Fréttablaðið - 17.03.2004, Page 32

Fréttablaðið - 17.03.2004, Page 32
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R Bakþankar SIGURJÓNS M. EGILSSONAR SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500 trulofun.is Réttritun á undanþágu Nokkru eftir að þeirri skóla-skyldu lauk sem landslög ætla okkur settist ég á skólabekk. Lærði til stýrimanns. Þetta var sérkenni- legur bekkur. Eiginlega tossabekk- ur þó við værum ekkert mikið lak- ari námsmenn en gengur og gerist. Við áttum það sameiginlegt að við höfðum ekki verið í skóla í nokkur ár og eins að allir vorum við starf- andi sem stýrimenn eða skipstjórar án þess að hafa til þess réttindi. Vorum undanþágumenn en búið var að ákveða að slíkt skyldi heyra sög- unni til. VIÐ FÓRUM í skóla og vorum ákveðnir að standast raunina. Nám- ið gekk bara vel. Einn okkar var Færeyingur sem hafði búið á Ís- landi í nokkur ár og talaði íslensku með ágætum. Ekki bara það. Átti sinn eigin bát og var ágætlega fengsæll og farsæll skipstjóri. Nú varð hann, eins og við hinir, að setj- ast á skólabekk og læra ensku, stærðfræði, stöðugleika, siglinga- fræði, íslensku og fleiri námsgrein- ar svo hann gæti haldið áfram að vera skipstjóri á sínu skipi. ÍSLENSKUKENNARINN las fyrir stíl. Við sátum, hlustuðum og skrifuðum niður. Það heyrðist ein og ein stuna milli þess sem kennar- inn las. Hægt og með áherslum svo ekki færi á milli mála hvað hann segði og við ættum gott með að fylgja honum. Engar athugasemdir komu úr bekknum og allt virtist ganga vel. Stíllinn var eins og alltaf áður byggður upp af sjálf- stæðum setningum, ótengdum hver annarri og því enginn söguþráður. Óþarft að muna síðustu setningu þar sem hún hafði ekkert með þá næstu að gera. KENNARINN LAS og sem högg á suma kom setningin: „Um morg- uninn rigndi en lygndi síðdegis.“ Þar kom að því að þögn nemenda rofnaði. Það var Færeyingurinn. Hann sagði háum og ákveðnum rómi: „Síðdegis, síðdegis. Hvernig á ég að kunna að skrifa þetta helvítis síðdegis,“ sagði frændi okkar frá Færeyjum. Sennilega átti hann ekki í vandræðum með rigndi eða lygndi. Hann náði prófi um vorið og fiskaði hvorki meira né minna en þegar hann var undanþágumaður.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.