Tíminn - 11.11.1972, Blaðsíða 19
Laugardagur 11. nóvember 1972
TÍMINN
Rannsóknarlögreglan
ófram á sama stað?
Þegar lögreglustjórinn i
Reykjavik, Sigurjón Sigurösson,
flutti ræöu viö opnun nýju lög-
reglustöðvarinnar við Hverfis-
götu, sagði hann m.a. þegar hann
lýsti húsaskipan:
— A annarri hæð i Hverfisgötu-
álmunni er rannsóknarlögregl-
unni ætlað allmikið húsnæði, auk
herbergja á 1. hæð og geymslu-
rýmis i kjallara. Húsnæðið er enn
ekki full tilbúið til notkunar, en
mun verða um 25 herbergi auk
ganga og snyrtiherbergja á um
750 fermetra gólffleti.
t fyrirspurnaþætti i Morgun-
blaðinu s.l. þriðjudag, spyr einn
lesandi blaðsins að þvi, hvort
rannsóknarlögreglan eigi ekki að
fá húsnæði i nýju lögreglustöð-
inni. Þórður Björnsson yfirsaka-
dómari svarar spurningunni á
þessa leið:
„Sakadómur hefur ekki óskað
eftir þvi undanfarin 8 ár að flytja
úr Borgartúni 7 i nýtt húsnæði og
mér vitanlega hefur engin
ákvörðun verið tekin um slikt.”
Þarna ber þessum tveim yfir-
mönnum hjá lögreglunni bersýni-
lega all mikið á milli. Þess vegna
snerum við okkur til Baldurs
Möllers, ráðuneytisstjóra, og
spurðum hann hvaö þarna væri
um að vera.
Baldur sagði, aö sú hugmynd
hefði komið fram fyrir mörgum
árum, að sameina lögregluna
undir eitt embætti. Þegar svo
teikningar að nýju lögreglustöð-
inni hafi verið gerðar, hefði verið
talið æskilegt að hún yrði öll á
einum stað, og húsið byggt með
það i huga. Lagt hefði verið fram
frumvarp á Alþingi fyrir tveim
árum um að sameina lögregluna.
En það hefði ekki fengið hljóm-
grunn meðal þingmanna, sem
ekki höfðu talið það æskilegt fyrr
en gerð hafi verið endurskipu-
lagning á opinberu réttarfari.
Það sé yfirleitt skoðun þeirra,
sem fari með þessi mál, að löngu
sé orðið timabært að horfið verði
frá rannsóknarréttarfari i ákæru-
réttarfar. Skipuð hafi verið nefnd
til að kanna þetta, ásamt öðru er
varðar réttarfar hér á landi. Og á
meðan hún væri að störfum og
engar lagabreytingar hefðu kom-
ið til, yrði húsnæðið hugsanlega
tekið til annarrar notkunar.
Lögreglan
stjóra á vakt i einu, en auk þess
verða sendir þangað menn frá
nýju stöðinni i mesta annatiman-
um.
Athugasemd
t grein Hannesar Pálssonar i
Timanum sl. miðvikudag er skrá
yfir þá menn, sem voru i flestum
nefndum rikisins 1971. 1 þessari
skrá er sagt, að „Benedikt Grön-
dal, forstjóri og alþingismaður,”
hafi verið i 12 nefndum.
Þarna varð Hannesi á i mess-
unni. Benedikt Gröndal forstjóri
og Benedikt Gröndal alþingis-
maður eru tveir menn, en ekki
einn.
Þar eð ég vil ekki, að nafni
minn og frændi fái óorð af mér,
óska ég tekið fram, að Benedikt
Gröndal forstjóri i Hamri var að-
eins i þrem nefndum og hlaut að-
eins kr. 9.750 fyrir samkvæmt
skýrslu fjármálaráðuneytisins.
Hinar niu nefndirnar skrifast á
minn reikning.
Af þessum niu nefndum luku
tvær störfum 1971, þrjár hafa
ekkert starfað 1971 og 72, og tveim
fór ég úr um siðustu áramót. Eru
þá eftir tvær starfandi nefndir, og
ein hefur bætzt við siðan.
Ég þakka birtingu þessarar
leiðréttingar.
Benedikt Gröndal (0987-5476),
alþingismaður.
..Framhald
af bls. 1.
en Rússar hafa keypt islenzkar
ullarvörur i mörg ár.
Verðið á þessu ári hefur verið
gott, sagði Úlfur, en það sem
veldur okkur áhyggjum er verðið
á næsta ári, þar sem laun innan-
lands og sjálft hráefnið ullin hafa
hækkað gifurlega. Þessvegna
höfum við farið fram á, að ef
gerðar verða ráðstafanir i sam-
bandi við útflutning á sjávar-
afurðum, að þá verði þessi út-
flutningur látinn njóta sömu
réttinda.
Þessa dagana er Útflutnings-
miðstöð iðnaðarins, að skipu-
leggja sýningar fyrir næsta ár, og
búizt er við að i desember-mánuði
liggi nokkurn veginn ljóst fyrir,
hvar Islendingar koma til með að
sýna vörur iðnaðarvöru á árinu
1973.
Að lokum sagði Úlfur, að það
væri fyrirtækið American
Express, sem sæi um söluna á
kápunum 40 þúsund, og hefði sala
á þeim gengið mjög vel i Banda-
rikjunum.
Iðnvarningur
Víðivangur
Framhald
af bls. 3.
birzt hefði í Lesbók Mbl. um
þessi efni!
En hvað sannar þetta, getur
Eykon spurt. Ekkert. Mbl. er
og verður bezta og heiðar-
legasta fréttablaðiö hvað sem
hver segir!!!! —TK
Frá þessari nýju stöð verður.
þjónað gamla miðbænum, þ.e.a.s.
frá Þingholtunum vestur i Garða-
stræti og einnig höfninni. Hefur
þetta svæði lengi veriö eitt það
annasamasta hjá lögreglunni, þó
að á seinni árum hafi örlitið dreg-
ið úr þvi með stækkun borgarinn-
ar. Frá þessari stöð fer fram al-
menn löggæzla, auk þess sem þar
mun verða tekið á móti kvörtun-
um, sektargreiðslum og öðru er
viðkemur lögreglunni.
Þetta er önnur hverfisstöðin,
sem lögreglan tekur i notkun. Hin
er i Árbæjarhverfi, og næst er
fyrirhugað að taka i notkun stöð i
Breiðholti. Gamla lögreglustöðin
verður notuð áfram, a.m.k. eitt-
hvaðfram á næsta ár. Þar verður
fjarskiptastöð lögreglunnar svo
og neyðarsiminn (11166) þar til
nýja fjarskiptakerfið kemur til
landsins, en þvi er hugað húsnæði
i nýju lögreglustöðinni. Nú er i
fyrsta sinn um langt skeið full-
skipað i lögreglulið borgarinnar,
sem telur 192 menn — og er þá
sem næst einn lögregluþjónn á
hverja 440 ibúa Reykjavikur.
TRÚLOFUN AR-
HRINGAR —
afgrciddir
samdægurs.
Sendum um allt land.
HA L L D Ó R
Skólavörðustíg 2
Hilfnað
erverk
þá hafið er
sparnaðnr
skapar
verðmati
Samvinnnbankinn
Guðsgjafaþula Halldórs
Laxness er komin út
Veturinn er koininn og með honum á að koma snjór. Ekki eru þó allir jafn hrifnir af snjónum. Bileigend-
ur formæla og lögreglan aðvarar inenn i fjölmiðlum, en börnin fagna, enda er snjórinn tilvalið leiktæki.
Þessi mynd var tekin á Tómasarhaganum á miðvikudaginn, er fyrsti sleðatæki snjóriim var fallinn þar.
(Timamynd GE)
TK—Reykjavik.
Út er komin hjá forlagi Helga-
fells „Guðsgjafaþula” eftir
Halldór Laxness. A káðusiðu
segir svo m.a.:
„Guðsgjafaþula er rituð i
endurminningastil með tilstyrk
„sögumanns”, greinargerð um
liðið timabil. Þessi sögumaður er
rithöfundur, en verzlar lika með
fugla. Hann kemur fyrst við i frá
sögn árið 1920 i Kaupmanna-
höfn, þarnæst 1938 i norðlenzk-
vestfirzku sildarplássi. Djúpvik.
Og loks i London eftir siðara strið.
Þetta er hið mikla „timabil
Norðurlandssildarinnar”. Aðal-
söguhetjan Bersi Hjálmarsson,
Islandsbersi öðru nafni, er sildar-
spekúlant af þeirri tegund, sem
uppi var i þann tiö. Reyndar er
þessi sildarkaupmaður varla
neinnar tegundar, hann er
náttúrufyrirbæri og sögulegt
undur. Hann er sömuleiðis ein-
hver skemmtilegasta persóna,
sem komið hefur fyrir i sögum
Halldórs Laxness.
Sildin er alls staðar i baksýn,
dularfull, óútreiknanleg, einnig
þegar hún er komin á land. Henni
fylgir rökleysi i lifi manna og at-
höfnum. Guðsgjafaþula er mikill
aldarspegill. Siðalögmál, trú,
pólitik, einkum verkalýðspólitik
þessa tima, hættir manna, hug-
myndir og búnaöur, allt birtist i
óvæntu og stundum miskunnar-
lausu ljósi. Samt er frásögn sögu-
manns blandin mikilli mildi.
Hann er gestur i heimi at-
hafnanna. Og það er Bersi
Hjálmarsson reyndar lika. Hann
er a.m.k. af tveimur heimum. En
um það fjallar sagan.”
1 eftirmála bókarinnar segir
höfundurinn Halldór Laxness,
m.a.:
Bókin er blendingur af ýmis-
konar ritsmiðum, svo sem ævi-
minningum, heimsádeilu, blaða-
greinum, kveðskap, sagnfræði,
smásögum og sagnafróðleik og
þar fram eftir götunum; en
umfram allt er þetta skáldsaga,
diktur bæði að formi og efni. A
erlendu máli mundi svona form
liklega heita essay-roman.
Margir munu veita þvi athygli að
fylgt er fordæmi íslendingasagna
i þvi að skirskota til heimildar-
manna sem heföu getað verið til
þó hitt sé eins vist aö svo hafi
ekki verið. Fyrir bragðið er ekki
vænlegt til árangurs að leita i
hillum hjá bókamönnum að ritum
sem i er vitnað i textanum og þó
höfundanöfn séu nefnd og menn
kannist við þau, er þó vissara að
bera ivitnanir saman við rit, sem
hafa „öll réttindi áskilin”.
Happdrætti Háskóla íslands
Föstudaginri 10. nóvember var
dregið i 11. flokki Happdrættis
Háskóla Islands. Dregnir voru
5.100 vinningar að fjárhæð
32,320.000 krónur.
Hæsti vinningurinn fjórir
milljón króna vinningar, komu á
númerið 240. Voru allir miöarnir
seldir i umboði Frimanns Fri-
mannssonar i Hafnarhúsinu.
Þetta er i annað skiptið i ár, sem
þetta númer kemur upp með
vinning.
200.000 króna vinningurinn kom
á númer 1771. Tveir miðar af
þessu númerki voru seldir i Aöal-
umboðinu i Tjarnargötu 4, en
hinir tveir hjá Arndisi Þorvalds-
dóttur, Vesturgötu 10.
10,000 kronur :
914 - 962 - 1183 - 1745 - 1876 - 1927 - 2735 - 340 8 -
4264 - 7415 - 7670 - 7959 - 8596 - 9707 - 10561 -
11541 - 11862 - 12335 13505 - 14675 - 16208 - 17236 -
17427 - 19007 - 19160 - 19811 - 230§8 - 23401 - 24365 -
25052 - 25645 - 26496 - 26755 - 26870 - 27057 - 27094 -
27100 - 27493 - 27699 - 28438 - 28905 - 29429 r 29567 -
32406 - 33032 - 33291 - 34389 - 34828 - 34889 - 3531 1 -
37586 - 38197 - 38562 - 38715 - 39363 - 40194 - 41731 -
42354 - 42981 - 43553 - 43850 - 44619 - 45918 - 46577
46834 - 46960 - 47810 - 48601 - 49500 - 49595 - 49816 -
51270 - 53706 - 54582 - 55980 - 56459 - 56504 - 57331 -
57805 - 58048 - 58675 - 59186 - 59308 - 59731 _ 59932