Fréttablaðið - 17.03.2004, Page 12
Hart hefur verið tekist á ístjórn Orkuveitu Reykjavík-
ur vegna fjárfestinga fyrirtækis-
ins í öðrum fyrirtækjum, sérstak-
lega í Línu.Neti og Tetra Íslandi.
Sjálfstæðismenn, sem fulltrúar
minnihlutans, hafa deilt hart á
ákvarðanir meirihlutans og full-
yrða að framganga meirihlutans
hafi án nokkurs vafa skaðað fyrir-
tækið og komi með beinum hætti
niður á eigendum og viðskiptavin-
um þess.
Sjálfstæðismenn segja stað-
reyndir vera þær að þegar
Lína.Net var stofnuð hafi því ver-
ið lýst yfir að Orkuveitan setti að
hámarki 200 milljónir í fyrirtækið
og hlutverk þess yrði að flytja
tölvuboð um rafmagnslínur með
skjótvirkari hætti en þekktist
með öðrum leiðum. Fyrirtækið
hafi átt að setja á markað og borg-
in hafi átt að hagnast. Niðurstaðan
sé hins vegar allt önnur. Framlög
Orkuveitunnar séu orðin rúmlega
3.500 milljónir að núvirði og upp-
safnað tap á Línu.net fyrirtækjun-
um sé nær 1800 milljónum.
Dylgjur eða skylda
Einum af stjórnarmönnum
Orkuveitunnar, Sveini Kristins-
syni, sem er bæjarfulltrúi á Akra-
nesi fyrir Samfylkinguna, var nóg
boðið og lét bóka harðorða
yfirlýsingu um framgöngu
fulltrúa Sjálfstæðis-
flokksins í stjórninni.
Hann sagði umræður
í stjórn Orkuveitunn-
ar oftast vera mál-
efnalegar þrátt fyrir
veigamiklar undan-
tekningar. „Þar hafa
stjórnarmenn Sjálf-
stæðisflokksins í
Reykjavík farið
offari. Æ ofan í æ
hafa aðrir stjórnar-
menn og starfsmenn
fyrirtækisins mátt
sitja undir klögumál-
um, aðdróttunum og
dylgjum um rangar
eða villandi
upplýsingar og
ábyrgðarlausar
ákvarðanir.“ Sjálf-
stæðismenn bók-
uðu á móti: „Full-
trúar Sjálfstæðis-
flokksins í sínum
störfum gæta
hagsmuna eigenda
(sem að stærstum
hluta eru Reykvík-
ingar) og viðskiptavina fyrirtækis-
ins. Öllum er ljóst að miklar deilur
eru um pólitíska stjórn Orkuveitu
Reykjavíkur, þar hafa fulltrúar
Sjálfstæðisflokksins gagnrýnt
harðlega hvernig að vinstri-
meirihlutinn hefur haldið á mál-
um. Framganga meirihlutans hef-
ur án nokkurs vafa skaðað fyrir-
tækið sem að kemur með beinum
hætti niður á eigendum og við-
skiptavinum fyrirtækisins. Enn
ein staðfesting á slíku kom fram á
þessum fundi.“
Sveinn sagði fleira. Hann bók-
aði að hann hefði langa reynslu af
setu í sveitarstjórnum og stjórn-
um fyrirtækja. „Á þeim langa
tíma hefur hann aldrei kynnst
svona vinnubrögðum.
Slík vinnubrögð þjóna
ekki þeim miklu hags-
munum sem stjórnar-
mönnum er ætlað
að gæta fyrir hönd
umbjóðenda sinna.
Þau gefa hins vegar
freklega til kynna að
umræddir stjórnar-
menn Sjálfstæðis-
flokksins í Reykja-
vík séu tilbúnir
að fórna þessum
hagsmunum í póli-
tískri baráttu við
meirihlutann í
b o r g a r s t j ó r n
Reykjavíkur.“
Sjálfstæðismenn bókuðu: „Það
er ekkert við því að segja ef
Sveinn Kristinsson, fulltrúi Sam-
fylkingarinnar á Akranesi, er
ósáttur við að fulltrúar Sjálfstæð-
isflokksins sinni skyldum sínum
en það er leiðinlegt að hann blandi
starfsmönnum Orkuveitunnar inn
í sína bókun. Orkuveita Reykjavík-
ur er með gott starfsfólk sem að
sinnir sínum störfum vel. Ekki er
maklegt að væna fulltrúa Sjálf-
stæðisflokksins um að gagnrýna
þeirra störf.“
3.500 milljónir
Fyrir rétt um fimm árum sam-
þykkti stjórn Orkuveitunnar að
stofna dótturfyrirtæki með 200
milljóna króna
hlutafé. Helgi Hjörvar, stjórnar-
maður í Orkuveitunni og borgar-
fulltrúi, sagði af því tilefni í frétt-
um Stöðvar 2: „Menn eru þar að
horfa til þess að leggja hér ljós-
leiðarahring um þéttbýlasta svæði
landsins sem er hægt að gera með
tiltölulega litlum tilkostnaði sér-
staklega vegna þess að Orkuveit-
an hefur ýmsar leiðir sem að við
höfum verið að skoða.“
Ekki eru allir á eitt sáttir um
hvernig tekist hefur til. Þær 200
milljónir sem voru settar í hlutafé
dugðu hvergi. Sjálfstæðismenn
hafa bókað eftirfarandi: „Stjórnar-
formaður Orkuveitunnar reynir
hvað hann getur til að koma eigin
ábyrgð yfir á aðra. Staðreyndir
málsins eru þessar, þegar að
Lína.net var stofnuð var því lýst
yfir að Orkuveitan setti að há-
marki 200 milljónir í það fyrirtæki
og hlutverk þess yrði að flytja
tölvuboð um rafmagnslínur með
skjótvirkari hætti en þekktist með
öðrum leiðum. Fyrirtækið átti að
setja á markað og borgin átti að
hagnast. Niðurstaðan er framlög
Orkuveitunnar eru rúmlega
3500 milljónir að núvirði og
uppsafnað tap á Línu.net fyrir-
tækjunum er nær því 1800
milljónir. Það halda því fram að
fjárfestingar OR í fjarskipta-
málum hafi skilað sér vel er
ótrúleg blinda á staðreyndir.“ ■
12 17. mars 2004 MIÐVIKUDAGUR
BAK VIÐ LÁS OG SLÁ
Petr Pithart, forseti tékkneska þingsins, var
bak við lás og slá í gær. Hann hafði þó
ekki verið handtekinn heldur tók hann
þátt í mótmælum gegn kúgun almennings
á Kúbu. 75 einstaklingar skiptust á um að
sitja í tilbúnu fangelsi á Wenceslas-torgi í
Prag, höfuðborg Tékklands.
Írakar sáttir við líf sitt samkvæmt nýrri könnun:
Bjartsýnir á framtíðina
ÍRAK, AP Velflestir Írakar eru
bjartsýnir á framtíðina en þeir
eru á báðum áttum um hvort inn-
rás Breta og Bandaríkjamanna á
síðasta ári hafi verið jákvæð eða
neikvæð samkvæmt nýrri skoð-
anakönnun.
Rúmlega helmingur segir líf
sitt betra nú en fyrir innrás, en
um það bil fimmtungur segir það
hins vegar hafa versnað. Nær
tveir af hverjum þremur eiga von
á því að lífsgæði þeirra batni
næsta árið og þriðjungur telur að
þau taki stórstígum framförum.
„Jákvæðnin og bjartsýnin
vekja mikla athygli,“ sagði Gary
Langer, yfirmaður skoðanakann-
ana hjá ABC-sjónvarpsstöðinni.
„Væntingum fylgir þó áhætta. Ef
þær rætast ekki má búast við póli-
tískum afleiðingum þess.“
Þeir sem álíta innrásina á síð-
asta ári vera frelsun eru álíka
margir og þeir sem telja hana nið-
urlægingu fyrir Írak.
Hátt í 70% Íraka hafa áhyggjur
af atvinnuleysi, öryggisleysi og
skorti á grunnþjónustu á borð við
rafveitur. Þeir eru þó ánægðir
með menntakerfið, þrír af hverj-
um fjórum eru sáttir við skólana.
Írakar treysta eigin lands-
mönnum mun betur til að bæta úr
skorti á grunnþjónustu en setulið-
inu. Aðeins fjórðungur treystir
setuliðinu fyrir að bæta úr mál-
um. Trúarleiðtogar njóta mests
trausts, 70 prósenta, en lögreglan
litlu minna, 68 prósenta. ■
Klögumál, dylgjur
og aðdróttanir
Mikil átök hafa átt sér stað innan stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur vegna þátttöku fyrirtækisins í
öðrum félögum. Harðorðar bókanir ganga á milli meirihluta og minnihluta. Upphaflega átti
framlag til Línu.Nets að vera 200 milljónir króna. Það er orðið sautján sinnum meira.LEITAÐ AÐ EFNAVOPNUM
Æfð voru viðbrögð við efnavopnaárás.
Hryðjuverkaárás:
Þúsund æfa
viðbrögð
NEW YORK, AP Á þriðja þúsund lög-
reglumenn, slökkviliðsmenn,
sjúkraliðar og einstaklingar í
hlutverkum fórnarlamba tóku á
sunnudag þátt í umfangsmestu
æfingum á viðbrögðum við
hryðjuverkum sem haldnar hafa
verið í New York frá árásunum
11. september 2001.
Þyrlur flugu yfir, sjúkrabílar
þutu á milli staða og 60 sjúkrahús
fylltust af fólki sem var flutt
þangað.
Michael Bloomberg borgar-
stjóri segir árásina í Madríd sýna
þörfina fyrir að viðbrögð og varn-
ir við hugsanlegum árásum séu
æfð. Eftir árásirnar 2001 var
gagnrýnt að samstarf lögreglu og
slökkviliðs væri ábótavant. ■
COLIN POWELL
Bætist í hóp þeirra sem draga orð Kerrys
um stuðning erlendra þjóðarleiðtoga í efa.
Powell við Kerry:
Nefndu nöfn
WASHINGTON, AP John Kerry, for-
setaframbjóðandi demókrata, er
kominn í nokkurn vanda vegna
ummæla sinna um að nokkrir er-
lendir þjóðarleiðtogar hafi sagt
honum að þeir vilji fremur að
hann verði forseti eftir kosning-
arnar í nóvember en George W.
Bush, núverandi forseti.
Kerry lýsti þessu yfir á fjáröfl-
unarfundi í síðustu viku en hefur
neitað að nafngreina leiðtogana
þar sem með því væri hann að
brjóta trúnað. Colin Powell utan-
ríkisráðherra hefur lýst vantrú á
því að nokkur þjóðarleiðtogi hafi
sagt þetta við Kerry og hvatt
Kerry til að nafngreina þá. „Ef
hann getur ekki nefnt nein nöfn
ætti hann að finna sér eitthvað
annað til að tala um.“ ■
MÓTMÆLI Í ÍRAK
Þrátt fyrir tíð mótmæli segist meirihluti Íraka sáttur við hlutskipti sitt og telur það hafa
batnað frá því fyrir innrás.
SVEINN
KRISTINSSON
GUÐLAUGUR ÞÓR ÞÓRÐARSON BORGARFULLTRÚI
Segir framgöngu meirihlutans hafa án vafa skaðað Orkuveituna, sem komi með
beinum hætti niður á eigendum og viðskiptavinum fyrirtækisins.
ALFREÐ ÞORSTEINSSON STJÓRNARFORMAÐUR
Hann er sagður hafa gert ráð fyrir að framlag Orkuveitunnar til
Línu.Nets yrði að hámarki 200 milljónir. Búið er að setja 3.500 milljónir í fyrirtækið.
FRAMLAG ORKUVEITUNNAR TIL FJARSKIPTAFYRIRTÆKJA
Framlög Lína.Net Rafmagnslína Tetra-Irja Samtals
1999 214.000 0 0 214.000
2000 88.900 0 0 88.900
2001 670.802 40.000 296.500 1.007.302
2002 1.350.463 0 131.667 1.482.130
2003 0 200.000 50.000 250.000
Samtals 2.324.165 240.000 478.167 3.042.332
*Á verðlagi þessa árs er samtalan 3.520.499
** Allar tölur eru í milljónum
AFKOMA FJARSKIPTAFYRIRTÆKJA ORKUVEITUNNAR
Halli af rekstri Lína.Net Rafmagnslína Tetra Ísland Samtals
1999 7.388 0 0 7.388
2000 471.685 0 0 471.685
2001 172.244 577 132.270 305.091
2002 157.091 10.247 214.383 381.721
2003 90.000 10.000 80.000 180.000
Samtals 898.408 20.824 426.653 1.345.885
*Á verðlagi þessa árs er samtalan 1.772.538
** Allar tölur eru í milljónum
Fréttaskýring
SIGURJÓN M. EGILSSON
■ skrifar um pólitísk átök vegna
þátttöku Orkuveitu Reykjavíkur í öðrum
fyrirtækjum.