Tíminn - 10.12.1972, Síða 1
IGNIS
KÆLISKAPAR
RAFTORG
SÍMI: 26660
RAFIÐJAN
SIMI: 19294
+ * *
284. tölublað — Sunnudagur 10. desember — 56. árgangur
kæli-
skápar
23!/iö6Ca/tvéía/t A/
RAFTÆKJADEILD
Hafnarslræti 23
Simar 18395 & 86500
Kíló af
hassi
ÞÓ—Reykjavik.
Tveir útlendingar voru
handteknir á Keflavikurflug-
velli i gærmorgun, grunaðir
um sölu á hassi og reyndist
svo vera, þvi að þegar
starfsmenn fikniefnadeildar
lögreglunnar fór að leita á
þeim, þá fannst um það bil
eitt kiló af hassi, sem menn-
irnir geymdu i fisibelg, sem
þeir höfðu meðferðis.
Mennirnir, sem eru
Bandarikjamaður og Holl-
endingur, munu hafa dvalið á
Islandi um hrið, og hafa þeir
legið undir grun um eitur-
lyfjasölu um nokkurt skeið.
Þeir hafa oft verið á íslandi,
en skroppið út annað slagið,
og þá sjálfsagt til að sækja
nýjar birgðir.
Þrátt fyrir itrekaðar til-
raunir tókst okkur ekki að
ná i yfirmenn lögreglunnar á
Keflavikurflugvelli, en eftir
þeim heimildum, sem við
gátum aflað okkur, þá er
talið,að mennirnir hafi
stundað söluna i samvinnu
við aðra aðila, og að
mennirnir hafi einkum reynt
að selja hassið á Keflavikur-
flugvelli.
Þær hassbirgðir, sem
lögregla tók af mönnunum,
munu vera þær mestu,sem
islenzka lögreglan hefur
fundið.
Cat
Stevens
til íslands?
ÞÓ—Reykjavik.
Miklar likur eru á þvi, að
hinn heimsfrægi popp--
söngvari Cat Stevens, komi
til Reykjavikur og haldi hér
hljómleika eftir áramótin.
Sá, sem stendur á bak við
hingaðkomu Cat Stevens, er
Eskfirðingurinn Þorsteinn
Viggósson, en sem kunnugt
er, þá rekur Þorsteinn
skemmtistaðina Pussycat og
Bonaparte i Kaupmanna-
höfn.
Þorsteinn brá sér til
London á dögunum og ræddi
hann þar við umboðsmann
Cat Stevens og Gilberts O
Sullivans, en hugmyndin hjá
Þorsteini er.að Gilbert O
Sullivan haldi hljómleika i
Kaupmannahöfn i vetur.
Ekki þarf að efa það, að
Cat Stevens verður vel tekið,
ef hann kemur til Islands, en
hér á hann fjölmarga
aðdáendur, og hefur senni-
lega verið vinsælasti erlendi
söngvarinn á tslandi allt
þetta ár. Til dæmis hefur
lagið „Morning has broken”
verið geysivinsælt allt frá
þvi að það kom fyrst út á
plötu s.l. vetur.
i dag eru fjórtán dagar til jóla. Þær raddir hafa heyrzt, að allir hlutir, jólunum viökomandi séu óvenju
daufir i ár. Jólaskreytingar með minnsta móti, bækurnar varla farnar að hreyfast i búðunum og fleira i
þeim dúr. En eitt er áreiðanlega samt við sig, jafn löngu fyrir jól og alltaf hefur verið: Tilhlökkun barn-
anna. Þau teyma mæðurnar með sér i ieikfangabúðirnar, „bara til að skoöa” eða fara á eigin spýtur.
Úrv»l barnaleikfanga er nú meira og margvislegra en nokkru sinni fyrr og þó jólastjörnurnar séu ef til
vill fáar á götunum, eru þær margar, sem kvikna i augum barnannailcikfangabúðunum um þessi jól.
^Timamynd Róbert).
Leigubifreiðastjórar:
Fimm tíma
lenging
næturvinnu
Stp~Reykjavik
Akvæði.sem Bandalag leigubif-
reiðastjóra samþykkti á fundi
sinum 28. nóv. s.1., kom til fram-
kvæmda á föstudaginn. Akvæði
þessi fela i sér færslu næturvinnu-
taxta yfir á lengri tima, en fela
aftur á móti ekki i sér hækkun á
taxtanum.
t viðtali við Bergstein Guð-
jónsson, formann leigubifreiða-
stjóralelagsins Krama.i gær kom
einnig fram, að um eins tima
næturvinnulengingu er að ræða á
föstudögum, næturvinnutaxti
gildir nú frá kl. 17.00 i stað 18.00
áður. A laugardögum er um fjög-
urra tima lengingu að ræða, er
frá kl. 08.00 nú, en var áður frá kl.
12.00.
— Við ætlum að reyna þetta og
sjá, hvað út úr þvi kemur, sagði
Bergsteinn, — og þetta er að
sjálfsögðu upp á okkar eindæmi,
— hefur ekki verið samþykkt al'
opinberum aðilum ennþá. —
Bergsteinn kvaðst búast við, að
l'æstir leigubifreiðasljórar hel'ðu
farið eftir hinni nýju samþykkt á
föstudaginn, en myndu hins vegar
flestir eða allir fara eftir henni
framvegis. Klukkan hálf tvö eftir
hádegi i gær hófst l'undur hjá
Eraina.og átti þar að skýra hin
nýju ákvæði fyrir félagsmönnum,
að sögn Bergsteins. Vegna
fundarins var öllum leigubifreiða-
stöðvum lokað milii kl. eitt og
fjögur i gær.
TÍÐAR FERÐIR SENDIMANNA ER-
LENDRA VERKTAKAINN A SIGÖLDU
— vetvangsskoðun
á öræfum
Sendimenn útlendra verktaka,
sem hyggja á tilboð i fram-
kvæmdir við Sigöldu, gera nú tið-
ar ferðir upp á öræfin til svokall-
aðrar vettvangsskoöunar. Þetta
eru yfirleitt verkfræðingar, oftast
tveir þrir menn frá hverju fyrir-
tæki, en stundum eru fjármála-
menn i för með verkfræðingun-
um. Bendir allt til þess, að mörg
erlend verktakafyrirtæki hafi hug
á þvi að bjóða i þessar fram-
kvæmdir, enda ckki uni neina
smámuni að tefla, þar sem hið
fyrirhugaða orkuver mun kosta
milljarða.
Tilboð þau, sem verktakarnir
eiga aö gera, eru i tvennu lagi —
annars vegar vélar og rafbúnaður
og hins vegar byggingarfram-
kvæmdirnar sjálfar. Verða til-
boðin i vélarnar opnuð 9. febrúar i
vetur, en i byggingarfram-
kvæmdir mánuði siðar, 9. marz.
EINIR KOMA, ÞEG-
AR AÐRIR FARA
— Það hafa þegar komið hingar
sendimenn frá tiu fyrirtækjum,
sem ætla að gera okkur tilboð um
vélar og rafbúnað og fleiri boðað
komu sina, sagði Agnar Friðriks-
son, skrifstofustjóri hjá Lands-
virkjun, og eins hafa margir, sem
hafa hug á að taka að sér bygg-
ingarframkvæmdirnar boðað
komu sina. Við sendum alltaf
mann með þeim inn á Sigöldu, og
siðast fórum við með þrjá Norð-
menn inn eftir núna á þriðjudag-
inn var. Siðan eru þeir á fundi
með verkfræðingum okkar hér i
bænum, ef þeir kynnu að vilja
bera upp spurningar, sér til frek-
ari glöggvunar.
SB—Reykjavik.
Kaupfélögin i landinu og SÍS
vinna nú að þvi að samræma útlit
húsa sinna. Verða húseignir allra
kaupfélaga og sam vinnufyrir-
tækja máluð i sömu litum og á
þau sett samvinnumerkið. Þá
verður merkið einnig sctt á bif-
rciðar fyrirtækjanna. Þá liefur
verið ákveðið, að starfsfólk taki
upp sérstakan búning.
Þegar hafa nokkur hús verið
máluð i hinum nýju litum, sem
eru ljós-kremgulur á veggi,
LANDABRÉF IÐ
SEGIR EKKI ALLT
UM STAÐHÆTTINA
Við höfum ýtt undir það, að
þau verktakafyrirtæki, sem hafa
hug á að taka að sér framkvæmd-
ir á vegum okkar, sendi hingað
menn, sagði Agnar enn fremur.
Útlendingar fá ekki rétta hug-
mynd um staðhætti, þótt þeir at-
nokkru dekkri á sökkul og grænt á
þök. Aðalverzlunarhús KEA á
Akuréyri ber þegar þessa liti, svo
og kaupfélagshúsin á Akranesi.
Merkin, sem sett verða á
bifreiðarnar, eru samvinnu-
merkiðúr hvitu plasti og limd á.
Merkin eru smiðuð hjá Plastiðj-
unni Bjargi á Akureyri.
A öllum fasteignum kaupfélag-
anna og StS verða stærri merki,
75x75 sm og upplýst. Þegar hafa
verið smiðuð yfir 100 slik merki
og annað eins þarf til viðbótar.
hugi legu slaðarins á landabréfi,
og það getur komið i veg fyrir
eftirmál, að væntanlegir verktak-
ar glöggvi sig sem bezt á öllu. A
þetla er lögð áherzla af okkar
hálfu.
Við höfum verið svo heppnir,
sagði Agnar að lokum, að færð
hefur verið góð fram að þessu,
svo að menn hafa komizt greitt og
vel inn eftir og getað svipazt þar
um að vild sinni. - JH.
Munu þessi merki viðast veröa
sett upp i byrjun næsta árs, en
þau eru um þessar mundir að
berast kaupfélögunum úti um
landið.
Þá hefur verið ákveðið að
mælast til bess við kaupfélögin,
að starfsfólk þess laki smám
saman i notkun sérstaka sloppa.
Eru þeir ljósgulir með bláum
kraga og samvinnumerkinu i. Er
þetta að sænskri fyrirmynd, en
þar notar starfsfólk samvinnu-
sambandsins slika sloppa.
011 kaupfélagshús lands-
ins verða eins á litinn