Tíminn - 29.12.1972, Blaðsíða 4
TÍMINN
Föstudagur 29. desember 1972
■
A
3
:§gí:mmm #j§
Jarðarberja- og
f jóluiiman
um. Hafin er framleiðsla á
herraskyrtum, og fullyrða
framleiðendurnir, að ilmurinn,
Nú eiga karlmenn ekki lengur sem settur hefur verið i þær,
að anga af einhverri herralykt, endist i að minnsta kosti tvo til
heldur af jarðarberjum og fjól- þrjá þvotta. Stúlkan hér á
myndinni er i einni slikri skyrtu,
sem ilmar af jarðarberjum, og
á brjóstinu má sjá kræsileg
jarðarber. Þessi nýja fram-
leiösla er upprunnin á ltaliu, en
Danir eru einnig byrjaðir að
framleiða og selja svona skyrt-
ur. Fóru nýlega 100 þúsund
skyrtur i verzlanir, og var mikil
eftirspurn eftir þeim frá byrjun.
Hafa framleiðandanum danska
borizt pantanir m.a. frá Fraltk-
landi. En eitt er það, sem marg-
ir óttast, sem sé, aö stúlkurnar
verði ekki siður hrifnar af þess-
um skyrtum en herrarnir, og þá
verður iiklega handagangur i
öskjunni, og ekki að vita, hversu
margar skyrtur lenda hjá herr-
unum að lokum.
☆
Fagrar konur
og dýrir bilar
Það þykir tilheyra, þegar sýndir
eru nýir bilar, að ungar og fall-
egar stúlkur séu látnar sitja á
eða standa við bilana. Velja
framleiðendur stúlkurnar með
það fyrir augum, að þær verði
til þess að vekja enn meiri at-
hygli á bilnum en ella væri, ef
ekkert slikt augnayndi væri i
námunda við hann. Þessar tvær
myndir eru frá bilasýningunni i
Earls Court i London. Á annarri
myndinni er dáindisfrið stúlka
við enn failegri bil, en á hinni er
það reyndar þvottakonan, sem
er að strjúka bilinn, sem vekur
mesta athygli, og ef til vill jafn
mikla og fegurðardisin við hinn
bilinn.
☆
*
Sú fyrsta i Danmörku
Þetta er Anne Lise Petersen frá
Holstebro, tvitug aö aldri. Hún
er fyrsta stúlkan i Danmörku,
sem lokið hefur prófi i logsuöu
og járnsmiði, og þykir starfið
bara skemmtilegt. Hér á landi
eru þegar nokkrar stúlkur farn-
ar að starfa i járnsmiði, og
l'innst þeim það vist bara bæri-
legt, að þvi er frétzt hefur, svo
ekki er að undra, þótt Anne sé
lika ánægð. Samstarfsmenn
hennar segja, að hún sé mjög
vel verki farin, og ekkert út á
það að setja, þótt kvenmaður sé
i'arinn að vinna meö þeim i
smiðjunni.
— Kg ætla aldrei að giftast
manni, sem hrýtur, sagði dótt-
irin.
— Jæja, sagði móðirin, en pass-
aðu þig, þegar þú ert að komast
að þvi.
— fig veit ekki hvað þú ætlar þér,
en slökkvarinn cr frammi við
dyrnar.
— ,Iá, cn ég hélt, að þetta værir
þú. elskan min.
DENNI
DÆMALAUSI
Hver getur imyndað sér, að svona
kornflexmylsna sé holl fyrir
mann.