Tíminn - 04.01.1973, Page 1
................. 1 •
ALÞÝÐU-
BANKINN HF.
WOTEL LOF JlBÐfí
VEITINGABÚD
„Hótel Loftleidir7' er nýjung I hótel-
rekstri hérlendis, sem hefur náð skjót-
um vinsældum. Góðar veitingar, lipur
þjónusta, lágt verð — og opið fyrir allar
aldir!
BÝÐUR NOKKUR BETUR!
Bygging
Glerárkirkju
hafin næsta ár
SB-Reykjavik
íbúar Glerárhverfis á Akureyri
sjá nú hilla undir sina eigin
kirkju. Hingað til hafa þeir sótt
kirkju i Lögmannshlið, en nú er
sú kirkja orðin allt of litil og einn-
ig er oft mjög erfitt að komast
þangað. Má nefna, að nú á nýárs-
dag var fenginn stór trukkur með
kirkjufólkið, en það varð þó að
ganga hluta leiðarinnar, vegna
snjóþyngslanna.
Nýja kirkjan mun standa á hól
nokkrum sunnan Hörgárbrautar,
nokkru fyrir norðan barnaskól-
ann. Kirkjan sjálf' tekur 250
manns i sæti, en auk þess er rúm
fyrir 200 manns i fundarsölum,
þannig að 450 manns komast fyrir
i húsinu i einu. Sóknarbörn Gler-
ársóknar eru nú á þriðja þúsund
talsins. A þessu ári verður með
ýmsum ráöum aflað fjár til bygg-
ingar hinnar nýju Glerárkirkju,
en ráðgert er að framkvæmdir
við hana hefjist á næsta ári.
Það voru anzi miklar tjarnir viða á Reykjavikurgötum I gær, og ekki ótrúlegt, að sumir vegfarendur
hafi fengið „þrifabað”. Þessi mynd var tekin á Hringbrautinni við Hljómskálagarðinn.
— Tímamyndir: Róbert.
Verður engrar borunar
þörf við tannviðgerðir?
- Nýtt efni sagt komið fram, sem gerir hana þarflitla
ur mólikúl þess, sem eru i löngum
keðjum, svo að útkoman verður
glerharður klumpur, sem þarfn-
astsex minútna til storknunar, og
á þeim tima er hægt að fara meö
blönduna eins og verkast vill, og
hann er nægilega langur til að
efnið geti limzt til eilifðar (eða
þvi sem næst) við tannbeinið.
Efnið er litlaust, og sést þvi vart i
tönninni.
Uppfinning þessi gerir borun þó
engan veginn með öllu óþarfa.
Enn um sinn verður að hreinsa
holuna og komast fyrir skemmd-
ina. En ekki er þörf mikillar
borunar i litt skemmda tönn, eins
og nú er oft til að fá fyllingunni
fast sæti. Þetta ætti að gera þeim
fjölmörgu sem á miðjum aldri
leita til tannlæknis vegna mikils
slits á tannhálsinum (vegna mik-
illar tannburstunar) lifið léttara.
Tvö brezk fyrirtæki hafa hlotið
einkaleyfi á uppfinningunni, og
undirbúa nú framleiöslu þess i
stórum stil.
Er blaðið sneri sér til Harðar
Sævaldssonar, formanns Tann-
læknafélags Jslands, kvaðst hann
ekki hafa heyrt um þessa upp-
finningu né lesið um hana i
nokkru fagriti tannlækna. En þaö
hefði verið draumur flestra, allt
frá fyrstu tið, að upp væri fundið
efni, sem gerði tannviðgerðir
sársaukaminni og auðveldari við-
fangs en verið hefur, og það væri
vissulega gleðilegt, ef það væri nú
loksins komið.
Erl.
Og svo var þetta fyrirbæri, sem kom fram í dagsljósiö, þegar snjóinn
leysti: Biklagið brotið og stórar og viðsjárverðar gjótur komnar i
göturnar. Myndin var tekin skammt frá mótum Kringlumýrarbrautar
og Háaleitisbrautar.
Gleðilegar fréttir berast utan
lands frá þessa dagana, a.m.k.
fyrir þá, sem ckki finnst það há-
punktur allra skcmmtana á árinu
að fara til tannlæknis. Það er sem
sc talið að upp hafi verið fundið
nýtt cfni til tannfyllingar, sem
gerir mikla borun óþarfa. Það á
að tolla á sinum stað i tönninni, án
þess að þarfnast vitt útboraörar
liolu til festu.
Efnið er til oröið á tilraunastofu
þekktra efnafræðinga i Lundún-
um, og var i upphafi ekki ætlað
tannlæknum, heldur til keramik-
listmunagerðar. Það er glerduft i
formi álsilikats, sem blandað er i
nýja gerð af plasti, sem upp-
leysanlegt er i vatni. Þegar þessi
tvöefni blandast, sigur álinnihald
glersins út i plastið og krossbind-
NÚ GETUR MAÐUR KVÆNZT FYRR
1 tM^J VERANDI TENGDAMÓÐUR SINNI
Ný lög um stofnun og slit
hjúskapar gengu i gildi um
áramótin. Eru nú slipaðir af
ýmsir vankantar eldri laga og
nýmæli upp tekin. Öll lýsing
og leyfisbréf falla niður, en
áður en fólk fær að giftast
verður gerð sérstök könnun á
högum hjónaefnanna og verða
þau að uppfylla viss skilyrði til
að mega eigast. Náin skyld-
menni þurfa ekki lengur
undanþágu til að mega giftast
og getur til dæmis stúlka gifzt
föðurbróður sinum ef bæði
vilja og piltur stjúpmóöur
sinni, en að sjálfsögðu verður
hún þá að vera oröin ekkja eða
skilin við föður hans.
Ákvæði um festar er numið
úr gildi en festar eru á venju-
legu máli kallað að heitast
eiginorði eða trúlofun. Aður
var það svo, að ef festar höföu
stofnazt var það orðin viss
réttarstaða og var talað um
ráðspjöll vegna festarslita og
var þá gert ráð fyrir skaðabót-
um frá þeim sem sleit festun-
um. Var þessu ákvæði litið
beitt en var þó i lögum. Samt
sem áður gætu komið upp mál,
þar sem annar aðilinn yrði
skaðabótaskyldur vegna
festarslita. Ef maður, sem
heitið hefur stúlku eiginorði,
svikur hana, en hún hafði áður
breytt högum sinum og gert
ráðstafanir vegna væntanlegs
hjónabands, ætti þá rétt á
skaðabótum, en um það gilda
nú almennar skaðabótareglur,
svo að samt sem áður ætti fólk
ekki að flana út i trúlofun að
óhugsuðu máli.
Þar sem lýsing fellur niöur
þarf ekki lengur leyfisbréf til
að fá að giftast. Leyfisbréfið
var i rauninni ekkert annað en
undanþága frá lýsingu, sem
dómsmálaráöuneytiö gaf út og
hægt var að fá hjá fógetum.
Þeir sem leyfi hafa til að
gefa fólk saman i hjónaband
eiga að annast könnun á hög-
um hjónaefnanna og ganga úr
sku£ga um, hvort þau uppfylla
öll skilyrði til að mega giftast.
Verið er að semja reglugerð
um könnun á hjúskaparskil-
yrðum, sem brátt mun taka
gildi og kann að vera að könn-
unin verði strangari eftir að
hún er komin i framkvæmd.
Samkvæmt nýju lögunum
verður sérstakur aðili, sem
annast könnun hjúskaparskil-
yrða og verður útbúið sérstakt
eyðublað með spurningalista
og fleiru, sem hjónaefni eiga
að útfylla. Sá sem annast
vigslu getur einnig annazt
könnunina. en einnig gæti ann-
ar aðili en sá sem giftir annast
Frh. á bls. 15