Fréttablaðið - 17.03.2004, Blaðsíða 9
9MIÐVIKUDAGUR 17. mars 2004
Smáralind
Sími 545 1550
Glæsibæ
Sími 545 1500
Kringlunni
Sími 575 5100
www.utilif.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
TI
2
40
49
03
/2
00
4
Nýju
Rollerblade
línuskautarnir
eru komnir!
Stækkanlegir línuskautar fyrir börn 9.990 kr.
Dömu- og herralínuskautar frá 9.990 kr.
Heilbrigðisyfirvöld:
Ekki fleiri
megrunar-
kúra
ÁSTRALÍA, AP Ástralskir læknar
hafa lýst stuðningi við herferð
stjórnvalda í Victoríuríki í Ástr-
alíu gegn megrunarkúrum á við
atkins-kúrinn, sem og aðra þá
megrunarkúra sem geta haft
neikvæð áhrif á heilsu fólks.
Stjórnvöld og læknar vilja að
fólk hreyfi sig meira og borði
skynsamlegar frekar en að það
leggist í megrunarkúra.
Talið er að 3,3 milljónir Ástr-
ala á aldrinum 18–64 ára þjáist
af offitu og að 5,6 milljónir Ástr-
ala til viðbótar megi við því að
grennast. Þetta er um það bil
helmingur allra Ástrala og er
hlutfall þeirra sem eiga við
offitu að stríða hvergi hærra. ■
AL-KAÍDA AÐ BAKI MORÐ-
TILRÆÐUM Pervez Musharraf,
forseti Pakistans, segir að líbísk-
ur félagi al-Kaída hafi staðið á
bak við tvö banatilræði við sig í
desember í fyrra. Musharraf
lýsti þessu yfir á fundi með ætt-
bálkahöfðingjum í norðvestur-
hluta landsins en nafngreindi
manninn ekki.
TÍU LÉTUST Tíu manns létu lífið
og 25 slösuðust þegar rúta fór út
af veginum í fjöllum Jammu-
Kasmír í Indlandi og hrapaði 30
metra. Fjórir þeirra slösuðu eru í
lífshættu.
MANNSKÆÐAR AURSKRIÐUR
Aurskriður í Kasakstan kostuðu
28 manns lífið, þeirra á meðal
sex börn, að sögn embættis-
manna. Aurskriðurnar féllu eft-
ir að rignt hafði í marga daga.
Enn rignir í landinu og óttast
menn að fleiri aurskriður kunni
að falla.
KÆRÐIR FYRIR VÍGSLURNAR
Tveir prestar hafa verið ákærð-
ir fyrir að gefa saman þrettán
samkynhneigð pör í New York
ríki í Bandaríkjunum. Prestarn-
ir eru ákærðir fyrir að gefa
saman pör án hjúskaparleyfis.
Sömu kærur hafa verið lagðar
fram á hendur bæjarstjóranum
Jason West í New Paltz sem
hefur gefið saman samkyn-
hneigð pör.
VIÐSKIPTI „Það hefur ekki verið
nein umræða um sameiningu í
stjórn SH. Það eru margir
möguleikar sem bjóðast SH til
að vaxa. SÍF er einn möguleik-
inn. Við erum búin að ganga í
gegnum það tvisvar. Kaup SÍF í
SH breyta engu um það,“ segir
Gunnlaugur Sævar Gunnlaugs-
son, nýkjörinn stjórnarformað-
ur Sölumiðstöðvar hraðfrysti-
húsanna.
Sölumiðstöð hraðfrystihús-
anna (SH) hefur stofnað dóttur-
félag í Kína. Gunnlaugur Sævar
segir hug í SH-fólki og mögu-
leika mikla fyrir fyrirtækið.
Gunnlaugur er einnig stjórn-
arformaður Tryggingamið-
stöðvarinnar sem hefur selt
hlut sinn í Eimskipafélaginu,
þar sem Gunnlaugur sat í
stjórn. „Við keyptum tólf pró-
senta hlut í Straumi fjárfesting-
arbanka, þannig að það er nú
eitthvert samhengi þar á milli.“
Hann segir sjálfhætt fyrir
sig í stjórn Eimskipafélagsins
eftir að Tryggingamiðstöðin
seldi sinn hlut. „Við erum ekki
svo óforskömmuð að gera kröfu
um stjórnarsæti í félögum sem
við eigum ekkert í.“ ■
KAUPMANNAHÖFN, AP Danska lögregl-
an skar í gær upp herör gegn hass-
sölum í Kristjaníu og hafði afskipti
af 48 þeirra í tilraun til að kveða nið-
ur hasssöluna sem hefur löngum
verið látin afskiptalaus í fríríkinu.
„Við eltumst sérstaklega við
nokkra þekkta einstaklinga sem
hafa selt hass,“ sagði Flemming
Steen Munch, talsmaður Kaup-
mannahafnarlögreglunnar. Lögregl-
an réðst til atlögu klukkan fjögur í
fyrrinótt, hvort tveggja í Kristjaníu
og nálægum sveitarfélögum. ■
KRISTJANÍA
Dönsk yfirvöld vilja koma
reglum yfir Kristjaníu.
Barist gegn hasssölu:
Ráðist inn í Kristjaníu
NÝR STJÓRNARFORMAÐUR
Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson hefur
tekið við stjórnarformennsku í Sölumiðstöð
hraðfrystihúsanna. Hann er einnig stjórnar-
formaður Tryggingamiðstöðvarinnar.
Eignarhlutur Sölusambands ísl. fiskframleiðenda í Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna:
Engin áhrif á sameiningu
■ Asía
■ Bandaríkin