Tíminn - 06.02.1973, Page 17

Tíminn - 06.02.1973, Page 17
Þriöjudagur 6. febrúar 1973. TÍMINN ______________________________17 KR-ingar áttu aldrei möguleika gegn FH — sitja nú d botninum í 1. deild með aðeins eitt stig Þá kom að þvf, að FH-liðið vann leik i 1. deildarkeppninni i hand- knattleik með miklum mun. Það voru KR-ingar, sem voru fórnar- lömbin hjá FH, þegar liðin mætt- ust i iþróttahúsinu i Hafnarfirði á sunnudagskvöldið. KR-liöið, sem er komið i mikla fallhættu, stóð i FH i byrjun, en i siðari hálfleik opnaðist vörn KR eins og flóðgátt, og FH-ingar sendu knöttinn i net- ið hjá KR með stuttu millibili. Þegar leiknum lauk var staðan orðin 30:19 fyrir FH. Geir Hall- steinsson, Gunnar Einarsson og Viðar Simonarson voru aðal- mennirnir á bak við stórsigur FH, en Gunnar lék sinn bezta leik með FHliðinui vetur, hann sendi knött- inn átta sinnum i KR-markið, eft- ir skcmmtilegar fléttur, sem Geir Hallsteinsson var maðurinn á bak við. Viðari fer fram með hverjum leik og virðist hann vera að kom- ast i sitt gantla landsliðsform. FH-ingar taka fljótlega forustu i leiknum og komast i 4:1, en KR- ingar taka þá góðan sprett og jafna 5:5 um miðjan fyrri hálf- leikinn. Þá skorar Viðar 6:5 og Gunnar Einarsson bætir siðan við þremur mörkum, fyrst 7:5 eftir hraðaupphlaup og siðan 8:5 með landskoti og 9:5 eftir hrapupp- hlaup. Staðan i hálfleik var 11:7. Viðar byrjar að skora tvö mörk fyrir FH i siðari hálfleik og stað- an er 13:7. Þá skora KR-ingar þrjú mörk i röð og minnka mun- inn i 13:10. Eftir það fara FH-ing- ar að ná tökum á leiknum, kom- ust fljótlega i 18:11 og 21:13. KR tekur þá smá fjörkipp og minnkar muninn i 23:18, en i lokasprettin- um skorar FH-liðið sjö mörk gegn einu og lauk leiknum þvi með sigri FH 30:19. Beztir hjá FH voru eins og fyrr segir, þeir Geir, Gunnar og Viðar. Þeir skoruðu 24 mörk og voru aðalmennirnir. Mjög skemmtilegar leikfléttur sáust oft hjá Geir og Gunnari. Viðar lék einnig skemmtilega skoraði með gegnumbrotum, langskotum og skotum eftir hraðupphlaup. Markhæstir hjá FH voru: Geir 9 (2 viti), Gunnar 8, Viðar 7 (1 viti), Ólafur 2, Brigir, Hörður, Árni og Þórarinn, eitt hver. KR-liðið lék mjög lélegan handknattleik og virðist liðið vera dæmt til að falla i.2. deild. Björn Pétursson var frekar dauf- ur i leiknum og veikti það liðið mikið. Eftirtaldir leikmenn, skor- uðu fyrir KR: Haukur 5, Bjarni 4, Þorvarður 3, Björn 3 (2 viti), Björn Blöndal 2, Jakob og Gunn- ar, eitt hvor. Leikinn dæmdu þeir Valur Benediktsson og Óli Ólsen— SOS Haukar af hættusvæðinu: Rósmundur Jónsson, varði þrjú vitaköst gegn Haukum, en það dugði ekki til sigurs. Hér á myndinni sjást Rósmundur og Pétur Bjarnason, þjálfari Vikings. - Zagmestar, einn af beztu handknattleiksmönnum heims, leikur hér með Zagreb, sem kemur hingað í boði KR. | Liðið Eitt sterkasta hand- | knattleikslið | Júgóslaviu, Zagreb, | er væntanlegt hingað | til landsins i boði KR. | Liðið kemur hingað | um miðjan febrúar og | leikur hér fjóra leiki, | gegn Fram, FH, Val, | og landsliðinu. Liðið, | sem er kallað ,,Hvitu | ljónin” i heimalandi | sinu, er mjög gott. | Það er nú fyrir ofan | Partizan i 1. deildar- |keppninni i 1 Júgóslaviu, en eins og leikur fjóra leiki um miðja menn vita, þá er Partizan Evrópu- meistarar i hand- knattleik. Zagreb er ekki með öllu óþekkt, þvi að liðið hefur leikið gegn Fram i alþjóðakeppni i V-Þýzkalandi i desember 1970 — svokallaðri Fair Cup, sem Gummersbach, stendur fyrir árlega. Zagreb vann Fram 13:11 i skemmtilegum leik. Margir af beztu leikmönnum Júgóslaviu leika með liðinu — fyrstan má nefna Zagmestar, sem er einn bezti handknatt- leiksmaður heims. Hann var i fimmta sæti, yfir markhæstu leikmenn HM-keppninnar i Frakklandi 1970, skoraði alls 22 mörk. febrúar | Þegar Fram lék gegn 1 Zagreb I V-Þýzkalandi, fékk = Zagmester ekki að leika, þvi i að hann er i banni i Þýzka- | landi, eftir að hann lék með = þýzku liði. Gerðist hann þá svo = brotlegur, að hann var sendur 1 heim til Júgóslaviu. Réðist i hann þá á Hans Schmidt, ris- = ann fræga og beit hann i and- i litiö og hrækti á hann. Einnig = gerðist hann sekur um að slá | niður dómara. Hann fær ekki = að keppa i Þýzkalandi, vegna i þessara atvika. Zagmestar, sem er snjall I handknattleiksmaður, verður i þvi örugglega i sviðsljósinu, i þegar hann leikur hér með i Zagreb og verður gaman að i vita, hvort hann slái niður, = einn af okkar ágætu dómur- i um. = — SOS. — | Kræktusér í dýrmætt stig gegn Víking Haukar komu heldur betur á óvart, þegar þeir léku gegn Vik- ing á sunnudagskvöldið. Þeir tóku stig af Vikingsliðinu i spennandi leik.sem lauk með jafntefli 21:21. Hauka-liðið tók forustu i leiknum strax i byrjun og liðið var komið með fjögurra marka forustu i fyrri hálfleik, en Vikingur minnk- aði muninn og náði að komast tvisvar yfir I siðari hálfleik 12:13 og 20:21, en Guðmundur Haralds- son jafnaði 21:21 rétt fyrir leiks- lok. Með þessu jafntefli eru Hauk- ar komnir af hættusvæðinu. Ólaf- ur Ólafsson var potturinn og pannan i leik Haukaliðsins. Hann skoraði fjögur mörk, gaf fjórum sinnum á linu og gáfu þær sendingar mörk. Þá spilaði hann Stefán Jónsson oft skemmtilega friann, en Stefán lék sinn bezta leik i vetur, skoraði átta mörk, sum stórgóð með langskotum. Vikingsliðið náði aldrei að sýna sitt rétta andlit, - að fá 21 mark á sig 0g það gegn Haukum, sýmr að vörnin og markvarzlanhefurekki — sem þeir áttu vel skilið verið upp á það bezta. Inná- skiptingar hjá liðinu voru ekki heldur góðar, t.d. sat Stefán Halldórsson fyrir utan allan sið- ari hálfleikinn. En nú skulum við lita á gang leiksins. Haukar ná forustu i leiknum, en Vikingar jafna alltaf. Þegar stað- an er 3:3 taka Haukar góðan sprett og komast i 9:5. Ólafur Ólafsson var maðurinn á bak við þessa góðu byrjun hjá Haukum. Hann skoraði þrjú fyrstu mörkin og átti mikinn þátt I hinum og þótt Vikingar létu mann elta Ólaf, þá skoraði hann. Um miðjan fyrri hálfleikinn er staðan 9:7. Þórir Ivarsson skorar þá 10:7 og siðan kemur þáttur glötuðu vitakast- anna. Fjögur vitaköst fóru þá til spillis, Gunnar Einarsson varði tvö vitaköst, fyrst frá Einari Magnússyni og siðan frá ólafi Friðrikssyni. Rósmundur, mark- vörður Vikings, gerði sér þá litið fyrir og varði tvö vitaköst frá Ólafi Ólafssyni.Fyrri hálfleiknum lauk 11:10 fyrir Hauka og sýnir það hvað liðin voru léleg — þau skoruðu aðeins fimm mörk á sið- ustu 15 min. i hálfleiknum. Siðari hálfleikurinn var mjög jafn, mátti þá sjá tölur eins og 11:11, 12:12, 13:13, 14:14, 15:15, 16:16, 17:17, 18:18, 19:19, 20:20 og 21:21, en þannig lauk leiknum. Ólafur Ólafsson, lék mjög vel og dreif hann upp spilið hjá Haukaliðinu, sem lék sinn bezta leik i vetur. Munaði þar mestu um að Stefán Jónsson, — lék hann vel og samvinna hans og Ólafs, var mjög góð. Þá léku þeir Þórir Ivarsson og Guðmundur Haralds- son, einnig vel. Mörk Hauka i leiknum skoruðu: Stefán 8 (3 GEIR IIALLSTEINSSON lék vel gegn KR. Hann skoraði 9 mörk og samvinna hans og Gunnars Einarssonar, skapaði falleg mörk. viti), Ólafur 4, Guðmundur 4, Þórir 4 og Sigurður, eitt. Vikingsliðið lék undir getu gegn Haukum, má vera, að leikmenn- irnir hafi verið of sigurvissir og vanmetið Hauka. Einar Magnús- son, var markhæstur með 8 (2 viti), mörk. Aðrir, sem skoruðu, voru þessir: Guðjón 5, Viggó 3, Magnús 2, Páll, Stefán og Ólafur, eitt hver. Leikinn dæmdu þeir Einar Hjartarson og Þorvarður Björns- son. —SOS. |lllllllllllllllllllllllllllllillllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllimilllllllllllllllllllliiiillii= I BEIT HANS SCHMIDT I I í ANDLITIÐ 0G SLÓ I I NIÐUR DÓMARA...

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.