Tíminn - 29.12.1972, Blaðsíða 16
Pearson
látinn
NTB—Ottawa
Lester Pearson, fyrrverandi
forsætisráöherra Kanada, lézt i
fyrrinóttað heimilisinu i Ottawa,
75 ára að aldri. Banamein hans
var krabbamein.
Pearson fékk friðarverðlaun
Nóbels árið 1957 fyrir þátt þann,
sem hann átti i að koma á fót
varðsveitum SÞ. Hann var for-
sætisráðherra frá 1948 til 1957, á
þeim tima,sem teknar voru mikil-
vægar ákvarðanir eins og lokun
Berlinar, stofnun Nato, Kóreu-
styrjöldin og SUez-málið.
Truman
jarðsettur
NTB—Independence
Þúsundir manna gengu i gær
framhjá lfkbörum Trumans,
fyrrverandi Bandarikjaforseta,
en aðeins fjölskyldan og nánir
ættingjar voru við útförina
sjálfa, sem fór fram i
Independence að ósk hins látna.
Alls staðar að úr landinu
streymdi fólk til Independence til
að votta Truman hinztu virðingu.
Bæði Nixon forseti og Johnson,
fyrrum forseti, komu að við-
hafnarbörum Trumans og lögðu
þar kransa og heimsóttu siöan
ekkju Trumans. Þótt útförin væri
einföld, var hún virðuleg. Skotið
var 21 fallbyssuskoti,og hermenn
stóðu heiðursvörð.
1
c
Föstudagur
29. desember 1972
Skjöldurinn, sem festur verður á vegg skóiahússins I Goc.
tslendingar gáfu
500 manna skóla
SB—Reykjavik
Islendingar hafa gefið 500
nemenda skóla i Goc i Eþióplu.
Er skólinn byggður fyrir fé, sem
safnaðist i fjársöfnuninni Flótta-
fólk ’71. Gjöfin var formlega af-
Ræningjar verða
skotnir í Managua
- enn logar í borginni
NTB—-Managua
Enn loguðu eldar i Managua
i gær,og ekki var til einn
einasti vatnsdropi til að reyna
að slökkva með. Mestur var
eldurinn i 18 hæða húsi, en
aðeins tvö háhýsi i borginni
stóðu uppi eftir jarð-
skjálftann.
1 gær var sett útgöngubann
frá kl. 18 til sólarupprásar,og
gefin varútfyrirskipun um að
skjóta hvern þann, sem
reyndi að komast inn i húsa-
rústir I miðhluta borgarinnar
sem hefur nú verið afgirtur.
Maður einn var skotinn i gær
við ránstilraun, og fjögurra
ára drengur varð fyrir skoti,
sem manninum var ætlað og
létust báðir. Enn er margt fólk
i borginni og gengur vel að út-
hluta til þess mat.
hent 14. desember sl. I skriístofu
menntamálaráðherra Eþiópiu,
Matheme Selassie,og var það
Árni Björnsson læknir, sem af-
henti, fyrir hönd flóttamanna-
ráðs Islands.
Þá afhenti Arni skjöld, sem
festur verður á vegg skólans. A
skildinum stendur, að skólinn sé
gjöf frá islenzku þjóðinni.
Ráðherrann tók á móti gjöfinni
og þakkaði Islendingum fyrir
skilning: i þeirra á vandamálum
flóttafólksins i Eþiópiu. Athöfnin
kom I útvarpi og sjónvarpi lands-
ins, svo og i blöðum. og vakti
mikla athygli. Viðstaddir voru,
auk fréttamanna ráðherrans og
Árna, kona hans Guðný Bjarnar,
ræðismanns Islands i Eþiópiu,
Menghiston, hinn kunni Jslands-
vinur Bo Ákarrén og kona hans og
fulltrúar Flóttamannastofnunar
SÞ.
Sá ekki
veginn,
fór út af
og valt
Stór vörubill með timburfarm
fór út af veginum við Hveragerði i
gærmorgun og valt. Stöðvaðist
billinn ekki fyrr en hjólin snéru
beint upp. ökumaðurinn meiddist
ekki, en billinn er talsvert
skemmdur eftir veltuna.
Billinn var á leið austur.og var
snjókófið svo mikið að ökumaður-
inn grillti ekki veginn, en stýrði
eftir stikunum, sem eru utan við
veginn. Þegar hann kom að vega-
mótunum, þar sem vegurinn ligg-
ur niður i ölfus.sá hann næstu
stiku á hægri hönd.sem er við
ölfusveginn, en það stutt frá
þjóðveginum austur, að hann átt-
aði sig ekki á að stikan var við
veg,sem liggur þvert á þann, sem
hann ók eftir og beygði til hægri.
Allhár kantur er þarna meðfram
veginum og valt billinn. En hann
var á hægri ferð og fór þvi rólega
út af.
Svarti september tók
ísraela í Bankok
Thailandsstjórn lét undan
Hluti Svarfaðar-
dals friðlýstur
landið, en það er meðfram ánni
innan strikalinunnar.
SB—Reykjavik
Náttúruverndarráð hefur
ákveðið að friðlýsa Svarfaðar-
dalsá i Eyjafirði neðanverða,
ásamt bökkum og óshólmum.
Um friðland þetta gilda eftir-
farandi reglur: Bannað er að
breyta landslagi á svæðinu eða
farvegi árinnar. Óheimilt er að
gera nokkur mannvirki á svæðinu
og gildir það um hvers konar
byggingar, skurði og vegi. Girð-
ingar má aðeins reisa með sam-
þykki náttúruverndarnefndar
Eyjafjarðarsýslu. Skulu þær
þannig geröar, að þær trufli ekki
umferð gangandi fólks um svæðið
(tröppur eða hlið). Friðlandið má
aðeins nýta á sama hátt og tiðkazt
hefur, svo sem til slægna, beitar
og veiða i ánni. Malarnám og
sandnám verði heimilað áfram
undir eftirliti. Bannað er að
granda fuglum i friðlandinu. Eigi
má heldur skemma hreiður
þeirra eða taka egg. öllum, sem
um svæðið fara, ber að varast að
skerða gróður á þvi. Gangandi
mönnum og ríðandi er heimil um-
ferð um friðlandið.og skal að þvi
stefnt að marka þar gönguleiðir.
Umferð vélknúinna ökutækja um
svæðið er þvi aðeins leyfð, að hún
sé i tengslum við leyfilegar nytjar
landsins.
NTB—Bangkok og Tel Aviv
Fjórir vopnaðir meðiimir
Svarta September, sem I gær-
morgun réðust inn I israelska
sendiráðið i Bangkok, höfuðborg
Thailands, og tóku sex lsraeia
sem gisla, féllust siðdegis i gær á
að sleppa gisiunum gegn þvi að
fá að fara frjálsir ferða sinna úr
landi.
Thailenzka stjórnin lét undan
kröfum skæruliðanna um.að tveir
ráðherrar fylgdu þeim úr land-
inu. Hafa landbúnaðarráðherr-
ann og aðstoðarutanrikisráðherr-
ann boðizt til að fylgja skærulið-
unum til ókunns ákvörðunarstað-
ar.
Ekki er enn vitað, hvenær
gislunum verður sleppt, eða
hvenær skæruliðarnir fara frá
Bangkok. Samkomulagið náðist
eftir að landbúnaðarráðherrann
hafði verið inni i sendiráðinu og
rætt við skæruliðana.
Talsmenn israelsku stjórnar-
innar vildu i gærkvöldi ekkert um
málið segja og sögðust ekki hafa
fengið neina staðfestinu á þessu
samkomulagi. Golda Meir átti i
gær klukkustundar fund með
stjórninni til að ræða mál þetta.
Ekki er ljóst, hvort stjórnin lætur
undan kröfum skæruliðanna
siðan i morgun um,að 36 með-
limir Svarta september verði
látnir lausir úr fangelsum i
ísrael. Búizt er þó við,að Golda
láti ekki að kröfunum, þar sem
hún gagnrýndi v-Þýzku stjórnina
harðlega á sinum tima fyrir að
láta undan morðingjunum i
Munchen I sumar.
Skæruliðarnir réðust inn i
sendiráðið i Bangkok i morgun,
þegar ibúar borgarinnar voru að
fagna krónprinsinum sinum.
Hundruð lögreglumanna i skot-
heldum brynjum umkringdu
húsið.og þá köstuðu skæruliðarnir
út um glugga lista með nöfnum 36
manna, sem þeir vildu fá lausa úr
israelskum fangelsum á næsta
sólarhring. Yrði ekki látið að
þeirri kröfu, myndu þeir sprengja
sendiráðið i loft upp.
Ekki varð strax ljóst, hversu
marga gisla skæruliðarnir hefðu
tekið, þvi fridagur var i gær og
sendiráðið formlega lokað. Siðar
kom i ljós að um var að ræða þrjá
sendiráðsstarfsmenn, eiginkonur
tveggja þeirra og eitt barn.
Raddir voru uppi um,að israelski
ambassadorinn i Kambódiu væri
einnig meðal fanganna, en hann
var i heimsókn i Bangkok.
Fulltrúar thailenzku stjórnar-
innar tóku sér aðsetur i húsi gegn
sendiráðinu og hófu samninga við
skæruliðana, með þeim árangri,
sem fyrr er greint frá.
,Ég geri mitt bezta,
það erallt og sumt'
— sagði landlæknir, er Tíminn nóði tali af honum
— Það er ekkert merkilegt við
það, þó að ég skryppi hingað vest-
ur um hátiðarnar og hiypi undir
baggann i læknislausum héruð-
um, sagði Ólafur ólafsson land-
læknir i gær, er við náðum
snöggvast tali af honum. Hann
var þá staddur á Flateyri, þar
sem hann hefur veitt þjónustu.
— Það er mikið að gera, hélt
Ólafur áfram, og margt fólk, sem
biður, og svo vil ég komast aftur
norður yfir Gemlufallsheiði i
kvöld. Ég má ekki vera að þvi að
tala við ykkur og þar að auki mis-
likar mér stórlega, að blöðin skuli
vera að gera það að einhverjum
uppsláttarfréttum, þó að ég
brygði mér þetta um hátiðarnar.
Það var af nauðsyn gert, þvi að
fólk hér vestur á fjörðum eða i
öðrum byggðarlögum, þar sem
torvelt hefur reynzt að láta i té
eðlilega læknisþjónustu, er ekkert
frábrugðið öðru fólki, sem betur
er búið að i þessu efni. Hér eins og
annars staðar er fólk á ýmsum
stigum vanheilsu, og ég reyndi
aðeins að gera mitt bezta — það
er allt og sumt og ekki i frásögur
færandi.
Ég hef haft aðsetur á Þingeyri
þessa daga, en hef brugðið mér
hingað til Flateyrar, svo að ön-
firðingar fari ekki varhluta af
þeirri þjónustu, sem ég get veitt.
Eftir áramótin fer ég að sjálf-
sögðu suður aftur, þvi að ekki var
meiningin að flytja landlæknis-
embættið hingað vestur. En úr
þvi að ég er farinn að tala um
þetta við ykkur, megið þið geta
þess, að mér fyndist vinnandi
vegur að gera betur við snjóruðn-
ing hérna á heiðunum. Annað og
meira vil ég ekki segja, en itreka
það bara,að vera ekki að þenja
það út, þó að maður reyni að
verða að þvi gagni, sem i valdi
t'ip.nns stendur.