Fréttablaðið


Fréttablaðið - 17.03.2004, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 17.03.2004, Qupperneq 6
6 17. mars 2004 MIÐVIKUDAGUR GENGI GJALDMIÐLA Bandaríkjadalur 70.3 -0.03% Sterlingspund 127.66 0.42% Dönsk króna 11.64 0.38% Evra 86.77 0.40% Gengisvísitala krónu 120,28 0,23% Kauphöll Íslands Fjöldi viðskipta 427 Velta 5.061 milljónir ICEX-15 2.518 0,15% Mestu viðskiptin Eimskipafélag Íslands Hf. 122.031 Kaupþing Búnaðarbanki hf. 68.398 Landsbanki Íslands hf. 42.438 Mesta hækkun Kögun hf. 6,06% Jarðboranir hf. 4,41% Grandi hf. 2,19% Mesta lækkun Tangi hf. -31,82% Landsbanki Íslands hf. -0,64% Og fjarskipti hf. -0,30% Erlendar vísitölur DJ* 10.179,5 0,8% Nasdaq* 1.945,8 0,3% FTSE 4.428,9 0,4% DAX 3.822,4 0,3% NK50 1.403,3 -0,2% S&P* 1.112,0 0,7% * Bandarískar vísitölur kl. 17. Veistusvarið? 1Í hvaða landi dvelur Jean-BertrandAristide, fyrrum forseti Haíti, núna? 2Hvað útilokaði Ariel Sharon, forsæt-isráðherra Ísrael, í fyrradag? 3Hvaða merka áfanga náði ítalskiknattspyrnumaðurinn Roberto Baggio um helgina? Svörin eru á bls. 30 Tveir féllu í flugskeytaárás Ísraela í Gazaborg: Ísraelar herða árásir JERÚSALEM, AP Ísraelskar herþyrlur skutu flugskeytum að byggingu og tveimur bílum í Gazaborg í gær, fá- einum klukkustundum eftir að ísraelska ríkisstjórnin samþykkti tillögur hersins um að auka árásir á tilgreinda vígamenn Palestínu- manna, þeirra á meðal leiðtoga þeirra. Sú ákvörðun fylgdi í kjölfar sjálfsmorðsárásar sem kostaði tíu Ísraela lífið á sunnudag. Í það minnsta tveir létu lífið og fjórtán slösuðust, þar af þrír lífs- hættulega í árásunum. Meðal þeir- ra sem særðust alvarlega var tveg- gja ára stúlka. Herinn sagði skot- markið vera byggingu þar sem vígamenn úr samtökunum Ís- lamskt Jihad höfðust við. Ríkisstjórn Ísraels ákvað einnig á fundi sínum að senda fjöl- mennara herlið á Gazasvæðið. Ariel Sharon forsætisráðherra hef- ur kynnt hugmyndir um að hverfa frá svæðinu með landnemabyggðir en átök þar hafa harðnað mjög í kjölfarið. Hvort tveggja Ísraelar og vígamenn virðast leggja áherslu á að berjast af hörku, vígamenn til að geta lýst yfir sigri þegar Ísrael- ar hverfa á braut og Ísraelar til að geta borið höfuðið hátt. ■ GRÆNMETI Ríflega 7000 tonn af fersku grænmeti voru flutt hing- að til lands í fyrra, sem var rúm- lega 13% aukning frá árinu áður. Innflutningur á fersku grænmeti jókst úr tæplega 5.200 tonnum árið 1999 í rúm 7000 tonn í fyrra eða um rúm 37%. Þetta kem- ur meðal annars fram í svari Guðna Ágústs- sonar landbún- a ð a r r á ð h e r r a við fyrirspurn Jóhönnu Sigurð- ardóttur Sam- fylkingunni. Laukur og kartöflur eru þriðjungur alls grænmetisinnflutnings á tímabil- inu. Í fyrra voru flutt inn tæp 1.600 tonn af kartöflum og rúm 1.100 af nýjum lauk. Kartöfluinn- flutningur í fyrra var ríflega þre- falt meiri en árið 2002 og fjórfald- ur á við það sem flutt var inn árið 1999. Innflutningur á einstaka grænmetistegundum hefur tekið stökk frá árinu 1999. Innflutning- ur á spínati hefur sexfaldast, sjö- faldast á nýjum gulrófum og þre- faldast á gúrkum. Samkvæmt svari landbúnaðar- ráðherra námu tekjur ríkissjóðs af grænmetisinnflutningi tæplega 1.100 milljónum króna á árunum 1999–2003. Þar af var virðisauka- skattur rúmur hálfur milljarður eða helmingur teknanna. Engar upplýsingar liggja hins vegar fyrir um hvernig verð- myndun skiptist á helstu tegund- um grænmetis, bæði innlendu og innfluttu, sundurliðað milli fram- leiðenda, heildsöluálagningar, smásöluálagningar og opinberra gjalda. „Það er furðulegt að ekki skuli vera hægt að ná fram svo mikil- vægum upplýsingum um verð- myndun á svona mikilvægum neysluvörum landsmanna. Þegar eftir er leitað við landbúnaðar- ráðuneytið telja þeir sig ekki hafa lagaheimild til að ganga eftir þessum upplýsingum og vísa á Samkeppnisstofnun, sem sér ekki fram úr verkefnum sökum fjár- skorts og manneklu. En á það verður látið reyna hvort Sam- keppnisstofnun geti aflað þessara upplýsinga,“ segir Jóhanna Sig- urðardóttir, þingmaður Samfylk- ingairnnar. the@frettabladid.is HERMENN Á VERÐI Hermenn á verði í Wanahéraði meðan aðförin að talibönum stendur yfir. Pakistanskir hermenn: Felldu 24 talibana PAKISTAN, AP Pakistanskir hermenn felldu 24 grunaða al-Kaídaliða og talibana í bardögum í héruðum sem liggja að Afganistan, að sögn talsmanns hersins. Í það minnsta átta hermenn féllu í bardögunum og fimmtán særðust. Bardagarnir áttu sér stað dag- inn eftir að Pervez Musharraf for- seti hét því að hreinsa fjallasvæðið af 500-600 erlendum hryðjuverka- mönnum sem hann sagði að héldu sig til nálægt landamærunum. Á sama tíma hefur Bandaríkjaher lagt aukinn kraft í baráttuna gegn meintum hryðjuverkamönnum og talibönum í Afganistan. ■ Uppgjör Kögunar: Skilaði 337 milljóna hagnaði UPPGJÖR Kögun skilaði 337 millj- ón króna hagnaði í fyrra saman- borið við 117 milljón króna hagnað árið áður. Mikill vöxtur er fyrirsjáan- legur í starfsemi Kögunar. Fyr- irtækið keypti þrjú hugbúnaðar- fyrirtæki á síðasta ári sem munu koma að fullu inn í reikn- inga Kögunar á þessu ári. Breytingin endurspeglast í efnahagsreikningi félagsins. Heildareignir Kögunar í lok þessa árs voru 3,5 milljarðar króna, en voru 841 milljón króna árið áður. ■ ÖSKRAR AF SÁRSAUKA Palestínumaður sem særðist í flugskeyta- árás Ísraela öskrar af sársauka meðan læknar huga að honum. ■ Bandaríkin SLEPPT FRÁ GUANTANAMO 23 Afgönum og þremur Pakistön- um hefur verið sleppt úr fanga- vist sinni á bandarísku herstöð- inni í Guantanamo á Kúbu. Bandaríska varnarmálaráðuneyt- ið segir að alls hafi 119 manns verið sleppt en meintir al- Kaídaliðar og talibanar voru fluttir þangað eftir stríðið í Afganistan. ■ MEIRA INNLENT KÁL Heldur hefur dregið úr innflutningi á káli síðustu ár en innflutningur á rófum, kartöflum og spínati hefur margfaldast. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA Þar af vsk. 1999 246,7 89,0 2000 250,9 95,3 2001 262,8 114,6 2002 163,9 116,1 2003 154,0 123,2 Alls 1.078,3 538,2 1999 5.186,5 2000 6.019,4 2001 5.973,2 2002 6.273,7 2003 7.114,5 Alls 30.567,2 Árlegur heildar- innflutningur á fersku grænmeti í tonnum. Tekjur ríkissjóðs af inn- fluttu fersku grænmeti í milljónum króna. „Á það verður látið reyna hvort Samkeppnis- stofnun geti aflað þessara upplýsinga. Innflutningur gulrófna sjöfaldast Innflutningur á nýjum gulrófum var rúmlega sjöfalt meiri í fyrra en árið 1999. Tekjur ríkissjóðs af grænmetisinnflutningi námu ríflega milljarði króna á síðustu fimm árum.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.