Tíminn - 06.02.1973, Blaðsíða 8

Tíminn - 06.02.1973, Blaðsíða 8
8 TÍMINN Þriöjudagur 6. febrúar 1973. ALÞINGI Umsjón: Elías Snæland Jónsson Ólafur Jóhannesson, forsætisráðherra: Viðurkennum ekki dómstóllinn hafi Miklar umræður utan dagskrár á þingi um fréttaskýringar að Haag- lögsögu Gunnars Thoroddsens í útvarpi Verulegar umræður urðu utan dagskrár á alþingi i gær um fréttaskýringar Gunnars Thoroddsens i rikisútvarpinu á föstudagskvöldið, og um úrskurð Alþjóðadómstólsins i Haag varðandi lögsögu dóm- stólsins i landhelgismálinu. í umræðunum lagði Ólafur Jóhannesson, forsætisráðherra, áherzlu á, að unnið hefði verið að málinu á grundvelli samþykktar Alþingis frá 15. febrúar siðastliðnum, og yrði svo áfram. Ef íslendingar sendu fulltrúa til Haag til að flytja þar mál íslendinga, gæti það túlk- azt sem viðurkenning á þvi, að samningarnir frá 1961 væru enn i gildi, og að íslendingar væru skuld- bundnir til að hlita niðurstöðu dómstólsins. Jónas Arnason (AB) kvaddi sér hljóðs utan dagskrár i neðri deild. Sagði hann, aö á föstudagskvöld hefði birzt i hljóðvarpi og sjónvarpi ávarp i tilefni af úr- skurði Haag- dómstólsins um lögsögu dóm- stólsins i máli þvi, sem Bretar og V-Þjóöverjar hafa höfðað á hendur Islendingum. Dómsúr- skurðurinn hefði ekki komið á óvart, þvi tslendingar hafi alltaf vitað, að ekki væri von á öðru úr þeirri átt. Ekki heföi verið óeðlilegt, að fréttastofur rikisútvarpsins leit- uðu álits forystumanna þjóðar- innar á dómsúrskurðinum. Þetta var ekki gert, heldur fenginn óbreyttur alþingismaður, sem að visu hefði kennt þjóðarrétt um skamman tima. Ef leitað hefði veriðtil hans sem þjóðréttarfræð- ings, þá hefði verið eðlilegra að leita til annars manns, sem kennt hefði þá grein fjórum sinnum lengur en umræddur þingmaður, og það þeim mun frekar, sem sá maður væri einnig forsætisráð- herra landsins. Eðlilegt hefði ver- iö að kveöja hann fyrstan til i útvarp — og ef hann hefði ekki getað komið, þá einhvern annan ráðherra. Þetta hefði ekki verið gert, heldur leitaö til Gunnars Thor- oddsens, alþingismanns. Það væri þó lftið hneyksli, að leitað heföi verið til Gunnars, miöað við það, hvað fólst i boö- skap hans, sagði þingmaðurinn. Stuttur fundur var i efri deild Alþingis i gær, og var frumvarpið um meðferð opin- berra mála afgreitt til 3. um- ræðu, en frumvarpið um rann- sóknir i þágu atvinnuveganna afgreitt til neðri deildar. 1 neðri deild fór mestur fundartiminn i umræður utan dagskrár, en siðan var frum- varpið um Húsafriðunarsjóð afgreitt til 2. umræðu og nefndar. Þingflokkarnir héldu siðan fundi siðdegis i gær og ræddu um ráðstafanir vegna jarðeld- anna i Vestmannaeyjum, en frumvarp þar að lútandi verður væntanlega afgreitt i vikunni. — Megininntak boðskaparins var, að tslendingar ættu, þvert gegn stefnu rikisstjórnar og Alþingis, að hlita niðurstööu dómstólsins i málinu bæði nú og við endanlega afgreiðslu málsins. Þingmaðurinn kvaðst krefjast þess, að af rlkisstjórnarinnar hálfu væri þessi boöskapur for- dæmdur. Gunnar Thoroddsen hefði byggt málflutning sinn á samningunum frá 1961, sem Haag-dómstóllinn byggði einnig á. Núverandi rikisstjórn hefði enga ábyrgðá þeim samningi, og hefur formlega sagt honum upp. Hann er þvi úr sögunni. Tilraun- um til þess að leggja ábyrgð á þeim smánarsamningi á íslenzku rikisstjórnina eða islenzku þjóð- ina yrði að svara með hinum fornu orðum: ,,Ber þú sjálfur fjanda þann”! Ölafur Jóhann- esson, forsætis- ráðherra, sagð- ist ekki ætla að ræða umrædd- a fréttaskýr- i ngu, e nd a heyrðu málefni rikisútvarpsins undir annan ráðherra, og þvi eðlilegra að hann svaraði þvi. Hins vegar vildi hann svara fyrirspurn þingmannsins varðandi af- stöðu rikisstjórnarinnar til hug- leiðinga Gunnars Thoroddsens um málflutning fyrir Haag-dóm- stólnum af hálfu tslendinga. 1 þvi efni myndi stjórnin enn sem fyrr fara eftir samþykktum Alþingis. Alþingi hefði samþykkt það einróma 15. febrúar 1972, að samningarnir frá 1961 heföu þjón- að tilgangi sinum, og Islendingar væru þvi ekki lengur við þá bundnir. Unnið yrði áfram að málinu á þeim grundvelli. Ljóst væri, að ef Islendingar mættu nú fyrir dómstólnum, þá mætti túlka það sem viðurkenningu á þvi, að samningarnir frá 1961 væru enn i gildi, og að Islendingar væru þar með bundnir af efnisdómi, sem upp yrði kveðinn. Stefna rikisstjórnarinnar væri þvi skýr og einföld. A henni verður ekki breyting meðan Alþingi breytir ekki fyrri ákvörð- unum. Um dómsúrskurðinn sagði for- sætisráðherra, að hann gæti ekki komið á óvart. Hann hefði ávallt talið, að dómstólnum hefði borið skylda til að ákveða fyrst um lög- sögu sina i málinu áður en bráða- birgðaúrskurðurinn var gefinn út. Hann teldi, að dóminum bæri skylda til sliks, þegar annar aðil- inn mætti ekki. Eftir bráða- birgðaúrskurðinn hefði engum getað dottið i hug, að lögsöguúr- skurðurinn færi á annan veg, þvi annars hefðu dómendur orðið að éta ofan i sig fyrri úrskurðinn. Ráðherrann sagði að lokum, að öll sjónarmið Islendinga hefðu Jafnframt spurði hann, hvort þvi hefði verið mótmælt sérstaklega, að skip undir Liberiu-fána aðstoð- aði landhelgisbrjóta við Island. ólafur Jóhannesson sagði, að utanrikisráðherra gæti svarað þessum fyrirspurn betur siðar. Hins vegar vildi hann láta koma fram, að rikisstjórnin hefði ráðg- azt við þær þjóðir, sem hefðu stærri lögsögu en 12 milur, og væri reynt að hafa samband við þær eftir getu. Það væri vissulega rétt, að efnisdómur gæti haft þýð- ingu fyrir fjölmargar þjóðir. Þá taldi hann sjálfsagt að mót- mæla Llberlufánanum, ef það hefði þá ekki þegar verið gert. legið fyrir dómstólnum og eins mótmæli gegn þvi, að dómstóllinn hefði lögsögu i málinu og rök fyrir þvi, að samningnum frá 1961 hefði verið sagt upp. væri undarlegt sjónarmið, að þegar um stórmál sem þetta væri að ræða, ætti það að fara eftir þvi, hvort tiltekinn þingmaður væri i þingsalnum, hvort ræða ætti mál- iöeða ekki. Lýsti hann tilraunum sinum til að tilkynna þingmann- inum, að hann myndi taka til máls utan dagskrár, og sagðist ekki lita svo stórt á umræddan þingmann, að umræður um stór- mál þyrftu aö biða þess, að hon- um þóknaðist að koma i þingsal- inn. Þá sagði hann, aö um svipað leyti i fyrra heföu forystumenn beggja stjórnarandstöðuflokk- anna gagnrýnt harðlega úr sama ræðustóli þingmann, sem þá var fjarstaddur og á hafi úti. Þá hefði ekki þurft að biða þess, að þing- maður væri viðstaddur til að svara fyrir sig. Matthias A. Mathiesen (S) kvaðst furða sig á þvi, aö Jónas Arnason hefði hafið hér deilur á Gunnar Thor- oddsen án þess að láta hann vita af þvi fyrir- fram, eð hann hygðist bera upp slikar athugasemdir utan dagskrár. Þingmaðurinn væri ekki mættur, en vera kynni, að hann hefði lögleg forföll. Þessar umræður utan dagskrár væru þvi mjög óvenjulegar. Þingmaðurinn taldi, að ekki hefði verið gengið framhjá rikis- stjórninni þótt útvarpið hefði leit- að til prófessors við Háskóla Is- lands af þessu tilefni. Jónas væri meö ræðu sinni að senda f jölmiðl- um boð um, að þaö, sem þarna hefði gerzt, væri honum ekki að skapi. Jónas Arnason sagöi, að það Benedikt Gröndal (A) sagði, að dóms- úrskurðurinn væri mjög þýð- ingarmikill at- burður i land- helgismálinu. Hvað gerðist svo þegar al- þingi kæmi saman til fyrsta fundar eftir uppkvaðningu dóms- ins? Jú, þingmenn væru i háa rifrildi um það, hver hefði talað um hvað i útvarpi? Hvilik reisn! Þingmaðurinn taldi nauðsyn- legt, að Alþingi ræddi dómsúr- skurðinn itarlega þegar rikis- stjórninni hefði borizt dómurinn og forsendur hans. Loks varpaði hann fram þeirri athugasemd, hvort nú væri ekki timabært að hafa samband við þær þjóðir, sem hefðu meira en 50 milna lögsögu, þar sem ljóst væri, að efnisdómur i málinu gæti haft fordæmi og komið við hagsmuni mun fleiri þjóða en Islendinga. DEILT UM SOLU- SKATT AF GJAFAFÉ — Við Slétthreppingar hér á Isafirði héldum þorrablót 3. febrúar og ætluðum aö gefa allt, sem inn kom, rösklega þrjátiu þúsund krónur, til Slétthrepp- inga, sem áttu heima I Vest- mannaeyjum, sagði Jón Gunnarsson á Isafiröi, er hringdi til blaðsins i gær. En nú eigum viö i deilu við fjármálaráöuneytið vegna þess, að við viljum fá undanþágu frá söluskatti. Full- trúinn, sem við áttum tal við, vildi ekki veita þessa undanþágu, en við hverfum frá þessari ákvörðun okkar, ef við fáum ekki undanþáguna. — Það er rétt, að þessa var fariðá leit við okkur, sagöi Ólafur Stefánsson, fulltrúi i fjármála- ráðuneytinu, og ég veitti afsvar. Það er vegna fordæmisins, sem við getum ekki oröið viö bón Slétt- hreppinga vestra. Við höfum enga aðstöðu til þess að sann- reyna, hvort skemmtanir væru haldnar i góðgerðaskyni, ef slikar undanþágur færu að tiökast. Með þvi eru auðvitað ekki neinar brigður bornar á það, hvað Slétt- hreppingarnir fyrir vestan ætla að gera við þessa peninga. Þetta er bara ekki jafnauðvelt i fram- kvæmd og virðast kann að óat- huguðu máli. 10 TOGARAR HAFA STÖÐVAST — sdttafundur d morgun Þó—Reykjavik Tiu togarar höfðu stöövazt I gær vcgna vcrkfalls undirmanna á togurunuin, og ef verkfallið lcysist ckki bráðiega, cr sú hætta fyrir hendiiað allur togaraflotinn stöðvist á næstu dögum. Jón Sigurðsson, forntaður Sjó- mannasambands tslands, sagði i gær, að sáttasemjari væri búinn að boða fund með deiluaðilum á morgun, miðvikudag, kiukkan tvö. Hann sagði ennfremur, að þó að miðað hefði i samkomulagsátt, væri enn gjá eftir, sem þyrfti að brúa. Lúðvik Jósefs- son, sjávarút- vegsráðherra, kvaðst vilja taka undir það, að umrædd fréttaskýring hafi verið I hæsta máta óviðeigandi, og bæri þvi að mótmæla henni. Yfirlýsingar Gunnars hefðu verið i fullkominni andstöðu við yfir- lýsta stefnu Islendinga I land- helgismálinu. Þar hafi þvl verið haldið fram, að Islendingar væru skuldbundnir til að hlita niður- stöðu Haag-dómstólsins vegna þátttöku okkar I Sameinuðu þjóð- unum. Þetta hefðu auðvitað átt að koma fram i umræddri frétta- skýringu. Taldi ráðherrann furðulegt, að nú skuli koma fram raddir um að vikja frá markaðri stefnu varð- andi samningana frá 1961. Jóhann Haf- stein (S) kvaðst nýkominn i sal- inn, og þvi ekki hafa heyrt um- ræðurnar. Hins vegar taldi hann, að ekki væri fært að ræða um dóms- úrskurðinn fyrr en rikisstjórnin hefði fengið hann i hendur og málið verið rætt I landhelgis- nefndinni og utanrikismálanefnd. Lagði hann áherzlu á, að þing- menn hefðu reynt til hins itrasta, og lagt oft á sig mikið erfiði i þvi sambandi, að ná samstöðu i land- helgismálinu, og hlotið fyrir þakkir þjóðarinnar. Vildi hann þvi aö þingmenn reyndu. að forð- ast deilur á Alþingi um málið. Jón H. Fjalldal níræður Einn hinn þekktasti og sérstæö asti maður i islenzkri bændastétt, Jón H. Fjalldal, er níræður i dag. Jón H. Fjalldal bjó sem kunnugt er lengi á Melgraseyri á Langa- dalsströnd og átti af mikilli ósér- plægni hlut að margvislegum framfaramálum. Hin siðari ár hefur hann dvalizt i Reykjavik.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.