Tíminn - 11.11.1972, Side 20
(iústaf VI. Adólf, clzti rfkjandi þjóöhöfóingi f heimi.
NÍRÆÐUR f DAG
NTB—Stokkhólmi.
Gústaf VI. Adólf Sviakonungur
á niræöisafmæli i dag. Konungur
óskaöi aö halda upp á daginn i
friöi og ró, en ákveðiö hefur verið,
aö hafa 14 klukkustunda hátiða-
höld af finasta tagi. ólof Palme á
að stjórna hátiöahöldunum.
Flokkur Palmes, jafnaðar-
mannaflokkurinn, hefur siðan
hann var stofnaður, haft á dag-
skrá sinni að afnema konung-
dæmi i Sviþjóð, en samt sem áður
er það Palme, sem heldur
hátiðarræðuna i dag, konungi til
heiðurs.
Þrátt fvrir hinn háa aldur, er
konungur við beztu heilsu og mun
hann verða miðpunktur hátiða-
haldanna, allt frá þvi að fáninn
verður dreginn að húni með
lúðrablæstri kl. 9 árdegis, þar til
tjaldið fellur eftir hátiðasýningu i
konunglegu óperunni um kl. 23 i
kvöld.
TIMBRI STOLIÐ
Á SEYÐISFIRÐI
Guðmundur Karl Jónsson,
bæjarstjóri á Seyðisfirði, skýrði
Timanum frá þvi i gær, að stolið
hefði verið talsveröu magni af
timbri frá kaupstaðnum.
Seyöisfjarðarbær er að byggja
8 ibúða blokk i kaupstaðnum. Var
timbrinu stolið, þar sem það lá
við bygginguna. Um er að ræða
rúmlega 600 metra af borðum af
stærðinni 1x6 og 1x7 þumlungar.
Verðmæti timbursins mun vera
um 40 þúsund krónur.
Guðmundur sagði, að ekki hefði
oröið vart við neitt grunsamlegt
timbur i kaupstaðnum og lægi
grunur á, að timbrið hefði verið
flutt á brott og upp á hérað. Vildi
hann biðja þá, sem einhverjar
upplýsingar gætu gefið um
timburstuldinn að láta lögregluna
á Seyðisfirði vita.
Nýja miðhorgarstöð lögreglunnar verður til húsa i austurcnda Tollstöövarbyggingarinnar við Tryggva-
götu. Varðstjórar þar veröa fjórir, þeir Jónas S. Jónasson, Haukur Matthiasson, Gylfi Jónsson og GIsli
Björnsson, og cru þcirþrir fyrstnefnduá þessari mynd, sem einnig er af innganginum i þessa nýju lög-
reglustiið. (TimamyndGE)
Lögreglan áfram í miðbænum
Nýja miðborgarstöðin verður
til húsa i austurenda Tollstöövar-
innar við Tryggvagötu. Það er
hún i 120 fermetra húsnæði á jarð-
hæð, sem innréttað hefur verið á
mjög látlausan og smekklegan
hátt. í þessari stöð veröa að jafn-
aði 4 lögregluþjónar auk varð-
Framhald á bls. 19
Klp—Rcykjavík.
Það fcr nú að verða næstum
vikulegur viðhurður, að lögreglan
i Reykjavik flytji f ný húsakynni.
Um siöustu helgi flutti hún með
megin-þorra liðsins úr gömlu lög-
reglustööinni viö Pósthússtræti i
nýtt húsnæði við Hverfisgötu, og i
gær flutti hún cnn úr gömlu stöð-
inni, að þessu sinni i næsta
nágrenni, þar sem miöborgarstöð
hennar er ætlað að veröa til fram-
húðar.
Þangþurrkstöð á Reyk-
hólum við Breiðafjörð?
SB—Reykjavik.
Siðan 1950 hafa staðiö yfir
rannsóknir i Rannsóknarráöi rik-
isins um nýtingu þangs og þara
hér við land. Nú liggur fyrir
skýrsla um niöurstööur rann-
sóknanna. Kemur þar fram, að
grundvöllur fyrir verulcgri fram-
leiðslu af þurrkuðu þangi er á
Reykhólum í Barðastrandasýslu.
Niðurstöðurnar byggjast fyrst
og fremst á þvi, að þang er mjög
mikið við Breiðafjörð og þess er
auðveldlega aflað þar. Á Reyk-
hólum er jarðhiti, sem nota má til
skolunarog þurrkunar á þanginu.
Það fyrirtæki til þangþurrkun-
ar, sem hér um ræðir er allstórt á
isl. mælikvarða. Stofnkostnaður
er áætlaður um 128 milljónir, en
auk þess þarf um 60 milljónir
vegna hafnargerðar, vegagerðar,
raflinu og jarðvarmaveitu á
staðnum.
Markaðir virðast vera fyrir
hendi a.m.k. fyrir 4000 tonn af
þangmjöli árið 1974, með aukn-
ingu, sem nemur 1000 til 1500
tonnum á ári, þar til 10.000 tonna
ársframleiðslu er náð, en hráefni
við Breiðafjörð virðist nægilegt til
svo mikillar framleiðslu.
Tundur-
dufl
NTB—Washington.
Bandarikin hafa nú gefið fyrir-
skipanir um að tundurduflin verði
slædd upp úr höfnum n-viet-
namskra hafnarborga, sem lokað
var i sumar. 1 Washington var lit-
ið á þetta sem tákn þess að friður
væri i nánd.
Blaðið Washington Post birti
fréttina fyrst, en varnarmála-
ráðuneytið hefur hvorki gert að
játa þvi ná neita, að slæðingin
eigi að fara fram, strax og vopna-
hléssáttmálinn hefur verið undir-
ritaður. 1 stöðvum bandariska
flotans fékkst hins vegar staðfest,
að litið flugvélamóðurskip,
„mchon" hafi á fimmtudaginn
tekið stefnuna til vesturs á
Kyrrahafi, en „Inchon” er úr
tundurduflaslæðadeild flotans og
um borðeru 24 þyrlur, sem notað-
ar eru við slæöingu.
Tundurduflagirðingarnar voru
lagðar i hafnirnar i mai sl„ sam-
kvæmt skipun Nixons. Þær eru
þannig úr garði gerðar, að duflin
missa sprengimátt sinn eftir
ákveðinn tima, en ekki hefur ver-
iðskýrtfrá hversu langur hann er
i þessu tilviki.
Fyrirtækið Alginate Industries
i Skotlandi hefur gert tilboð um
kaup á ákveðnu magni af þurr-
kuðu þangi og ef ganga á til
samninga við fyrirtækið, verður
að stefna að þvi, að verksmiðjan
geti tekið til starfa vorið 1974. Það
þýðir, að leggja þarf veg I Karls-
ey strax næsta vor og fram-
kvæmd við höfn þarf að hefjast
strax og vinnutækjum verður
komið á staðinn. Þá þarf að stað-
festa pantanir tækja i marz-april
á næsta ári.
Skýrslan, sem samin er af dr.
Vilhjálmi Lúðvíkssyni hefur verið
send rikisstjórninni til meðferðar
og er nauðsynlegt að afgreiðsla
hennar þar verði hin skjótasta.
Nánar verður sagt frá skýrsl-
unni i blaðinu siðar.
Ný símanúmer
hjá lögreglunni
Klp-Reykjavik
Með tilkomu hinnar nýju
lögreglustöðvar I Tollstöðinni
við Tryggvagötu og aðal-
stöðvarinnar við Hlemmtorg,
verða nokkrar breytingar á
simanúmerum lögreglunnar.
Neyðarsiminn verður áfram
11166, en nýtt númer kemur
fyrir þá, sem óska eftir sér-
stökum upplýsingum frá lög-
reglunni. Verður það 11110 i
staö 10763, sem tekið var i
notkun fyrir viku. Fólki gekk
erfiðlega að muna gamla
númerið og var þvi fengið
nýtt, sem betra er að muna.
Hér eftir þýðir ekki að hringja
i 11166 til að leita upplýsinga
um eitt og annað, þvi verður
ekki svaraðnema isima 11110.
Þá kemur nýt númer i Mið-
borgarstöðina — 11014 en i Ar-
bæjarstöðinni verður áfram
saman númer-81166.
Happdrætti
Framsóknar-
flokksins
Happdrættisskrifstofan
Hringbraut 30, eropin til
hádeqis i dag.
Þeir sem fengið
hafa heimsenda miða
eru hvattir til að nota
tækifærið og gera skil.
Á afgreiðslu Timans
Bankastræti 7, er einnig
tekið á móti uppgjöri svo
og hjá trúnaðar og um-
boðsmönnum
happdrættisins úti á
landi.
Einnig hefur
happdrættið
gíróreikning nr. 3 44 44
við Samvinnubankann
og má greiða inn á það
númer i bönkum spari-
sjóðum og pósthúsum
um allt land.
Flensan
ókomin
— en bólusetning
samt hafin
Klp-Reykjavik
Undanfarna daga hafa ýmis
fyrirtæki hcr I Reykjavik látið
bólusetja starfsfólk sitt gegn
Asiu-influensunni, sem oftast
skýtur upp kollinum hér á
landi i lok nóveinber. Einnig
hcfur verið bólusett á Heilsu-
verndarstöðinni milli kl. 16.00
og 18.00 daglega sfðan um
miðja viku.
Að sögn Guðjóns Magnús-
sonar aðstoðarborgarlæknis
er samt engin ástæða til að
rjúka af stað og láta bólusetja
sig, þvi enn hefur alþjóða heil-
brigðiseftirlitið ekki tilkynnt
að flensunnar hafi orbið vart i
Evrópu eða Bandarikjunum.
Að sjálfsögðu er þó rétt fyrir
aldraðfólk og lasburða að láta
bólusetja sig sem fyrst, en
þeir sem hraustari eru, geta
andab léttar, enda ekkert að
óttast a.m.k. fyrst um sinn.
Laugardagur 11. nóv. 1972
Haig lítt
fagnaðí
S-Víetnam
NTB—Saigon.
Alexander Haig, hershöfðingi,
sérlegur útsendari Nixons for-
seta, kom i gær til Saigon til við-
ræöna við Thieu forseta um
friðarsáttmálann. Thieu fagnaði
hershöfðingjanum litt og hélt fast
við andstöðu sina við einstök at-
riði sáttmálans.
Eftir viðræðurnar við Haig i
gær, kallaði Thieu saman fund i
öryggisráði landsins. Saigonblað-
ið Tin Song, styöur Thieu i einu og
öllu, hafði i gær mikið út á sátt-
málann að setja. Jafnframt er i
N-Vietnam haldið uppi i útvarpi
og blöðum áskorunum á Nixon og
Bandarikin að undirrita sáttmál-
ann sem fyrst.