Tíminn - 29.12.1972, Blaðsíða 11
Föstudagur 29. desember 1972
ríMINN
11
Umsjón Alfreð Þorsteinssoniii
Enska knattspyrnan:
SOS:
Liverpool með góða for
ustu eftir „jólaslaginn
11
- Docherty hefur tekið við Manchester United og er byrjaður að kaupa
leikmenn. Hann keypti George Graham frá Arsenal á 120 þúsund pund.
Heil umferð verður leikin á morgun.
Liverpool stendur með
pálmann í höndunum eftir
„Jólabardagann", liðið
hefur nú þriggja stiga
forustu, i öðru sæti kemur
Arsenal, en Lundúnarliðið
hefur leikið einum leik
meira. Hinn hávaxni
welski leikmaður liðsins,
John Toshack, sýndi góðan
leik á Þorláksmessu, þegar
liðið sigraði Coventry á
Anfield Road 2:0,og skoraði
hann bæði mörk liðsins.
Toshack var keyptur til
liðsins á 110 þús. pund frá
Cardiff City t nóvember
1970 og hefur hann verið
einn markhæsti leikmaður
liðsins síðan. Á annan í
jólum heimsóttu leikmenn
Liverpool Sheffield og
léku þar gegn United á
Bramall Lane— liðið hafði
algjöra yfirburði og vann
stóran sigur 3:0. Chris
Lawler, PhilBoersma og
Steve Heighway skoruðu
mörkin.
Manchester United var heldur
betur i sviðsljósinu um jólin, á
Þorláksmessu lék liðið undir
stjórn Tommy Docherty, sem
hefur nú tekið við liðinu. Þá
mættu þeir Leeds á heimavelli
sinum, Old Trafford. Manchester
var aðeins 7 sek. frá sigri. Liðið
hafði yfir, 1:0, þegar leiktiminn
var útrunninn, en vegna tafa
þurfti að leika áfram i fjórar
min. — það var ekki fyrr en á 94.
min. að Leeds tókst að jafna á
marki Allan Clarke. Mark Man.
Utd. skoraði Ted MacDugall.
Manchester United heimsótti svo
meistarana Derby á annan i
jólum, en á Baseball Ground
fékk liðið skell, mátti þola stórt
tap, 3:1.
En áður en við höldum lengra,
þá skulum við kynnast nánar
hinum nýja framkvæmdastjóra
Manchester United:
Tommy Docherty (43 ára),
sem á 24 landsleiki aö baki fyrir
Skotland, hefur verið einn um-
ræddasti framkvæmdastjóri i
ensku knattspyrnunni. Hann tók
við Chelsea i janúar 1962, en þá
var Chelsea i 2. deild. Undir hans
stjórn vann félagiö sig fljótlega
upp i 1. deild, eða vorið 1963,og
hefur siðan verið eitt litrfkasta
knattspyrnufélag Bretlandseyja.
Docherty var mjög djarfur og
ákveðinn i kaupum og sölum á
leikmönnum, þegar hann var hjá
Chelsea.og gjörbreytti hann liðinu
á stuttum tima.' Docherty sagði
upp stöðu sinni hjá Chelsea 1967 i
október, eftir að Knattspyrnu-
sambandiö brezka setti hann i 28
daga bann frá knattspyrnu, hann
mátti ekki skipta sér af knatt-
spyrnu i fjórar vikur. Ástæðan
fyrir þvi var, að hann hljóp út á
leikvöll i Bermuda, þegar
Chelsea var i keppnisferðalagi,
og lenti þar i hörkurifrildi við
dómara i einum leik liðsins.
Geoff Hurst — skoraði tvö mörk
fyrir Stoke gegn Derby á Þorláks-
messu, þegar Stoke vann 4:0 á
heimavelli.
Siðan gerðist Docherty fram-
kvæmdastjóri Rotherham i nóv-
ember 1967, hann hætti þar fljót-
lega. í nóvember 1968 gerðist
hann framkvæmdastjóri hjá
QPR, eftir aðeins 28 daga hjá
Queens Park Rangers. Ilann
sagði upp starfi sinu, þegar stjórn
félagsins neitaði honum um kaup
á miðverðinum Brian, sem átti þá
hvern stórleikinn af öðrum með
Rotherham, fyrir 35 þús. pund.
Docherty sat ekki lengi auðum
höndum, þvi að i desember var
hann ráðinn framkvæmdastjóri
Aston Villa, þar sem hann byrjaði
mjög vcl, og fljótlega varð að-
sóknin á heimaleiki Villa mjög
góð, liöið sigraði hvern leikinn á
fætur öðrum. Aston Villa, sem
var i 2. deild'fór svo að ganga illa,'
var i neðsta sæti i janúar 1970.
Laugardaginn 17 janúar tapaði
Aston Villa fyrir Portsmouth á
heimavelli sinum Villa Park 3:5,
og eftir þann leik ákvað stjórn
félagsins að reka Docherty frá
félaginu.
í fyrra var Docherty rájðinn að-
stoöarframkvæmdastjóri hjá
Hull og stuttu siðar skipaður ein-
valdur skozka landsliðsins, sem
hann hefur stjórnað mjög vel:
liðið hefur aöeins tapað einum
leik, siðan hann tók við þvi.
Docherty, sem er gamall skozkur
landsliðsmaður, lék 24 landsleiki
þegar hann lék með Preston og
Arsenal. Hann lék með skozka
landsliöinu i heim smeistara-
keppninni i Sviss 1954. Nú stefnir
hann að þvi að koma Skotlandi i
úrslitakeppnina i heimsmeistara-
keppninni i Vestur-Þýzkalandi
1974, en Skotland hefur ekki
koinizt i úrslitakeppni siðan i
Sviþjóð 1958.
Að lokum má geta þess, að
sonur Docherty leikur sem bak-
vörður með Burnley, efsta liðinu i
2. deild, og þykir mjög efnilegur
knattspyrnumaður.
Docherty er strax byrjaður að
kaupa leikmenn, hann hefur
keypt skozka landsliðsmanninn
George Graham frá Arsenal á 120
þús. pund. Docherty þekkir
Graham mjög vel, hann lék með
Chelsea, þegar Docherty var
framkvæmdastjóri þar, siðan
seldi hann hann til Arsenal. Nú
leikur Graham i skozka lands-
liðinu, en þvi stjórnar Docherty,
eins og hefur komið fram.
Arsenal fór til Birmingham á
Þorláksmessu og lék þar við
Birmingham City á St. Andrews,
nýliðarnir náðu jafntefli 1:1.
Hinir nýliðarnir i 1. deild.Norwich,
komu svo i heimsókn á annan i
jólum. Arsenal sýndi yfirburði og
sigraði örugglega 2:0. Yfirburðir-
nir voru svo miklir, að t.d. kom
Bob Wilson, markvörður
Arsenal, ekki við knöttinn i 24
min. i siðari hálfleik. Mörk
Arsenal skoruðu þeir Alan Ball og
John Radford.
Crystal Palace tapaði
óvænt l'yrir Leicester á Þorláks-
messu 2:1, en á annan i jólum
sigraði liðið Southampton með
yfirburðum 3:0 á heimavelli
PIIIL BOERSMA — einn al' ungu drengjunum hans Bill Shankly,
skoraði mark gegn Sheff. Utd. Boersma skoraði mikið af mörkum fyrir
Liverpool.
sinum , Seihurst Park. Don
Rogers skoraði tvö mörk, en hann
átti stjörnu leik. Crewen skoraði
þriðja markið.
Á morgun verður leikin ein um-
ferð i Englandi;liðin,sem mætast
þá, eru þessi:
1. deild
Birmingham - Ipswich
Chelsea - Derby
Leicester - West Ham
Liverpool - Crystal Palace
Man. Utd. - Everton
Newcastle - Sheff. Utd.
Norwich - Man. City.
Southampton - Coventry
Stoke - Arsenal
Tottcnham - Wolves
W.B.A. - Leeds
2. deild
Burnley - Fulham
Brighton - Blackpool
Middlesbro - Oxford
Huddlesf. - Aston Villa
Sheff. Wed. - Q.P.R.
Við munum segja nánar frá
leikjunum eftir áramót hér á
siðunni.
,,Gefðuknöttinn”!....hinn skapbráði Skoti, Tommy Docherty, eða „The Doc”, eins og hann er kallaður,
kallar hér inn á völlinn i leik hjá Aston Villa , hjá honum situr Arthur Cox, þjálfari. Docherty er nú
orðinn framkvæmdastjóri Manchester United.