Tíminn - 04.01.1973, Síða 5
Kimintudagur 4. jauúar lí)7:i
TiMINN
5
Áramóta-
skaup sjón-
varpsins ekki
endursýnt?
Klp-Reykjavik
Þaö er mál manna, að ára-
mótaþáttur sjónvarpsins, sem
sýndur var á gamlaárskvöld, hafi
verið eitt bezta skemmtiefni, sem
sjónvarpið hafi sýnt um dagana.
Margir munu þá hafa misst af
þessum þætti og hafa spurt um
hvort hann yrði ekki endursýndur
einhvern næstu daga.
Til að fá svar við þvi snérum
við okkur til Jóns Þórarinssonar
forstöðumanns lista og skemmti-
deildar sjónvarpsins og hafði
hann þetta um málið að segja.
,,Ég geri ekki ráð fyrir þvi að
þessi þáttur verði endursýndur og
er ástæðan fyrir þvi einfaldlega
sú, að það er of dýrt miðað við það
sem við höfum úr að spila. Aðal
kostnaðurinn liggur i þvi, að við
verðum að greiða leikurum, tón-
listarmönnum og öðrum, sem
komu fram i þessum þætti helm-
ing af upphaflegri greiðslu. Ann-
ars er það útvarpsráð, sem tekur
endanlega ákvörðun i þessu máli,
og mun það liklega verða rætt á
næsta fundi ráðsins sem verður
n.k. mánudag”.
Jón sagði, að margir hefðu haft
samband við sjónvarpið, og spurt
hvort þessi þáttur yrði ekki
endursýndur. Sömuleiðis hefðu
margir hringt og þakkað fyrir
þáttinn og látið i ijós ánægju með
hann.
Brunavakt á
flkureyri í 20 ár
- 50 útköll á sl. ári
SB-Reykjavik
Slökkvilið Akureyrar var kallað
út 50 sinnum á siðastliðnu ári og
var þaö fimm útköllum fleira en
á árinu áður. í fjórum tilvikum
reyndist þó ekki um neinn eld að
ræða. Enginn stórbruni varð á
árinu. Þá annast slökkviliðið
sjúkraflutninga á bifreiðum
Rauða krossdeildarinnar á Akur-
eyri, og þurfti að gripa til þeirra
675 sinnum á árinu, þar af voru
116 tilfelli utanbæjar. Arið áður
voru sjúkraflutningar 620 og 137
af þeim utan bæjarins. Loks má
geta þess, að 15. janúar næstkom-
andi hefur ««rið vakt á Slökkvi-
stöð Akureyrar í 20 ár.
Uiminner
renlngar
lýsicf
\ iTimanum
Islandia
31.VIII-9.IX
Merki frimerkjasýningarinnar „Islandia 73’’.
Samkeppnisdeild á frímerkja
sýningunni Islandia 73
r
Attþúhlutí
banka?
Samvinnubankinn hefur ákveðið
hlutafjáraukningu í allt að
100 milljónir króna.
Öllum samvinnumönnum er boðið
að eignast lilut.
Vilt þú vera með?
SAMVINNUBANKINN
Þó-Reykjavik
Eins og áður hefur komið fram,
þá verðurhaldin mikil frimerkja-
sýning dagana 31. ágúst til 9.
september á þessu ári. A
sýningunni verður sérstök sam-
keppnisdeild, og nú hefur fram-
Fárviðri í
N-Noregi
NTB-Oslo
Óveðrið, sem gekk yfir Is-
land fyrir jólin, náði til N-Noregs
aðfaranótt gamlársdags og olli
þar gifurlegu tjóni á húsum og
mannvirkjum. Enn er viða raf-
magns- og simalaust og munu
liða margir dagar, unz tjón er
fullkannað. Ekkert manntjón
varð, en einhverjir meiddust.
Þök af ótal húsum og viða
fuku útihús og bilskúrar i heilu
lagi. Á einum stað rifnuðu 20 til 30
þúsund furutré upp með rótum.
Nýtt ibúðarhús i Mosjön lyftist
af grunninum og flutti sig um
fjóra metra. Fallin tré lokuðu
götunum i bænum, hluti þaks
hótelsins á staðnum fauk af og
margar smábryggjur hurfu gjör-
samlega.
1 Kristianssundi tók af mestan
hluta þaksins á elliheimilinu, en
annars urðu þar litlir skaðar.
Járnbrautarsamgöngur röskuð-
ust mjög, þvi alls kyns drasl sett-
ist á teinana og hefur verið unnið
að hreinsun á þeim i tvo daga.
í Lófót og Vesterálen varð mik-
ið tjón. Ný smurstöð og tveir bilar
i henni, gjöreyðilögðust og fjöl-
margir litlir fiskibátar sukku,
bryggjur skemmdust og þök fuku
af útihúsum. Strætisvagn fauk út
af vegi, en enginn slasaðist. A
Andenes-flugvelli mældist vind-
hraðinn 80 hnútar i mörgum vind-
hviðunum.
Stór lestunarkrani i Mo i Rana
hrundi, fyrst á annan krana, en
siðan á brezkt flutningaskip.
Verkfræðingur - Tæknifræðingur
Verkfræðingur eða tæknifræðingur óskast
til starfa hjá Sauðárkrókskaupstað til
að hafa umsjón með verklegum fram-
kvæmdum kaupstaðarins og fyrirtækja
hans (hitaveita, vatnsveita).
Umsóknir sendist undirrituðum fyrir 25.
janúar nk., sem veitir allar nánari upplýs-
ingar.
Bæjarstjórinn á Sauðárkróki.
Gróðurhús til leigu
Til leigu (eða sölu) 1100-1400 ferm. í gróðurhúsum að Frið-
heimum, Biskupstungum.
Upplýsingar á staðnum.
Njáll Þóroddsson.
kvæmdastjórn sýningarinnar,
sem nefnist Islandia 73, auglýst
eftir umsóknum um þátttöku i
samkeppnisdeild sýningarinnar.
Eiga umsóknir að hafa borizt
fyrir 1. marz næst komandi.
Verður samkeppnisdeildinni
skipt i eftirtalda flokka: 1.
heildarsöfn islenzkra frimerkja,
2.söfn islenzkra frimerkja frá þvi
fyrir 1900, 3. söfn islenzkra
frimerkja frá siðustu aldamótum,
4. sérsöfn og rannsóknarsöfn, 5.
tegundasöfn, 6. æskulýðssöfn.
Þá hefur sýningarnefndin látið
gera sérstakt merki fyrir
sýninguna hjá Auglýsinga-
stofunni h.f. Gisli B. Björnsson.
(teiknari Edda Sigurðardóttir),
en einnig var leitað til tveggja
annara aðila um tillögur að
merkinu.
Útgerðarmenn
Óskum eftir bát á leigu nú þegar, yfir
komandi vertið. Upplýsingar i sima 52602.
isk i ^
al tl lanti'
Magnús
E. Baldvinsson
Laugavegi 12 - Simi 22804
DANSSKÓLI
Skólinn tekur til starfa mónudaginn 8. janúar
Barnaflokkar — Unglingaflokkar — Flokkar fyrir fullorðna
einstaklinga. — Flokkar fyrir hjón. — Byrjendur og framhald.
Innritun og upplýsingar i eftirtöld-
um simum 20345 og 25224, frá kl. 10-
12 og 1-7 daglega.
Reykjavík
Kópavogur
Seltjarnarnes
Garðahreppur
(4-6 ára)
Hafnarfjörður
(4-6 ára)
DANSKENNARASAMBAND ISLANDS
OOO