Tíminn - 10.12.1972, Blaðsíða 7

Tíminn - 10.12.1972, Blaðsíða 7
Sunnudagur 1». dcsember 11172 TÍMINN 7 annaðist námskeið. Við vitum ofurvel. að það er mörg hög höndin úti um byggðir landsins, en hitt er jafnvist, að sumt af þvi fólki vantar aðstoð og leið- beiningar til þess.að handavinna þess geti orðið söluhæf vara. En viða er þetta áreiðanleg ekki nema litill herzlumunur, sem vantar. — En eru enn einhverjar sveita- konur, sem blátt áfram mega vera að þessu, svona mitt i ann- rikinu og mannfæðinni? — Já, já. bað gefast stundir, þótt auðvitað séu þær ekki jafn- margar eða langar hjá öllum. Þess vegna er það lika mjög mis- jafnt, hve mikið konur framleiða. En hitt er öllum konum sameigin- legt að vilja hafa eitthvað handa á milli, þegar fristundir gefast frá nauðsynlegustu daglegum störf- um. — Hafið þið ekki með höndum einhverja kynningu á starfsemi ykkar — i rituðu máli? — Jú. Ársrit félagsins, Hugur og hönd, byrjaði að koma út árið 1966. Þvi er ætlað að veita tilsögn og leiðbeiningar, en auk þess að varðveita ýmsan gamlan fróð- leik. — Ársrit félagsins, segirðu. Er talsvert lif i Heimilisiðnaðar- félaginu ennþá, eftir svo langa ævi? — Já, ég er nú hrædd um það! bú getur nú séð verzlanirnar tvær, sem félagiö rekur, þær bera ekki vott um neina stöðnun. En annars er þetta eingöngu áhugamanna- félag og reyndar ekki fjölmennt, fremur en venja er um slikan félagsskap. Það hefur eitthvað um tvö hundruð manns innan sinna vébanda. — Þú sagðir þarna áðan, að þið væruð i sambandi við konur jafnt og karla úti á landsbyggðinni. Fáið þið lika gripi frá karlþjóð- inni? — Já, sem betur fer. Flestum er tamt að hugsa einkum til kvenn- anna, þegar heimilisiðnað ber á góma, en hinu má ekki gleyma, að þeir eru engu siður hagir en þær, þegar þeir vilja það við hafa. Þú sérð smjöröskjurnar þarna. Þær eru smiðaðar af Pétri Jónas- syni á Sauðárkróki. Hann er einn af þessum miklu hagleiksmönn- um. Það er hrein unun að virða fyrir sér handbragðið hans. Svo erum við i sambandi við einn ágætan mann hér uppi i Borgar- firði. Hann fléttar fyrir okkur belti og smiðar spennurnar úr horni. Þetta er tizkuvara hjá ungu stúlkunum hér i bænum og nýtur geysilegra vinsælda. — Hver er hann, þessi ágæti Borgfirðingur? — Hann heitir Eirikur Þorsteins- son og á heima á Glitstöðum. Ullarvörurnar okkar eru afar vinsælar... — Nú eruð þið að sönnu ekki með raunverulega minjagripaverzlun hér, en er ekki samt mikið verzlað við ykkur af útlend- ingum? — Jú. Erlendir ferðamenn koma hér mjög mikið. En það er rétt: minjagripaverzlun viljum við ekki heita. Þetta, sem hér er, er unnið af tslendingum, og við viljum.að íslendingar njóti þess fyrst og fremst. En auðvitað seljum hverjum sem hingað kemur, og það eru ekki neinar ýkjur, sem ég sagði áðan, að út- lendingar koma hér mjög mikið. Einkum eru þeir hrifnir af islenzku ullarvörunum, enda er það vist orðið heldur fágætt að rekast á handunnar ullarvörur, til dæmis peysur eins og þær, sem við höfum á boðstólum. Og svo eru það nú sauðalitirnir okkar. Það eru ekki nema fá lönd i ver- öldinni, sem geta státað af eins mörgum sauðalitum og við. Auk þess er svo handofinn tizku- fatnaður sjaldgæfur og ákaflega eftirsóttur. bæði af islenzkum og erlendum konum. — Hvar er þetta ofið? — Það er mest ofið hjá Guðrúnu Vigfúsdóttur á tsafirði, en hún rekur þar litla vefnaðarstofu. Þaðan koma alltaf íramúr- skarandi fallegar vörur. — Hvað vinnur margt fólk hjá ykkur að staðaldri i þessum tveim búðum? — t báðum verzlununum til samans vinna rétt um tuttugu manns að staðaldri. En auðvitað kemur nýtt fólk inn á sumrin i sambandi við sumarfriin og svo Litið i glugga verzlunarinnar að Hafnarstræti 3. ! Framkvæmdastjórastarf | við Fóðuriðjuna hf., Lindarholti, Saurbæ, J Dalasýslu er laust til umsóknar. Umsóknir óskast sendar fyrir 31. desember til hr. Árna Jónssonar landnámsstjóra, Keykjavik, sem gefur nánari upplýsingar. Stjórn Fóðuriðjunnar hf. L..........................j aftur um jól. þá þurfum við alltaf að bæta við. Ég hef gaman af að láta þess getið, að hér i Hafnarstrætinu erum við með norræna deild. Hún samanstendur eingöngu af heimilisiðnaði frá hinum Norður- löndunum og er algerlega fráskilin okkar islenzka varningi. Það hafa verið dálitið skiptar skoöanir um réttmæti þessarar deildar, en min skoðun er sú, að við höfum gott af þvi að sjá, hvað aðrir eru að gera á þessu sviði, og hvernig þeir gera það. Þeir hafa að visu úr aH öðru efni að vinna, samanber allar þær mörgu trjátegundir, sem þeir geta valið úr, en ég held.að okkur sé hollt að kynnast verkum þeirra. Viöhorf unga fólksins er ánægjulegast.... — Nú þarf ekki annað en að sjá þessar tvær verzlanir ykkar til þess að sannfærast um vöxt og viðgang fyrirtækisins. En finnst þér ekki andinn til þessarar starf- semi hafa breytzt? — Jú, hann hefur tekið alveg gifurlegum breytingum. Og það, sem mér finnst ánægjulegast.er, að unga fólkið ber miklu meiri virðingu fyrir þessum hlutum en við gerðum, þegar við vorum á svipuðum aldri. Það er lika vax- andi virðing fyrir handverkinu sem sliku — almennt. — bað þarf þá auðvitað ekki að spyrja að þvi, hvort þú hefur ekki trú á framtið og viðgangi þessarar starfsemi? — Jú. Sannarlega hef ég mikla trú á þvi.að þetta eigi framtið Aðalfundur Stangaveiðifélags Reykjavíkur svrR verður haldinn i Súlnasal Hótel Sögu, sunnudaginn 17. desember nk., kl. 13.30. Venjuleg aðall'undarslörf. Tillaga .1 akolis llafstcin og Stefáns Guðjohnsens til laga- hrevtinga. Stjórnin. Ilér er unga kynslóðin að læra haudtök afa og ömmu. Kinu sinni þóttuþað nú nieðniæli að vera góður vel'ari — og skartaði jafnt á körlum og konum. Timamynd: GK fyrir sér. Ég held, að það hafi meira að segja aldrei verið meiri þörf en einmitt nú að hlúa að þeirri hneigð fólks að vinna i höndum. Eftir þvi sem fristund- um fjölgar, verður brýnna að fólk kunni með þær að fara. Og þeim er vel varið i einhverri slikri sköpun. —VS Áttþúhlutí banka? Samvinnubankinn hefur ákveðið: að auka hlutafc bankans úr tæpum 16 miilj. króna í allt að 100 milljónir, að bjóða öllum samvinnumönnum að gerast hluthafar, að gefa þér þannig kost á að gerast virkur þátttakandi í starfsemi bankans. Hlutafjárútboðið er hatlð á 10 ára afmæli bankans. Hlutabréfin eru að nafnvcrði 5 þús., 10 þús. og 100 þús. krónur. Helmingur greiðist við áskrift, en afgangurinn innan árs. Upplýsingar og áskriftalistar í aðalbankanum, útibúum hans og í kaupfélögunum um land allt. Hér er tækifæri til að eignast hlut í banka. Viit þú vera með? SAMVINNUBANKINN BANKASTRÆTI 7, RVÍK. SÍMI: 20700

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.