Tíminn - 29.12.1972, Page 1

Tíminn - 29.12.1972, Page 1
-------------' KÆLISKÁPAR RAFTORG SÍMI: 26660 RAFIÐJAN SÍMI: 19294 V. 2?A«A/ RAFTÆKJADEILD Hafnarslræti 23 Símar 18395 & 86500 Hulltogari sigIdi á Óðin - brezkt her- skip úti af Austfjörðum ÞÓ-Reykjavik. Brezki togarinn Brucella H-291 sigldi aftan á varð- skipið Óðin, innan 50 sjó- mílna markanna út af Austf jörðum, skömmu eftir hádegið i gær. Við árekst- urinn laskaðist borðstokkur Harry Eddom á isafirði vetur- inn 19B8. Ogeinnig hann Iiarry Eddom — eini mað- urinn, sem bjargaðist, þegar togarinn Ross Cleveland fórst á isafjarðardjúpi i febrúar- mánuði 1968 — er nú meðal hinna þvermóðskufyllstu landbelgisbrjóta á fiskiflotan- um brezka. Hann er skipstjóri á Hulltogaranum Benella, sem varpan var klippt aftan úr i fyrrakvöld. óðins og rennusteinn rifn- aði. Engin slys urðu á mönnum um borð i óðni, og ekki er vitað um skemmdir á togaranum. — Þá bar það til tíðinda í gær, að brezka herskipið Rhyl — F-129 kom upp undir Austfirði, en það hélt sig þó utan fisk- veiðimarkanna, er síðast fréttist. Hafsteinn Hafsteinsson, blaða- fulltrúi Landhelgisgæzlunnar, sagði, að á milli klukkan 11 og 12 i gærmorgun hefði varðskipið Óð- inn verið að stugga við brezkum togurum um fjórar sjómilur inn- an við 50 sjómilna fiskveiðimörk- in út af Austfjörðum, og hefðu all- ir togararnir tekið upp vörpurn- ar, en um leið og varðskipið yfirgaf þá, köstuðu þeir vörpun- um aftur. Þetta endurtók sig, og er brezki togarinn Ross Rodney GY 34 var að hifa vörpuna, kom brezki togarinn Brucella H-291 á fullri ferð i átt að varðskipinu, og gerði togarinn sig liklegan til að sigla á varðskipið. Var togaran- um tilkynnt, að ef hann reyndi ásiglingu, þá mundi varðskipið verja sig, og fallbyssan yrði notuð ef nauðsyn krefði. Brucella sigldi þá tvo hringi kringum varðskipið, en lónaði siðan frá þvi. Skömmu siðar kom togarinn á hægri ferð i átt að varðskipinu og virtist ekkert lik- legur til að reyna ásiglingu, en varðskipið lét reka. Skyndilega sveigði togarinn að varðskipinu og stefndi á skut þess, og setti Óðinn'þá á fulla ferð áfram, en tókst ekki að afstýra árekstri, og lenti stefni togarans skáhallt á skut varðskipsins með þeim af- leiðingum, að borðstokkur Óðins bognaði inn og rifa kom i rennu- steininn. Herskip á miðin Um miðjan dag i gær kom brezka herskipið Rhyl — F-129 á Frh. á bls. 15 Þegar flauturnar væla, veröa allir drifnir úr neðri hluta kauptúnsins, svo að ekki vefjist fyrir neinum, hvaðgera skal, ef Katla hleypur. Varðskipið Óðinn með hnffana f eftirdragi. Tímamynd: Róbert Óskýrð Ijósafyrirbæri á jólanótt BIRTAN LJÓMAÐI KRINGUM ÞAU EINS OG FJÁRHIRÐANA Erl—Reykjavik — Allt i einu varð næturmyrkrið enn svartara en áður, en svo birti skyndilega. og er ég leit til lands- ins, sá ég fimm flcnnibjört ljós yfir hólnum, sem lýstu hann og allt umhverfið upp. Mér varð fyrstað orði: „Hvers konar bygg- ing er nú komin i Kúagerði”, þvi að ijósin voru i hæð viö venjulega ibúðarblokk, um 12-15 metra frá jörð. Þetta eru orð Erlu Geirsdóttur, Dvergabakka 26 i Reykjavik, en hún var ásamt manni sinum og dóttur að koma sunnan úr Kefla- vik á jólanótt, og sáu þau þá öll þennan ljósagang i Kúagerði laust fyrir klukkan þrjú. — Við Kúagerði liggur vegurinn i S-beygju utan i lágum hól, og ljósin sáust fyrst um leið og við komum i beygjuna, hélt Erla áfram, er við ræddum við hana i gær. — Þau voru fimm talsins og öll i sömu hæð og með mjög stuttu millibili. Hvert ljós virtist verá á stærð við tunglið, eins og það kemur okkur jarðarbúum fyrir sjónir, þegar það er fullt, og öll virtust þau jafnbjört og lýstu vel upp umhverfið. Ljósin hurfu svo fyrir hólinn á meöan við vorum i beygjunni, en skömmu siöar kallaði dóttir min, Ingunn Erla, sem sat i aftursætinu: „Mamma, ljósin eru komin aftur”. Ég leit við og sá þá öll fimm ljósin, sem þá höfðu færzt úr stað og voru i röð yfir veginum. Ég leit þá á klukkuna, sem átti eftir þrettán minútur i þrjú. Ljósin voru þarna kyrrstæð um stund i svipaðri hæð og við sáum þau fyrst. Mér varð alls ekki um sel og bað manninn minn að keyra hraöar, en hann sagöist ekki geta þaö vegna veðursins. sem var slæmt um þetta leyti, bæði rok og rigning. Af ljósunum stafaði mikil birta, sem m.a. lýsti bilinn upp að áftan. Skyndilega leystist ljósið, sem var lengst til vinstri, upp i bláan blossa og hvarf og rétt I sömu mund slokkn- uðu hin fjögur. Siðan urðum viö ekki vör við þau, en timinn, sem við sáum þau i seinna sinnið, skiptir þó nokkrum sekúndum. Þá áttum við tal við Yngva Guðmundsson, eiginmann Erlu, en hann er starfsmaður hjá Loft- leiðum á Keflavikurflugvelli, og ekur þessa leið stundum oft á dag. Frásögn hans var hin sama og konu hans, og aldrei sagðist hann hafa opðið nokkurs yfirskilvitlegs var á leiðinni áður. Erla sagöi okkur enn fremur, að hún væri, siðan þetta gerðist, búin að fara 'a vettvang og at- huga allar aðstæður, og þar væri ekkert að finna, sem bent gæti til þess, hvað þarna heföi verið. — Umferð á veginum var mjög litil á þessum tima, sagöi hún, við mættum aðeins þrem bilum á allri leiðinni, og engum þeirra á þessum tima. Þegar við komum að gjaldskýlinu i Straumi, áttuð- Frh. á bls. 15 „Högum okkur eins og Katla værí að koma" Allir telja fullvist, að Katla sé þunguð, en enginn veit, hvenær hún verður léttari. Þaðan af siður er á nokkurs manns færi að gera sér i hugarlund, hversu jóðsóttin verður ströng. Þess vegna er líka betra, að fólk sé við öllu búið, og núna 13. eða 14. janúar mun fara fram eystra æfing á þvi, hversu við skal bregöast, ef Katla hleyp- ur. Formaður björgunarsveitar- innar i Mýrdalnum er Reynir Ragnarsson, ýtustjóri á Reynis- brekku. Framkvæmd þessarar æfingar, sem Almannavarnir rik- isins stofna til, mun að verulegu leyti hvila á honum og félögum hans. Við náðum þess vegna tal- sambandi við hann i gærkvöldi, er hann var nýlagður af stað úr Reykjavik austur i Mýrdal. — Það hefur verið komið fyrir jarðskjálftamæli i Rjúpnagili, sem er skammt frá Höfðabrekku- jökli, og hann er i sambandi við sirita i lóranstöðinni á Reynis- fjalli, sagði Reynir. Þessa sirita er stöðugt gætt, og dragi til tið- inda, verður þess þegar vart á honum. Talstöðvar eru svo aust- an MýrdalsSands á þrem stöðum — i Hrifunesi i Skaftártungu, á Herjólfsstöðum i Álftaveri og Strönd i Meðallandi — svo að unnt sé að koma boðum á milli, þótt simalinan á sandinum rofni. Viðvörunarkerfi, af sama tagi og i Reykjavik, var sett upp i Vik fyrir nokkrum misserum, og þegar æfingin verður núna eftir hálfan mánuð, verða viðvörunar- merki gefin á sama hátt og ef hætta vofði yfir og Kötluhlaup væri að koma. Veginum yfir Mýr- dalssand verður lokað bæði að austan og vestan, og verði veður gott, kemur þyrla á vettvang til þess að bjarga þvi fólki, sem kann að verða á ferö á sandinum. Það á sem sagt að gera þetta allt sem raunverulegast. Menn frá Almannavörnum rik- isins koma austur, en hlutverk okkar i björgunarsveitinni veröur að koma öllu fólki, sem á heima i neðri hluta kauptúnsins, á sem skemmstum tima á öruggan stað — segja þvi, hvert það á að fara, hjálpa þeim um bila, sem ekki eiga þá sjálfir, og annað þess háttar. Við gerum ráð fyrir, að það sé nokkuð á annað hundrað manns, sem á að flýja hús, sagði Reynir að lokum, en þó verður gamalt fólk og lasburða liklega ekki ómakaö vegna þessarar æfingar. — JH

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.