Tíminn - 06.02.1973, Blaðsíða 19

Tíminn - 06.02.1973, Blaðsíða 19
Þriðjudagur 6. febrúar 1973. TÍMINN 19 Sjálfboðaliði við húsnæðis- miðlun og lenti sjálfur á götunni með konu og4 börn Það er ekki lítið rask, sem af þvi hefur hlotizt og mun hljótast, aðsex þúsund Vestmannaeyingar voru sviptir heimkynni sínu, að minnsta kosti um stundar sakir, og hafa orðið að leita sér athvarfs annars staðar, eftir þvi sem föng hafa verið á. En þetta rask getur lika bitnaðá öðrum, jafnvel þeim, sem hafa lagt sig i lima við að greiða götu þeirra, sem flúðu undan jarðeldunum. Maður heitir Karl Vernharðs- son, áður sjómaður, og hann var einn þeirra, sem gerðist sjálf- boðaliði á vegum Rauða krossins við að útvega vegalausu fólki úr Vestmannaeyjum húsnæði. Að þvl vann hann kauplaust I tólf til Frá Kristilega Sjómannastarfinu Kristilegt Sjómannastarf hefur opnaðskrifstofuað Vesturgötu 19, og verður hún opin fyrst um sinn klukkan 15-17. Simi skrifstof- unnar er 11234. Þar verða veittar ýmsar upplýsingar, er sjómenn varða, greitt fyrir pósti, ef óskað er, veitt aðstaða til þess að skrifa bréf, lesa blöð og fleira Kristilega Sjómannastarfið. fjórtán stundir á dag, stöku sinnum jafnvel lengur, á meðan Rauði krossinn hafði meðalgöngu um útvegun húsnæðis. Sjálfur var Karl i leiguibúð hjá manni, sem upprunninn er i Vestmanna- eyjum. tbúðareigandinn á húsnæðislausa vini og vanda- menn meðal fólks úr Eyjum, og nú hefur hitzt svo á, að sjálfboða- liðanum, sem vann dögum saman eins og hann orkaði að útvegun húsnæðis handa öðrum, hefur verið sagt upp leigunni, svo að hann stendur uppi húsnæðislaus sjálfur með konu og fjögur börn. — Ég hefði auðvitað getað notað mér aðstöðu mina við þessa húsnæðismiðlun til þess að krækja mér sjálfum i húsnæði, sagði Karl við Timann. En það hvarflaði ekki að mér, þvi að það hefði verið misnotkun á hjálpar- og trúnaðarstarfi. Ég fer ekki heldur meö þetta i blöð vegna þess, að ég sé að ásaka einn eða neinn, þó að ég hafi orðið hart úti En megi ég biðja Timann að reyna að greiða fyrir mér, sem þó vann kauplaust hjálparstarf eins og ég bezt megnaði, þá er sima- númer mitt 32446. —Þetta er allt satt og rétt, sagði Sigurbjörn Astvaldur Frið- Fannst látinn í Njarðvíkurhöfn Klp—Reykjavik. Á sunnudaginn fannst lik i höfninni i Njarð- vikum. Reyndist það vera af 63 ára gömlum manni, Ingva Guðmundssyni, sem var skipverji á vélbátnum Hennesi Lóðs RE 15. Talið er, að maðurinn hafi fallið i höfnina, þegar hann var að fara um borð i bátinn. Málið er nú i rannsókn lögregl- unnar á Keflavikurflug- velli. Fóstureyðingar Framhald af bls. 20. Gerðardómur tekinn til starfa ÞÓ—Reykjavik Eins og skýrt hefur verið frá, var gerðardómur skipaður i deilu vélgæzlumanna i frystihúsum á Reykjavikursvæðinu og atvinnu- rekenda. Gerðardómurinn, sem er skipaður þrem mönnum frá Hæstarétti, hefur nú komið saman til starfa, og fer nú fram gagnasöfnun i málinu. Ólafur Jónsson, framkvæmda- stjóri Vinnuveitendasambands tslands, sagði i gær, að enn væri ekki vitað.hvenær dómur yrði upp kveðinn, en menn væntu að þess yrði ekki langt að biða. Gleymið ekki ekkjunum fjórum Eins og kunnugt er, fórust i sið- ustu viku fjórir ungir fjölskyldu- menn með vélbátnum Mariu. Eftir sitja ekkjur með tiu börn I ómegð. Nú um þær mundir, er svo viða eru hendur fram réttar til hjálp- ar, er vonandi að ekki gleymist ekkjurnar fjórar, sem misstu eig- inmenn sina og fyrirvinnu heim- ila sinna með svo sviplegum hætti. Samkvæmt lögum vofir allt að 10 ár fangelsi og hálfrar annarrar milljón Isl. kr. sekt yfir höfði læknanna. Samkvæmt fregnum frá yfirvöldum dómsmála mun þó tæpast nokkuð gert gegn þeim. t blöðum i Frakklandi geisa harðar deilur um fóstureyðingar. Yfirvöld láta litið til sin heyra um málið-Dómsmálaráðuneytið lýsti þvi þó yfir i gær, að rikisstjórn- inni væri ljóst, að nauðsynlegt væri að laga fóstureyðingalög- gjöfina að þróun læknavisindanna og löggjöf annarra landa. Hraunbrúnin • Framhald af bls. í. sagði i samtali við blaðið i gær- kvöldi, að fimm sentimetra jafn- fallið öskulag hefði bætzt við i bænum i gær. Visindamennirnir notuðu þak sjúkrahússins sem mælingastað, en það er flatt, og i fyrradag var öl aska hreinsuð af þvi, þannig að það var spegilfægt þegar öskufallið byrjaði i gær. Hann sagði einnig, að vikur- regnið væri nokkuð mismunandi, mest væri það i vindkviðunum, en allhvasst var i Eyjum i gær. Búizt var við, að öskuregnið hætti, er liði á kvöldið, en spáð var suð- vestan átt i Eyjum, þegar liði á nóttina. Er hægt? Framhald af 15. síöu. Það kom mjög spanskt fyrir sjónir, að Asgeiri Elias- syni, einum bezta leikmanni landsliðsins i þessum leik, var kiptt út af i hálfleik fyrir Helga Ragnarsson, FH. Við þessa breytingu opnaðist miðjan og mesti krafturinn fór úr landsliðinu. riksson, deildarstjóri hjá Rauða krossinum, er við snerum okkur til hans. Þessi maður vann einmitt á minum vegum af mestu ósérplægni, og nú er hann sjálfur senn á götunni. Framhald af bls. 20-. Loðnan Grindvikingur fyllti sig til dæmis i einu kasti, en báturinn tekur 350 tonn. Nú munu vera 50-60 bátar á loðnuveiðum, sagði Hjálmar, og á miöunum eru ekki nema 10 bátar, eða svo, sem reyna nú að fá i sig, en brælu var spáð á miðunum i gærkvöldi. Arni Friðriksson fór norður með Austf jöröunum i gær- morgun, og hugaði að loðnu- göngu þeirri,, sem er önnur i röðinni. Fannst hún 32-45 sjómilur úti af Austfjörðum og að sögn Hjálmars virtist þar vera mjög mikið loðnumagn á ferðinni. Benedikt Guttormsson i Nes- kaupstað sagöi, að Sildarvinnslan h.f hefði tekið á móti 9000 tonnum af loðnu og væru nú þrær verk- smiðjunnar fullar og komin lönd- unarbið. Bræðsla gengur mjög vel, og bræðir verksmiðjan um 800 tonn á sólarhring. Hann sagði, að i gær hefðu komið þrir bátar til Neskaupstaðar og úr einum þeirra hefði verið fryst nokkurt magn af loðnu. Þá er einnig mikið að gera i frysti- húsinu, en skuttogarinn Barði hefur fiskað með ágætum að undanförnu. Búið er að taka vélbátinn Reykjanes GK i slipp i Neskaup- stað, en sem kunnugt er, strandaði báturinn við Hvalbak fyrir 10 dögum. Botn bátsins er mjög illa farinn, og jafnvel er talið.aðalgjörlegaverði að skipta um botn i bátnum. Þess vegna er óhætt að afskrifa Reykjanes frá fiskveiðum næstu mánuðina. Að sögn Marinós Sigurbjörns- sonar á Reyðarfirði komu þangað fimm bátar i gær, og allir voru með fullfermi. Brætt er af fullum krafti á Reyðarfirði og tankur losnar á morgun, sem tekur þrjá góða loðnufarma. Björn Kristjánsson á Stöðvar- firði sagði, að þangað hefðu borizt 3900 tonn af loðnu, ekkert löndunarpláss losnaði þar fyrr en á fimmtudag, en þá losnar 700 lesta tankur. Hann sagði, að i frystihúsinu væri stanzlaust unnið að þvi að frysta loðnu, og i fyrradag sóttu Stöðvfirðingar loðnu á bilumtil Fáskrúðsfjarðar sem siðan var verið að frysta i fyrrinótt og i gær. Komið hefur til tals að frysta á vöktum á Stöðvarfirði, og verður það gert, ef með þarf. Helzt er það mann- ekla, sem stendur i veginum fyrir þvi. Bátarnir hafa komið hingað drekkhlaðnir, sagði Hilmar Thorarensen á Eskifirði. Fjórir bátar biða löndunar, og þegar búið verður að landa úr þeim, hefur sildarverksmiðjan tekið á móti ellefuþúsund tonnum. Búið er að frysta 100 tonn af loðnu til beitu, sem fer á innan- landsmarkað, og i gær voru fryst 70 tonn. sem eiga að fara til Japans. Að sögn Hilmars er atvinna á Eskifirði mjög mikil og verk- stjórinn i frystihúsinu hafði ekki farið heim til sin i tvo sólar- hringa, nema rétt aðeins til að fá sér að borða. Aðkomufólk streymir nú til Eskifjarðar, og vitað er um tvenn hjón frá Vest- mannaeyjum, sem þangað eru komin, en að auki er komið fólk frá Reykjavik, Akureyri og viðar að til að taka þátt i loðnuævin- týrinu. Ennfremur sagði hann, að það væri fleira enloðnan.sem þyrfti að vinna. Skuttogarinn Hólma- tindur hefur afíað vel, og kemur hann með fisk til löndunar siðari hluta vikunnar, er siðast fréttist, hafði veiðiferðin gengið að óskum hjá Hólmatindi. Hingað voru komnir sjö bátar um hádegi, sagði Ingimundur Hjálmarsson á Seyðisfirði. Þeir voru allir með fullfermi og með kvöldinu var von á fleiri bátum.... Hann sagði, að búið væri að landa 6100 lestum hjá Sildarverk- smiðju rikisins og var gert ráð fvrir bvi, að lokið yrði viðaðfylla þrær verksmiðjunnar i nótt. Tankarnir hjá Hafsfld voru fullir, en þar var þó að losna 800 tonna pláss, sem hrekkur þó skammt. Búið er að landa um 12 tonnum á Seyðisfirði. Þá kom skuttogarinn Gullver til Seyðisfjarðar i gær með um 80 tonn af góðum fiski. A Djúpavogi er búið að landa 3200 lestum af loðnu, að sögn fréttaritara Timans þar, Þórarins Pálmasonar. Nokkur löndunarbið er nú á Djúpavogi og einn bátur lá i höfninni i gær. Þessi bátur, Faxi GK, átti að fá löndun i dag. Linubátar frá Djúpavogi hafa aflað vel, hafa þeir fengið allt að sjö lestum i róðri á 30 bjóð. Afli rækjubátanna hefur ekki verið alveg eins góður, þeir hafa fengið kringum 300 lestir i róðri. „Þvi miður er ekki farið að undirbúa loðnumóttöku hér á staðnum”, sagði Steingrimur Sæmundsson á Vopnafirði, þegar við ræddum við hann og spurðum, hvort Vopnfirðingar væru ekki tilbúnir að taka á móti loðnu, þar sem allar þrær væru fullar á Suðurfjörðunum. Hann sagði, að margir á Vopnafirði væntu þess, að for- ráðamenn sildarverksmiðjunnar þar létu undirbúa hana undir loðnumóttöku, en verksmiðjan getur brætt 700 lestir á sólar- hring. Ef hún færi i gang, fengju þar 40 manns vinnu, einnig mætti frysta mikið magn af loðnu á Vopnafirði, þvi frystihúsið væri gott. — Það fer varla á milli mála, að loðnan gæti orðið mikil lyftistöng fyrir Vopnfirðinga, en þar voru 100 manns atvinnulausir um slðustu áramót. Til tœkifœris gM'a Demantshringar Steinhringar GULL OG SILFUR fyrir dömur og herra Gullarmhönd ^ Hnappar Hálsmen o. fl. Sent i póstkröfu vs GUDMUNDUR y| ÞORSTEI NSSON gullsmiður ^ ~ Bankastræti 12 Sími 14007 JpS BÍLSTJÓRARNIR AÐSTOÐA SC.NÐIBIL ASTÖÐIN Hf EINGÖNGU GÓÐIR BÍLAR SKIPAÚTGCRÐ RÍKISINS M/S ESJA fer vestur um land i hringferð miðvikudaginn 7. febrúar. Vörumóttaka til há- degis i dag til Vestfjarða- hafna, Norðurfjarðar, Siglu- fjarðar, ólafsfjarðar, Akur- eyrar, Húsavikur, Raufar- hafnar, Þórshafnar, Bakkafjarðar og Vopna- fjarðar. Damask sængurfatnaður i sængurver 4 m. 505/- i sængurver 4 m. 610/- i kodda 0,7 m. 90/- i kodda 0,7 m. 105/- i lök 2,2 m. 275/- Dúnhelt 4 m. 1260/- Dúnh. 0.7 m. 220/- Sendi gegn póstkröfu. LITLISKÓGUR Snorrabraut 22 simi 25644. Er þér kalt kona? Sokkabuxur ull/nylon XL kr. 400/- Nylon/orlon kr. 345/- Sendum i Póstkröfu LITLISKÓGUR Snorrabraut 22 Simi 25644. Hálfnað erverk þá hafið er Jfi llll 1 ' ‘ sparnaður skapar verðmæti ^ Samvinnubankinn y~-----ví JER Jón E. Ragnarsson LÖGMAÐUR Laugavegi 3 • Sími 17200 P. O. Box 579 -----------------Á GiiflJöiv Stybkábssoií hæstaréttarlögmaður Aðalstræti 9 — Simi 1-83-54 Bifreiða- viðgerðir Fljótt og vel af hendi leyst. Reynið viðskiptin. Bifreiðastillingin Siðumúla 23, simi 81330. —............ Tlmitmer • peningar IMMIMMMMMM

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.