Tíminn - 04.11.1972, Blaðsíða 15
Laugardagur 4. nóvember 1972
TÍMINN
15
Ný vefstofa
á Hellu
SB—Reykjavik.
Nýtt iðnfyrirtæki tekur til
starfa á Hellu á Rangárvöllum
innan skamms. Er þarna um að
ræða vefstofu, sem framleiða
mun fínan vefnað. Fram-
kvæmdastjóri Vefstofunnar er
Þorvaldur Hallgrimsson frá
Akureyri.
Vefstofan er hlutafélag og eru
eigendur Kaupfélagið Þór og
fimm einstaklingar. Samkvæmt
áætlun átti vefstofan að vera
tekin til starfa, en dráttur hefur
orðið á komu hráefnis, sem fengið
er frá Þýzkalandi. Er Þorvaldur
erlendis um þessar mundir
þeirra erinda að sækja efnið, sem
er einkum rayon og önnur gervi-
efni. Úr þvi verða ofin efni i
undirföt, kjóla og gluggatjöld, svo
að eitthvað sé nefnt. Tauið verður
siðan væntanlega litað á Álafossi,
en einnig hafa Danir boðizt til að
lita það fyrir sanngjarnt verð.
Vefstólar eru sex talsins, sjálf-
virkir, þannig að starfsmenn
verða aðeins tveir við þá.
St&larnir eru keyptir frá
Danmörku og eru nokkurra ára
gamlir. Eftir útreikingum,sem
gerðir hafa verið, ætti fram-
leiðsla hinnar nýju vefstofu að
verða fyllilega samkeppnisfær,
hvað verð og gæði snertir. Fyrsta
framleiðslan kemur væntanlega á
markaðinn i desember nk. Þess
má geta , að Þorvaldur
Hallgrimsson hefur starfað við
vefnað á Akureyri um 30 ára
skeið, en undanfarin ár hefur
hann verið i Danmörku að kynna
sér nýjungar.
„Leikur að
orðum” ~ hettíð
Rikisútgáfa námsbóka hefur á
siðustu árum gefið út tvö hefti af
upprifjunar- og vinnubókinni
Leikur að orðum eftir kennarana
Rannveigu Löve og Þóru
Kristinsdóttir.
Nú er komið út þriðja hefti
þessarar bókar, og nefnist það
Leikur að orðum 2. hefti A.Þetta
nýja hefti er ætlað til notkunar á
eftir 1. heftinu og til þess að
undirbúa barnið enn betur, áður
en það tekst á við samhljóðasam-
böndin i næsta hefti. í þessu hefti
er notkun upphafsstafa æfð ýtar-
lega i léttum tengingum.
Málfræðikunnátta, sem börnin
ómeðvitað búa yfir, er könnuð og
treyst með einföldum æfingum,
t.d. eintala og fleirtala, greinir og
mismunandi beygingarmyndir
orða, án þess þó að orðið málfræði
sé nokkru sinni nefnt.
Tillögur um vinnubrögð eru á
hverri blaðsiðu og geta kennarar
fært sér þær i nyt eftir þörfum.
Leikur að orðum er 48 bls. i
stóru broti. Prentun annaðist
Prentsmiðja Hafnarfjarðar hf.
Yfirlýsing frá
Samtökunum
Framkvæmdastjórn Samtaka
frjálslyndra og vinstri manna vill
að gefnu tilefni lýsa yfir eftir-
farandi:
Landsfundur SFV, sem haldinn
var 29. september — 1. október
s. 1. lýsti yfir vilja samtakanna til
að gerast aðili að sameiningu
lýðræðissinnaðra jafnaðar- og
samvinnumanna i einum stjórn-
málaflokki fyrir næstu almennar
kosningar. 1 þeim tilgangi kaus
landsfundurinn sérstaka nefnd til
að vinna að undirbúningi málsins
og ræða við alla þá aðila aðra,
samtök og einstaklinga, sem til
slikrar sameiningar vilja ganga.
Það er háð niðurstöðum þeirra
viðræðna um stefnu og skipulag
nýs flokks og siðar ákvörðun
aukalandsfundar SFV, hvort af
aðild samtakanna að sameiningu
verður. Það er þvi rangt, að á
landsfundinum hafi verið sam-
þykkt skilyrðislaus og einhliða
sameining við Alþýðuflokkinn.
Að lokum hvetur framkvæmda-
stjórnin til áframhaldandi og
aukinna viðræðna milli þeirra
aðila, sem hlut eiga að máli og
áhuga hafa á sameiningu, og von-
ar jafnframt, að
árangur þeirra verði jákvæður.
Nú er hálkan og snjórinn komin og snör
handtök þarf til aö koma bílnum á snjóbarða.
Viö viljum spara þér tímann og birtum hér
verö á nokkrum algengum stæröum
Yokohama snjóbaröa.
Ef þú hefur tíma, skaltu hringja vrðar
og bera saman viö aðra. Ef ekki, máttu
taka orö okkar fyrir því, aö þaö er leit aó
hagstæóara verói á jafn góöum snjóböröum
og Yokohama.
ÞÉR ERU ALLIR VEGIR FÆRIR Á
YOKOHAMA
Komiö inn úr kuldanum meö bíiinn
á meöan viö skiptum um.
HJÓLBARÐAR
Höfóatúni 8-Símar 86780 og 38900
ÞM
YOKOHAMA nylon-
snjóbaröar, 4ra striga,
fullnegldir meö Krupp snjónöglum.
520-12 Kr. 2342,-
550-12 — 2362,-
600-12 — 2411,-
550-13 — 2426,-
560-13 — 2624,-
590-13 — 2844,-
615-13 — 2731,-
612-13 — 2878,-
640-13 — 2821,-
645-13 — 2904,-
650-13 — 2845,-
700-13 — 3532,-
560-14 — 2845,-
615-14 — 3033,-
640-14 — 3230,-
645-14 — 3160,-
695-14 — 3351,-
700-14 — 3516,-
735-14 — 3812,-
560-15 — 2971,-
600-15 — 3216,-
SAMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUFELAGA • VÉLADEILD
Verö meó söluskatti.