Fréttablaðið - 17.03.2004, Síða 30
Hrósið 30 17. mars 2004 MIÐVIKUDAGUR
Við stofnun Norðurljósa fyrirrúmum þremur árum síðan
fluttist Skífan úr Skeifunni 17 upp í
Lyngháls. Nú eftir að Norðurljós
bættu fyrirtækjunum BT, Office 1
og Frétt ehf. undir hatt sinn flyst
Skífan nú úr Lynghálsi... aftur yfir í
Skeifuna 17.
„Nú er allt flutt á nákvæmlega
sama stað aftur nema að núna eru
tónlistar- og kvikmyndadeildirnar
komnar í hinn hluta hússins,“ segir
Eiður Arnarsson, útgáfustjóri Skíf-
unnar.
„Ég er reyndar ekki á nákvæm-
lega sama stað því tónlistardeildin
var áður í Skeifunni 8 sem er húsið
gegnt Skífunni 17. Þetta er frekar
góð tilfinning að flytja. Þetta er
landfræðilega margfalt betra stað-
sett.“
Náinn búskapur útgáfufélagsins
og fjölmiðlanna upp í Lynghálsi
hefur verið gagnrýndur frá fyrsta
degi. Með flutningunum „slitnar
slefið á milli fjölmiðlasviðsins og
útgáfunnar,“ eins og Eiður orðar
það. „Já, það er ágætt að hlutir séu
aðskildir því þá verða einingarnar
sjálfstæðari. Auðvitað verður mikil
samvinna áfram, enda væri annað
óeðlilegt.“
Ragnar Birgisson, framkvæmda-
stjóri Skífunnar, sem flutti inn í
gömlu skrifstofuna sína, segir flutn-
inginn ekki snúast um það að Skífu-
mönnum hafi líkað vistin upp á
Lynghálsi illa. „Þetta er mjög lógískt
hagræðingarferli sem byrjaði á því
að við sátum uppi með það að vera
með tvo lagera,“ útskýrir hann. „Það
var betra fyrir okkur að flytja niður
í Skeifu vegna lagersins og auk þess
gátum við fengið skrifstofuaðstöðu.
Hérna er líka útibú frá BT, Office 1
er í sama húsi auk þess sem við
erum mun nær helstu verslunum
okkar í Kringlunni og Smáralind.“ ■
Flutningar
SKÍFAN
■ fór úr Skeifunni upp á Lyngháls fyrir
þremur árum en hefur nú lokað
hringnum með flutningi á gamla staðinn
í Skeifunni.
Imbakassinn
... fær Ólafur Ragnar Grímsson,
forseti Íslands, fyrir að boða
aukin afskipti embættisins af
þjóðlífinu og gefa þannig út
ávísun á líf og fjör í kringum
forsetaembættið.
Skífan flytur í hring
■ Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6
1.
2.
3.
Jamaíka.
Friðarviðræður við Palestínu-
menn.
Skoraði sitt 200. mark í ítölsku
deildinni.
1
5 6
7 8
13 14
16 17
15
18
2 3
11
9
1210
4
í dag
Aron Pálmi
selur löggu-
búninga
Steingrímur
segir forsætis-
ráðherrabók
óþarfa
Hrottinn barði
unnustu og
sambýliskonu
og slapp með
tvo mánuði
dulkodun.is
ÖRUGG
AÐGANGSKERFI
SKÍFAN
Aftur komin á aðra hæð í Skeifunni 17.
Krem Á MÓTI bólum!
Arrgh! Ég hlýt að hafa
prófað öll krem fyrir bólur
sem eru til á markaðnum!
Hvað notar þú eiginlega?
Lárétt: 1 giftar konur, 5 upphaf, 6 ullar-
hnoðrar, 7 klaki, 8 óhelg, 9 jafningur, 10
nautgrip, 12 bardaga, 13 þrír eins, 15 fé-
lagsskapur, 16 er í vafa, 18 band.
Lóðrétt: 1 fjörleg, 2 blóm, 3 að innan,
4 fræðasetur, 6 ferma skip, 8 eyða, 11
varg, 14 tónsmíð, 17 sólguð.
Lausn.
Lárétt:1frúr, 5rót,6ló,7ís,8sek,9
sósa,10kú,12ats,13lll,15aa,16efar,
18garn.
Lóðrétt:1frískleg,2rós,3út,4bóka-
safn,6lesta,8sóa,11úlf, 14lag,17ra.
Skákspekingar spjalla á Naustinu
Ég hef teflt á þremur skákmótumá Íslandi og alltaf unnið þannig
að ég hef ekki ástæðu til annars en
að vera ánægður með að vera kom-
inn hingað aftur,“ sagði rússneski
skákmeistarinn Gary Kasparov á
hádegisverðarfundi á Naustinu í
gær. Kasparov kom til landsins í
fyrradag ásamt hinum gamla and-
stæðingi sínum Anatolí Karpov en
þeir taka báðir þátt í Reykjavík
Rapid 2004 hraðskákmótinu sem
hefst á Nasa við Austurvöll klukkan
18 í dag.
Breski meistarinn Nigel Short og
Kasparov funduðu með blaðamönn-
um á Naustinu í gær og ræddu skák-
ina vítt og breitt. Kasparov bætti
því við að hann kynni vel við sig á
Íslandi enda væri landið mikið
skákland og hann ætti góðar minn-
ingar héðan.
Karpov var öllu hæglátari en
skaut því inn að auðvitað þekktu all-
ir Ísland og Reykjavík.
Íslensku stórmeistararnir
Jóhann Hjartarson, Helgi Ólafsson,
Margeir Pétursson og Hannes Hlíf-
ar Stefánsson taka allir þátt í mót-
inu en hinir tignu gestir fengust
ekki til að upplýsa það hvaða skák-
maður íslenskur væri bestur að
þeirra mati. Síðan fór drjúgur tími í
að ræða skemmtilegan og leiðinleg-
an skákstíl og tilhneigingu manna
að tefla til jafnteflis. Þar fór Short
mikinn og skyggði á Rússana með
líflegri framkomu sinni. Hann neit-
aði þó að svara því til hver væri
„leiðinlegasti skákmaður heims“
þegar gengið var á hann. „Ég hef
mjög ákveðnar skoðanir á þessum
málum en vil ekki láta hafa neitt eft-
ir mér. Ég er ekki tilbúinn til að
fórna skákferlinum fyrir blaða-
mennsku en þegar að því kemur
mun ég skrifa þetta allt sjálfur.“
Kasparov blandaði sér þá í málið
og sagði það stórhættulegt að tjá sig
við blaðamenn, ekki síst með til-
komu Internetsins þegar allt sem
haft væri eftir þeim væri komið út
um allan heim á augabragði í mis-
brengluðum útgáfum. „Góðu setn-
ingarnar eru alltaf þýddar,“ sagði
hann og treysti því varlega að kras-
sandi ummæli í íslenskum fjölmiðl-
um héldu sig innan landsteinanna.
Þremenningarnir tóku heldur
betur við sér þegar talið barst að al-
þjóðaskáksambandinu FIDE. Short
sagði FIDE hafa stórskaðað skákina
síðasta aldarfjórðunginn og sam-
bandið væri gerspillt. Karpov sagði
tíma til kominn að stofna nýtt al-
þjóðasamband og Short stakk upp á
því að sambandið skipaði jafnvel
látinn mann heimsmeistara, slíkt
væri ruglið, og Kasparov gantaðist
með að líklega yrði heimsmeistar-
inn að lokum kosinn með handaupp-
réttingu. ■
Skák
SKÁKMEISTARARNIR
■ Gary Kasparov, Anatolí Karpov og
Nigel Short voru brattir en orðvarir á
blaðamannafundi í gær. Þeir skelltu þó
aðeins á skeið þegar FIDE bar á góma.
KARPOV OG KASPAROV
Kasparov gerði sig líklegan til að gera læti vegna fyrirkomulags Reykjavík Rapid og óttaðist að hann þyrfti að tefla fram á nótt. Að öðru
leyti var hann hress og tók undir það með Nigel Short að Internetið og tölvutæknin hefði svipt skáklistina allri dulúð en gert hana um
leið að aðgengilegri og skemmtilegri keppnisíþrótt.