Tíminn - 04.01.1973, Qupperneq 16
Enn óráðið,
hvernig metin
Mike Mansfield, leiðtogi
demókrata i öldungadeildinni á
þriðjudaginn.
1 gær ræddust þeir Nixon og
Kissinger við um leynifundina,
sem hefjast eiga i Paris á mánu-
daginn. Þeir töluðust við i tvær
klukkustundir og sagði talsmaður
að ástand mála i Vietnam hefði
verið gaumgæfilega athugað og
yfirfarið.
t fréttum frá Saigon á þriðju-
daginn var sagt, að samkomulag
hefði náðst, en i Washington er
það borið til baka. Enn er allt á
huldu um hvað það var i rauninni,
sem batt enda á viðræðurnar i
Paris fyrir jólin og enn siður er
vitað, hvað leiddi til þess, að
ákveðið var að taka þær upp aftur
nú.
Eyöileggingin
Bandariska varnarmálaráðu-
neytið viðurkenndi að nokkru
leyti á þriðjudaginn, að fréttir frá
Hanoi um að sjúkrahús hafi orðið
fyrir sprengju, væru réttar. Tals-
maður ráðuneytisins lét þó i það
skina, að ekki væri útilokað, að
loftvarnareldflaugar N-Vietnama
sjálfra hefði lent á sjúkrahúsinu.
25 manns létu lifið i sjúkrahús-
inu. Það var sænska sendiráðið i
Hanoi, sem lét fréttina út ganga,
og hafði talsmaður varnarmála-
ráðuneytisins áður sagt, að hún
væri aðeins áróðursbragð. Þá
sagði hann nú, að einnig gæti ver-
ið, að sprengjur hefði fallið á flug-
völl einn, sem aðeins er notaður
til venjulegs farþegaflugs. Loks
sagði talsmaðurinn að
Bandarikjamönnum þætti ákaf-
lega fyrir slikum óhöppum og nú
væri unnið að fjársöfnun i
Bandarikjunum til að endurreisa
sjúkrahúsið.
Árásir i gær
Um 125 bandariskar flugvélar,
þar af yfir 40 B-52 vélar, gerðu i
gær miklar loftárásir á svæði
sunnan 20. breiddarbaugs, þrátt
fyrir monsúnregn og litla skýja-
hæð.
Skæruliðahópar hafa nú að nýju
tekið upp þá aðferð sina'að loka
þjóðvegum til Saigon.
t gærmorgun var sprengd brú á
þjóðvegi 4, á milli Mekong-
óshólmanna og Saigon. Einnig
var flotbrú á annarri leið
sprengd. Við þessar aðgerðir
seinkaði flutningum hergagna til
og frá Saigon talsvert.
Fimmta tilraunin
heppnaðist
- og Nýjabæjarhjón fengu síðbúna
jólagesti
SB—Beykjavik.
Siðan nokkru fyrir jól hafa ver-
ið gerðar einar fimm tilraunir til
aö heimsækja hjónin i Nýjabæ,
þau Guðrúnu Sigurðardóttur og
Þorstein Ingv'arsson, sem þar
dvelja við veðurathuganir.
Reyndar heppnaðist fimmta til-
raunin og voru það tveir félagar
úr flugbjörgunarsveit Akureyrar,
sem fóru á þriöjudaginn inn úr
Eyjafirði, Vatnahjallaveginn
gamla á tveimur snjóslcðum og
gckk vel.
Baldur Sigurðsson, hinn kunni
fjallamaöur hefur tvisvar reynt
að fara á „snjókettinum” sinum
fram að Nýjabæ, en orðið að snúa
aftur. Hann fór um öxnadal og
ætlaði siðan suður öxnadalsheiði.
1 fyrra skiptið var veðrið of slæmt
til ferðalaga, en i siðari ferðinni,
milli jóla og nýárs, varð bilun i
„kettinum”. Flugbjörgunar-
sveitarmenn reyndu fyrir jólin,
og fóru þá fram úr Eyjafirði, en
urðu að snúa aftur vegna tima-
skorts og snjóleysis. Þá munu
einhverjir sunnanmenn hafa gert
árangurslausa tilraun.
Félagarnir, sem komust upp-
eftir á þriðjudaginn, voru á
tveimur vélsleðum og gekk þeim
prýðisvel. Þeir gistu i Nýjabæ og
komu aftur til Akureyrar i gær.
Haft er eftir þeim, að allt gott sé
að frétta þar ofan að og Guðrún
og Þorsteinn séu mjög ánægð með
vistina. Það eina, sem þau kvarta
svolitið yfir, er að fá ekki póst og
blöð.
Baldur Sigurðsson sagði
Timanum i gær, að nú væri
hægðarleikur að komast á
skömmum tima til Nýjabæjar, ef
eitthvað bjátaði á þar. Bezt væri
að fara öxnadalsleiðina, þvi þar
væri öruggur snjór, fram i júni-
júli, en minna væri um hann i
Eyjafirðinum. Bezt væri þó að
gera vegaspotta frá Hólsgerði og
upp að snjó, þannig að hægt væri
að aka snjósleðunum á bilum
langleiðina.
Snjóflóð
lokaði
Múlavegi
BS-Ólafsfirði
Hér höfðum við bjart og gott
veður yfir öll jólin og allir vegir
voru ágætlega greiðfærir. Það
var fyrst seint á annan i nýári, að
það gerði dálitla logndrifu og féil
þá smá snjóflóö á veginn, fyrir
Ólafsfjarðarmúla, sem stöðvaði
alla umferð. Var þetta mokað i
gær og opnaðist vegurinn til um-
fcrðar um hádegisbiiið.
A annan i jólum, hélt Karlakór
Ólafsfjarðar fjölbreytta söng-
skemmtun i félagsheimilinu
Tjarnarborg við ágæta aðsókn og
undirtektir. Stjórnandi kórsins
var Frank Herlufsen, tónlistar-
kennari. Milli jóla og nýárs buðu
slysavarnarfélögin eldri og yngri
börnum til jólatrésfagnaðar i
Tjarnarborg. A nýársnótt efndi
iþróttafélagið Leiftur til hins ár-
lega áramóta dansleiks i
Tjarnarborg. Var hann mjög vel
sóttur, og fór hið bezta fram.
Um klukkan 20 á gamlárskvöld
var kveikt hér i fimm bálköstum,
viðs vegar kringum bæinn. Er
þetta, að áliti manna,sú mesta
viðhöfn, sem hér' hefur verið
viðhöfð við að kveðja gamla árið.
Var aðal- og stærsta brennan
vestur við ósinn og stóðu fjórðu
bekkingar gagnfræðaskólans
fyrir henni. Þá komu skátar upp
raflýstu ártali i f jallshliðinni fyrir
ofan bæinn. Mynduðu sjötiu og
fjögur ljós ártalið 1972, og skein
það fagurlega við bæjarbúum til
miðnættis, en þá var tveimur
breytt i þrjá. Blasti þá hið nýja
ártal 1973 við sjónum manna til
morguns.
Tveir netabátar, Anna og Arni,
létu net sin liggja i sjó yfir jólin.
Fengum við þvi nýjan fisk á milli
jóla og nýárs. Annars hefur afli
verið afar tregur, mest fjórar
smálestir i lögn, þegar bezt hefur
látið. Togveiðiskip ölafsfirðinga
eru að hefja veiðar á ný, eftir
jólafriið. Hélt Sigurbjörg út i
fyrrinótt, en Sæþór fer i dag.
Tveir slösuðust
Tveir menn slösuðust i hörðum
árekstri i Reykjavik i gær, en
hvorugur lifshættulega.
Um kl. 4 ók vörubill i veg fyrir
fólksbil á mótum Borgartúns og
Lækjarteigs. Farþegi og öku-
maður fólksbilsins slösuðust tals-
vert, en verið var að rannsaka
meiðsl þeirra og gera að þeim i
gærkvöldi.
80 SKIP Á LOÐNU
— búizt víð loðnunni snemma
ÞÓ—Reykjavik.
Gert er ráð fyrir, að allt að 80
skip komi til með að stunda
loðnuveiðar á komandi loðnuver-
tið, en á siðustu loðnuvertið voru
loðnubátarnir 58 þegar þeir voru
flestir. — A komandi vertið, er
gert er ráð fyrir að svipaður fjöldi
nótabáta stundi veiðarnar, og i
fyrra, en við bætast mörg eldri
skip, sem hugsa sér að stunda
veðarnar með loðnutrolli. Nú
þegar eru 25 skip búin, að sækja
um loðnuveiðar með loðnutrolli,
en til þeirra veiða þarf sérstakt
leyfi. Meðal þeirra eru skip, sem
geta stundað loðnuveiðar jöfnum
höndum með nót og trolli eins og
Eldborg GK og Börkur NK. Að
minnsta kosti einn togari er búinn
að sækja um leyfi til loðnuveiða
með trolli, en það er Júpiter, sem
er 800 tonn að stærð. Þá hefur
heyrzt að sótt verði um leyfi fyrir
togarann Haukanes frá Hafnar-
firði, en um þessar mundir er
verið að setja nýja 2400 hestafla
vél i skipið og á það að vera tilbú-
ið til veiða um næstu mánaðamót.
Þessir tveir togarar eru þó ekki
stærstu skipin, sem stunda loðnu-
veiðarnar. Stærsta skipið, sem
þær stundar i vetur er Börkur NK
122, eign Sildarvinnslunnar i
Neskaupstað, en Börkur er 1016
lestir að stærð, smiðaður i Noregi
á fjórum árum, og er skipið
væntanlegt til heimahafnar sinn-
ar Neskaupstaðar seinni hluta
janúarmánaðar.
Skýrslur frá skip-
stjórunum
— A þeim árum, sem sildin
veiddist gáfu skipstjórar sild-
veiðibátanna upplýsingar um
veiddan afla til sildarleitarstöðv-
anna á Dalatanga, á Raufarhöfn
og á Siglufirði, og með þessum
upplýsingum fengum við fiski-
fræðingar ýmsar merkilegar
upplýsingar i sambandi við fiski-
föngur, hvernig veiðarnar gengu
fyrir sig, og hvernig aldursflokk-
arnir gengu. „Aðstaða, sem
þessi, hefur ekki verið fyrir hendi
fram að þessu i sambandi við
loðnuveiðarnar, svo að ég brá á
það ráð að senda skipstjórnar-
mönnum tiltölulega einfalt eyðu-
blað til útfyllingar, þar sem beðið
er um dagsetningu, veiðistað,
aflamagn og hve mikið hefur
fengist i hverju kasti og sitthvað
fleira, sem mönnum þætti at-
hugavert”, sagði Hjálmar
Vilhjálmsson, fiskifræðingur er
við ræddum við hann, en Hjálmar
hefur nú nýverið sent skipstjórum
á loðnubátum þessi eyðublöð.
Hjálmar sagði, að vonast væri
til, að skipstjórar brygðust vel
viö, þvi að þessar upplýsingar
gætu komið að mjög góðu gagni.
Fram til þessa hefur gengið dálit-
ið erfiðlega að henda reiður á
aflabrögðin og hvernig þau hafa
gengið fyrir sig, þar sem tilfærsl-
ur á veiðisvæðum eru örar á
Frh. á bls. 15 '
verða jöfnuð
Akvöröun hefur verið tekin um
framlag rikissjóðs i
verðjöfnunarsjóð sjávarút-
vegsins og niðurfellingu launa-
skatts af tekjum sjómanna.
Timinn snéri sér i gær til Halldórs
E. Sigurðssonar fjármálaráö-
herra og spurði hann, hversu
mikils rikissjóður missti við
þessa ákvörðun.
Fjármálaráðherra kvað hér
vera um 80-100 milljónir að ræöa,
og heföi ekki enn verið ákveðið,
hvernig rikissjóði yrði bætt þessi
tekjuskerðing.
Maðurinn
ófundinn
eftir ákvörðun
verðlagsráðs
ÞÓ-Reykjavik
Til stóð, að verð á hinum
einstöku fisktegundum yrði til-
búið siðari hluta dags i gær. Svo
fór ekki og ekki var reiknað me&
að verð á hinum einstöku fisk-
tegundum yrði tilbúið fyrr en i
dag. Yfirnefnd verðlagsráðs
sjávarútvegsins sat á fundi i
allan gærdag og ræddi um verö á
hinum ýmsu tegundum, en sem
kunnugt er. þá á fiskverðið að
hækka um niu prósent að meðal-
tali frá 1. janúar, en hækkanir á
hinum ýmsu fisktegundum munu
verða mjög mismunandi.
NTB—Washington.
Bandariska þingið kom saman i
Washington i gær og setti þróun
mála i Vietnam undanfarið svip á
samkomuna. Þingmenn virtust
greinilega hafa hug á að binda
endi á styrjöldina með löggjöf, ef
Nixon finnur ekki lausn innan
skamms. Talsmenn stjórnarinn-
ar gengu fram i að vara þing-
menn við þvi, að álita að leynivið-
ræður þær, sem nú eru að hefjast i
Paris, beri skjótan árangur.
Þrátt fyrir yfirburðasigur sinn i
forsetakosningunum, stendur
Nixon nú frammi fyrir alvarleg-
um ágreiningi við þingið, þar sem
meirihlutinn eru demókratar.
Þar ber hæst styrjöldina i Viet-
nam, en hætt er við ágreiningi
einnig á mörgum öðrum sviðum.
— Við getum ekki náð sáttum á
öðrum sviðum, fyrr en lausn er
fundin varðandi Vietnam, sagði
SB-Reykjavik
Sextugur maður, Erlendur
Jónsson, Suöurgötu 40, á Siglu-
firöi, fór að heiman frá sér á ný-
árskvöld um hálf tiu leytið. Ekki
var vitað, hvert hann ætlaði, en
hann hefur ekki sézt siðan. Leit
var hafin um bæinn og nágrennið
og i gær voru gengnar fjörur og
slætt með bryggjum, en án
árangurs.
Erlendur var kvæntur og á
hann uppkomin börn.
Enn beðið
Þctta eru hlutar af flaki Tristar-þotunnar, sem fórst I fenjunum suður af Miami i Flórida aðfaranótt
laugardagsins i fyrri viku. Með vélinni fórust 98 manns af 174, sem meö henni voru. Ekki er enn vitað
um orsakir slyssins.
Nixon í klemmu á þinginu
- Meirihlutinn vill stöðva stríðið með löggjöf
Fimmtudagur 4. janúar 1973