Tíminn - 06.02.1973, Blaðsíða 15

Tíminn - 06.02.1973, Blaðsíða 15
Þriðjudagur 6. febrúar 1973. TÍMINN 15 Umsión: Alfreð Þorsteinssoni EKKERT TILLIT TEKIÐ TIL PRESSULEIKSINS — óbreytt landslið niðurstaða landsliðsnefndar Óbreytt landslið frá pressuleiknum! Það var niðurstaða landsliðs- nefndar, þegar hún valdi landsliðið, sem mætir Grúsiumönnum n.k. fimmtudag. Varla verður nefndin sökuð um aðvera frumleg.Eitt er vist, að ekki eru allir jafnánægðir með valið. Ekki svo að skilja, að búizt hafi verið við stór- kostlegum breytingum frá pressuleiknum, en það var þó búizt við, að landsliðsnefnd gerði eina til tvær breytingar og tæki með þvi tillit til úrslita leiksins. En það hefur hún sem sagt ekki gert, og má furðulegt teljast, að hún skulitreysta séraðganga t.d. framhjá Ólafi Benediktssyni, markverði, sem allir voru sam- mála um, að hefði staðið sig mjög vel i leiknum og „leikið” sig inn i landslið. Hvers á Ólafur að gjalda? E.t.v. hefur landsliðs- nefnd skýringar á reiðum hönd- um — og væri gaman að fá þær. En nóg um það i bili. Landsliðið litur þannig út: Markverðir: Hjarti Einarsson, FH. Birgir Finnbogason, FH. Aðrir leikmenn: Geir Hallsteinsson, FH Auðunn Óskarsson, FH Sigurbergur Sigsteinsson, Fram Björgvin Björgvinsson, Fram Axel Axelsson, Fram Agúst ögmundsson, Val Gunnsteinn Skúlason, Val Ólafur H. Jónsson, Val Einar Magnússon, Vikingi Guðjón Magnússon, Vikingi Grúsiumenn munu leika tvo leiki hér á landi, þann fyrri á fimmtudagskvöld kl. 20.30, en sið- Hvers á ólafur Ben. að gjalda? ari leikurinn fer fram á laugardag kl. 15. __aif Heimsfrægir lyftingamenn koma! Alf—Reykjavik. — Siðar i þessum mánuði eru væntanlegir til Islands nokkrir heimsþekktir lyftingamenn, sem taka munu þátt i alþjóðlegu lyftingamóti i Laugardalshöllinni ásamt beztu lyftingamönnum íslands. Meðal hinna erlendu gesta verður Leif Jensen, ný- bakaður Olympiumeistari i Taka þátt í alþjóðlegu lyftingamóti í Laugar- dalshöll með beztu lyftingamönnum landsins léttþungavigt, en hann er jafn- framt heimsmeistari og Evrópumeistari i þessum þyngdarflokki. Auk hans koma ýmsir þekktir kappar, sem ýmist stóðu sig mjög vel á Olympiuleikunum i Munchen, eða hafa að baki glæsilegan feril. Má i þvi sambandi nefna Hans Bettenbopgfrá Sviþjóð, sem hlaut bronzverðlaun i milliþungavigt I Miinchen og Evind Rekustad frá Noregi, fyrrum heimsmethafa. IR-liðið hefur aldrei Akveðið hefur verið, að al- þjóðlega lyftingamótið fari fram i Laugardalshöllinni föstudaginn 23. febrúar, en meðal þátttakenda verða allir beztu lyftingamenn landsins, þ.á.m. Gústaf Agnarsson, Óskar Sigurpálsson og Guð- mundur Sigurðsson, sem keppir i milliþungavigt gegn Svianum Bettenborg. Koma hinna erlendu lyftingakappa verður án efa mikil lyftistöng fyrir lyftingai- þróttina á Islandi, sem nýtur sivaxandi vinsælda. Nánar verður sagt frá heimsókninni i blaðinu siðar. Er hægt að bjóða upp á þetta ? „Erþetta skripaleikur eöa alvöruleikur” sagði kefl- viskur áhorfandi að fyrsta æfingaleik landsliðsins i knattspyrnu, sem háður var i Keflavik á sunnudaginn, en leiknum lauk með sigri Kefl- vikinga, 3:2. Það var von, að maðurinn spyrði, þvi að það var langur vegur frá, að svokallað landslið, sem boðið var upp á, væri skipað okkar beztu leikmönnum. Til að mynda vakti það alveg sérstaka athygli, að 2. deildar lið FH átti þrjá full- trúa i þessu svokallaða landsliði. Með aBri virðingu fyrir FH og knattspyrnu- mönnum félagsins, verður það að teljast ofrausn að tefla svo mörgum FH-ingum fram i landsliði i knatt- spyrnu, þrátt fyrir, að sterk- ar taugar séu milli fram- kvæmdastjóra KSÍ og FH. Það er engum gerður greiði með vinnubrögðum af þessu tagi, sizt hinum ungu leik- mönnum FH, sem eiga eftir að harðna meira. I stuttu máli gekk leikur- inn þannig fyrir sig, að Guðni Kjartansson skoraði fyrsta mark leiksins fyrir Keflavik. Asgeir Eliasson jafnaði fyrir landsliðið, 1:1. Friðrik Ragnarsson og Jón Ólafur skoruðu sitt markið hvor fyrir Keflavik og var staöan þá orðin 3:1, en siðasta mark leiksins var sjálfsmark og lauk leiknum 3:2 Framhald á bls. 19 verið eins gott og nú — Anton Bjarnason sýndi fróbæran leik, þegar liðið vann Ármann 91:74. Hann stjórnaði liðinu í sókn og vörn. Þrír leikir leiknir ó Nesinu um helgina, og einn ó Akureyri. IR-liðið i körfuknattleik hefur aldrei verið eins gott og það er i dag. A sunnudaginn vann liðið Armann • léttilega 91:74. Anton Bjarnason lék mjög vel og var hann maðurinn á bak við flestar sóknarlotur liðsins og batt vörn- ina saman. Birgir Jakobsson lék aftur með IR-liðinu eftir stutta fjarveru. Hann átti þokkalegan leik, en er greinilega ekki kominn i æfingu. Liðið sýndi snilldarleik i fyrri hálfleiknum gegn Armanni, þá var vörn liðsins sterk og sókn- arleikurinn oft á tiðum stór- skemmtilegur. Staðan I hálfleik var 49:23 fyrir ÍR. Leikurinn jafnaðist i siðari hálfleik og Valsmenn fóru að sækja i sig veörið undir lokin. Þá voru IR-ingar farnir að slá slöku viö og varaliðið var nær allt inni á. Þegar 7 min. voru til leiksloka, var staðan 78:42 fyrir tR, en leiknum lauk með sigri tR 91:74. Stigahæstir hjá tR, voru: Krist- inn Jörundsson 27, Agnar Frið- riksson 17, Anton 13 og Einar Sig- fússon 12 stig. Valsliðið án Þóris mátti þola tap gegn HSK 70:61 HSK tryggöi sér tvö dýrmæt stig, þegar liðið mætti Val á sunnudagskvöldið. Valsliðiö án Þóris Magnússonar, sem að öll- um likindum leikur ekki meira með liðinu i vetur vegna meiðsla — hásinar slitnar i fæti, náði ekki að sigra HSK i leik liðanna, sem var nokkuö jafn til að byrja með. Staðan i hálfleik var 34:31 fyrir HSK, en þegar siðari hálfleikur var hálfnaður, tóku leikmenn mikinn fjörkipp og breyttu stöð- unni úr 46:45 i 56:45 með þvi að skora tiu stig i röð. Stigin skoruðu þeir Ólafur Jó- hannsson, Jón óskarsson, fjögur hvor, og Þröstur Guð- mundsson tvö. Þessi sprettur réöi úrslitum og lauk leiknum meö góðum sigri HSK 70:61. Stigahæstir hjá HSK voru: Olafur Jóhannsson 20, en hann er nú byrjaður aö leika aftur meö lið- inu, lék meö liðinu i fyrra, Bjarni Þorkelsson skoraði 15 stig. Stefán Bjarnason skoraöi flest stig fyrir Val, eöa 16, Kári Maris- son skoraði 14. Stúdentar skoruðu yfir 100 stig gegn Njarðvik. Stúdentar unnu Njarðvik 102:92 i leik stiganna. Njarðvikihgar leiddu nær allan leikinn og i fyrri hálfleik mátti sjá tölur eins og 14:6,19:9 og 46:37. Staðan i hálf- leik var svo 54:51. Þegar Njarð- vikingar höfðu yfir 71:70 og niu min. til leiksloka, tóku stúdentar mikinn fjörkipp og skoruðu tólf stig i röð og breyttu stöðunni i 82:71. Leiknum lauk 102:92, eins og fyrr segir. Það var mikið skorað i leiknum og ekki á hverjum degi, sem skoruð eru nær 200 stig. Jón Indriðason var stigahæstur hjá 1S, með 19 stig, Stefán Hallgrimsson skoraði 18 stig, Gunnar Þorvarðarson var stigahæstur hjá Njarðvik, hann skoraði 23 stig. KR-ingar i erfiðleikum með Þór i fyrri hálfleik. KR-ingar heimsóttu Akureyri um helgina og léku gegn Þór i tþróttaksemmunni. Fyrirfram hafði verið búizt við léttum sigri KR-ingar, en raunin varö sú, að þeir áttu i talsverðum erfiðleik- um með hið vængbrotna Þórs-lið, sem orðið hefur að sjá af mörgum góðum leikmönnum. Sérstaklega gekk KR-ingum illa i fyrri hálf- leik, en þá hélzt leikurinn mjög jafn. I byrjun siðari hálfleiks náðu KR-ingar með Guttorm, Gunnar G. og Ólaf Finnsson i broddi fylk- ingar góðum leikkafla og á örstuttum tima breyttist staðan úr 45:40 i 67:44. Eftir það var sigur KR aldrei i hættu, en loka- tökur leiksins urðu 85:61. Guttormur Ólafsson, fyrrum þjálfari og leikmaöur Þórs, þekkti sina „heimamenn” greini- lega og vissi, hvar þeir voru veik astir fyrir. Hann varð stiga- hæstur KR-inga, skoraöi 18 stig. Birgir Guðbj. sýndi prýðisleik og skoraði 17 stig, en næstir komu Gunnar og Ólafur meö 14 stig hvor og Kristinn Stefánsson með 10 stig. Þórs-liðið er ekki eins sterkt nú og áður og kemur það raunar engum á óvart, þvi að liðið hefur orðið að þola mikla blóðtöku und- anfarið. Liðið samanstendur þó af mörgum góðum einstaklingum og langmesta athygli vakti Jón Páls- son, sem skoraði 28 stig, en hann varð einnig mjög stigahár, þegar hann lék gegn tR á dögunum. Eyþór skoraði 12 stig og Pétur 10 stig. Hér á myndinni sést Kolbeinn Kristinsson, hinn ungi og efnilegi tR- ingur, senda knöttinn í körfuna hjá Ármanni. (Timamynd Gunnar)

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.