Tíminn - 10.12.1972, Qupperneq 11
Sunnudagui' 1». desember 1!)72
TÍMINN
n
Útgefandi: Framsóknarflokkurinn
liií Framkvæmdastjóri: Kristinn Kinnbogason. Ritstjórar: Þór-:;:;:g:
arinn Þórarinsson (ábm.), Jón Helgason, Tómas Karlsson. ::::
Andrés Kristjánsson (ritstjóri Sunnudagsblaös Timans
Auglýsingastjóri: Steingrimur Gislason;. Ritstjórnarskrif .;;: "
stofur i Edduhúsinu viö Lindargötu, simar 18300-18306.;;;;;;:;:;;
Skrifstofur i Bankastræti 7 — afgreiðslusimi 12323 — auglýs ::;::;:;:
ingasimi 19523. Aðrar skrifstofurtsimi 18300. Áskriftargjald
225 krónur á mánuði innan lands, i lausasölu 15 krónur ein-gí;;;;;;;
takið. Blaðaprent h.f.
Álit valkostanefndar
Verkefnið, sem rikisstjórnin lagði fyrir val-
kostanefnd, var að gera tillögur um leiðir og
valkosti i efnahagsmálum með það fyrir aug-
um, að halda verðbólgu i svipuðum skorðum og
i nágrannalöndunum, treysta grundvöll at-
vinnuveganna og tryggja atvinnuöryggi og
kaupmátt launa.
í stuttu máli má sega, að grundvallarvand-
inn, sem við er að striða nú i efnahagsmálum,
sé tviþættur. Annars vegar stefna útgjalda-
áform almennings og hins opinbera verulega
fram úr framleiðslugetu hagkerfisins og hins
vegar skortir á, að rekstrargrundvöllur út-
flutningsatvinnuveganna sé fullnægjandi.
Margvisleg vandamál eru svo tengd þessum
meginkjarna.
Valkostanefnd komst að þeirri niðurstöðu, að
um þrjár meginleiðir væri að velja til að mæta
þessum vanda, er fullnægðu að mestu þeim
markmiðum, sem rikisstjórnin hafði sett henni
að hafa að forsendum i störfum sinum. Þessar
þrjár meginleiðir eru:
1. Millifærsla fjár til atvinnuveganna með
óbeinum sköttum.
2. Niðurfærsla kaupgjalds og verðlags.
3. Gengislækkun.
í öllum þessum þrem leiðum gengur val-
kostanefndin út frá þvi,aðverðhækkunaráhrif
efnahagsaðgerðanna komi ekki til fram-
kvæmda i kaúpgreiðsluvisitölu. Ennfremur er
það öllum þessum þremur leiðum sameigin-
legt, að þær fela i sér lækkun opinberra fram-
kvæmda og lækkun á útlánaáformum fjárfest-
ingarlánasjóða. En auk þess er þeim það sam-
eiginlegt, að þær eiga allar að geta náð i meg-
inatriðum þeim markmiðum, sem rikisstjórn
nefndi i skipunarbréfi til nefndarinnar.
Valkostanefndin, sem varð sammála um nið-
urstöðurnar, telur,að ekki verði séð hvernig
hægt sé að hafa áhrif á einkaneyzlueftirspurn
svo einhverju muni, nema með þvi að koma
fram breytingu á kaupgreiðsluvisitölukerfinu
og að jafnframt sé ljóst, að án þess að dregið sé
úr einkaneyzlu, náist enginn umtalsverður
árangur i þá átt að draga úr heildareftirspurn
og þar með treysta stöðuna út á við.
Valkostanefndin hefur reiknað út 5 mismun-
andi afbrigði af hverri hinna þriggja megin-
leiða, sem hér voru nefndar, svo segja má, að
þeir valkostir, sem hún setur fram i skýrslu
sinni, séu samtals 15. Valkostanefndin hefur
svo valið eina undirleið af hverjum hinna
þriggja meginleiða og telur i lokaniðurstöðum,
að tilteknar þrjár leiðir séu hagstæðastar af
þeim 15, sem gerð er grein fyrir. Ekki tekur
nefndin neina afstöðu til þess, hvaða leið skuli
farin, enda var henni ekki ætlað það verkefni,
heldur gerir grein fyrir kostum og göllum þess-
ara leiða. Það er rikisstjórnarinnar og stjórn-
arflokkanna að taka slika ákvörðun og raunar
ekkert bundið við það að velja óbreytta ein-
hverja þá leið, sem nefndin gerði grein fyrir.
— TK
Grein úr Newsweek:
Eru ný heimstrúar-
brögð í uppsiglingu?
Iðkendum hins „sameinaða yoga” fer sífjölgandi
ÖLL meiriháttar trúarbrögð
hafa að geyma boðun nýrrar
aldar, nýs tima. Sumir Hindú-
ar sanníærast æ betur um að
hin nýja öld haf'i runnið upp
með lif'i indverska heim-
spekingsins, dulspekingsins
og skáldsins Sri Aurobindo,
sem lézt árið 1950. Iðkendum
hins ..sameinaða yoga" hans
l'jölgar stöðugt, bæði i Evrópu,
Asiu og Bandarikjunum.
Sumir dáendur austrænnar
liugsunar lita svo á, að hug-
sjónir hans og keri'i kunni að
umbreytasl i fyrstu heimstrú-
arbrögðin, sem fram hafa
komið siðan múliameðstrúin
varð til fyrir 1300 árum.
Aurobindo var 78 ára að
aldri.er hann lézt. 1800 trúir
lærisveinar hans höfðu þá
safnazt saman i Pandicherry.
Þar er starfi meistarans hald-
ið áfram i fjölmennustu and-
lega samfélaginu i Indlandi.
Fyrsta keppikefli samfélags-
ins er að reisa borgina Auro-
borg, fimm milur frá Bengal-
flóa. 300 menn viðs vegar að úr
heiminum starfa að smiði
þessa borgrikis, sem á að vera
sjálfu sér nægt. Fyrirhuguð
hámarkstala ibúa er 50 þús-
und, og þarna á að lifa eftir
kenningum Aurobindos.
„Móðirin” veitir hinu andlega
samfélagi forsæti og borginni
nýju um leiö. Hún heitir Mira
Richard, er 94 ára að aldri.og
sögð að minnsta kosti jafnoki
Aurobindos að andlegri orku.
AUROBINDO vakti fyrst at-
hygli i stjórnmálabaráttu.
Hann stundaði forn fræði við
Cambridge-háskóla, en snéri
heim til Indlands að námi
loknu og hóf þegar þátttöku i
baráttunni l'yrir sjálfstæði
landsins. Hann var leiðtogi
öfgafullra þjóöernissinna i
Calcutta, boðaði vopnaöa upp-
reisn og vildi i mörgu ganga
mun lengra en Mahatma
Gandhi. Aurobindo var dæmd-
ur i árs fangelsi fyrir stjórn-
málaafskiptin. Þá hvarf hann
frá stjórnmálum og snéri sér
að dulspeki. Hann stefndi
fyrst, eins og aðrir Hindúar,
að andlegri sameiningu við
Brahman, „frumundirstöðu
lifsins”, sem ákafri ástundun
yoga. Honum tókst smátt og
smátt að ná valdi á yoga i hin-
um þremur hefðbundnu form-
um, hugsun, tignun og vinnu.
Siðar felldi hann þau i eitt
samfellt kerfi, „sameinað
yoga”. En andlegur samruni
við Brahman fullnægði ekki.
Aurobindo var að þvi leyti
frábrugðinn öðrum dulspek-
ingum Hindúa, aö hann vildi
breyta efnisheiminum.en ekki
firrast hann. Hann tengdi þvi
hiö sameinaöa yoga nýrri
heimsþróun, sem boðaði
„andlegt lif” á jörðu, mjög i
likingu við kenningar hins
látna dulspekings jesúita,
Pierre Teilhard de Chardin.
HINN 24. nóv. 1926 tilkynnti
Aurobindo lærisveinum sin-
um, að sér hefði auðnazt að
„skilja heimshugann”, en það
er fyrsta skrefiö á þeirri braut
að virkja hina „guðlegu vit-
und” þeirra afla, sem ráða
mannlegri þróun. Hann trúði
þvi, að þegar samfélag læri-
sveinanna hefði fengið nægan
og réttan undirbúning, stigi
„hin háandlega vitund” niöur
og gerði kleift að mynda
heimssamfélag siðferðilega
hreinna manna.
Þegar Aurobindo féll frá.
kom i hlut Miru Richard að
knýja fram „hina háandlegu
vitund”. Hún var fyrrum
glæsileg eiginkona fransks
Sri Aiiroliindo
erindreka, en varð á vegi
Aurobindos árið 1914,og hann
gerði sér lljótlega Ijóst, að hún
var hugmynd Indverja um
hina „heilögu móður” holdi
klædd. Daginn, sem Auro-
bindo auðnaðist að „skilja
heimshugann”, tók Mira
Richard að sér stjórn hins
andlega samlélags i Pondi-
cherry og hefir annazt leið-
sögn lærisveinanna siðan.
„MoÐIRIN" flutti sam-
félaginu i IPondicherry mikinn
boðskap 29. febrúar 1956: „1
kvöld óskaði ég innilega og
öðlaðisl samtimis vissu um,
að timinn var kominn...Svo
féll hin háandlega birta og vit-
und niður á jörðina i samfelldu
geislaflóði”. Lærisveinunum
kom þvi ekkert á óvart, þegar
geimfarinn Charles Conrad
sagði frá þvi á leiðinni i jarðar
i Apolló 12., að óskýranlegt
ljós, „jafn stórt og Venus”,
leiftraði sifellt frá stað
„neman frá Birma, austan
fyrir Indland".
Mira Richard hefir breytt
andlegu samfélagi lærisvein-
anna i virkan og skipulegan
„andlegan háskóla”, sem ein-
mitt nú, þegar öld er liðin frá
fæðingu Aurobindos, býður til
sin lærisveinum hvaðanæva
að úr heiminum. Samfélagið
hefir með samþykki Indiru
Gandhi forsætisráðherra Ind-
lands - stofnað hundruð „Sri
Aurobindos-stöövar” viðs
vegar um Indland til þess að
boða róttækar kenningar
meistarans um l'élagslega
endursköpun. Samfélagið hef-
ir einnig gefið rit Aurobindos
út i 30 bindum, þar á meðal
kvæðið „Savitri”, sem er 23
þús. ljóðlinur og lýsir barátt-
unni við að sameina guðlega
vitund og l'ramvindu sögunn-
ar.
VÍÐA á Vesturlöndum hei'ir
veriðefnt til Aurobindo-stöðva
eða samfélaga, sem helga sig
heimseiningu. Þetta hefir ver-
ið gert i nálega öllum stór-
borgum Evrópu og hálfri tylft
bandariskra borga frá New
York i austri til San Francisco
i vestri. Lærisveinninn Udar
Pinto er lagður i fyrstu för
sina frá Pondicherry á 35 ár-
um, og rúmlega 30 bandarisk-
ir háskólar hafa opnað honum
dyr sinar til fyrirlestrahalds.
„Viö viljum ekki stofna ný
trúarbrögð”, sagði Pinto fyrir
skömmu viö Cornellháskóla.
„Við viljum leggja leiðina ol'ar
trúarbrögðum".
Þetta markmið kemur
hvergi jafn vel fram og i Auro-
borg, sem „Móðirin” stofnaði
til árið 1968. Indverjar viður-
kenna Auroborg sem alþjóð-
legt borgriki og viðleitni
stofnendanna til að gera það
að vöggu nýs heims er táknuð
með marmarakeri, sem er
eins og lótusblóm i laginu og
hefir að geyma mold frá 120
löndum.
ibúar Auroborgar búa við
blöndu aga og írelsis. „Móðir-
in" skoðar sjálf ljósmyndir al'
þeim, sem óska þar dvalar, til
þess að reyna að sjá, hvort
umsækjandinn sé reiðubúinn
að gerast „viljugur þjónn
hinnar guðlegu vitundar”.
Iieynslutiminn er eitt ár, og
þeir, sem vilja vera um kyrrt
að honum liðnum, verða að af-
henda „Móðurinni” allar eig-
ur sinar, þar sem hún telur
einkacign hindra einingu. Ætl-
azt er til, að ibúarnir l'orðist
alla vimugjafa, áfengi, tóbak
og kynmök. „Hafi hjón ekki
náð að vaxa l'rá kynmökum",
eins og „Móðirin" kemsl að
orði, er þeim slikt leyfilegt, og
meira að segja að eignast börn
og ala þau upp.
„MÓÐIRIN” er þeirrar
skoðunar, að allt eigi að vera i
lil'rænu samhengi I Auroborg
- eins og i manninum. Upp-
skeran nei'nist „Aurofæði”, og
tilbúinn áburður er ekki
nolaður við ræktunina, né
heldur skordýraeitur. Borgin
er skipulögð þannig, að ibúar-,
menntunar- og iðnaðarhverfin
eru aðskilin, en milli þeirra
eru garðar með gagnstigum
(þar sem bilar eru bannaðir).
i miðri borginni hafa ibúarnir
grafið griðarstóran gig, þar
sem þeir eru að reisa risastóra
gullna hnattlaga byggingu,
Matrimandir eða „hof móður-
innar".
Bjartsýnustu ibúar Auro-
borgar viðurkenna, að hún
verði ekki fullbyggð fyrri en
að 25 árum liðnum i fyrsta
lagi. „Móðirin” verður senni-
lega horlin til feðra sinna áður
en þar er komið sögu. En læri-
sveinar hennar eru sannfæröir
um, að andi hennar verði eigi
að siður meðal þeirra holdi
klæddur. „Móðirin" sagði frá
nýrri sýn i marz i vetur. Þá sá
hún sjáli'a sig breytta i kyn-
lausa veru, sem ekki hafði
maga né kynfæri. Lærisvein-
arnir taka þessa nýju vitrun
sem tákn þess, að „móðirin”
sé forgengill nýrrar aldar og á
þeirri öld takisl mannkyninu
að lii'a - og endurnýja sig -
með andlegu afli einu saman.
R. RAMANUJAM frá News-
week fékk áheyrn hjá „Móð-
urinni” lyrir skömmu. Ilún
var föl og vanmáttug likam-
lega, „en hvöss og stingandi
augun ganga beint inn i sál-
ina”. „Móðirin” er sannfærð
um, að hin nýja öld sé hafin.
„Auðkennin blasa við”, sagði
hún við Ramanujam. „En á
þeim festa ekki sjónir aðrir en
þeir, sem hafa öðlazt hina
nýju vitund”.
Auroborg sýnist á góðum
vegi með að verða höfuðstöð
nýrra trúarbragða, hvað sem
um „Móðurina” verður. U
Thant fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu
þjóðanna hefir fylgzt með
kenningum Aurobindos
um fjörutiu ára skeið. Hann
segir: „Að rninu áliti var hann
i fremstu röð andlegra leið-
toga frá upphafi vega”.
Framhald á 21. siðu.