1927 og hefur um langt árabil ver
ið þar i fremstu röð, enda kunnast
pólskra liða ásamt Gornik. Liðið
hefurfjórum sinnum unnið meist-
aratitil Póllands i knattspyrnu,
eða 1955, 1956. 1969 og 1970. Bikar-
meistari hefur félagið orðiö fimm
sinnum. 1955. 1956, 1964, 1966 og
1971 og leikur þvi gegn Vikingi i
Evrópukeppni bikarhafa að þessu
sinni.
Legia hefur þvi vegna árangurs
sins oft tekið þátt i Evrópubikar-
keppni meistaraliða, einu sinni i
Evrópukeppni borgarliða (nú
UEFA-bikar) og nú i fyrsta sinn i
Evrópukeppni bikarhafa.
Fyrsta þátttaka liðsins i
Evrópukeppninni var 1956 og lék
það þá við Slovan Bratislava, hið
kunna tékkneska lið og tapaði á
markatölu. Slovan vann fyrri
leikinn með 4:0, en Legia þann
siðari með 2:0. Arið 1960 mætti
liðið danska liðinu AGF frá Arós-
um i fyrstu umferð og féll úr
Itobert Gadocha, aðalógnvaldur
liösins. Mjög marksækinn fram-
herji, sem skoraði þrennu á OL-
leikunum í Mtinchen, þegar Pól-
land vann Kólombiu 5:1. Hann er
25 ára, hefur leikið rúmlega þrjá-
tiu landsleiki fyrir Pólland.
einnig á markatölu. Danirnir
sigruðu i Arósum með 3:0, en töp-
uðu ekki nema 1:0 i Varsjá.
En eftir þetta fór að ganga mun
betur hjá Pólverjunum i Evrópu-
bikarkeppninni. Næst lék Legia i
keppninni 1969 1970 og vann þá
fimm leiki af átta lapaði loks
lyrir þvi liði, sem varð Evrópu-
bikarmeistari.
Fyrstu leikirnir voru gegn UT
Arad og vann Legia báða, 2:1 og
8:0. Þá var leikið gegn franska
liðinu Saint Etienne I annarri um-
ferð og aftur vann Legia báða
leikina lyrst 2:1 og siðan 1:0. i
þriðju umferð lék Legia við tyrk-
neska liðið Galtasarey og eftir
jafntefli i fyrri leikunúm i Tyrk
landi, 1:1, vann Legia i Varsjá 2:0
og var þar með komið i undanúr-
slit þessarar miklu keppni. ()g i
undanúrslitum lék liðið við
Feyenoord. hollenzka liðið heims-
lræga, sem lyrr i þessari keppni,
1969, hafði sigrað KR með 12:0 og
4:0, en báðir leikirnir voru háðir i
Hollandi. Legia gerði jafntefli i
heimaleiknum við Feyenoord 0:0,
en tapaði i Rotterdam 0:2. Þar
með voru llollendingarnir komnir
i úrslit og þar sigruðu þeir Celtic
2:1 i Milanó.
Legia lék aftur i Evrópukeppni
1970—1971 og el'tir mjög góða
keppni tapaði liðið á einu úti-
marki. Legia lék lyrst við IF
Gautaborg og vann heima 4:0 og
2:1 i Gautaborg. 1 annarri umferð
mætti Legia belgiska liðinu
Standarr Liege og eftir að hafa
tapað i Belgiu 0:1 vann Legia
heimaleikinn 2:0 og var þar með
komið i átta-liða-úrslit. Þar
drógst Legia gegn hinu fræga liði
Atletieo Madrid og voru leikirnir
milli þeirra afar skemmtilegir og
tvisýnir. Fyrri leikurinn var i
Madrid og sigraði Atletico með
1:0. Siðari leikinn vann Legia
með 2:1 i Varsjá. Stigatalan var
þvi jöfn og markatalan einnig, en
spænska liðið komst i undanúrslit
á markinu, sem það skoraði i
Varsjá. þar sem útimörk gilda
tvöfalt er markatalan er jöfn.
P'ramhald á bls. 19
Hin árlega opna golfkeppni
Hafnfirðinga, Ron Ricó-keppnin,
lór fram um siðustu helgi, en það
er 36 holu keppni, sem stendur
yfir i 2 daga. Til hennar hefur E.
Th. Mathiesen gefið vönduð verð-
laun, bæði með og án forgjafar,
og voru þau afhent i mótslok af
eiginkonu Einars Mathiesen,
Ernu Mathiesen, en Einar er nú
staddur úti i Miinchen, þar sem
hann er einn af fararstjórum
handknattleiksliðs okkar.
Leikið var á hinum nýja 12 holu
velli Hafnfirðinga, sem allir
kylfingar eru mjög hrifnir af.
Þrátt fyrir það mættu samt ekki
nema um 50 þeirra i mótið, sem
er nær helmingi minni þátttaka
en i þessu sama móti i fyrra.
Úrslit urðu þau i keppni án for-
gjafar, að Lol'tur Olafsson, GN,
sigraði. Var hann einu höggi betri
en Július R. Júliusson, sem i þetta
sinn lék á heimavelli. úrslitin
urðu annars þessi:
Loftur Ólalsson, GN
78:80= 158
Július R. Júliusson, GK
81:78= 159
Þorbjörn Kjærbo, GS
85:77= 162
Ingvar ísebarn, GK
78:86= 164
Með forgjöf urðu úrslit þau, að
örn tsebarn, GK, sigraði á 137
höggum nettó (82:85-30 = 137)
Annar varð Marteinn Guðnason,
GS, á 140 höggum, en hann paraði
8 siðustu holurnar síðari daginn
og lék þá á 82 höggum. 1 þriðja og
fjórða sæti urðu svo jafnir, á 143
höggum nettó, þeir Pétur
Eliasson, GK, og Hilmar Stein-
grimsson, GN
Sfðastá opna golfkeppni
ársins um næstu helgi
Um næstu helgi fer fram
siðasta opna golfkeppni ársins.
Það er BEA-keppnin, sem fram
fer á velli Golfklúbbs Suðurnesja.
Þessi keppni kemur i stað Pan
Am-keppninnar, sem haldin hefur
verið þar suðurfrá undanfarin ár.
Þetta er flokkakeppni, og verður
leikið i meistara; 1. og 2. flokki
karla. Raðað verður i flokka eftir
forgjöf eins og á tslandsmótinu,
nema að 3. flokkur leggst niður,
og þeir sem eru með hæstu for-
gjafirnar leika þvi i 2. flokki.
Keppnin hefst á laugardag, og
henni lýkur daginn eftir. Búast
má við góðri þátttöku i þessu
siðasta opna golfmóti ársins, en
þeir sem ætla að taka þátt i þvi,
eru beðnir að skrá sig hjá við-
komandi klúbbi, eða þá hjá
Golfkl. Suðurnesja- simi 92-2908.