Fréttablaðið - 17.03.2004, Page 13

Fréttablaðið - 17.03.2004, Page 13
Krabbameinsfélagið verður í samstarfi við nokkrar verslanir í mars þar sem safnað verður fé til að auka þjónustu við sjúklinga, meðal annars til að efla Heimahlynningu Krabbameinsfélagsins og Krabbameinsráðgjöfina. Þegar viðskiptavinur kemur að afgreiðslukassa í þessum verslunum gefst honum kostur á að hækka heildarfjárhæð viðskipta upp í næsta hundrað. Í stað þess að borga t.d. 2.345 krónur er hægt að hækka upphæðina í 2.400 krónur og renna þá 55 krónur til Krabbameinsfélagsins. Einnig er hægt að leggja málefninu lið með því að hringja í styrktarsíma Krabbameinsfélagsins 907 5050 og verða þá 1.000 krónur skuldfærðar af símreikningi. – TIL STYRKTAR KRABBAMEINSFÉLAGINU Sími 540 1900 www.krabbameinsfelagid.is Það er staðreynd að þriðji hver Íslendingur getur búist við að fá krabbamein einhvern tíma á lífsleiðinni! Allur ágóði af söfnunarátakinu rennur beint til Krabbameinsfélagsins. Samstarfsaðilar eru: F í t o n F I 0 0 8 9 9 5

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.