Tíminn - 27.03.1973, Blaðsíða 2
2
TÍMINN
Þriðjudagur 27. marz. 1973
-=-25555
.^14444
wmifí
BILALEIGA
IIVEUFISGÖTU 103
VWSendiferðabifreið-VW 5 manna-VWsvefnvagn
VW 9manna-Landrover 7manna
Húseigendur — Umróðamenn fasteigna
Við önnumst samkvæmt tilboðum hvers konar þéttingar á
steinþökum og lekasprungum i veggjum. Höfum á liðnum árum
annast verkefni m.a. fyrir skólabyggingar, sjúkrahús, félags-
heimili, hótel, ásamt fyrir hundruð einstaklinga um allt land.
Tökum verk hvar sem er á landinu. 10 ára ábyrgðarskirteini. Skrifið
eöa hringið eftir upplýsingum.
Verktakafélagið Tindur
Sími 40258 — Pósthólf 32 — Kópavogi.
Tilkynning til
bifreiðaeigenda
í Reykjavík
Að gefnu tilefni tilkynnist, að eindagi
bifreiðagjalda er ekki bundinn við skoðun
bifreiðar.
Eindagi þungaskatts og annarra bifreiðagjalda ársins
1973 er 31. marz næstkomandi. Bifreiðaeigendur i Reykja-
vik eru hvattir til að greiða bifreiðagjöldin fyrir 1. aprfl,
svo komist verði hjá stöðvun bifreiðar og frekari inn-
heimtuaðgerðum.
Tollstjórinn i Reykjavik.
Sorpíldt — Plastpokar
Tilboð óskast i framleiðslu á sorpgrind-
um, kössum og plastpokum til notkunar
við ibúðarhús o.fl. staði.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGAHTÖNI 7 SÍMl 26844
Húsmæðrafundurinn
Húsmæðrafélag Reykjavikur
hélt nýlega fund hér I höfuðborg-
inni, og tilefnið var að þessu sinni
hækkunin á landbúnaðarafurð-
um.
Aberandi konur á fundi þessum
komu með þá uppástungu, að
húsmæður hættu að kaupa land-
búnaðarafurðir nema aðra hverja
viku, og var mjólkin þar auðvitað
meðtalin.
Það flögraði að mér hvort ein-
hverjar af þessum leiðandi
konum i félaginu væru kannski
hluthafar I gosdrykkjaverk-
smiðju, þvi að hægt er að ganga
út frá þvi sem gefnu ef mæðurnar
afskrifa mjólkina, að þá eykst
salan á kókinu og öðrum slikum
miður hollum drykkjarföngum,
sem þá mun sennilega verða aðal
drykkur barna og uppvaxandi
ungmenna. Reyndar benti ein af
forustukonum félagsins á ávaxta-
safa, þegar hún var spurð I há-
degisfréttum útvarpsins s.l.
laugardag hvað ætti að koma I
stað mjólkur. En þessi innflutti
safi, sem oft er hnausþykk sykur-
leðja, er rándýr, 3-4 pela flaska
kostar um 100 krónur, — sama
upphæð og greidd er fyrir 5 litra
af mjólk.
Mér er um það kunnugt, að
„gosið” er á mörgum heimilum
orðið óhugnanlega stór útgjalda-
liður, en á það er aldrei minnzt.
— kók eða mjólk?
eða yfir þvi kvartað, þótt pottur-
inn kosti um 40 krónur.
Mjólkin er sá heilsugjafi sem
nauðsynlegur er ungbörnum og
þeim sem upp eru að vaxa. 1
henni eru þau efni sem likaminn
getur trauðla án verið til viðhalds
vexti og góðri heilsu, og allir vita
að ungbörnum er hún lifsnauð-
syn. En nú skora sjáfar húsmæð-
urnar hver á aðra að bannfæra
mjólkina aðra hverja viku. Hvað
hyggjast þá þær mæður, sem eftir
þessum áskorunum fara, gefa
börnum sinum að drekka?
Kannski Coca Cola og annað
slikt?
Um þessa drykki hefur töluvert
verið ritað, m.a. að sumir þeirra
séu kalkeyðandi og skaði tenn-
urnar. Lika að þeir geti orðið
ávanadrykkir.sem kveiki löngun i
annað sterkara með timanum.
Hryggilegt er að sjá allt það
magn, sem keypt er af sliku i
verzlunum þeim, sem ég skipti
við. Og oft eru sendisveinarnir I
slíkum flutningum, og risa varla
undir. Litinn dreng sá ég nýlega
með stóran netpoka hlaðinn kóki.
Gat hann varla bifað pokanum.
Loks tókst drengnum með hjálp
vegfarenda að koma honum á
bakið. Innihald pokans hefur
áreiðanlega kostað tugi króna.
Það er reyndar furðulegt hve
ýmis heimili eru ósink á fé, þegar
gosdrykkjasullið er annars
vegar.
Ég álit að fyrirliöarnir i
Húsmæðrafélaginu ættu frekar að
halda eggjunarfund þar sem þeir
brýndu fyrur mæðrunum að tak-
marka mjög gosdrykkjaneyzlu
heimilanna — helzt að „gosið”
hyrfi alveg af matborðum. Slikur
fundur yrði konunum til sóma.
Hér eru framleiddar úrvals
landbúnaðarvörur, og margar
hverjar ódýrari en i nágranna-
löndum okkar. t stað þeirra vilja
þessar félagskonur frekar styðja
erlenda matvælaframleiðslu,
hætta t.d. að kaupa kartöflurnar
sem hér eru ræktaðar, en kaupa
þess I stað erlent hvitkál, gulræt-
ur og hrisgrjón með fiskinum, en
hann hefur ekki verið bannfærður
ennþá af Húsmæðrafélaginu svo
ég viti til, þrátt fyrir mjög mikla
hækkun á honum, allt upp i 60%,
eða meira. En kannski að næsti
fundur fjalli um fiskhækkunina.
Og ekki má gleyma dýru súpu-
pökkunum, sem áreiðanlega kom
i stað skyrsins góða og holla.
Annars væri ef til vill vænleg-
asta ráðið til þess að sefa
óánægjuraddirnar i Húsmæðra-
félaginu, að setja sérstakan skatt
á alla gosdrykki, sem notaður
yrðitil niðurgreiðslu á mjólkinni.
Að þessu ætti félagið að stefna.
Það skyldi enginn gera at-
hugasemd, eða kvarta, þótt inni-
hald litillar kókflösku yrði selt á
15 krónur, eða 60 krónur literinn.
Húsmóðir.
JOHNS-MANVILLE
glerullar-
9 einangrun
er nú sem fyrr vinsælasta og öruggasta glerull-
areinangrun á markaðnum í dag. Auk þess fáið
þér frían álpappír með. Hagkvæmasta
einangrunarefnið í flutningi. Jafnvel flugfragt
borgar sig.
Munið Johns-Manville í alla einangrun.
Hagkvæmir greiðsluskilmálar.
Sendum hvert á land sem er.
Jl!
■■■■■■■■■■■■■■■■■■
JON LOFTSSON HF.
Hringbrau* 121 . Sími 10-600
Hjólbarða-
viðgerðir
Hjólbarða-
sólun
Sala
á
sóluðum
hjólbörðum
SSARÐINNf
la 7 • Reykjavík • Sími 30501
Verkstæðið opið
alla daga kl. 7,30-22,00
nema sunnudaga
Snjómunstur
fyrir
1000X20
1100X20
M
Inl
e«i
Vesfmannaeyingar!
M
m Steingrímur Benediktsson
gullsmiður
64
M
C<I
M
fr«I
Inl
M
hefur fengið aðstöðu í
GULLSMÍÐAVERKSTÆÐI
ÓLAFS G. JÓSEFSSONAR
óðinsgötu 7 — Rafhahúsinu
Sími 20-0-32
Trúlofunarhringar
Fjölbreytt úrval af gjafavör-
um úr gulli, silfri, pletti, tini o.fL
Onnumst viðgerðir á skartgirp-
um. — Sendum gegn póstkröfu.
GULLSMiÐAVERKSTÆÐI
ÓLAFS G. JÓSEFSSONAR
óðrnsgöfu 7 — Rafhahúsinu