Fréttablaðið - 17.03.2004, Blaðsíða 10
10 17. mars 2004 MIÐVIKUDAGUR
BEÐIÐ EFTIR SCHRÖDER
Jacques Chirac Frakklandsforseti mátti
bíða nokkra stund eftir að Gerhard
Schröder, kanslari Þýskalands, kæmi til
fundar við hann í Elysee-höll í gær.
Vilja að þunglyndi eldri borgara verði rannsakað:
Gæti orðið meiriháttar
heilbrigðisvandamál
ALÞINGI Hætt er við að þunglyndi
eldri borgara verði meiriháttar
heilbrigðisvandamál ef ekki
verða gerðar ráðstafanir til að
sporna gegn því, segir í þings-
ályktunartillögu sem lögð hefur
verið fram á Alþingi.
Ágúst Ólafur Ágústsson, al-
þingismaður Samfylkingarinnar,
er fyrsti flutningsmaður til-
lögunnar. Hann segir þunglyndi
ekki hafa verið rannsakað sér-
staklega hér á landi og því leggi
flutningsmenn tillögunnar til að
skipuð verði nefnd til að rann-
saka málið og koma með lausnir.
Ágúst Ólafur segir þunglyndi
eldri borgara að einhverju leyti
vera falið og ógreint enda fáist
engin stofnun innan heilbrigðis-
geirans á skipulagðan hátt við
vandamálið. Hann segir að til-
hneigingin hafi verið að leysa
vandann með lyfjagjöf í stað ann-
arrar meðferðar, en það sé ekki
nóg. Nauðsynlegt sé að huga að
annars konar meðferð samhliða
lyfjameðferð.
Flutningsmenn tillögunnar
telja mikilvægt að tíðni sjálfsvíga
og sjálfsvígstilrauna meðal eldri
borgara sé skoðuð en það hafi
lengi verið feimnismál hér á landi
eins og annars staðar. ■
Seltjarnarnes:
Dagvist fyrir
aldraða
ALDRAÐIR Heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðuneytið hefur veitt
Seltjarnarnesbæ rekstarleyfi
fyrir fimm dagvistarrýmum frá
1. júlí næstkomandi.
Í fréttatilkynningu frá Sel-
tjarnarnesbæ segir að undir-
búningur að opnun dagvistar-
innar sé þegar hafinn og vonast
sé til að hægt verði að taka við
fyrstu einstaklingunum fyrir
sumarlok. Hingað til hefur þessi
þjónusta ekki verið fyrir hendi á
Seltjarnarnesi og hafa aldraðir
því þurft að sækja á ýmsa staði í
Reykjavík til að njóta þjónust-
unnar. ■
Engjateigi 5, sími 581 2141
Opið virka daga frá kl. 10.00-18.00, laugardaga frá kl. 10.00-16.00.
NÝTT - NÝTT
GALLALÍNA FRÁ
DINOMODA
ÁGÚST ÓLAFUR ÁGÚSTSSON
Ágúst Ólafur er fyrsti flutningsmaður þings-
ályktunartillögu um þunglyndi eldri borgara.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
STÓRAUKIÐ EFTIRLIT Bandaríska
landbúnaðarráðuneytið hefur fyrir-
skipað stórauknar prófanir á naut-
gripum til að greina hvort kúariðu
sé að finna í bandarískum naut-
gripum. Kúariða greindist fyrst í
Bandaríkjunum í desember.
VILJA KÆRA RUMSFELD Hópur
lögfræðinga hefur krafist rann-
sóknar á hvarfi muna tengdra 11.
september. Eftir að brot úr flugvél-
inni sem lenti á varnarmálaráðu-
neytinu fannst á borði Rumsfelds
varnarmálaráðherran vilja þeir að
rannsóknin beinist líka að honum.
■ Bandaríkin
LÖGREGLUMÁL Ellefu ára drengur
fannst látinn á tjaldstæðinu á Sel-
fossi um klukkan átta á mánu-
dagskvöld. Hann lést af völdum
byssuskots sem hæfði hann í höf-
uðið. Líklegt er að hann hafi látist
samstundis. Talið er að um voða-
skot hafi verið að ræða.
„Við vitum að tveir piltar voru
þarna á ferðinni og vitum að sá
sem lést var ekki sjálfur með byss-
una þegar skotið hljóp úr henni,“
segir Þorgrímur Óli Sigurðsson,
lögreglufulltrúi á Selfossi. Dreng-
urinn sem var með þeim látna er
tíu ára gamall. Þorgrímur segir að
aðstoð hafi verið fengin frá Barna-
húsi við að taka skýrslu af drengn-
um og fóru þær skýrslutökur fram
í Reykjavík í gær.
Að sögn Þorgríms komu tveir
drengir, átta og fimmtán ára
gamlir, að þeim látna þar sem
hann lá fyrir aftan bekk við tjald-
stæði bæjarins. Byssan var við
hliðina á honum en lögreglan vill
ekki gefa upp um hvers kyns skot-
vopn er að ræða. Þá er verið að
rannsaka hvaðan byssan var feng-
in. Þorgrímur segir eitt vitni hafa
heyrt hvell en vitnið var á ferð í
götu skammt frá þeim stað sem
drengurinn fannst látinn. Þor-
grímur segir ljóst að drengurinn
hafi látist samstundis af völdum
skotsársins og talið er að hann
hafi fundist um tíu til fimmtán
mínútum eftir að hann lést.
Bæjarlíf á Selfossi bar merki
þessa hörmulega atburðar. Börn
lögðu leið sína að bekknum þar
sem drengurinn fannst látinn, en
það er við litla tjörn við Gesthús.
Þau voru mjög slegin og hrygg
yfir voveiflegu láti drengsins, en
hann var skólabróðir margra
þeirra. Nemendum í grunnskól-
um Selfoss var tilkynnt um at-
burðinn í morgunsárið og var
þeim veitt áfallahjálp í kjölfarið.
Þá var kirkjan opin fyrir bæjar-
búa frá klukkan sex til átta í gær-
kvöldi.
hrs@frettabladid.is
FRÁ TJALDSVÆÐINU Á SELFOSSI
Börn á Selfossi lögðu leið sína að staðnum þar
sem drengurinn fannst látinn. Börnin voru
slegin og hrygg yfir þessum hörmulega atburði.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Ellefu ára drengur
lést af voðaskoti
Drengur sem fannst látinn á tjaldsvæði Selfoss lést af völdum byssuskots.
Bæjarlíf á Selfossi bar merki þessa hörmulega atburðar. Rósir voru lagðar
á bekk þar sem drengurinn fannst.
Hæstiréttur í Venesúela úrskurðar Chavez í óhag:
Andstæðingar forsetans fagna sigri
VENESÚELA, AP Andstæðingar Hugos
Chavez, forseta Venesúela, fögnuðu
sigri þegar hæstiréttur landsins úr-
skurðaði að taka þyrfti gildar allar
undirskriftir með beiðni um
atkvæðagreiðslu um setu Chavez á
forsetastóli nema fólk neitaði því að
hafa ritað nöfn sín á beiðnina. Yfir-
kjörstjórn hafði áður úrskurðað
870.000 undirskriftir ógildar, nema
fólk kæmi fram og staðfesti undir-
skrift sína.
Samkvæmt þessu hafa andstæð-
ingar forsetans skilað inn nógu
mörgum undirskriftum til að ná
fram atkvæðagreiðslu um hvort
Chavez hverfi frá völdum fyrir lok
kjörtímabils síns. ■
FAGNAÐ Í CARACAS
Hundruð andstæðinga Chavez fögnuðu dómi hæstaréttar.