Tíminn - 04.11.1972, Page 9
Laugardagur 4. nóvember 1972
Otgefandi: Framsóknarflokkurinn
Framkvæmdastjóri: Kristján Benediktsson. Ritstjórar: 1‘ór-;:;:
arinn Þórarinsson (ábm.), Jón Helgason, Tómas Karlsson
Andrés Kristjánsson (ritstjóri Sunnudagsblaös Timans)
Auglýsingastjóri: Steingrimur. Glslasqm. Ritstjórnarskrif-g:
stofur í Edduhúsinu við Lindargötu, símar 18300-18306»::;::
Skrifstofur í Bankastræti 7 — afgreiðslusfmi 12323 — auglýs
.. ingasimi 19523. Aðrar skrifstofurrsimi 18300., AskriftargjaUí;;;:
j £25 krónur á mánuði innan lands, i lausasölu 15 krónur ein-.:;:;:;
takið. Blaðaprent h.f.
Nýjar samningaviðræður
við Breta
Eins og kunnugt er hefur verið ákveðið eftir
bréfaskipti forsætisráðherra Bretlands og Is-
lands að taka upp að nýju viðræður um hugsan-
lega bráðabirgðalausn landhelgisdeilunnar.
Ákveðíð er, að viðræður þessar verði á ráð-
herrastigi, en ekki hefur verið tekin endanleg
ákvörðun um það enn, hvar eða hvenær þessar
viðræður fara fram.
Þessar væntanlegu samningaviðræður bar
á góma i umræðum á Alþingi i fyrradag, er til
umræðu var tillaga rikisstjórnarinnar um
kaup á nýju varðskipi.
í þeim umræðum upplýsti Ólafur Jóhannes-
son, forsætisráðherra, að við siðustu talningu,
sem fram hefði farið á íslandsmiðum i þessari
viku, hefðu brezkir togarar að ólöglegum veið-
um innan 50 milna markanna, verið færri en
nokkru sinni siðan fiskveiðilögsagan var færð
út i 50 milur, eða ekki nema 16 talsins.
Forsætisráðherra sagðist að sjálfsögðu ekk-
ert geta um það fullyrt, hvað þessu ylli, hvort
um væri að ræða tilviljun eða ekki. Hins vegar
kvaðst hann gjarna vilja trúa þvi, að Bretar
hefðu tekið eitthvert tillit til þeirra áskorana,
er fram hefðu komið af okkar hálfu um það, að
fátt eða ekkert mundi greiða betur fyrir frið-
samlegu bráðabirgðasamkomulagi i þessari
deilu en það, að Bretar kölluðu skip sin út fyrir
landhelgismörkin á meðan á samningaviðræð-
um um lausn deilunnar stæði. Þessa áskorun
vildi hann nú endurtaka og itreka.
Forsætisráðherra sagði, að það væri ein-
dregin ósk sin, að takast mætti að leysa fisk-
veiðideiluna á friðsamlegan hátt með bráða-
birgðasamkomulagi. Það er sannfæring min
sagði forsætisráðherra, að það sé báðum aðil-
um fyrir beztu, þótt báðir verði nokkuð til að
slaka frá þvi, sem þeir helzt kysu.
Forsætisráðherra taldi það ekki á sinu valdi
að fullyrða neitt um það, hvort takast mætti i
þeim ráðherraviðræðum, sem fram undan eru,
að komast að bráðabirgðasamkomulagi, en
það væri hans skoðun, að við ættum mikið á
okkur að leggja til þess að reyna að komast að
samkomulagi. Og við skulum alveg gera okkur
það ljóst, sagði ráðherrann, að við fáum aldrei
með samkomulagi þá lausn á þessari deilu,
sem við getum verið algerlega ánægðir með.
Við verðum þvi að vera við þvi búnir að sjá af
einhverju frá þvi, sem við hefðum talið æski-
legast og frá þvi, sem við teljum raunar okkar
ótviræða rétt, að ráða algerlega þessari nýju
fiskveiðilögsögu. Menn verða að horfast i augu
við það, að bráðabirgðasamkomulag byggist á
þessu, ef nokkur von er til að það megi nást.
En forsætisráðherrann lagði jafnframt á það
áherzlu, að auðvitað gæti aldrei orðið um neitt
samkomulag til bráðabirgða að ræða i þessari
fiskveiðideilu, nema það sýni alveg ótvirætt, að
það feli i sér verulega takmarkaða fiskveiði-
möguleika þessara þjóða , sem við eigum i
deilu við. Það verða þessar þjóðir að gera sér
ljóst, að bráðabirgðasamkomulag við þær um
þessi mál þjóna ekki neinum tilgangi, nema
það verði tryggt.
TÍMINN
ERLENT YFIRLIT
Brezkir Kanadamenn
snérust gegn Trudeau
Telja hann of vinveittan Quebecmönnum
ÚRSLIT þingkosninganna i
Kanada urðu mikill og óvænt-
ur persónulegur sigur fyrir
Trudeau forsætisráðherra.
Þær urðu jafnframt mikið
áfall fyrir stofnanir þær, sem
annast skoðanakannanir. Þær
höfðu yfirleitt spáð þvi, að
Frjálslyndi flokkurinn myndi
halda meirihluta á þingi, en
missa þó nokkur þingsæti.
Þær höfðu einnig spáð þvi að
thaldsflokkurinn myndi gera
litið betur en að standa i stað.
Hins vegar höfðu þær spáð ný-
demókrötum nokkrum ávinn-
ingi. Úrslitin urðu mjög á ann-
an veg.
Siðustu skoðanakannanirn-
ar höfðu spáð þvi, að Frjáls-
lyndi flokkurinn fengi 39% af
atkvæðamagninu, en hann
fékk 45,7% i þingkosningunum
1968. íhaldsflokknum var spáð
þvi, að hann fengi 33% af at-
kvæðamagninu, en hann fékk
31.4% af atkvæðamagninu
1968. Nýdemókrötum var spáð
þvi, að þeir fengju 21% af at-
kvæðamagninu, en peir lengu
17.2% i kosningunum 1968.
Loks var Sósialkreditistum
spáð, að þeir fengu 7% en þeir
fengu 4,4% i kosningunum
1968.
Úrslitin urðu þau i kosning-
unum á mánudaginn, að
Frjálslyndi flokkurinn fékk
um 38% af atkvæðamagninu,
Ihaldsflokkurinn um 35%,
nýdemókratar um 18% og
kreditistar um 9%. Þótt
breytingarnar yrðu ekki meiri
en þetta, miðað við spár
skoðanakannananna, gerðu
þær geysilega mikið strik i
reikninginn. Við þetta bættist
svo það að tap Frjálslynda
flokksins varð allt i þeim
fylkjum Kanada, þar sem
enskættaðir menn eru búsett-
ir, en hinsvegar styrkti hann
heldur atkvæðatölu sina i
franska fylkinu, Quebec.
Quebec, sem kýs 74 þingmenn
af 264, sem alls eiga sæti á
þinginu, fékk Frjálslyndi
flokkurinn 56 þingmenn kosna,
eða sömu tölu og áður. Utan
Quebec fékk hann nú aðeins 53
þingmenn kosna, en hafði
fengið 99 þingmenn kosna þar
i kosningunum 1968. Það var
tap hans i ensku fylkjunum,
sem réði mestu um úrslitin.
EFTIRGREINDAR ástæður
eru taldar hafa ráðið mestu
um tap Trudeaus og Frjáls-
lynda flokksins i ensku fyíkj-
unum:
1. Trudeau er grunaður um
að halda um of fram hiut
frönskumælandi manna, þar
sem hann er franskur i aðra
ættina. Trudeau hefur lika lát-
ið það vera aðalmál sitt, að
reyna að jafna þjóðflokkadeil-
una og koma þannig i veg fyr-
ir, að Kanada klofnaði. Hann
hefur þó hvergi gengið lengra
en að reyna að tryggja
frönskumælandi mönnum fullt
jafnræði, t.d. i sambandí víð
opinberar stöðuveitingar. 1
þvi sambandi beitti hann sér
fyrir lagasetningu, sem gerir
kröfur til, að opinberir starfs-
menn séu jafnfærir i frönsku
og ensku. Þetta var upphaf-
lega stutt af öllum flokkum, en
siðar hafa lög þessi sætt mik-
illi gagnrýni i ensku fylkjun-
um og það talinn óþarfi að
knýja menn þar til að læra
frönsku. Sú gagnrýni hefur
bitnað mest á Trudeau og
reynist hún honum þung i
skauti I kosningabaráttunni,
þótt andstæðingarnir gættu
þess yfirleitt að nota sér hana
ekki opinberlega.
Trudeau heilsar upp á rikisstjórahjónin daginn eftir kosningarnar.
Klæðaburður hans, eins og sá, scm sést á inyndinni, fellur brczkum
Kanadamönnum ekki vel i gcð.
2. Yfirlætisfull framkoma
Trudeaus og hálfgerður hipp-
astill i klæðaburði virðist falla
breskættuðum Kanadamönn-
um illa i geð, þótt þeir létu
þetta gott heita i kosningunum
1968. Virðuleg og hæglát fram-
koma Stanfields virtist sam-
rýmast betur smekk þeirra.
3. 1 kosningabaráttunni hirti
Trudeau ekki nægilega um að
svara gagnrýni andstæðinga
sinna i sambandi við atvinnu-
leysismálin, dýrtiðarmálin og
skattamálin. Hann lét sér i
staðinn nægja að hamra á
þeim áróðri sinum, að staða
Kanada væri sterk og Kanada
nyti vaxandi álits og tiltrúar
út á við. Svo virðist sem
Trudeau hafi orðið hér á
pólitisk skyssa, sem getur átt
rætur i ofmetnaði hans. Það er
a.m.k. álit margra erlendra
blaðamanna, sem hafa ritað
um kosningaúrslitin eftir að
hafa fylgzt með kosninga-
baráttunni. Yfirleitt telja þeir
Trudeau mikilhæfasta stjórn-
málamann Kanada, en sér-
vizka hans og ofmetnaður er
honum samt fjötur um fót.
I KOSNINGABARATTU
sinni lét Trudeau það óspart
koma i ljós, að hann hefði litið
álit á þeim Stanfield, for-
manni ihaldsflokksins, og
Lewis, formanni nýdemó-
krata. Þeir svöruðu hins vegar
með þvi að samræma áróður
sinn og mun Stanfield hafa átt
frumkvæði að þvi, en andúð
beggja á Trudeau hjálpaði til.
1 áróðri sinum gætti Stanfield
þess, að láta hvergi bera á
nokkurri ihaldsmennsku,
heldur lagði aðaláherzlu á
hagsýna og þjóðlega umbóta-
stefnu. Hvergi kom þvi til
beinna árekstra milli hans og
Lewis. En báðir hömruðu þeir
á dýrtiöinni og atvinnuleysinu,
sem Trudeau réöi ekki við.
Lewis ásakaði hann beinlinis
fyrir að ætla að útrýma dýr-
tiðinni með atvinnuleysi, en
það væri vonlausasta og
heimskulegasta úrræði gegn
dýrtið, sem til væri. Þá deildi
Lewis hatrammlega á skatta-
undanþágur, sém stórfyrir-
tæki njóta, ef þau eru að reisa
verksmiðjur eða að hefja
námurekstur i afskekktum
landshlutum. Trudeau hefur
gripið til þessa ráðs til að
stuðla að jafnvægi i byggð
landsins og til að flýta fyrir
nýtingu náttúruauðæfa. Mest-
megnis munu bandarisk lepp-
fyrirtæki hafa notið þessara
skatthlunninda og voru þau
þvi stimpluð sem eitt dæmið
um undanlátssemi við banda-
riskt fjármagn. Bæði Ihalds-
flokkurinn og nýdemókratar
notuð sér með góðum árangri
vaxandi andúð almennings á
bandarisku fjármagni.
ÚRSLIT kosninganna urðu
þau, að Frjálslyndi flokkurinn
hlaut 109 þingsæti i stað 155 i
kosningunum 1968, Ihalds-
flokkurinn fékk 109 i stað 72 i
kosningunum 1968,
nýdemókratar fengu 30 i stað
22 i kosningunum 1968 og
kreditistar 15 i stað 14. Einn
nýkjörinn þingmaður er svo
óháður. Ekki er óliklegt, að
þessar tölur geti raskazt eitt-
hvað, þar sem endurtalning er
eftir i nokkrum kjördæmum.
Trudeau hefur ákveðið að
segja ekki af sér, heldur biða
úrskurðar þingsins. F'rjáls-
lyndi flokkurinn hefur það
umfram fhaldsflokkinn, þótt
þingsætatalan sé jöfn, að hann
hlaut nokkuð meira atkvæða-
magn, eða 38% af heildarat-
kvæðamagninu, en Ihalds-
flokkurinn 35%. Bersýnilegt
er, að það verða nýdemókrat-
ar, sem koma til með að ráða
mestu á þinginu. Lewis hefur
sagt, að þeir taki ekki þátt i
neinni sambræðslustjórn, en
geti stuttu minnihlutastjórn,
sem sinni efnahagsmálum af
alvöru. Málefnalega væri
samvinna Frjálslynda flokks-
ins og nýdemókrata eðlilegri,
en persónulega kemur þeim
Stanfield og Lewis betur sam-
an. Lewis, sem er 63 ára gam-
all, er lögfræðingur að mennt-
un, fæddur i Póliandi, en flutt-
ist ungur til Kanada. Hann
hefur lengi látið stjórnmál til
sin taka. Hann hefur verið for-
maður nýdemókrata siðan
vorið 1971.
Flestir álita stjórnmála-
ástandið i Kanada ótryggt og
spá þingkosningunum næsta
vor. Einna alvarlegast þykir
þó, að kosningaúrslitin geta
bent til, að seilan milli ensk-
ættaðra og franskættaðra
manna eigi eftir að fara
harðnandi.
Þ.Þ.
— TK